Morgunblaðið - 12.06.1986, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 12.06.1986, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR12. JÚNÍ1986 Ózonlagið: Rannsóknir styðja fyrri kenning’ar Vísindamenn mjög svartsýnir Washingfton, AP. NÝJAR rannsóknir renna nú stoðum undir þann grun manna að óæskilegar veðurfarsbreyt- ingar muni fylgja í kjölfar minnkandi ózons í lofthjúpnum. Vísindamenn vöruðu við því, nú á þriðjudaginn, að veðurfarsbreyt- ingar þær, sem nefndar hafa verið „gróðurhússáhrifin", væru þegar hafnar og væri fyllsta ástæða til þess að fylgjast með frekari loft- lagsbreytingum. Rannsóknir sýna að ózonmagn yfir Suðurheimskautslandinu hefur minnkað verulega á undanfömum árum og telja vísindamenn að því muni fylgja hækkandi hitastig á jörðu. Stuttur tími myndi líða frá slíkri breytingu þar til að flóð, Snjóaði áSkota Glasgow, AP. RÚMLEGA fímmtán sentimetra jafnfallinn snjór þakti megin- hluta norðaustur Skotlands á þriðjudag og urðu ýmsar tmfl- anir og tafír vegna þessa veður- lags, sem er óvenjulegt í meira lagi undir miðjan júnímánuð. Enn meira snjóaði nyrzt í Skot- landi. Veðurfræðingar í Skotlandi sögðust ekki geta tjáð sig um hvort þetta væri síðasti snjór liðins vetrar eða fyrsti snjór hins næsta. þurrkar og önnur óáran myndi ganga yfír jörðu. Ef ekkert yrði aðhafst gæti mannkyn jafnvel dáið út. „Ég tel að hækkandi hitastig um alla jörðu sé óumflýjanlegt. Spum- ingin snýst um það hversu mikil hækkunin verður og hvenær," sagði Robert Watson í skýrslu sinni, til umhverfísmálanefndar bandarísku öldungadeildarinnar. Watson er framkvæmdastjóri þeirrar deildar NASA, sem hefur efri lög loft- hjúpsins á sinni könnu. Hann sagði að búast mætti við miklum breyt- ingum á næstu áratugum og spáði því að hitastigið kynni að hækka um allt að 5,5 stig á Celsius. Það kann ekki að virðast mikil hækkun, en hún myndi þó hafa gífurleg áhrif á veðurfar um allan heim og þar af leiðandi á mannkyn. Forstöðumaður Goddard-stofn- unarinnar, James Hansen, sagði að hitastig yrði um 1,1 gráðu hærra eftir 20 ár, en jafnheitt hefur ekki verið á jörðunni, í um 100.000 ár. Sherwood Rowland, sem er efna- fræðiprófessor við Kalífomíuhá- skóla, sagði að ef „gróðurhúsáhrif- in“ héldust óbreytt áfram, myndi hitastig hækka svo, að mannkyn myndi þurrkast út á 500 til 1.000 ámm. Það sem veldur þessari eyðingu ózonsins er mengun lofthjúpsins. Þau efni sem mest áhrif hafa eru klórflúrkolefni, koltvísýringur, met- an og nituroxíð, sem reyndar er betur þekkt sem hláturgas. Þessi efni safnast fyrir í efstu lögum lofthjúpsins, eyða ózoninu og valda því að jörðin endurvarpar minni hita frá sér. Andrúmsloftið hitnar því og veldur þurrkum sums staðar, en hækkandi sjávarmáli annars staðar, þar sem heimskautaísinn og jöklar bráðna þó nokkuð. Þá mun húðkrabbi aukast verulega, þar sem útfjólublá geislun á greiðari að- gang, þegar ózonlagið þynnist. Vísindamennimir sögðu að þessi þróun héldi áfram og ykist hættan fremur en hitt. Athygli manna beindist ekki að þessum þætti umhverfísmengunar fyrr en 1974, en þá gaf Rowland út ritgerð um þetta efni. Nú hafa verið birtar niðurstöður rannsókna á loftsam- setningu yfír Suðurheimskauts- landinu, undanfarin fímm ár. Þær sýna að ózonmagnið hefur minnkað um 30-50% og er þó ekki loft- menguninni fyrir að fara þar. Vís- indamennimir sögðu að loftmengun yrði að minnka með einhveijum hætti, ef snúa ætti þessari óheilla- þróun við. En hingað til hafa stjóm- völd annars staðar en í Bandaríkj- unum reynst treg til þess að gera umtalsverðar ráðstafanir. Að lokum sögðu vísindamennim- ir að nú þegar væm komin fram uggvænleg áhrif loftmengunnar og ef ekkert yrði aðhafst yrðu breyt- ingamar enn til hins verra. Gulko ogfjölskylda íísrael Sovéski skákmeistarinn Boris Gulko sést hér ásamt Önnu konu sinni og Davíð, 7 ára syni þeirra við komuna til ísraels á dögun- um. Þau höfðu reynt í sjö ár að fá leyfi til að flytjast úr landi í Sovétríkjunum. Þau eru bæði stærðfræðingar að mennt og munu væntanlega starfa við greinar sínar í ísrael. Þau hafa lagt stund á hebreskunám sl. ár og eru því allvel undirbúin að setjast að í hinum nýju heimkynnum. Hittast utanríkisráðherr- ar Iraks og Sýrlands? Washington, AP. UTANRÍKISRÁÐHERRAR Sýrlands og íraks ætla að hittast á föstu- dag til að reyna að ná sáttum milli ríkjanna og undirbúa þjóðhöfð- ingjafund íraks og Sýrlands, að þvi er Hussein Jórdaníukonungur sagði í viðtali við bandaríska blaðið Washington Postá miðvikudag. Geislunin í Kotka í Finnlandi: Biluð mælitæki sýndu allt of háa niðurstöðu Helsinki, AP. GEISLAVARNASTOFNUN Finnlands hefur kennt biluðum mælitækjum um, að óvenjulega mikil geislun mældist i eftirlits- stöð nálægt landamærum Finn- lands og Sovétríkjanna. í tilkjmningu stjómvalda, sem send var út athugasemdalaust, var ekki skýrt frá því, hvers vegna embættismenn fullyrtu á þriðjudag, að mælitækin væm í lagi. „Eftir því sem næst verður komist, er líklegasta skýringin á þessari háu útkomu mælingarinnar í Kotka sú, að mælitækin hafí verið biluð", sagði í tilkynningunni. „Aukningin, sem mældist á Kotka- svæðinu 9. júní sl., kann að hafa stafað frá veðurskilyrðum og breyt- ingum á eðlilegri gmnngeislun." Fundurinn á að vera haldinn á landamæmm ríkjanna en staðurinn var ekki nánar tilgreindur. Hussein sagði að fundurinn hefði verið ákveðinn eftir að hann hefði rætt við þjóðarleiðtoga beggja ríkja og forsætisráðherra hans, Zaid Rifai, fór til Aþenu á meðan Assad Sýr- landsforseti var þar í heimsókn, og ræddi við hann. Jórdaníukonungur sagði að tækjust sættir með írökum og Sýrlendingum mjmdu arabaþjóð- imar losna úr þeirri kreppu og stjómarstöðu sem þær hefðu verið í lengi. Eins og alkunna er hefur fullur fjandskapur ríkt milli þjóðanna tveggja um langa hríð. Sýrlending- ar hafa hins vegar stutt írani og veitt þeim óbeina aðstoð í stríðinu við íraka. Síðustu mánuði hafa samskipti Sýrlendinga og írans kólnað eftir að íran hætti við að senda skips- farma af niðurgreiddri olíu til Sýr- lands. Samtímis hefur andrúmsloft- ið batnað milli ráðamanna Sýrlands og Jórdaníu. Jórdanir hafa stutt íraka og því hefur þessi þíða leitt til að ríkin þijú hafa nálgast á ný. Á fundi utanríkisráðherra Araba- bandalagsins í Fes í Marokkó í byijun maí taldist það til tíðinda að utanríkisráðherrar Sýrlands og íraks héldu með sér sérstakan fund. TRYGGIÐ ORYGGI YKKAR Kúbustjórn sleppir föngum Washlngton, AP. KÚBÖNSK stjórnvöld hafa látið lausa að minnsta kosti 17 pólitíska fanga að sögn Bemards Kalb, talsmanns bandariska utanrikisráðu- neytisins. Enginn þeirra mun að svo stöddu fá landvistarleyfi i Bandaríkjunum, þar sem Kúbumenn hafa rift fyrra samkomulagi þjóðanna varðandi slík mál. ALLT FYRIR ÖRYGGIÐ Öryggisbelti, -blakkir, -hjálmar, -skór, -stígvél. Heyrnarhlífar, andlitshlífar, -grímur, -síur og hanskar. Viðurkenndur öryggis- og hlífðarbúnaður. Skeifan 3h VHJAKDI Samkomulagið skuldbatt Kúbu- menn til að taka aftur við þeim flóttamönnum, sem sekir voru um almenna glæpi í heimalandi sínu. Bandaríkin myndu hins vegar taka við pólitískum flóttamönnum. Kúba rifti samkomulaginu er útvarps- stöðin Radio Marti hóf útsendingar frá Florida árið 1985. Stöðin er fjár- mögnuð af Bandarílqastjóm. Franski djúphafskönnuðurinn Jacques Cousteau var frumkvöðull þess, að fangamir voru látnir lausir. Sími 82670 Unnu 240 milljón- ir í happdrætti Trenton, New Jersey, AP. HJÓNIN Anthony Janeiro og Josephine, eiginkona hans, duttu heldur betur f lukkupottinn er þau unnu tæpar sex milljónir dollara — jafnvirði um 240 milljóna ís- lenskra króna — á happdrættis- miða sem þau höfðu keypt sitt í hvom lagi og án þess að vita um að hitt hefði fest kaup á miða. Að auki vom þetta einu vinnings- miðamir sem upp komu þegar dregið var. Útgefíiir miðar vom 4,5 milljónir. Hjónin hafa ekki gert upp við sig hvemig þau ætla að veija fénu. Þau em á sjötugsaldri og hafa verið gift í 45 ár, að sögn AP-fréttastofunnar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.