Morgunblaðið - 12.06.1986, Side 34

Morgunblaðið - 12.06.1986, Side 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR12. JÚNÍ1986 „Myndlestur jafn mikilvæg- ur og lestur skrifaðs texta“ - segír Jens Kostrup á endurmenntunarnámskeiði með grunnskólakennurum Kennaraháskólinn heldur nú endurmenntunarnámskeið fyr- ir starfandi kennara líkt og undanfarin sumur. Að sögn Pálínu Jónsdóttur endurmennt- unarstjóra verða 30 námskeið haldin nú í júní og ágúst. í sið- ustu viku var haldið námskeið i myndlestri og annað um jafna stöðu kynjanna. í þessari viku stendur yfir fræðslunámskeið um þróunarlönd, íslenskunám- skeið, grunnnámskeið um tölvunotkun, sjóvinnunámskeið og námskeið fyrir kennara i 7-9 bekk. Myndlestur er hugtak sem fáir kannast við hér á landi. „Því hefur verið haldið fram að það sé mun auðveldara að lesa myndir en texta, en þetta námskeið var haldið til að benda á mikilvægi myndmálsins", segir Jens Kost- rup, sem hélt námskeiðið í síðustu viku. „Við lifum á öld myndarinn- ar, kvikmyndir, sjónvarp, mynd- bönd og fleira eru hluti af daglegu lífi okkar. Fram til þessa höfum við þó lagt mjög litla áherslu á þetta í skólakerfinu, en myndir hafa mikil áhrif á hugmyndaheim bama og tilfinningalíf. Því teljum við orðið nauðsynlegt að Qalla um merkingu og lestur mynda í skóla- kerfinu." — Hvemig fer myndlestur fram? „Við emm farin að skipta námsefninu í texta sem skiptist í myndmál og skrifað mál. Hver mynd hefur einhverja augljósa merkingu, á myndinni eru t.d. ákveðin tákn svo sem persónur sem auðvelt er að ráða í, en að baki hinnar augljósu merkingar liggur dýpri merking sem við reynum einnig að lesa úr. Auglýs- ingamyndir eru t.d. gott dæmi um þetta, við reynum að átta okkur á því sem gerist innra með fólki þegar það sér auglýsingamyndir, hvað veldur þörf til að kaupa eitthvað þegar sú þörf var ekki til staðar áður en myndin var skoðuð. Hvaða tilfinningar vilja þeir vekja upp sem búa til auglýs- ingamynd? Þetta erum við að íjalla um hér, bendum kennurun- um á leiðir til að kanna merkingu mynda með nemendum sínum. Myndir gefa bömum einnig tækifæri til að tjá sig og ræða málin, og myndimar kveikja gjaman hugmyndir hjá þeim, myndir falla oft vel að ýmis konar hópvinnu. Við höfum gert ýmsar tilraunir með þetta hér á nám- skeiðinu, það er t.d. hægt að yrkja ljóð eftir myndum og á veggjunum héma í stofunni eru nokkur sýnis- Morgunblaöið/Bjami „Myndir hafa mikil áhrif á hugmyndaheim barna og til- finningalíf." hom af ljóðum sem ort eru við ákveðnar myndir. Þetta er ein leiðin til að túlka merkingu mynd- anna, en auk þess reynum við að túlka myndimar með skrifuðum texta eða leikrænni tjáningu." Jens segir að myndlestur sé talinn jafn mikilvægur og lestur skrifaðs texta í Danmörku og víða á Norðurlöndunum, og sl. 10 ár hafa nemendur tekið skrifleg próf í því að útskýra og túlka merkingu mynda. „Við reynum að kenna bömun- um að vera virkir áhorfendur mynda, leggjum áherslu á að myndimar séu ekki stóri sannleik- ur heldur séu þær einungis brot af sannleikanum. Þegar mynd birtist t.d. í dagblaði, hefur ljós- myndarinn válið hvemig hann myndar viðfangsefnið, síðan er valið úr þeim myndum sem hann hefur tekið. Mynd getur verið hluti af raunveruleikanum, en lýs- ir jafnframt ákveðnu vali sem hefur farið fram.“ Meðal verkefna sem Kostrup lagði fýrir kennarana á námskeið- inu voru myndir sem hann sagði að væra forsíða bókar. Kennar- amir fengu engar frekari upplýs- ingar, en áttu að segja hver titill bókarinnar væri, hvað væri sagt á baksíðunni og hvert efni bókar- innar væri í örfáum orðum. „Hug- myndaheimur okkar er ólíkur, Danir og íslendingar era t.d. tals- vert ólíkir, en öll búum við yfir sömu grandvallarhugmyndum sem menn, og því oft talsvert samræmi í því sem kom út úr þessum verkefnum." Landsfundur Samtaka um jafnrétti milli landshluta STYRKTARFÉLAG Staðarfells gengst fyrir Jónsmessuhátíð að Staðarfelli helgina 27.-29. júní. M.a. munu landsfrægir skemmti- kraftar verða á svæðinu, hljóm- sveitin Goðgá leikur fyrir dansi, farið verður í leiki auk annarra uppákoma. Veitingar verða á svæð- inu alla mótsdagana. Forsala aðgöngumiða fer fram í Djúpinu, Hafnarstræti, helgina 21.—22. júní. Nánari upplýsingar era veittar í símum 29555 og 79215. Árshátíð Nemenda- sambands Laugarvatns- stúdenta Arshátíð Nemendasambands Laugarvatnsstúdenta verður haldin samkvæmt venju þann 16. júní nk. Að þessu sinni verður hún haldin í Lækjarhvammi, Hótel Sögu og verður það nánar auglýst í blöðum og útvarpi. Félagar í nemendasambandinu era allir þeir sem útskrifast hafa frá Menntaskólanum að Laugar- vatni en þeir era um 965 frá upp- hafi, en fyrstu stúdentamir vora útskrifaðir 1953. Ráðstefna norrænna tölvumiðstöðva: Stefnum hraðbyri inn í upplýsingaþjóðfélag RÁÐSTEFNAN „Nordisk kommunal datakonference" var haldin í Reykjavík um helgina og byrjun vikunnar. Þátttakendur voru frá öllum norðurlöndunum, starfsmenn tölvumiðstöðva rikis og sveitarfé- laga; og stjórnmálamenn. Skýrsluvélar rikisins og Reykjavíkurborgar (SKYRR) og Tölvuþjónusta sveitarfélaganna skipulögðu ráðstefnuna af íslands hálfu. Að sögn Jóns Þórs Þórhallssonar, forstjóra SKÝRR, er tilgangur hennar að ræða sameiginleg hagsmunamál tölvumið- stöðvanna og þróun þeirra á næstu árum. „Upplýsingaþjóðfélagið" var aðal umræðuefnið á ráðstefnunni. Fram- sögu um það hafði Dr. Herbert R. J. Grosch, sem þekktur er fyrir störf sín í tölvuiðnaðinum. Hann er stjörnufræðingur að mennt, vann lengi fyrir IBM, og ýmsar ríkis- stofnanir í Bandaríkjunum. Við hann er kennt lögmál sem útskýrir á einfaldan hátt sambandið milli verðs og afkasta tölvu. Á blaða- mannafundi á mánudag sagði Dr. Grosch það skoðun sína að við stefndum hraðbyri inn í hreinrækt- að upplýsingaþjóðfélag, þar sem þekking er auðæfi. Aukið upplýs- ingaflæði muni gera þjóðfélagið réttlátara, og gefa mönnum meiri möguleika. Hann brýndi fyrir ráð- stefnugestum að þeirra hlutverk yrði að stýra þessari þróun, til að „fómarlömbin", þ.e. hinn venjulegi maður, hefðu sem mest gagn af nýrri tækni. Vísindamennimir og framleiðendur myndu fyrst og fremst hugsa um skammtímamark- mið, að selja vöruna. Dr. Grosch sagði að hugvitið sem byggi í mannsheilanum yrði aldrei forritað í tölvu. Þetta ættu stjóm- endur sérstaklega að hafa í huga og fjárfesta frekar í fólki en vélum. Margt af því sem tölvufræðingar reyna nú að þróa, verður aldrei að veraleika taldi Dr. Grosh. „Gervi- greind hefur sama ókost og gervi- fijóvgun, hún er gjörsamlega ófull- nægjandi." Hann varaði jafnframt við upplýsingabönkum sem geymdu gögn um einkamál, og sagði að bandaríkjamenn hefðu þegar brennt sig illilega á misnotkun þeirra. „Trúið ekki blint á öryggi tölvu- kerfa og fullkomnun, þið verðið að gera ráð fyrir því versta. Hafið þau því sveigjanleg svo hægt sé að gera breytingar," sagði Dr. Grosch. Carl-Gerhard Sjölander, borgar- fulltrúi í Sandviken í Svíþjóð, hélt erindi um upplýsingaþjóðfélagið frá sjónarhóli sveitarstjómar. Sjölander er m.a. þekktur fyrir þátt sinn í „Sandviken-verkefninu", þar sem nýjustu tækni hefur verið beitt til að gera almenning að beinum þáttt- akanda í stjómun sveitarfélagsins. Önnur erindi ijölluðu m.a. um laga- lega hlið upplýsingabanka, notkun tölvutækninnar í heilsugæslu, og markaðssetningu upplýsinga. Um 350 manns sóttu ráðstefn- una, sem er sú 14. í röðinni. Síðast var hún haldin hér á landi árið 1976. Ráðstefnunni lauk á þriðju- dag. Elín Bjömsdóttir og nokkur verka hennar. V eggteppasýning’ í Þrastarlundi ELÍN Björasdóttir vefari sýnir handofin veggteppi í veitingastofunni Þrastarlundi til 24 juní. Elín hefur fengist við vefnað í rúm 30 ár og rekið vefstofu að Ásvallagötu 10A síðustu 13 ár. Þingeyrarkirkja MYND birtist af Þingeyrakirkju í Húnavatnssýlu á bls. 44 í Morgun- blaðinu hinn 1. júní síðastliðinn með frétt frá Þingeyri. Hlutaðeigendur era beðnir velvirðingar á þessum mistökum. Hér birtist hins vegar mynd af Þingeyrarkirkju í Dýrafirði. í baksýn er Sandfell. Norðurlanda- frímerki komin út Póstyfirvöld á Norðurlöndum hafa haft samstarf um útgáfu frímerkja raða með einhveiju sameiginlegu þema. Frímerki þessi koma út þriðja hvert ár og þann 27. maí í ár komu út merki með myndum frá hinum ýmsu vinabæjum. A íslensku merkjunum, sem era tvö, 10 og 12 kr. virði, era myndir frá Seyðisfirði og Stykkishólmi. Til að auðvelda söfnuram að panta seríuna í heild, frímerki hinna ýmsu landa eða fyrstadagsumslög var útbúið sérstakt umslag sem norska póstþjónustan sá um að þessu sinni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.