Morgunblaðið - 12.06.1986, Síða 40

Morgunblaðið - 12.06.1986, Síða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR12. JÚNÍ1986 -fegram húsín Nú er rétti tíminn. Eigum alls konar málningu. Utanhússsem innan. Einungis vönduð vara, góð vörumerki. Ráðgjöf - reynsla - vöruval Síðumúla 15, sími 84533 „Að hafa radarinn á og kunna að lesa á hannw - segir Magnús Gústafsson forsljóri Coldwater Magnús Gústafsson, forstjóri Coldwater í Bandarílqunum, hefur vakið mikla athygli að undanfömu fyrir ákveðnar skoðanir á markaðs- málum, aðbúnaðarmálum fiskverk- unarfólks og almennt á vinnustöð- um, en hann hefur flutt fyrirlestra sem bijóta blað í þessum efnum, ef tekið er fullt tillit til þess sem Magnús hefur fram að færa. Við hittum hann á aðalfundi Sölumið- stöðvar hraðfrystihúsanna á Akur- eyri í maflok og inntum frétta af markaðsmálum, framtíðarsýn í þeim efnum og möguleikum sem íslenzkt hráefni úr sjó hefur. Orðspor fyrir vörugæði Þegar þú spyrð um meðferð hrá- eftiisins, sagði Magnús, þá er rétt að byrja á því að við höfum haft á okkur orð fyrir að hafa góða vöru. En vara verður ekki góð nema hrá- efnið sé í góðu lagi. Ég hef lagt áherzlu á það að við kynnum okkur þarfír neytenda, skoðum sífellt dreifikerfið, vinnsluna og alla þætti. Á aðalfundi Sölumiðstöðvarinnar í fyrra rakti ég þessa þætti e.t.v. í öfugri röð. Eg byijaði á því að fjalla um þarfir neytendanna. Síðan tók ég dreifíkerfið fyrir, vinnsluna, fiskiskipin, frystihúsin, um borð í bátunum, en fyrst og fremst var lögð áherzla á það að úr trollinu, úr veiðarfærinu, yrði fiskurinn að koma. Og auðvitað gat ég ekki á mér setið og sagt að að sjálfsögðu væru mestar líkur á góðum afla úr veiðarfærum frá Hampiðjunni. 12000 manns að baki SH Ef við tökum fyrst fyrir það fólk sem stendur að baki þjónustu okkar í Bandaríkjunum, þá eru það 12 þúsund manns á Islandi og í Fær- eyjum. Og við þurfum að gera mun meira af því að upplýsa um hina ýmsu hlekki í þessari keðju. Það hefur náðst gífurlega mikill og góð- ur árangur í meðferð á físki, en það er vafalaust hægt að gera betur ef rétt er að staðið. En það er ekki nóg að gera vel, það verður að halda takt í þeim efnum og góða varan þarf að vera trygg. Það er ekkert sem jafnast á við það að sjómenn séu sammála um það að einungis góð vara skuli vera á boðstólum. Og það þarf fiskverkun- arfólkið einnig að vera sammála um. Kanadamenn leggja mikla áherzlu á kassavæðingu um þessar mundir. Og þeirra markmið er í rauninni að hafa vöruna eins góða og við bjóðum hana. Nýting og gæði hafa batnað með kössunum, það er enginn vafi á því. Og okkar fiskur er sá bezti. En eftir því sem við höfum meiri lagni er um verð- mætari vöru að ræða. Menn verða að fara eins vel með hráefnið og frekast er unnt. Það hefur verið rætt mikið á þessum fundi Sölumið- stöðvarinnar nú um gæðamál og það hve nauðsynlegt er að taka tillit til markaðarins, hvaða pakkn- ingar er hægt að bjóða og einnig það að það er í raun lítið dýrara Morgunblaðið/Ámi Johnsen Magnús Gústafsson ef það er nokkuð dýrara, að gera það vel, ef það er gert skipulega, að vanda meðferðina út í yztu æsar á allan hátt. En það verða allir að vera sammála um að gera það, bæði til sjós og lands. Þarna verða menn að standa saman, allir sem einn og vinna sem ein hönd því það mun koma öllum til góða. En við þurfum líka sem stýrum fyrirtækj- um að vera vissir um það, að fólk verði vart við það þegar það gerir vel. Það þarf að láta menn vita. Við þurfum að upplýsa okkar fólk betur en gert hefur verið. Okkar áhugasama og góða starfsfólk. Óplægði akurinn í f isksölu Við ræddum hér nokkuð á fund- inum um framtíðarmöguleikana í Bandaríkjunum. Og ef maður gáir að því hvað menn borða hér, þá koma forvitnilegar staðreyndir í ljós. Ef við skoðum tímabilið 1964—1985 hefur kjötneyzla minnkað úr 72% í 63%. Fuglakjöts- neyzla hefur aukizt út 21% í 31%, botnfiskur hefur verið 2% á þessu tímabili, óbreytt, og aðrar sjávaraf- urðir 4%, óbreytt. Þó er það stað- reynd að á síðari árum hefur fisk- neyzla farið upp á við. En hvers vegna hefur aðalbreytingin orðið, breytingin sem varðar neyzlu á fuglakjöti umfram annað kjöt? Áður voru kjúklingar eingöngu seldir í heilu lagi. Nú eru þeir bútaðir og sölumenn á þeim markaði eru duglegir að bjóða upp á þjónustu. Nú er gerð meiri krafa til þjónustu. Það er um að ræða tilbúna skammta að meira eða minna leyti. Við höfum verið með blokkina sagaða og mylsna og deig hefur verið sett á blokkina. Neyzla af of mikið húðuð- um vörum hefur staðið í stað. Við þurfum því að taka mið af því hvað fólk vill borða. Tilhneigingin til að borða léttan og hollan mat er mikil. Fólk vill lifa lengur, það er málið. Allir sem borða fisk vita hve það er notalegt. En þó erum við aðeins með 2% af aðalréttunum í físki. Við þurfum því að spila á tilfinning- una, spila á það sem fólk er að velta fyrir sér, vinna fiskinn meira í undirbúningi og við það flyzt heilmikil vinna hingað heim. Það þarf að vinna hnakkastykkin sér, sporðstykkin sér o.s.frv. o.s.frv. Menn velta því fyrir sér hvort ekki sé hægt að nýta aflann mun betur en selja hann í heilu eða í gámum. Ég tel ljóst að þeir sem ná að gera þetta á hagkvæman hátt, nýta alla möguleika hráefnisins, munu standa betur að vígi, þeir munu ná vinnunni, þeir munu ná árangrin- um. Áreiðanleiki, gæði og gott verð í unnu matvörunni eru ýmsar stefnur, pastan, litlir bitar, svona nartbitar. Hnakkastykkin í sósum, tilbúið til baksturs, sporðar í einni tegund, réttir með sérstöku kryddi og það eru ýmsir möguleikar í sambandi við þjóðarrétti. Ég býst ekki við að það sé hyggilegt að setja sósur og ýmislegt í þeim dúr á hér heima. Þar koma inn þyngdar- atriði, flutningskostnaður og ýmis- legt fleira. En við þurfum að leggja höfuðáherzlu á það að flaka fiskinn hér mun meir en gert hefur verið, skera hann og vinna í pakkningar á annan hátt, auka þá möguleika sem markaðurinn býður upp á. Við eigum að halda áfram á sömu braut að vera áreiðanlegir og með góða vöru. Og við þurfum að huga að ýmsu í þessum efnum. Fólkinu þarf að líða vel, því sem vinnur hjá okkur, með okkur og fyrir okkur og við eigum _að leggja höfuðkapp á þrjú atriði: Áreiðanleika, gæði og gott verð, sem báðir hagnast á. Við eigum að bera virðingu fyrir við- skiptavinunum og laða vöruna að þörfum þeirra. Það kunna menn að meta og fyrir það eru menn tilbúnir að borga hærra verð. Það er grund- vallaratriði, að menn virði okkur, því það leiðir til hærra vöruverðs. Opin gagnvart nýjum möguleikum Stefna Coldwaters er sú, að við höfum verið að leita eftir tryggum viðskiptavinum. Þetta er flókið og kallar á mun samstilltari skipulagn- ingu og meira átak en nú er lagt í hráefnissölu, því framboð úr Norðursjó hefur brugðizt. Sameig- inlegt markmið okkar sem í þessu vinnum er hið sama þótt áherzlu- munur geti verið í leiðum. Gott dæmi er frystiskipið Akureyri. Við seldum fiskinn frá því skipi dýrari strax í upphafí því það skilaði mjög góðri og sérstakri vöru, flökum með hreinsuðu roði beinlausum og roð- lausum. Við gátum strax selt sér- stöðuna. Við eigum alltaf að vera á verði gagnvart nýjum möguleik- um í framleiðslu og sölu, alltaf að vera með radarinn á og kunna að lesa á hann. Þá er minni hætta á að strandi og meiri möguleiki á árangri og það er okkar höfuðmark- mið að ná árangri. Grein: Árni Johnsen LEÐURSOFASETT í gráu eða svörtu. Einn 3ja sæta sófi og 2 stólar. Útborgun 8.500 kr. Eftirstöðvar á 6 mán. Vörumarkaöurinn hf. Ármúla 1A, sími 686112.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.