Morgunblaðið - 09.07.1986, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 1986__
Kuldakasti linnir á N orðurlandi
5
Á föstudagínn voru liðin 10 ár síðan Heijólfur kom til Vest-
mannaeyja í fyrsta skipti.
V estmannaeyjar:
Undirbúin smíði
nýs Herjólfs
Siglingatími styttist um rúma klukkustund
V estmannaey) um.
HAFINN er undirbúningur að smíði nýs skips til siglinga milli
Vestmannaeyja og Þorlákshafnar. Síðastliðinn föstudag voru
iiðin 10 ár frá því Heijólfur kom fyrst til hafnar í Eyjum. Heij-
ólfur hefur þjónað dyggilega þessi 10 ár og tryggt Eyjabúum
öruggan ferðamáta miUi lands og Eyja.
Það hefur þótt tíðindum sæta,
hafí orðið að fella niður áætlunar-
ferð skipsins vegna veðurs. Frá
því skipið hóf siglingar fyrir rétt-
um 10 árum og fram til síðustu
mánaðamóta hefur Heijólfur flutt
456.394 farþega og 93.248 bif-
reiðir, auk mikils magns af vörum.
Nú eru tímamót framundan hjá
fyrirtækinu og fyrir liggur kostn-
aðarsöm 12 ára flokkunarviðgerð
skipsins og því hefur stjórn Heij-
ólfs hf. hafíð undirbúning að
hönnun og smíði nýs Heijólfs.
Áætlað er að ganghraði nýja
skipsins verði 17 mílur, sem þýðir
að siglingartími milli lands og
Eyja mun styttast um rúma klst.
frá því sem nú er, eða úr rúmlega
þremur tímum í rúmlega tvo tíma.
Þá er ráðgert að hægt verði að
aka bifreiðum inn og út úr skip-
inu, hvort heldur að aftan eða
framan.
A stjómarfundi í Heijólfí hf.
síðastliðinn föstudag var Magnús
Jónasson frá Gmndarbrekku í
Eyjum ráðinn framkvæmdastjóri
fyrirtækisins. Ellefu umsóknir
bárust um starfíð. — hkj
Kjaradeila flugvirkja og Arnarflugs:
Arangurslaus fundur hjá
ríkissáttasemjara
ENGINN árangur varð af fundi samninganefnda flugvirkja og Arnar-
flugs hjá ríkissáttasemjara í gærmorgun. Fundur hófst klukkan tíu
árdegis og var slitið skömmu eftir hádegið. Annar fundur hefur
verið boðaður klukkan 13.00 í dag. Flugvikijar hjá Arnarflugi hafa
boðað verkfall frá miðnætti á fimmtudagskvöld, hafi ekki samist
fyrir þann tíma.
Að sögn Magnúsar Oddssonar í
samninganefnd Amarflugs snýst
deildan enn sem fyrr um það hvort
samningurinn skuli afturvirkur frá
áramótum eða taka gildi við undir-
skrift. Magnús sagði að flugvirkjum
standi til boða svipaðar kaup-
hækkanir og hækkanir á dagpen-
ingum og flugvirkjar hjá Flugleið-
um fengu og væri ekki ágreiningur
um þær tölur. „Hins vegar höfum
við neitað að fallast á afturvirkni
samningsins, bæði vegna þess að
flugmenn og flugfreyjur hjá okkur
fengu ekki slík kjör, og eins teljum
við að of miklar fjárhæðir séu þar
í húfí,“ sagði Magnús.
Flugvirkjar hjá Amarflugi er 22
talsins.
Bifreið brann
til kaldra kola
Ökumaður bjargaðist naumlega
BIFREIÐ brann til kaldra kola
eftir harðan árekstur á Ártúns-
höfða í Reykjavík í gær.
Okumaður bifreiðarinnar var
flnttur á sjúkrahús, en mun ekki
lífshættulega slasaður.
Tildrög slyssins vom með þeim
hætti að vörubifreið ók afturábak
út úr svokölluðu Vökuporti, í veg
fyrir fólksbifreið. Lenti sú undir
palli vömbifreiðarinnar og skipti
engum togum að eldur blossaði upp
í fólksbifreiðinni. Samkvæmt upp-
lýsingum lögreglunnar hefur
ökumaður vömbifreiðarinnar
líklega bjargað lífí mannsins, sem
í hinni bifreiðinni var með því að
vara mjög snöggur að ná honum
úr brennandi bifreiðinni. Ökumað-
urinn hlaut þó mikil brunasár, en
er ekki talinn í lífshættu. Ökumaður
vömbifreiðarinnar brenndist nokk-
uð á höndum við björgunarðagerð-
imar.
Spáð góðviðri næstu
daga um allt land
ÚTLIT er fyrir að næstu dagar verði góðviðrasamir um allt
land, á milli 10 og 15 gráður að deginum og „meinhægt og
gott sjóveður“ eins og veðurfræðingur orðaði það.
Að undanfömu hefur verið mjög
kalt á Norðanlandi. Benedikt Sig-
urðsson, fréttaritari Morgunblaðs-
ins á Grímsstöðum á Fjöllum,
sagði sumarið hafa verið fremur
kalt þar um slóðir, þó hefði gert
gott veður í um hálfan mánuð og
gróðurinn þá tekið vel við sér. En
kuldinn kippir úr gróðri og út-
hagar em nú lélegri en oft áður
og mikið kal er í jörð, sagði Bene-
dikt. Þrátt fyrir þennan kulda taldi
Benedikt að umferð ferðamanna
væri nú með meira móti um Hóls-
fjöllin, tjaldstæði væri rétt við
bæinn og þar er snyrtiaðstaða og
rennandi vatn.
Fleiri fréttaritarar Morgun-
blaðsins á Norðurlandi tóku í sama
streng og Benedikt, undanfamir
dagar hafa verið kaldir og úrko-
musamir, víða gránað í fjöll og
hitastig farið niður undir 4-5 gráð-
ur.
Þetta horfir þó til betri vegar
fyrir Norðlendinga því víða er nú
farið að glaðna til á norðanverðu
landinu.
VIÐIR
Nú er hver
síðastur
Aðeins
3 dagar eftir
af afmælisvikunni!
10% AFMÆLIS
AFSLÁTTUR
VK> KASSAHH!
Verslunin Víöir er 35 ára á þessu ári
og viö höldum veglega uppá þaö.
í því tilefni bjóöum viö 10% HEILDARAFSLÁTT
af öllum viðskiptum í viku.
Afslátturinn fer fram viö kassann - 10% er dregið
frá heildarupphæö, hvort sem hún er stór eða smá.
ATH. TÓBAKSVÖRUR UNDANSKILDAR
Opið til kl.18-30 í Mjóddinni
- en til kl. 18
VIÐIR
AUSTURSTRÆTI 17 - MJÓDDINNI
í Austurstræti