Morgunblaðið - 09.07.1986, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 09.07.1986, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 1986 V estur-Þýskaland: Sósíaldemókratar _ vændir um skattsvik Hamborg, AP. VESTUR-ÞÝSKIR sósíal- demókratar þáðu fjárstuðn- ing með ólöglegum hætti á síðasta áratug segir í síðasta Chihuahua, AP. Á SUNNUDAG tilkynnti Bylting- arsinnaði stjómarskrárflokkur- inn (PRI) sigur sinn i fylkis- og sveitarstjórnarkosningum í Chi- hUahua-fylki. Tilkynningin var gefin út, þrátt fyrir að enn hefði ekki öllum kjörstöðum verið lok- að. Flokkurinn hefur hvergi tapað kosningu frá stofnun hans árið 1929. Talsmenn PRI hafa alltaf neitað ásökunum um kosn- ingasvik og sagt stjórnarand- stöðuna vilja sverta imynd flokksins. Chihuahua-fylki á landamæri að Bandaríkjunum og þar hefur áhrifa helsta stjómarandstöðuflokksins, Þjóðarátaksflokksins (PAN), gætt mest. Kosið var í fleiri fylkjum, en helst þótti breytinga að vænta í Chihuahua. Talsmenn stjómarinnar vísuðu ásökunum um svik á bug, en viðurkenndu, að á 3—4 stöðum hefði meðlimum PAN-flokksins ver- ið neitað um að kjósa. tölublaði vikuritsins Spiegel. Talsmaður sósíaldemókrata (SPD) sagði í gær að ekki hefði sannast að flokkurinn hefði feng- stjómarandstöðunnar meinaður að- gangur að talningarskrifstofum. Ennfremur hefur heyrst að vand- ræði hafi orðið við opnun eins kjörstaðar. Þá var ekki hægt að skila atkvæði, þar sem kjörkassinn var þegar yfírfullur. Peking, AP. KÍNVERJINN Yan Genghua, sem starfar við læknaskóla S norðausturhluta landsins, varð á sunnudag fyrstur manna tO þess að hlaupa eftir endilöngum Kinamúrnum. Það tók Yan 80 daga að Ijúka hlaupinu, en Kínamúrinn er 3.400 kílómetra langur. Hann lagði af stað 18. apríl sl. á eystri enda ið fé með þeim hætti, sem lýst er í Spiegel. Þetta mál kom fyrst upp á yfírborðið síðasta sumar, en saksóknaraembættið í Bonn er nú að rannsaka það. Samkvæmt frásögn blaðsins greiddu sósíaldemókratar ekki skatt af §árstyrkjum þeim til handa. Hefðu tvær stofnanir, sem eru nátengdar sósíaldemókröt- um, séð um millifærslu verulegra fjármuna til SPD. Þar sem stofn- animar eru ekki reknar í hagnað- arskyni njóta þær skattafrádrátt- ar. Sá háttur hefði verið hafður á að stofnun Friedrichs Ebert fyirum forseta landsins tók við fjárstuðningi handa sósíaldemó- krötum, og setti peningana inn á bankareikning í Sviss. Síðan hefði féð verið tekið af reikningn- um og komið í hendur sósíal- demókrata í Vestur-Þýskalandi. múrsins. Yan er hlaupagarpur því árið 1983 hljóp hann frá heimili sínu í borginni Harbin í Norðaustur-Kína til Shanghai á 59 dögum, en vega- lengdin þar á milli eru 3.150 kílómetrar. Þá hljóp hann 6.200 kílómetra á 110 dögum frá nyrstu byggð landsins til þeirrar syðstu frá í september og fram í janúar sl. Mexíkó: Stj órnarflokkurinn heldur meirihluta Ásakanir um kosningasvik 80 daga að hlaupa eftir Kínamúrnum Lögreglumenn bera lík Johns Kevin Barlow inn í likhús eftír aftöku hans á mánudagsmorgun. Malaysía: Enn fjölgar dauðadómum Kuala Lumpur, AP. DÓMSTÓLL i Penang, 300 kílómetra norð-vestur af Kuala Lumpur, hefur dæmt 69 ára gamla konu til dauða fyrir dreifingu á eiturlyfj- um. Veijandi konunnar fór fram á náðun og vitnaði til aldurs hennar og lélegrar heilsu en þeirri beiðni var hafnað með tílvisun til gild- andi laga, sem kveða skýrt á um að hinn seki skuli gjalda fyrir brot sitt með lifi sinu. Þetta er annar dauðadómurinn sem kveðinn er upp vegna eitur- ljrfjadreifingar í Malaysíu á örfáum dögum. í fyrradag voru tveir Ástr- alir teknir af lífí í Kuala Lumpur eftir að hafa verið fundnir sekir um brot gegn eiturlyfjalöggjöfínni. Sendimaður á vegum ríkisstjómar Ástralíu sótti lík annars þeirra og verður það flutt til Sydney í Ástr- alíu til greftrunar. Fjölskyldur mannanna tveggja hafa snúið aftur heim til Ástralíu. Unnusta annars þeirra, Johns Kevin Barlow, kveðst vera sann- færð um að hann hafí verið tekinn af lífí saklaus og segist ætla að vinna að því að hreinsa nafn hans. Hún gagmýndi stjóm Margaret Thatcher og sagði viðbrögð hennar hafa verið lítil og léttvæg. Thatc- her, forsætisráðherra Bretlands, sendi á síðustu stundu beiðni um náðun mannanna til yfírvalda í Malaysíu. Haft var eftir háttsettum emb- ættismönnum í Malaysíu að stjóm- völd þar hafi engan hug á að falla frá þeim viðurlögum sem liggja við sölu og dreifíngu á eiturlyfjum þrátt fyrir gagnrýnisraddir víða um heim. Fyrir kosningamar skoraðu margir aðilar, þ. á m. kaþólska kirkjan, áhrifamiklir viðskiptamenn og stjómarandstöðuflokkamir, á stjómina að hafa rétt við í kosning- unum. Þrátt fyrir loforð þar að lútandi, var kjörstjómarfulltrúum Talið upp úr kjörkössunum í Japan ATKVÆÐI voru talin á yfir 3.400 stöðum eftir kosning- arnar í Japan sl. sunnudag. Þessi mynd var tekin á einum talningarstaðnum í miðborg Tókýó daginn eftír kosning- arnar. Þá var þegar orðið Ijóst að flokkur Yasuhiros Nakasone forsætisráðherra, Fijálsi demókrataflokkurinn, fengi ríflegan meirihluta i neðri deild þingsins. Verkfall hjá norsku áfengiseinkasölunni: Svíar búa sig undir „innrás“ frá Noregi Osló, frá Jan Erik Laure, fréttaritara Morgunbladsins. SÉU MENN í þeim hugleið- sig nú undir „innrás" Norðmanna. ingum að gera sér ferð til Noregs, er rétt fyrir þá að muna eftir víntollinum sinum. Astæðan er sú, að á mánudag hófst verkfaU hjá starfs- mönnum norsku áfengiseinkasölunnar. Og það kann að verða erfiðleik- um háð, áður en langt um líður, að verða sér úti um drykk á veitingahúsum í landinu. Alls 94 útsölustöðum áfengis- einkasölunnar var lokað á mánudag. Það átti rót að rekja til þess, að um helgina höfnuðu starfsmennimir tilboði fyrirtækis- ins um 10,2% launahækkun. Vildu þeir fá 11,8%. Og þess vegna hófst verkfall. Ekki verður heldur um að ræða neina afgreiðslu á þessari vöru til hótela og veitingahúsa. Þar verður því allt komið í þrot, áður en lang- ur tími er liðinn, og aðeins öl að fá. Á nokkrum stöðum verður allt þurrt mjög fljótlega, en þeir, sem tóku verkfallshættuna alvarlega, gerðu stórinnkaup fyrir helgi. Þeir munu hafa nóg handa við- skiptavinum sínum í nokkrar vikur enn. Sænska áfengisverslunin býr Aðalsumarleyfístíminn í Noregi hófst í gær, og þá vill fólk gjama hafa vín í farteskinu til að auka á huggulegheitin. Sænsku áfeng- isútsölumar eru þegar famar að Ijölga í starfsliði sínu til þess að geta sinnt þeim mikla fjölda Norð- manna, sem búist er við að hellist inn á næstu dögum. Norsk tollyfirvöld hyggjast reyna að fresta sumarfríi stórs hluta af starfsliði sínu. Hert verð- ur á eftirliti við landamæri Noregs og Svíþjóðar og á stöðum, þar sem vænta má skipa frá útlöndum. Það þykir nefnilega ekki ólíklegt við núverandi aðstæður, að margir freistist til að hafa of mikið af áfengi með sér inn í landið. Zurich: Haldið upp á 2000 ára afmælið í 2000 mínútur Ztlrich, frá önnu Bjamadóttur, fréttaritara Morgunblaðsina. Fimm tonn af sprengiefni voru sprengd í loft upp i stórkost- legri flugeldasýningu yfir Zttrichvatni á laugardagskvöld. Zttrich, stærsta borg Sviss, áttí 2000 ára afmæli og borgarbúar héldu upp á afmælið í 2000 minútur yfir helgina. Veislan hófst á föstudag- seftirmiðdag og stóð fram á sunnudagskvöld. Talið er að yfir ein milljón manna hafi tekið þátt í hátíðarhöldunum. Þau fóru friðsamlega fram og lögreglan áttí náðuga daga. Rómveijar tóku sér bólstað við þótti kostnaðurinn við slík hátíð- ána Limmat, þar sem Zurich stendur nú, fyrir 2000 áram. Borgarbúar, sem eru um hálf milljón, hafa lengi hlakkað til stór- afmælisins og í upphafi var meiningin að halda upp á það í lengri tíma með ýmsum uppákom- um í hinum ýmsu hverfum borgarinnar. En þegar til kom arhöld vera of mikill. Ákveðið var að takmarka þau við 2.000 mínút- ur og láta félagasamtök og fyrir- tæki bera bróðurpart kostnaðar- ins. Hljómsveitir og skemmtikraft- ar tróðu upp í miðbæ borgarinnar yfír alla helgina, tvö „tívolí" með skemmtitækjum voru sett upp, sölutjöld með pulsum og öðrum kræsingum vora á hveiju strái og mannþröngin var gífurleg. Sviss- lendingar eru heldur þung og alvarleg þjóð svo að gleði og ánægja skein ekki af hveiju and- liti en talið er að fólk hafí þó skemmt sér vel f góðviðrinu sem hélst fram á sunnudagsmorgun. Flugeldasýningin, sem stóð í þijátíu mínútur, var hátindur há- tíðarhaldanna og fagnaðarlæti áhorfendanna við vatnið bárust langar leiðir þegar gullfallegar silfurstjömur lýstu upp himininn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.