Morgunblaðið - 09.07.1986, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 09.07.1986, Blaðsíða 48
 *fgtmÞIafr(fe FASTEIGNA MARKAÐURINN Fþ LIFLE6 SALA Okkurvantar eignir á söluskrá símar: 11540—21700 MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 1986 VERÐ í LAUSASÖLU 40 KR. Morgunblaðið/Júlíus Frá slysstað í gærkvöldi. Litla vélin er talin ónýt, en Fokker-vélin óskemmd. Þrátt fyrir að eldur hafi komið upp við slysið, urðu engin teljandi slys á fólki, aðeins einn farþegi í litlu vélinni skarst lítillega á höfði. Vegna bensínleka úr litlu vélinni dældu slökkviliðsmenn kvoðu á jörðina til að koma í veg fyrir íkveikju. Eins hreyfils flugvél brotlenti og skall á Fokker-vél: Flugvirki er talinn hafa forðað stórslysi er hann slökkti eld með snarræði Undirskriftasöfnun innan miðstjórnar Alþýðubandalagsins: Beinist gegn fjárstyrkj- ^um til stjórn- málamanna Kristín Á. Ólafsdóttir í forsvari söfnunarmanna KRISTÍN Á.Ólafsdóttir vara- formaður Alþýðubandalags- ins og fleiri miðstjórnarmenn flokksins standa nú fyrir und- irskriftasöfnun meðal mið- stjórnarmanna og varafull- trúa miðstjómar flokksins, sem er í þá vem að þeir sem ^ undirrita plaggið fordæma það að „starfandi stjóm- málamenn þiggi fjárstyrki til persónulegra þarfa frá ráð- herrum eða öðrum fjársterk- um aðilum í þjóðfélaginu". „Við erum nokkur í miðstjóm- inni sem fórum af stað með undirskriftasöfnun meðal mið- stjómarmanna, aðal- og vara- manna, þar sem við erum að láta koma fram ákveðna „prinsip“af- “▼stciðu okkar,“ sagði Kristín í samtali við Morgunblaðið. Hún sagði að „prinsip“afstaðan væri gagnvart því að starfandi stjóm- málamenn þiggi flárstyrki til persónulegra þarfa og í þessari undirskriftasöfnun væri hvergi minnst á nafn Guðmundar J. Guð- mundssonar. Kristín var spurð á hvaða hátt þessir miðstjómarmenn hygðust síðan nota þennan undirskrifta- lista: „Við hyggjumst leggja hann fram fyrir framkvæmdastjóm," sagði Kristin „og ég býst við að í framhaldi þess verði þessu komið til Guðmundar J. Guðmundssonar. „Það gengur svona upp og ofan að ná í fólk, því þetta er náttúr- lega þannig tími, en undirtektir þykja okkur góðar,“ sagði Kristín. FÝmdur framkvæmdastjómar verð- ur haldinn í Alþýðubandalaginu í kvöld. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins munu þau Ólafur Ragnar Grimsson hafa undirritað listann, svo og Kjartan Ólafsson, fyrrver- andi ritstjóri Þjóðviljans. EINS HREYFILS einkaflugvél, TF-TAM af gerðinni RaUye Tampico, brotlenti á Reykjavík- urflugvelli rétt fyrir klukkan 19 í gær og kastaðist harkalega á eina af Fokker-flugvélum Flugleiða, sem nýkomin var frá Færeyjum. Þrír farþegar voru í litlu vélinni auk flugmanns. Engin teljandi slys urðu á fólki, en einhveijir áttu fótum fjör að iauna. Litla vélin er talin ónýt, en Fokker-flugvélin, Dagfari TF-FLM, lítið eða ekkert skemmd. Eldur kviknaði við vél- amar, en snarræði flugvirkja, Ævars Björnssonar, er var í Fokkervélinni og náði að slökkva eldinn strax, er talið hafa forðað stórslysi. Óhappið varð með þeim hætti, að litla vélin var í flugtaki rétt um tveimur mínútum á eftir Fokker- vél. Flugmaður TF-TAM, Axel Aspelund, telur að hann hafí lent í hvirfli frá Fokkemum og við það misst stjóm á vélinni. Hún snérist í hálfhring, lagðist á hliðina og skall nánast stjómlaus í jörðina rétt hjá Dagfara og rann á hjóla- búnað hans og landgang. 5 manna áhöfn var í Fokker-vélinni og 12 farþegar. Engan þeirra sakaði. Þrír farþegar og flugfreyja voru í Flugleiðavélinni, þegar sú litla skall á henni og vora að búa sig undir að stíga frá borði, er þau urðu vélarinnar vör. Egill Egilsson, tollvörður, stóð við landganginn og sá vélina koma á móti sér og bjargaði sér á hlaupum. Slökkvilið Reykjavíkurflugvallar kom þegar á staðinn, enda urðu slökkviliðsmenn vitni að slysinu, en áður hafði flugvirkinn, Ævar Bjömsson, náð að slökkva eld sem kviknaði í hreyfli TF-TAM með handslökkvitæki úr ■ Dagfara. Slökkviliðsmenn og Rafn Jónsson, flugmaður á Dagfara, telja Ævar hafa með því forðað stórslysi. Vængir litlu vélarinnar brotnuðu af við áreksturinn á Fokkerinn og bensín flæddi um slysstaðinn, en slökkviliðið eyddi því fljótlega með kvoðu. Einar Helgason, yfirmaður inn- anlandsdeildar Flugleiða, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær- kvöldi, að fyrstu athuganir á Dagfara hefðu ekki leitt í ljós skemmdir á honum. Vélin yrði rannsökuð nánar og með morgnin- um ætti að vera ljóst hvort vélin væri flugfær. Sjá nánar viðtöl og mynd- ir á bls. 29. Rækjuvinnslan hf. á Skagaströnd: Selur Marks o g Spencer veru- legan hluta framleiðslunnar Rækjuvinnslan hf. á Skaga- strönd hefur uppfyllt þau skilyrði um gæða- og vörueftir- lit sem breska fyrirtækið Marks & Spencer setur þeim framleið- endum sem þeir eiga viðskipti við. Ljóst er að samningur þessi mun færa Rækjuvinnslunni talsvert í aðra hönd þótt engar fjárhæðir fengjust staðfestar. Að sögn Sveins Ingólfssonar stjómarformanns Rækjuvinnsl- unnar hefur verksmiðjan sam- þykkt að selja Marks og Spencer veralegan hluta af framleiðslu þessarar vertíðar en auk þess þarf fyrirtækið að sinna skyldum sínum við viðskiptamenn innan- lands. Hér er um að ræða mikla viðurkenningu, því mörg fyrirtæki hafa leitað árangurslaust eftir þvi að Marks og Spencer viðurkenni framleiðslu þeirra. „Fyrirtækið er mjög kröfuhart um allt hreinlæti og öguð vinnubrögð starfsfólks", sagði Sveinn enn fremur. „Við höfum smátt og smátt verið að uppfylla skilyrði þeirra, m.a. fór gæðaeftirlitsmaður héðan í þjálf- un til verksmiðja M&S í Bretlandi auk þess sem menn komu hingað og fylgdust með starfí hans að lokinni þjálfuninni. í gær heim- sóttu fulltrúar fyrirtækisins síðan verksmiðjuna hér á Skagaströnd og töldu hana uppfylla þær kröfur sem settar höfðu verið." Sveinn sagði enn fremur að þótt nokkur kostnaður hefði fylgt því að standast gæðakröfur M&S borgaði það sig. „Það er sagt að einungis hágæðavara komist í hillur Marks & Spencer- verslan- anna þannig að þetta er skraut- fjöður fyrir okkur auk þess sem við höfum lært geysilega mikið af fyrirtækinu hvað varðar fram- leiðslukröfur og gæðaeftirlit."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.