Morgunblaðið - 09.07.1986, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 09.07.1986, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 1986 27 Faxarall Snarfara fór fram í blíðskaparveðri Meðalhraði signr- vegarans var 52 sjómflur FAXARALL Snarfara, félags sportbátaeiganda fór fram sl. mánudagskvöld. Rallið hófst í Elliðanausti við Súðavog þar sem Snar- fari hefur aðsetur og voru sigldar alis 55 sjómílur í kringum Viðey og víðar. Þátttakendur voru alls 11, átta bátar með díselvél ogþrír með bensínvél. Sigurvegarar í flokki báta með díselvél urðu feðgamir Guðmund- ur Lárusson og Oskar Guðmunds- son á bátnum Sóma 700. Bátinn smíðuðu þeir sjálfír í Bátasmiðju Guðmundar Hafnarfírði. Hann var búinn 200 hestafla Volvo Penta vél og var meðalhraði hans 34 sjómílur á klst. Sigurvegarar í flokki báta með bensínvél voru þeir Freyr Jakobsson og Guðjón Halldórsson á Mjallhvíti. Hann er einnig smíðaður hérlendis í Sjó- sporti Kópavogi. Hann var búinn 115 hestafla Mercury vél og var meðalhraði hans 52 sjómílur. Að sögn Ársæls Guðsteinssonar sem er framkvæmdarstjóri hátí- ðahalda þeirra Snarfaramanna tókst keppnin að öllu leyti vel, veðrið hafí verið ákjósanlegt fyrir keppni af þessu tagi, hæfíleg gola sem rétt gáraði sjóinn. í gærkvöldi var síðan áformað hæfnisrall, þar sem keppendum yrðu gefin upp hnit á baujum sem þeir áttu að fínna. í kvöld verður farið í svokallað baujusvig sem svipar til skíðasvigs nema að sveigt er á milli bauja. Einnig verður farið í svig á sjóskí- ðum og er þetta að öllum líkindum fyrsta keppni á sjóskíðum hérlend- is. Þessar keppnir verða báðar í Elliðanausti við Súðavog og ættu að sjást vel úr landi. Á morgun verður sjóstangveiði- keppni. Hún hefst kl. 6 og henni lýkur kl. 11. Hátíðahöldum þeirra Snarfaramanna lýkur síðan á föstudaginn með verðlaunaaf- hendingu. Sjórinn skvettist í allar áttir þegar vélamar voru keyrðar i botn. Moi*unWa*a/óLK.M. Sómi 700, sigurvegari i flokki báta með diselvél. Mjallhvít, sigurvegari í flokki báta með bensínvél. Stórglæsileg heimilistæki Við kynnum glæsilegan nýtísku gráan lit. Öll tækin frá sama fram- leiðanda: Ofnar, hellur, vaskar, kranar, kæliskápar, uppþvottavél- ar, þvottavélar, viftur, þurrkarar. — Kynntu þér Blomberg-tækin strax í dag. EINAR FARESTVEIT & CO. HF. BERGSTAÐASTRÆTI 10A - SlMI 16995

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.