Morgunblaðið - 09.07.1986, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 1986
r
AKUREYRI
Fjögurra
hæða hús
rís við
miðbæinn
Akureyri.
LOKIÐ hefur verið við að rífa
gamla Gánufélagshúsið við
Skipagötu. Fatahreinsun Vig-
fúsar og Árna hefur fest kaup
á lóðinni og hyggjast eigend-
iimir byggja þar fjögurra
hæða hús sem verður um 320
fermetrar að grunnfleti.
Sigurður Vigfússon hjá Fata-
hreinsuninni sagði í samtali við
blaðamann Morgunblaðsins að
þegar væri orðið all þröngt um
þá í núverandi húsnæði og þar
sem þeir hefðu ekki átt lóðina
að Hólabraut II, þar sem þeir
eru nú til húsa, hefðu þeir farið
að leita sér að lóð til að byggja
á og fundið þessa. Sagði hann
að þegar hefðu tveir aðilar,
verkfræðiskrifstofa og tann-
læknastofa, keypt aðra hæðina
og þá efstu, en á jarðhæðinni
verður fatahreinsunin til húsa.
Þriðja hæðin er hins vegar óseld.
Aðspurður um hvenær fram-
kvæmdir ættu að heQast sagði
hann að það yrði sem allra fyrst
eftir að samþykkt bygginga-
nefndar lægi fyrir.
Gamla Gránufélagshúsið var rifíð i síðustu viku, og þegar mynd-
in var tekin var það lítið annað en sperrurnar.
Teikningar af suður- og austurhlið hússins eins og fyrirhugað er að það verði.
Kynnum landíð og
bjóðum upp
á skemmti-
legan félagsskap
— segir Herdís Jónsdóttir starfsmaður Ferðafélags Akureyrar
Akureyri.
„VII) SJÁUM um að kynna landið og svo bjóðum við upp á afspymu-
skemmtilegan félagsskap" sagði Herdís Jónsdóttir, starfsmaður og
„altmuligmand" hjá Ferðafélagi Akureyrar, er Morgunblaðið forvitn-
aðist um starfsemi þess á dögunum.
„Þetta eru mest ferðir um Norð-
urland — það má segja að við séum
sjálfstætt útibú frá Ferðafélagi
íslands," sagði Herdís. Ferðafélag
Akureyrar býður upp á margvísleg-
ar ferðir rútuferðir í byggð og
óbyggð, gönguferðir, stuttar og
Iangar, sjó- og flugferðir — einnig
Qölskylduferðir þar sem grillað er
og fleira í þeim dúr.
Hvað sjóferðimar varðar hefur
Ferðafélagið farið í eyjamar úti
fyrir Norðurlandi. „Drangey, Hrísey
og Grímsey hafa verið skoðaðar í
dagsferðum. Svo erum við nýkomin
frá Færeyjum. Við fómm þangað
með Norrönu — rúta á vegum fé-
lagsins keyrði hópinn svo um allar
eyjamar og við gengum mikið um
og skoðuðum. Þetta var frábær
ferð.“
Herdís sagði að í lengri ferðum
en dagsferðum beindi félagið fólki
mikið upp á hálendið — í rútum —
og þá er fararstjóri alltaf með í
för. „Ég vil geta þess að í ferðum
lengri en eins dags er matur alltaf
innifalinn hjá okkur, það er morg-
unmatur og kvöldmatur, og em
margir fegnir þessu sumarfríi frá
pottum og pönnum"
Er félagið starfandi allt árið?
„Við emm með ferðirá vorin og
fram á haust en félagsstarfið leggst
ekki niður á haustin — þá tekur
skemmtanafíknin við. Við emm
með skemmtikvöld, myndasýningar
og fleira og þá er starf næsta sum-
ars rætt og skipulagt. Þá er
meiningin að nota vetuma til kynn-
ingar á félaginu. Það er í deiglunni
að fara í skóla og fyrirtæki næsta
vetur í þeim tilgangi."
Dísa sagði þess misskilnings hafa
gætt að Ferðafélagið væri lokað,
þ.e. ferðir þess væm eingöngu fyr-
Pollamót Eimskips:
Völsungur og
Þór í úrslitin
Akureyri.
A-LBE) VÖLSUNGS frá Húsavík ogf B-lid Þórs frá Akureyri tryggðu
sér sæti í úrslitakeppni Pollamóts Eimskips og KSí í 6. flokki um
siðustu helgi, er undankeppni liða frá Norðurlandi fór fram á velli
Þórs við Glerárskóla hér á Akui
Úrslit leikjanna um helgina urðu
sem hér segir, fyrst er það laugar-
dagurinn:
A-lið Þór-Svarfdælir ......... :2
A-lið KA-Leiftur ............ 6:0
A-lið Þór-Tindastóll ........ 6:1
B-lið Þór-Tindastóll ........ 4:0
A-lið Þór-KA ................ 2:1
B-lið Þór-KA ................ 3:1
A-lið Völsungur-Tindastóll .. 4:0
B-lið Þór-Tindastóll ........ 1:0
A-lið Völsungur-KA .......... 3:2
B-lið KA-Þór ................ 5:0
A-lið Svarfdælir-Leiftur .... 2:2
Á sunnudaginn vora svo eftir-
taldir leikir
A-lið Tindastóll-Leiftur .... 1:0
A-lið KA-Svarfdælir ......... 6:0
B-lið KA-Tindastóll ......... 4:0
A-lið KA-TindastólI ......... 6:1
A-lið Völsungur-Leiftur ..... 9:0
A-lið Völsungur-Þór ......... 1:1
A-lið Þór-Leiftur ........... 8:1
A-lið Völsungur-Svarfdælir .... 5:0
A-Iið Svarfdælir-Tindastóll . 1:0
B-IiðÞór-Þór ................ 3:1
Tapliðið í síðasta leiknum var
C-lið Þórs — eins tapliðið í B-liðs-
leiknum gegn KA og liðið sem vann
Tindastól 1:0. Völsungur afboðaði
komu B-liðs síns í mótið á síðustu
stundu og ákváðu Þórsarar þá í
skyndi að láta C-lið sitt keppa til
að raska ekki niðurröðuninni, en
Þór sá um framkvæmd mótsins.
Völsungar komust í úrslit í flokki
A-liða eins og áður segir. Þeir hlutu
9 stig, jafnmörg og Þórsarar, en
Völsungur var með betra marka-
hlutfall. Bæði lið unnu alla sína leiki
— nema innbyrðisviðureignina, sem
endaði með 1:1 jafntefli. Markatala
Völsungs var 22:3 en hjá Þór 21:6.
B-lið Þórs varð svo stigahæst í
keppni B-liðanna og leikur í úrslita-
keppninni í Reykjavík seinna í
mánuðinum. Liðið vann alla sína
leiki um helgina.
Veður á Akureyri var leiðinlegt
um helgina, kuldi og rok, en kepp-
endur létu það lítið á sig fá. Oft
sýndu þeir skemmtileg tilþrif — og
það verður ömgglega mikið Ijör á
úrslitakeppninni í Reykjavík 19. og
20. þessa mánaðar.
Gert við
Kaldbak
á ísafirði
TOGARINN Kaldbakur kom til
Akureyrar í gær frá ísafirði.
Síðastliðinn föstudag varð skipið
vélarvana þar sem það var á
veiðum suður af Jökultungum.
Strandferðaskipið Askja dró
Kaldbak til hafnar á Ísafírði og
komu skipin þangað kl. 16.30 á
mánudag. Til Isafjarðar komu við-
gerðarmenn frá Útgerðarfélagi
Akureyrar og um kl. 22.30 sama
kvöld höfðu þeir með aðstoð lokið
viðgerðum á skipinu.
Að sögn Vilhelms Þorsteinssonar
framkvæmdastjóra Útgerðarfélags
Akureyrar var hér um að ræða bil-
um í stjómbúnaði skipsskrúfu.
Ferð skipsins fyrir Hom gekk
greiðlega og átti skipið ekki í nein-
um teljandi vandræðum vegna íss.
Kaldbakur landaði 250 tonna afla
á Akureyri.
Herdís Jónsdóttir, starfsmaður Ferðafélags Akureyrar.
ir félagsmenn. „Það em allir
velkomnir í ferðir hjá okkur og þá
meina ég allir. Nú, ef fólk fær svo
ferðabakteríuna í svona ferð þá er
ekki úr vegi að gerast félagsmaður
og fá afslátt í ferðimar!"
Skrifstofa Ferðafélags Akur-
eyrar er opin alla virka daga milli
kl. 17.30 og 19 en hún er til húsa
í Skipagötu 12 á 2. hæð. Herdís
starfar þar og svarar „öllum spum-
ingum varðandi félagið og ferðimar
og ég leiðbeini fólki með útbúnað
og annað slíkt með glöðu geði,“
sagði hún.
Hún sagði að yngra fólk hefði
lítið starfað í félaginu undanfarin
ár „og má kenna um ónógri auglýs-
ingu eða kynningu á félaginu. Nú
er verið að bæta það upp og ég er
handviss um að akureysk ungmenni
taka við sér og skelli sér af stað —
sjái hvað þetta er frábær félags-
skapur," sagði Herdís.