Morgunblaðið - 09.07.1986, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 09.07.1986, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 1986 19 „Stórkostlegt að syngja með alvöru danshlj ómsveit“ „Ég hef aldrei prófað áður að syngja með svona alvöru danshljómsveit, en mér finnst það alveg stórkostlegt. Ég er fyrst og fremst að vinna fyrir mér með þvi að vera í Sumar- gleðinni, en þetta er eitt það skemmtilegasta sem ég hef gert. Þetta er svo gaman allt saman,“ sagði Sigrún Hjálmtýs- dóttir, öðru nafni Diddú, sem í sumar þeysist landshornanna á milli með Sumargleðinni til að skemmta landsmönnum. „Það er góð stemmning alls staðar og okkur er frábærlega vel tekið. Mér fínnst þó sérstaklega skemmtilegt að sjá hversu mikil breidd er í áhorfendahópnum. Áhorfendur eru á öllum aldri, allt frá krökkum upp í eldra fólk og allir veltast um af hlátri." Diddú sagði að hlutverk hennar í Sumargleðinni væri margþætt, svo sem grínast í leikþáttunum, syngja syrpu af lögum úr gömlum revíum og söngleikjum og einnig á dansleiknum. „Ég skemmti mér Sigrún Hjálmtýsdóttir í einu gervi sínu á Sumargleðinni. Þar syngur hún m.a. þekkt Iög úr þekktum söngleikjum við góðar undirtektír. alveg eins vel eins og fólkið úti í sal, en það er svo skrýtið með það, að ég hef aldrei getað haldið takti ef ég hef verið látin slá á einhver ásláttarhljóðfæri. Þegar ég var með Spilverki þjóðanna í gamla daga voru strákamir oft að reyna að láta mig slá í tamb- úrínur, en ég klúðraði því alltaf svo ég held mig eingöngu við sönginn." Diddú sagði að ferð Sumargleð- innar um landið lyki um miðjan ágúst og ætlaði hún þá til Ítalíu í mánaðartíma til að sækja einka- tíma í söng. „Ég verð líklega heima við í vetur og tek að mér það sem til fellur. ítalfa verður þó næsti áfangastaður hvenær sem það verður. Ég ætla að fara að einbeita mér að ákveðnum hlutum í sambandi við klassískan söng og hef ég síður en svo af- greitt söngnámið ennþá. Ég var á leið til Italíu sl. haust, en þá kom annað til skjalanna svo ég varð að fresta áætluninni þá. Reykjavík — Glasgow: Alit heildsala á saman- burði V erðlag-sstofnunar EINS OG fram hefur komið birtí Verðlagsstofnun í síðustu viku samanburð á vöruverði í Glasgow og Reykjavík. Leiðir hún m.a. í ljós að verð á ákveðnum vörutegundum í Reykjavík er 140%-600% hærra en í Skotlandi. Þá hafi innflytjendur í 22% tilvika greitt hærra verð fyrir innflutta vöru en neytendur í Glasgow. Morgun- blaðið bar niðurstöður könnunarinnar undir talsmenn tveggja heildverslana sem flytja inn nokkrar þeirra vörutegunda sem saman- burður var gerður á. Birtast svör þeirra hér. „Könnunin er út í bláinn“ tgSAMSUNG TÍMfdMNA TAKN — segir Örnólfur Nikulásson hjá heildverslun H. Benediktssonar „VIÐ erum montnir af útkomu okkar úr samanburðinum,“ sagði Örnólfur Nikulásson hjá heild- verslun H. Ben. „Þær vörur sem við seljum mest af koma vel út, en eina vörutegund kaupum við inn á verði sem er hærra en smásöluverð í Glasgow. Enda er hún ekki með nema brot af mark- aðinum." Örnólfur sagði að persónulega þætti sér könnunin út i bláinn. Það væri löngu Ijóst að mikill munur væri á verði í Glasgow og Reykjavík. Verðlags- yfirvöldum væri kunnugt um tolla og álögur. „Þessar vörur eru fluttar inn á hæstu frakttöxt- um sem um getur. Ofan á „cif“- verðið leggst tollur og vörugjald ofan á það. Þetta er til háborinn- ar skammar." Ömólfur sagði að könnunin sýndi glögglega sambandið milli hag- stæðs innkaupsverðs og mikillar sölu hér heima. Tók hann í sama streng og framkvæmdastjóri Félags stórkaupmanna að jafnan yrði erfítt að ná hagstæðu verði á litlu magni. Aðspurður sagði Ömólfur að bann stjórnvalda við vörulánum skipti ekki sköpum fyrir innflutning fyrir- tækisins. Vömmar væm dags- stimplaðar og erfítt að kaupa þær í umframmagni. Þegar verðlag var óstöðugt hefðu vömlánin verið al- gjörlega út úr myndinni, og menn hefðu lært að stjórna innkaupunum í takt við söluna. „Tökum umboðslaun 1 stað þess að hækka álagsprósentuna“ — seg’ir Friðrik Friðriksson hjá íslenzk-erlenda „KONNUN Verðlagsstofnunar er óskiljanleg öðrum en þeim sem þekkja málið af eigin raun,“ sagði Friðrik Friðriksson, fram- kvæmdastjóri íslenzk-erlenda verzlunarfélagsins. Taldi hann að upplýsingarnar væru í raun úreltar, þar sem miðað væri við tollprósentu sem gilti fyrir samn- ingana í vor. „Þó er samanburð- urinn okkur hagstæður. I aðeins einu tilfelli er innkaupsverð okk- ar hærra en smásöluverðið í Glasgow og tökum við það mjög alvarlega. Við höfum þegar sent erlenda fyrirtækinu skeyti og beðið um skýringar á þessuin mikla mun. Ef við fáum ekki við- hlitandi svör förum við fram á lækkun." Ummæli framkvæmdastjóra Fé- lags stórkaupmanna um að of skammur tími væri liðinn frá því að verðmyndun var gefin frjáls voru borin undir Friðrik. „Það er rangt að segja verðmyndunina fijálsa. Frelsið er í orði en ekki á borði. Við skilum reglulega skýrslum og erum undir ströngu eftirliti. Þetta leiðir til þess að innflytjendur kjósa að þiggja umboðslaun sín erlendis í stað þess að hækka álagsprósent- una.“ Friðrik sagði að neytendur bæru skarðan hlut frá borði þar sem umboðslaunin væru falin í inn- kaupsverðinu, tollar og vörugjöld leggjast því ofan á þau. „Verðlags- yfirvöld hafa gefíð það í skyn að ef álagning okkar hækki muni þau taka í taumana. Ef þessi hræðsla væri ekki fyrir hendi, og látið af eftirlitinu myndi það stuðla að fijálsri verðmyndun." ÖRBYLGJUOFN meö snúningsdiski Á VERÐI SEM SLÆR ALLT ÚT! Kr. 10.900 stgr. 3.000 út — eftirstödvar á sex mánudum! íslenskur leidarvísir Námskeiö innifalið í verði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.