Morgunblaðið - 09.07.1986, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 09.07.1986, Blaðsíða 34
Þau eru ung og leika sér Við höfum verið að kanna hvað böm aðhafast yfír sumartím- ann. Stór hópur fer á alls konar námskeið í íþróttum. Fyrir nokkr- um árum hófust námskeið þar sem bömin eru alveg frá 10 að morgni til klukkan Qögur eftir hádegi. Á þessum námskeiðum em kenndir ieikir, farið í íþróttir og einnig farið í skoðunarferðir o.fl. Bamasíðan brá sér á eitt svona námskeið og kynntist þar mörgum krökkum. A þessu námskeiði, sem haldið er í húsi KFUM og KFUK við Holtaveg, em um 30 böm í einu. Hvert námskeið er í tvær vikur. Krakkamir em á aldrinum 6 til 9 ára (hver veit nema þang- að slæðist einn og einn tíu ára). Leiðbeinendumir em þrír, tveir kennarar og einn framhaldsskóla- nemi. Við hittum krakkana í garði Einars Jónssonar myndhöggvara. Þau skoðuð styttumar, brostu framan í sólina og léku sér. Nokkrir fóm auðvitað í mynda- styttuleik! Snúa, stilla eða hrinda? Við tókum tvo krakka tali. — Hvað heitið þið? „Ég heitt Agla Marta Sigur- jónsdóttir og er níu ára.“ „Og ég heiti Sigurður Bjami Gíslason og er sjö ára.“ — Er gaman á svona nám- skeiði? Bæði: „Já.“ — Hvað gerið þið? SBG: „Við leikum okkur úti.“ AMS: „Svo fömm við á söfn.“ — Hvaða söfn hafíð þið farið á? AMS: „Við vomm á safni Ein- ars Jónssonar og svo fómm við á Náttúrugripasafnið. “ — Hafið þið farið eitthvert ann- að? Bæði: „Við höfum farið í sund. Svo ætlum við í Hljómskálagarð- inn og borða nestið okkar. Um daginn fómm við í afmæli Lands- bankans." — Hafið þið gert eitthvað annað í sumar, farið eitthvert í fri? AMS: „Ég fór í sumarbúðir í Vindáshlíð." — Hvað gerir þú í sumarbúð- um? AMSB: „Bara svo margt. Við fómm í ratleik og leikum leikrit á kvöldvökunni." — En hefurðu farið eitthvert með foreldmm þínum? AMS: „Já, við fóram í sumar- bústað til frænda míns og vomm þar eina helgi." — En þú, Sigurður Bjami, hvert hefur þú farið? SBG: „Ég fór í Vatnaskóg. Og um daginn fómm við í sumar- bústaðinn okkar. Hann er rétt hjá bænum." — Hvað gerir þú þar? SBG: „Leik mér að kassabflnum minum.“ Sigurður Bjarni — Ætlarðu að fara eitthvert annað í sumar? SBG: „Kannski fer ég til Vest- mannaeyja. Ég átti einu sinni heima þar.“ — Hvemig var að eiga heima í Vestmannaeyjum? SBG: „Garnan." — Hvað gera krakkar í Vest- mannaeyjum? SGB: „Bara fara að spranga og hjóla og stóm krakkamir fara að gella." — Mega litlir krakkar líka spranga? SGB: „Já, þau mega það á öll- um aldri. Við bara læram það.“ Agla Marta á heima í Norður- mýrinni en Sigurður Bjami í Breiðholtinu. Það er ekki afger- andi munur á hvað krakkar í hinum ólíku hverfum borgarinnar gera í sumarfriinu sínu. Sumir á námskeiðinu eiga eldri systkini sem bera út blöð (og einn strákur- Agla Marta Hópurinn allur í garði Einars Jónssonar. inn á námskeiðinu ber líka út blöð) og passa böm. Það kemur að því að þessir krakkar taka þátt í því líka, en nú mega þau vera ung og njóta þess að leika sér. Sigurður Bjami og Agla Marta ætluðu nú að fara að borða nestið sitt. í nesti Öglu Mörtu leyndist smákaka sem hún hafði bakað sjálf á námskeiðinu, en ætli Sig- urður Bjami hafi ekki verið búinn með sínar kökur. A» Reyndu að raða stöfunum rétt og fá út staðanöfn. ---------------------1 ^ / Fer/Ví /X : > Flugdreki Idagbókinni minni stendur að þessi fyrri hluti júlimánaðar heiti sólmánuður. Það er fallegt nafn. En vissuð þið að nafnið sem við notum í dag, júlí, er fengið frá rómverskum keisara að nafni Júlíus Sesar? Við ætlum ekki að flengjast við að tala um keisara eða heiti á mánuðum heldur að búa til flug- dreka. Á þessum tíma, um .mitt sumar, er kjörið að búa sér til flugdreka og reyna að fljúga hon- um. í drekann þurfum við þunna lista, t.d. bambuslista (3 mm þykka). Við þurfum einnig krep- pappír, efni eða jafnvel plast. Límband, lím og snúra em einnig nauðsynleg. Límdu listana saman. Styrktu samskeytin með límbandi. Bandið festist við listana á staðinn sem em merktir inná. Hafíð bandið þrisvar sinnum lengra en bilið milli punktanna sem þið festið í. Láttu hugmyndaflugið ráða þegar þú teiknar og/eða málar á efnið eða pappírinn. Límdu drek- ann á rammann. Mundu að láta flugdrekann þoma áður en þú notar hann. Þegar þú ætlar að láta drekann fljúga er best að velja veður þar sem vindurinn eða golan em stöð- ug og úr einni átt. Stattu með bakið í vindinn og slepptu bandinu út smám saman um leið og vindur- inn tekur í drekann. Góða skemmtun. Vegvísir Oft er erfítt að rata. Stundum sjáum við vegvísa sem segja okkur hvert ákveðin leið liggur. Héma sjáum við einn vegvísi. Þessi er nú svolítið dularfullur. Það versta við hann er að stafímir hafa allir mglast. Getið þið fundið út hvaða staðanöfn eiga að vera á vegvísin- um? Sendu svarið um leið og þú sendir t.d. svarið við myndagátunni. Myndagátan 7 Svar við sfðustu myndagátu var „Skóf á steini". Skófír sjáum við víða á steinum. Þær em oft margbreytilegar að lit og getur verið gaman að skoða þær myndir sem sjá má út úr þyrp- ingunni. Mjmdin síðast gat verið stflfærð mjmd af skjaldböku eða ef við snúum henni við, laufblað. Þið ættuð að líta eftir þessu þar sem þið emð á ferð. Það var enginn sem hafði alveg rétt svar við þessari gátu en sumir vom nærri því. Myndagátan í dag er ekki sérlega létt. E.t.v. getið þið fengið hjálp hjá einhveijum fullorðnum til að fínna út hvað þetta er. Svar sendist: Baraasíðan, Morgunblaðinu, Aðalstræti 6, 101 Reylgavík.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.