Morgunblaðið - 09.07.1986, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 1986
í Disneylandi
Sjöunda heimsreisa
Utsýnar til Hawaii
MORGUNBLAÐINU hefur
borizt eftirfarandi fréttatil-
kynning frá Ferðaskrifstofunni
Útsýn:
Heimsreisufarar Útsýnar, sem
tekið hafa þátt í öllum heimsreis-
unum, eru búnir að sjá ijöldann
af helztu náttúruundrum heimsins
og sögufrægustu stöðum, gista
flestar stærstu borgir heims og
búa á glæsilegustu hótelunum.
Heimreisumar spanna orðið allar
heimsálfumar. í fyrra varð Ástr-
alía og Nýja-Sjáland fyrir valinu,
en nú er það Norður-Ámeríka og
alla leið á blómskrýddar og pálma-
bryddar eyjar Kyrrahafsins,
Hawaii, undir einkunnarorðum
eyjarskeggja, „aftur til Paradís-
ar“.
Ferðin hefst 16. okt. nk. og
stendur til 5. nóv., en hægt er að
framlengja dvöl í Honolulu, San
Francisco og/eða New York.
i Lítið hefur verið um skipulagð-
ar ferðir íslendinga til þessa
heimshluta, en Bandaríkin eru
gífurlega vinsælt ferðamanna-
land, enda geysifjölbreytt og
þjónusta við ferðamenn óvíða jafn
fullkomin og vel skipulögð. í þess-
ari heimsreisu Útsýnar er fyrst
flogið til Chicago og áfram til Los
Angeles. Alls staðar em gististað-
ir og allur viðurgjömingur í hæsta
gæðaflokki og búið á heimsfræg-
um hótelum. Fyrsti gististaðurinn
er t.d. hið glæsilega Hilton-hótel
í Beverly Hills, sem kallað er
„djásn Hilton-hringsins" í Holly-
wood. Þaðan er boðið upp á ferðir
í undraheim kvikmyndanna í Uni-
versal Studios, frægustu kvik-
myndaver heimsins og í töfraheim
þann, er snillingurinn Walt Disney
skóp handa bömum og fullorðnum
í Anaheim, Disneyland, á 160
ekrum í Appelsínulundi. Annar
áfangastaður ferðarinnar er Las
Vegas, sem kölluð er höfuðborg
heimsins á sviði skemmtana. Á
glæsihótelum borgarinnar em ein-
hveijar íburðarmestu leik- og
danssýningar sem um getur, en
peningar renna í stríðum straum-
um og skipta um eigendur við
spilakassa og rúllettur spilavít-
anna. Gist er á Las Vegas Hilton,
einu stærsta og glæsilegasta hót-
eli heims. í Las Vegas er jafnan
hægt að sjá marga af frægustu
skemmtikröftum heimsins. Meðan
dvalist er í Las Vegas gefst kost-
ur á kynnisferð í Grand Canyon,
eitt mesta náttúmundur veraldar.
Frá Las Vegas liggur leiðin til
Honolulu á Hawaii, þar sem sum-
ar ríkir allt árið og meðalhitinn
um 25 gráður. Þótt staðurinn sé
alþjóðlegur, em austurlenzk og
pólónesísk áhrif mjög ríkjandi.
Vegna veðursældar er gróðurfar
Frá Hawaii
Fairmont-hótelið í San Fran-
sisco
ákaflega litríkt og fjölskrúðugt,
svo eyjamar verðskulda viður-
nefnið „blómlegustu eyjar heims".
Milli þess sem heimsreisufarar
sóla sig undir pálmatijám á Wai-
kiki-ströndinni, gefst þeim kostur
á ýmsum kynnis- og skemmtiferð-
um um eyna Oahu og til nærliggj-
andi eyja, t.d. í pólónesíska
þjóðgarðinn skammt frá Hono-
lulu, þar sem sjá má menningu
og þjóðlíf Kyrrahafseyja í hnot-
skum, ekki aðeins Hawaii heldur
Þar verða heimsreisufarar þátt-
takendur í stórveizlu að pólónesí-
skum sið með sýningu 150
skemmtikrafta. Er það stærsta
sýning af sínu tagi í veröldinni
ogein hin litríkasta. Sólarlagssigl-
ingar með kvöldverði, strandveizl-
ur að pólónesískum hætti, sigling
til Pearl Harbour og Demants-
höfða eru meðal óteljandi mögu-
leika til fróðleiks og skemmtunar.
Dvalizt verður í nýjustu byggingu
Hilton Hawaiian Village, en hótel-
ið stendur á 22 ekrum lands sem
byggt er upp eins og pólónesískt
þorp með meira en 100 verzlunum
og veitingastöðum, en aðeins
nokkur skref frá einni frægustu
baðströnd heims, Waikiki.
Að lokinni sólardvöl á Hawaii
liggur leiðin til San Francisco, sem
talin er ein fegursta borg heims.
Fínasta hverfi borgarinnar heitir
Nob Hill, en einmitt þar stendur
glæsihótelið Fairmont, kallað „St.
Gregory" í sjónvarpsþáttunum
„Hótel", en á þessu víðfræga hót-
eli er þáttaröðin kvikmynduð.
Fairmont-hótelið er í samtökum
„fremstu hótela heims“ (The Le-
acþng Hotels of the World) og
eftirsóttur áningarstaður dipló-
mata, kvikmyndastjarna og
annars frægðarfólks. í einum
fundarsalnum í Fairmont Hotel
var stofnskrá Sameinuðu þjóð-
anna undirrituð árið 1945. í boði
verða kynnisferðir um San Fran-
cisco og hin fögru nágrannahéruð
hennar, frægustu vinyrkjuhéruð í
Vesturheimi.
Lokaáfangastaður heimsreis-
unnar er New York, sem margir
telja „heimsborg heimsborg-
anna“. Þátttakendur geta valið
milli gistingar á New York Hilton
heimsfræga hótels Waldorf Astor-
ia. Hægt er að framlengja dvölina
í New York eða annars staðar í
Bandaríkjunum og kaupa farseðil,
sem heimilar 4 staði til viðbótar
fyrir aðeins $100.
Aðsókn að Heimsreisu VII var
svo mikil að hún seldist upp á 5
dögum en Útsýn hefur nú tekist
að útvega nokkur sæti til viðbótar.
(Frá Útaýn)
einnig Samoa, Fiji, Marques-ey]a,
Nýja-Sjálands, Tahiti og Tonga. á miðri Manhattan eða hins
Bændur á Suðurlandi:
Fá ekki varahluti í
heyvinnuvélar hjá SIS
Dæmi um að menn haf i orðið að kaupa
nýjar vélar til að geta hafið heyskap
SKORTUR á varahlutum í hey-
vinnuvélar hefur háð bændum
víða á Suðurlandi, seinkað slætti
og hirðingu og valdið þeim veru-
legum óþægindum. Morgunblað-
inu er kunnugt um að varahlutir
í sláttuvélar og heybindivélar
hafa ekki fengizt frá Samband-
inu, þrátt fyrir langa bið. Hafa
menn í einstaka tilfellum orðið
að kaupa nýjar vélar til þess að
geta hafið heyskap. Erlingur
Sigurðsson, bóndi í Sólheimakoti
í Mýrdal, segir varahlutaskortinn
hafa valdið verulegum óþægind-
um, en menn hafi hjálpað hver
öðrum.
„Við höfum verið að reyna að fá
varahluti í heybindivél frá Sam-
bandinu í allt vor en ekkert hefur
gengið," sagði Erlingur. „Við höf-
um orðið fyrir verulegri seinkun
vegna þessa og óþægindum, en
nágrannamir hafa verið okkur
hjálplegir. Einn þeirra hefur ekki
fengið varahluti í slátturvél svo við
höfum slegið eitthvað fyrir hann
og hann aftur bundið fyrir okkur.
Þetta er mesta ófremdarástand og
virðist því miður mjög algengt.
Annars er þetta ekki einskorðað við
Sambandið. Mér virðist það illskárst
af þessum fyrirtækjum. Algengasta
svarið, sem maður fær, er að vara-
hlutimir séu í gámi á hafnarbakk-
anum, en engir peningar til að leysa
þá út. Þegar menn em að kaupa
vélar, verður að gera seljendur
ábyrga fyrir varahlutaþjónustu.
Það er erfitt fyrir einstaka bændur
að standa í öllum þeim óþægindum,
sem af þessu stafa og þurfa að
bera af því kostnað að auki. Það
em vandræði, sem af varahluta-
skorti skapast og ekkert grín, ef
menn neyðast til að kaupa nýjar
vélar,“ sagði Erlingur Sigurðsson.
Staðarbakka, Miðfirði:
Sláttur hefst
um næstu helgi
Staðarbakka 8. júlí.
EFTIR þurrt og kalt vor kom
hér hlýindakafli síðari hluta júní-
mánaðar og var þá ör spretta.
Um síðustu helgi kólnaði svo aft-
ur, svo að snjókoma var í fjöllum
og á heiðum.
Hafís er kominn hér inn á Húna-
flóa og eitthvað virðist erfítt með
samgöngur á sjó. Sjósókn að sjálf-
sögðu útilokuð frá sumum stöðum
þar til úr rætist. Þrátt fyrir allt
þetta hefur nú síðustu daga verið
sæmilega hlýtt. Tún sem ekki hafa
verið beitt mikið em orðin slæg.
Þó byijað sé að slá á nokkmm
bæjum verður sennilega ekki byijað
almennt fyrr en um næstu helgi.
Vegna þess hve gróðurinn kom
seint þótti ekki ráðlegt að leyfa
almennan upprekstur á afrétti fyrr
en eftir 10. þessa mánaðar. Þó hef-
ur verið farið með nokkuð af fé
síðustu daga. Hér er orðið mjög
þurrt um og ár og lækir í algjöru
lágmarki.
Benedikt
Argonaut, 3.000 tonna herskip i eigu breska flotans.
Breskt flota-
skip í heimsókn
Á morgun, fimmtudag, er vænt-
anlegt hingað til lands breska
herskipið Argonaut. Skipið sem var
sjósett í febrúar 1966 sigldi á ámn-
um 1966-77 íj'órum sinnum
umhverfís jörðina og heimsótti
þijátíu mismunandi lönd. í Falk-
landseyjastríðinu skemmdist
Argonaut töluvert og tóku viðgerð-
ir rúmt ár. Skipið er búið sérstök-
um tækjum til að leita að og
fylgjast með ferðum kafbáta. Skip-
ið mun liggja við festar í Sunda-
höfn dagana 10.-13. júlí.