Morgunblaðið - 09.07.1986, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 09.07.1986, Qupperneq 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 1986 Jane Fonda upplýsti við þetta tæki- færi að bróðir hennar Peter væri á góðum batavegi eftir mótorhjóla- slysið, sem hann lenti í í fyrra. Hér sést Jane ásamt manni sínum Tom Hayden. Ursula Andress: Ljúf sem lömb. Sean Penn og kona hans Madonna. Þau hjóna- kornin vöktu athygli fyrir óvenjulega kurteisi og prúð- mennsku. Leikarinn Robert Wagner kom í fylgd Kate, dóttur sinnar og hinnar látnu leikkonu Natalie Wood. Fimmtug og fræg Er Ursula Andress steig á land ertir að hafa fengið sér svolít- inn sundsprett í afar aðskomum sundfötum sínum í kvikmyndinni Dr. No, steig hún um leið inn í veröld hinna frægu og framagjömu, stjama hennar skaust á loft. Síðan er liðinn heill aldarfjórðungur og þó svo margar myndir Andress hafi fallið í gleymskunnar dá, þá stendur hún enn fyrir sínu, þykir þokkafull með eindæmum. Undan- farin ár hefur líf leikkonunnar aðallega snúist um hinn fimm ára gamla son hennar, Dimitri, sem hún segir sitt dýrasta djásn. Nú hefur Ursula þó hafist handa við leikstörf á ný og fer hún m.a. með hlutverk í sjónvarpsþáttunum um Pétur mikla, „Peter the Great". Þess má svo að lokum til gamans geta, að Ursula Andress hélt upp á fímm- tugsafmælið sitt seinnipart mars- mánaðar sl. Söngkonan Cher mætti til leiks ásamt sambýlismanni sínum Josh Donen. At Close Range frumsýnd í Los Angeles Trúlega hefur leikarinn Christ- opher Walken verið eini leikar- inn í Los Angeles, sem ekki lét sjá sig er mynd hans „At Close Range" var frumsýnd fyrir skömmu. Héldu margir fyrst í stað að spennan hefði reynst honum um megn, taugatitr- ingurinn hefði tafið hann. Ekki reyndust þær getgátur þó á rökum reistar, því skömmu áður en sýning- in hófst skýrðu framleiðendur myndarinnar frá því að Walken væri löglega afsakaður, fjarvera hans stafaði ekki af feimni, heldur væri hann staddur í ísrael. Frum- sýningargestir létu þó fjarveru hans ekkert á sig fá, fylgdust grannt með framvindu mála á hvíta tjald- inu og skemmtu sér að sögn alveg konunglega. Meðal þeirra sem með hlutverk fara í myndinni er Sean Penn. Eiginkona hans, söngkonan Madonna, kemur einnig við sögu, syngur titillag myndarinnar, „Live to Tell“. Þau skötuhjú sem eru þekkt fyrir allt annað en blíðleg- heit, þegar fjölmiðlafólk er annars vegar, voru þó hin almennilegustu við þetta tækifæri og tókst ljós- myndurum m.a.s. að festa þau á fílmu, án þess að til slagsmála kæmi. En ef marka má okkar heim- ildir telst það víst til tíðinda. Til gamans birtum við hér fáein- ar myndir af nokkrum hinna frægu frumsýningargesta.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.