Morgunblaðið - 23.07.1986, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 23.07.1986, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLÍ 1986 Kaupfélag Patreksfjarðar: Rekstri úti- búsins að Krossholti við Barða- strönd hætt REKSTRI útibús Kaupfélags Patreksfjarðar að Krossholti við Barðaströnd hefur verið hætt sökum rekstrarerfiðleika, en síðasti opnunardagur kaupfé- lagsins var sl. föstudagur. Viku áður hafði rekstri útibúa kaupfélagsins á Bíldudal og Tálkna- firði verið hætt af sömu ástæðum og verslunarhúsnæði selt nýjum verslunareigendum ásamt vöru- birgðum. Matvöruverslun er haldið áfram á báðum stöðunum undir stjóm nýrra eigenda. í ráði er að selja húsnæði útibús- ins að Krossholti og sagði Jens Valdimarsson, kaupfélagsstjóri á Patreksfírði, í samtali við blaða- mann að enn væri óákveðið hvetjir keyptu, en hann áliti helst að stofti- að yrði hlutafélag heimamanna um áframhaldandi rekstur. Logaði í skipi við bryggju ELDUR kom upp í gærmorgun um borð í skipi sem lá við bryggju við skipasmíðastöðina Stálvik í Garðabæ. Gekk slökkvi- liði greiðlega að ráða niðurlög- um eldsins. Það var skömmu fyrir hálf tólf í gær að eldurinn kom upp um borð í Þuríði Halldórsdóttur GK 94, sem er um 200 tonna skip í eigu Valdi- mars hf. í Vogum. Var eldurinn í bjóðageymslu aftarlega í skipinu. Unnið var við rafsuðu í námunda við geymsluna og er talið að þang- að sé upptök eldsins að rekja. Sem fyrr segir gekk vel að slökkva eld- inn og var öllu lokið innan hálftíma. Stór borgarisjaki á Húnaflóa í gær. Myndin var tekin í ískönnunarflugi Landhelgisgæslunnar. Morgunbiaði«/T6mas Heigason Landhelgisgæslan í ísflug: Nokkrir borgarísjakar á stangli í Húnaflóa LITLAR breytingar höfðu orð- ið á hafísnum á Húnaflóa er Landhelgisgæslan fór í könn- unarflug um íssvæðið i gærmorgun. Isinn hafði þó gisnað litillega frá deginum áður á sjálfum flóanum og vitað var um nokkur skip sem fóru í gegnum ísinn í gærdag. Þar á meðal var strandferðaskipið Esjan, sem varð innlyksa á Norðurfirði á mánudag. Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni var landfast- ur is við Gjögur og suður að Bjamarfirði. Ishrafl er á Reykjar- fírði og Veiðileysufirði, um 1 til 3/io að þéttleika. Frá Bjamarfirði liggur ísinn í austur og norð- austur um 10 sjómílur og 270 gráður vestur af Kálfshamarsvík. Nokkrir borgarísjakar sáust á stangli í Húnaflóa í gær. Evrópumót yngri spilara: ísland stöðvaði signrgöngn Finna ÍSLENSKU strákarnir á Evr- ópumóti yngri spilara í brids stöðvuðu sigurgöngu Finna í níundu umferð, unnu þá 18—12. Fram að leiknum við ísland höfðu Finnar leitt mótið og ekki tapað Ieik, en virtust missa móð- inn við tapið, töpuðu aftur stórt í næsta leik og eru nú dottnir niður í sjötta sæti. Eftir tíu um- ferðir eru Pólverjar efstir með 188 stig, en íslendingar eru jafn- ir Dönum í 11.—12. sæti með 141 stig. I áttundu umferð lék ísland gegn ísrael og vann 18—12. Þeir unnu Finna í næsta leik, en töpuðu svo fyrir Dönum 11—19. í gærkvöldi áttið liðið að leika gegn Hollending- um, en þeir em í öðm sæti með 186 stig. Breytt aðferð við val á vinsældalista rásar 2: Krafist nafns og númers og skyndikönnun framkvæmd „VALI vinsældalista rásar 2 verður örugglega haldið áfram, en Ijóst er að fyrirkomulagi hans verður að breyta þar sem við höfum nokkr- um sinnum orðið vör við samantekin ráð um að hafa veruleg áhrif á niðurstöður listans hveiju sinni,“ sagði Þorgeir Ástvaldsson, for- stöðumaður rásar 2, í samtali við Morgunblaðið. „Það er í sjálfu sér erfítt að sældalistans þá.“ rekja, rökstyðja og sanna svindl, en viðvíkjandi þessu síðasta dæmi um Skriðjöklana frá Akureyri og lag þeirra „Hesta", stendur ftillyrð- ing gegn fullyrðingu. Mér er ljóst að á kerfisbundinn hátt hringdu einhveijir til að veija lagið og með vali á öðmm lögum, sem þeir kusu í annað og þriðja sæti, kom mjög rugluð mynd á niðurstöður vin- Þorgeir sagði að listinn á morgun yrði valinn á fímm stöðum á landinu, Reykjavík, ísafírði, Akur- eyri, Egilsstöðum og Vestmanna- eyjum, og allir landsmenn hefðu atkvæðisrétt að vanda á milli kl. 16.00 og 18.00 í stað 16.00 og 19.00 eins og verið hefði til þessa. Starfsfólk útvarpsins á þessum stöðum sér um framkvæmd könn- unarinnar. Farið verður fram á að viðkomandi gefí upp nafn, nafn- númer og símanúmer og síðan er ætlunin að samhliða þessu verði framkvæmd skyndikönnun þar sem dæmið snýst við, starfsfólk rásar 2 hringir út til hlustenda til að athuga hvort niðurstöður kannananna koma heim og saman. Tekið verður mið af skyndikönnuninni í niður- stöðum listans, en ekki hefur enn verið ákveðið vægi hennar í heildar- niðurstöðunum. „Við vitum að með þessari nýju aðferð er einnig hægt, með saman- teknum ráðum, að hafa áhrif á írskt fyrirtæki í hart við Arnarflug: Fresta kröfu um gjaldþrota- skipti meðan aðilar ræðast við — segir Sigurgeir Sigurjónsson hrl. „ÞAÐ ERU umræður í gangi milli aðila um samkomulag og meðan svo er mun ég ekki fara fram á gjaldþrotaskipti Arnar- flugs," sagði Sigurgeir Sigur- jónsson hæstaréttarlögmaður í samtali við Morgunblaðið i gær. Sigurgeir hefur tekið að sér fyr- ir írsku áhafnaleiguna Perc Ltd. að innheimta 26 milljóna króna skuld Amarflugs við áhafnaleig- una. Ahafnaleigan er dótturfyr- irtæki flugfélagsins Air Lingus. í gær var Sigurgeir tilbúinn með beiðni um gjaldþrotaskipti Ara- arflugs, sem hann hugðist afhenda skiptarétti. Hörður Einarsson, nýkjörinn stjómarformaður Amarflugs, sagð- ist ekki hafa miklar áhyggjur af þessu máli: „Það er verið að skoða dæmið í heild og geri ég ráð fyrir að samkomulag náist. Fjölmargir skuldunautar Amarflugs hefðu get- að farið fram á gjaldþrotaskipti fyrirtækisins á undanfömum mán- uðum. Kannski stafar harkan hjá írsku áhafnaleigunni af því að hún á sjálf í erfiðleikum. En hún hefði ekki hag af því frekar en mörg önnur fyrirtæki sem Amarflug skuldar að félagið yrði gert upp,“ sagði Hörður Einarsson.. einstök lög, en ætlunin er að reyna þessa aðferð í nokkrar vikur og vita hvort hinn eini og sanni vin- sældalisti komi í leitimar sem allir verða reyndar aldrei sammála um. Það segir sig sjálft að þessar breyt- ingar kalla á aukinn mannafla og þar með aukinn kostnað, en þó engar svimandi háar upphæðir,“ sagði Þorgeir. Þorgeir bætti því við að á sínum tíma hefði hann rætt við forráða- menn Hagvangs og Félagsvísinda- deildar HÍ um framkvæmd á vikulegu vali vinsældalistans, en með því að fá inn þriðja aðila til þess að annast könnunina, sagði hann að kostnaður myndi tvöfald- ast. þá sagðist hann lítillega hafa skoðað Gallup-kerfíð í Bretlandi, sem byggðist að meira eða minna leyti á hljómplötusölu, en voniaust væri að fara eftir því í svo fámennu þjóðfélagi sem hér væri. „Það er ánægjuefni hversu marg- ir fylgjast með listanum og hversu margir taka þátt í vali hans. Við vitum að þó til sé fólk sem er að reyna að hafa áhrif á niðurstöður listans, þá þarf töluvert til þess að hann breytist því það hringja milli 1.200 og 1.400 manns á hveijum fimmtudegi til að velja sín óskalög. Eitt af markmiðum okkar, sem út- varpsstöð var, er að halda góðu sambandi við hlustendur og er vin- sældalistinn mikilvægur hluti af því,“ sagði Þorgeir Ástvaldsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.