Morgunblaðið - 23.07.1986, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 23.07.1986, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLÍ 1986 Siðustu dag- ar Pompei Sjónvarp Arnaldur Indriðason Síðustu dagar Pompei (The Last Days of Pompeii). Framhaldsmyndaflokkur er hef- ur göngu sína 23. júlí. Stjörnu- gjöf: * Bandarísk/ítölsk framleiðsla. Leikstjóri: Peter Hunt. Handrit: Carmen Culver, byggt á bók Edward Bulwe Lyttons. Kvik- myndatökumaður: Neil Binney. Framleiðendur: Richard Irving og William Hill. Klipping: Ric- hard Marden. Sérstakar tækni- breUur: Peter Hutchinson. Helstu hlutverk: Franco Nero, Nicholas Clay, Ernest Borguine, OUcia Hussey, Duncan Regher, Ned Beatty, Anthony Quale, Laurence Oliver o.fl. 1x80 mín og 5x50 min. Þá hefur hótelstjórinn, Peter McDermott, og allt hans góðhjart- aða og indæla starfsfólk kvatt íslenska sjónvarpsgesti. Hótel fékk mann til að sakna Dallas, en þætt- imir sem nú taka við á miðviku- dagskvöldum, Síðustu dagar Pompei (The Last Days of Pom- peii) fá mann til að sakna Hótels og það eru ekki góð meðmæli. Nýi myndaflokkurinn, sem hefur göngu sína í kvöld, var framleiddur í samvinnu Bandaríkjamanna og Itala en talsvert hefur borið á ítalsk- ættuðum myndaflokkum í sjón- varpinu upp á síðkastið. Þeir hafa flestir verið íburðarmikil og rándýr epísk stórvirki, Marco Polo, Jesús frá Nasaret, Kólumbus og Verdi, (sem var í minna lagi, að ógleymd- um Kolkrabbanum) og þeir voru misjafnir að gæðum. Kólumbus var þeirra sfstur. Líf þessa mikla sæ- garps var fært niður á plan sápuóp- erunnar og sjálfur gekk Kólumbus, þessi mikli sjóari, um sviðið eins og metnaðarfullur prestur. Síðustu dagar Pompei gæti kallast ósköp venjuleg sápuópera, uppistaðan í myndaflokknum eru ástsjúkir menn og konur og það gerist ekki margt fýrr en til allrar guðslukku Vesúví- us fer að gjósa, en þá er þáttunum líka lokið. Myndaflokkurinn, sem er í sex þáttum, er byggður á sagnfræði- legu verki eftir Breta að nafni Edward Bulwer Lytto. Bók hans, „Síðustu dagar Pompei" kom út 1842 og er sagnfræðilegt rit eins og verk Sir Walter Scotts eru sagn- fræðileg. Bulwer hafði mikinn áhuga á Pompei og skáldaði upp nokkra borgarbúa í sögu sína og lýsti lffí þeirra og örlögum síðustu Clay, Hussey og Linda Purl forða sér undan eldgosi Vesúvíusar í framhaldsmyndaflokknum, Síðustu dagar Pompei, sem hefur göngu sina í sjónvarpinu í kvöld. dagana fyrir eldgos Vesúvíusar, sem lagði borgina í rúst og gróf undir ösku árið 79 eftir Krists burð. Bók hans er fyrst og fremst ástar- saga, mest byggð upp á löngum samtölum og ástaróðum og efnið hæfir í raun hvemig óperu sem er. Á meðal persóna sem Bulwer skapaði var Glásus (Nicholas Clay), sem er ákaflega menningarlegur Grikki og auðugur í þokkabót; Júlía (Catriona MacCali), sem er skotin f Klodíusi en þorir ekki að segja honum það vegna þess að hún er bara dóttir físksala; Díómedus, sem er þessi físksali, ríkur og feitur og vitlaus; Klodíus (Jerry Sondquist), sem er bláfátækur rómverskur að- alsmaður og skotinn í Júlíu en hann þorir ekki að segja henni það vegna þess að hann á ekki krónu; Nydia (Linda Purl), sem er blindur þræll, ósköp indæl og saklaus og neitar að vera hóra. Hún er því send beint á þrælamarkaðinn þar sem Glásus kaupir hana og gefur Ionu (Olivia Hussey), Iona er skotin í Glásusi og hann í henni en æðsti prestur- inn, Arbace (Franco Nero), sem er fósturfaðir Ionu og foringi trúar- hóps sem dýrkar gyðjuna Isis, hefur önnur plön fyrir hana og þau miður falleg; Lydone (Duncan Regehr) sem er ástsjúkur bardagaþræll en hann hefur unnið sér frelsi fyrir löngu með frækilegri framgöngu í bardagahringnum þar sem er sleg- ist upp á líf og dauða. Hann er skotinn í Nydíu og vill gjama hætta í hringnum en hann hefur bara svo gott uppúr því að drepa og Ólintó (Brian Blessed), sem er leiðtogi kristinna manna í borginni en kristni er bönnuð þeim sem hana stunda, er hent fyrir ljónin þegar næst til þeirra. VTSALA í €/AA VAG A morgun, fimmtudag er eins dags útsala í Etienne Aigner versluninni, Bankastræti 9, á stökum stærðum af skóm, buxum, pilsum og drögtum. Á föstudaginn er verslunin \ lokuð og á mánudag opnum við aftur með nýjar haustvörur, glæsilegri en ^ nokkru sinni. Verið ^ velkomin! „Menning'ar- sjóður vest- firskrar æsku“: Námsstyrk- ir til vest- firskra ungmenna STYRKIR verða veittir f ágúst- mánuði eins og undanfarin ár úr „Menningarsjóði vestfirskrar æsku“. Styrkirnir eru veittir til vestfirskra ungmenna til fram- haldsnáms, sem þau geta ekki stundað í heimabyggð sinni. Forgang um styrk úr sjóðnum að öðru jöfnu, hafa eftirtaldir: 1. Ungmenni, sem misst hafa fyrirvinnu sína (föður eða móður) og einstæðar mæður. 2. Konur, meðan ekki er fullt launajafnrétti. Ef ekki berast umsóknir frá Vest- fjörðum, koma til greina, eftir sömu reglum, umsóknir frá Vestfírðing- um búsettum annarstaðar. Félagssvæði Vestfírðingafélags- ins eru Vestfírðir allir (ísafjörður, ísafjarðarsýslur, Barðastrandar- og Strandasýsla ). Umsóknir þarf að senda fyrir lok júlí og þurfa meðmæli að fylgja umsókn, „frá skólastjóra eða öðr- um, sem þekkja til umsækjanda, efni hans og ástæður", eins og seg- ir í fréttatilkynningu frá Vestfírð- ingafélaginu. Umsóknir skal senda til „Menn- ingarsjóðs vestfírskrar æsku“, Sigríður Valdemarsdóttir, Njáls- götu 20 (jarðhæð), 101 Reykjavík. Á siðasta ári voru veittar kr. 60.000, til þriggja ungmenna, sem öll eru búsett á Vestfjörðum. í sjóðsstjóm eru: Sigríður Valde- marsdóttir, Þorlákur Jónsson og Guðrún Jónsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.