Morgunblaðið - 23.07.1986, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 23.07.1986, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLÍ 1986 35 Hótel Kristfna í Njarðvík. Morgunblaðið/Steingrfmur Nýtt hótel í Njarðvík NÝTT hótel, Hótel Kristína, á Holtsgötu 49 í Njarðvik, var formlega vígt föstudaginn 18. júlí sl. Eigandi er Steindór Sig- urðsson sérleyfishafi og fjöl- skylda hans. „Hótel Kristína er á tveimur hæðum, hvor fyrir sig 240 fermetr- ar. Á efri hæðinni eru 10 herbergi en á þeirri neðri 80-90 manna veit- ingasalur og setustofa," sagði Steindór í samtali við Morgunblaðið við vígsluna. „Ég byijaði á þessu í nóvember sl. og gerði fokhelt í febr- úar. Þá var gert hlé á framkvæmd- um en þær hófust aftur í maí sl. Ef þetta gengur vel er mögulegt að stækka hótelið um 50-60 her- bergi til viðbótar auk skrifstofa, en hvort og hvenær af því verður, verð- ur framtíðin að leiða í ljós.“ Hótel Kristína er annað hótelið, sem opnað er í Keflavík og Njarðvík í sumar, og það þriðja erí byggingu. Fjölskylda Steindórs mun sjá um allan rekstur hótelsins að mestu og mun yngri dóttir hans, Ingibjörg Steindórsdóttir, annast hótelstjóm. Steindór Sigurðsson hefur undan- farin ár verið sérleyfishafí á leiðun- um Njarðvík-Keflavík og Keflavík- Grinilavík. Einnig hefur Steindór annast skólaakstur, hópferðir og akstur fyrir vinnuflokka. Steindór Sigurðsson ásamt eiginkonu sinni, Kristinu Guðmunds- dóttur, og yngri dóttur, Ingibjörgu Steindórsdóttur en, hún mun sjá um rekstur hótelsins. Sex eininga Salix hillusamstæöa frá VIÐJU á kr. 23.800,- Hvít með bláum eða rauðum skúffum og skápahurðum. 20% ÚTBORQUM 12 MÁMAÐA QREIÐ5LUKJÖR HÚSGAGNAVERSLUNIN VIÐJA Smiðjuvegi 2 Kópavogi sími 44444 Þar sem góðu kaupin gerast i bílnum. Góöur hátalari er lykiilinn að góðum hljómburði. Roadstar AD-3800X frábœrir 120 watta hátalarar á aðeins 5.890,- kr. pariðt Roadstar RS-960X 4 hátalarar, -2 i hurð og 2 aftur í- 150 watta hátalarar á aðeins 10.900,- kr. Roadstar RS-400 er sérhannaður til að flytja mœlt mál. Ómissandi fyrir bílstjórann, sem þá losnar við að ver sífellt að hœkka og lœkka í útvarpinu. Roadstar kraftur-hljómgœði Roadstar i bilinn VIÐTDKUM VEL Á MÓTIÞÉR SKIPHOLTI 19 SÍMI 29800

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.