Morgunblaðið - 23.07.1986, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 23.07.1986, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLÍ 1986 27 Aðalfundur Búnaðarsambands Vestfjarða: Rættum hömlur á fram- leiðslu bænda Midliúsum, Reykhólasveit. FYRIR nokkru hélt Búnaðarsam- band Vestfjarða aðalfund sinn á Reykjanesi við Djúp. Aðalmál fundarins voru hömlur sem verið er að setja á framleiðsiu bænda og heita ýmsum fallegnm nöfn- um s.s. fullvirðisréttur, búmark og kvóti svo eitthvað sé nefnt. Fyrir nokkrum árum var sam- þykkt að búnaðarsambandið gæfí út tímamótarit og hefur margs- konar efni verið safnað um bændafólk og býli á sambands- svæðinu. Búið er að ráða Kjartan Olafsson fyrrverandi alþingismann til þess að sjá um verkið og kemur hann til starfa í ágústmánuði. Þetta ritverk er búið að vera lengi í undir- búningi og talið er að það taki allt að tvö ár í viðbót að koma því á prent. Þrír ráðunautar eru í starfi hjá búnaðarsambandinu. Þeir eru Sig- urður Karlsson í fullu starfí og Þórarinn Sveinsson og Hilmar Öss- urarson báðir í hálfu starfí. Ráðunautamir gerðu grein fyrir störfum sínum á fundinum. Búnaðarsambandsfulltrúum var boðið að Nauteyri að skoða laxeldis- stöðina þar. Engilbert Ingvarsson formaður stjómar og Benedikt Egg- ertsson framkvæmdastjóri sýndu gestum fyrirtækið. Blandað er sam- an heitu og köldu vatni og virðist vel til stöðvarinnar vandað { alla staði. Einnig var skoðuð laxeldis- stöðin í Reykjanesi í boði Skarp- héðins skólastjóra þar. Þar er blandað saman sjó og heitu vatni og virtust laxamir hafa það ágætt og þrífast vel. Eitt erfíðasta málið við að fást var að koma saman lista til búnað- arþingskosninga. Skoðanir voru margar og ólíkar og telja margir að fulltrúa eigi að velja í beinum kosningum. Hinsvegar komu eigi fram nokkrar óskir frá búnaðarfé- lögunum handa fulltrúum að fara eftir. Eftir margs konar aðgerðir vom eftirtaldir menn kosnir sem búnaðarþingsfulltrúar næsta kjör- tímabil: Birkir Friðbertsson og Össur Guðbjartsson sem aðalfull- trúar og Ágúst Gfslason og Grímur Amórsson sem varamenn. Gestir fundarins vom Ámi Jónas- son frá Stéttarsambandi bænda og Ingi Garðar Sigurðsson tilrauna- syóri á Reykhólum. Báðir þessir menn héldu erindi og kom það fram I erindi Inga að þörf á kölkun túna færi vaxandi á Vestfjarðakjálkan- um. Einnig var Guðmundur Ingi Kristjánsson heiðursfélagi Búnað- arsambands Vestfjarða gestur fundarins. Svanhildur Jónsdóttir, Flatey, var fyrsti kvenfulltrúi á aðalfundi Búnaðarsambands Vest- fjarða. Stjóm búnaðarsambandsins skipa: Valdimar Gíslason formaður, Friðbert Pétursson gjaldkeri og Kristján Guðmundsson ritari. Sveinn AÐUR EN ÞU EERÐ ÚR LANDI## ^TT ÞÚ ERINDI í ÚTVEGSBANKANN á_ \_\ i FRA TRYGGINGA MIÐSTOÐINNI HF. ÞU FÆRÐ: 1. GTALDEYRINN. 2, FERÐATRYGGINGU 3. EUROCARD KREDITKORT ASAMT GESA ORYGGISKORTI m l! GS$61 4. 10 HOLLRÁÐ VARÐANDI VARÐVEISLU FIARMUNA OG FERÐASKILRÍKIA. Veistu t .d. 1. Hvernig best er að geyma erlendan gjaldeyri? 2. Hvaða ferðaskilríki er best að skilja eftir heima? 3. Hvað er innifalið í ferðatryggingu? 4. Hvað ber að taka til bragðs hendi þig eitthvað óhapp erlendis? 5. Að til er leynivasi fyrir skjöl og fé? Reynslan í gjaldeyrisþjónustu og erlendum viðskiptum er okkar megin. ÚTVEGSBANKINN GYLMIR/SlA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.