Morgunblaðið - 23.07.1986, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 23.07.1986, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLÍ 1986 fclk í fréttum * Stóra stundin rennur upp Loftið er rafmagnað, þrungið spennu og hátíðleik. Loksins er hann runninn upp, þessi lang- þráði dagur, sem öll heimsbyggðin hefur beðið eftir, og þá sér í lagi breskir þegnar. Klukknahljómur, kampavín og alls kyns kræsingar eru einkenni hans, hversdagsleikan- um er ýtt til hliðar og landið lamast stutta stund. Flestir fá frí úr vinnu til að geta fylgst með stórkostlegri athöfninni — séð það með eigin augum þegar Andrew prins og Sara Ferguson heita hvoru öðru ævi- langri trú og tryggð. Þúsundir ef ekki milljónir manna taka sér stöðu á götum úti og hylla hjónakomin meðan heilu flölskyldurnar koma sér fyrir framan við skjáinn til að sjá sem best hvert smáatriði. Það er sama hvar þeir eru staddir. Bret- amir óska brúðhjónum sínum hamingju og heilla í huganum. Það kom öllum mjög á óvart að þau Andrew og Sara skyldu rugla sdman reitum sínum. Þau höfðu reyndar leikið sér mikið saman í bemsku, verið ágætis vinir í æsku en síðan skildu leiðir og þau þrosk- uðust, hvort í sína átt. I fjölmiðlum hefur löngum verið dregin upp ein- hvers konar glaumgosamynd af prinsinum. Hann er sagður hafa verið mikið upp á kvenhöndina, gefinn fyrir hið ljúfa líf. Sjálfur segir hann sögur þessar afskaplega ýktar og vinum hans ber saman um að þrátt fyrir að hann sé kátastur fjögurra barna Elísabetar drottn- ingar sé hann í raun afskaplega dulur og fari mikið einförum. Reyndar var hann á unga aldri annálaður prakkari, en eftir því sem árunum fjölgaði dró hann sig æ meira inn í skel sína. Eina alvarlega ástarsambandið, sem hann hefur lent í, var samband hans við leik- konuna og fyrirsætuna Koo Stark. Það ævintýri endaði þó með ósköp- um, er upp komst að hún hefði leikið í einhveijum léttúðugum kvikmyndum, komið fram á hvíta tjaldinu heldur fáklædd. Stúlkan þótti því engan veginn samboðin hinum háa herra og sambandinu var slitið í skyndi, eins og mönnum er eflaust í fersku minni. Andrew Albert Christian Edward fór ekki í framhaldsnám að loknum menntaskóla. 1979 gekk hann hins- vegar í sjóherinn, líkt og faðir hans, prins Philip, hafði gert. En hver er saga brúðarinnar? — Eins og nærri má geta hafa bresk- ir fjölmiðlar verið æði iðnir við að grafa upp alls kyns smáatriði um fortíð hinnar tilvonandi prinsessu. Eftir því sem næst verður komist hefur Sara líka lifað mjög tilbreyt- ingaríku lífu, ferðast víða og skemmt sér vel á sínum 26 árum, svo vel, að hinum ströngustu sið- ferðispostulum þykir víst nóg um. Hinsvegar hefur engum tekist að finna neitt svo vafasamt við fortíð hennar, að óverjandi sé að hún komist í konungsfjölskylduna. Hún er dóttir þeirra Susan Barrantes og Ronalds Ferguson, majórs og ólst upp á sveitasetri föður síns í Hamp- shire. í æsku var hún álitin mjög ærslafull, stal senunni, hvar sem hún kom og var afskaplega vinsæl, sakir fyndni og fjörs. Þeir, sem vel þekkja stúlkuna segja hana eflaust eiga eftir að hrista svolítið upp í hinni konunglegu fjölskyldu, gera hana virkari í daglegu lífi þjóðarinn- ar. „Helgislepja og hátíðleiki eru ekki hennar ær og kýr,“ segja sér- fróðir. „Það lýsir henni t.d. afskap- lega vel að henni skyldi takast að draga Díönu út í dulargervi á ein- Klækjakvendið Díana kom hjónakornunum í rauninni saman. „Ég vár viss um að Sara myndi heilla hann upp úr skónum,“ segir hún. „Hún á örugglega eftir að hrista upp í þessu öllu saman, bíðið þið bara,“ segja sérfróðir menn. Fjörkálfur- inn Fergie á fullri ferð. hvem skemmtistað," bæta þeir við og fullyrða að þetta sé aðeins byij- unin á óvæntum uppákomum og furðulegum hugdettum hnátunnar. „Hún er svo lífsglöð og kát að eðlis- fari að maður kemst ekki hjá því að hrífast með henni." Er Sara var 14 ára stakk móðir hennar af frá sveitasetrinu, sótti svo um skilnað og giftist argentíska póló-leikaranum Hector Barrantes. Skilnaðinn tók Sara afskaplega nærri sér á sínum tíma, en jafnaði sig alveg er faðir hennar gekk að eiga aðra konu, sem einnig heitir Susan. Þær urðu nefnilega mjög nánar vinkonur og vitnar Sara ávallt til hennar sem hinnar „grimmu og harðbijósta stjúpu" í góðlátlegum tón. Hinu er þó ekki að neita að skilnaður foreldra henn- ar var í fyrstu þymir í augum sumra Breta. „Hjónabandið er heilagt og skilnaður skömm,“ sögðu þeir. Ekki varð það til að milda afstöðu þeirra, er þeir komust að því að stjúpfaðir Söm er argentískur í húð og hár. Þar sem brúðguminn sjálfur barðist við Argentínumenn í Falklandseyja- stríðinu 1982, vildu sumir sleppa því að bjóða stjúpanum í brúðkaup- ið. Drottningin lætur hinsvegar athugasemdir þessar sem vind um eyru þjóta og hefur að sjálfsögðu boðið báðum foreldrum Söm og núverandi mökum þeirra. Ákvörð- unin olli svolitlum deilum, en Bretar bera þó ótakmarkaða virðingu fyrir þjóðhöfðingja sínum og dómgreind drottningar. Undanfarið hafa því fyrmefndir menn haft hljótt um sig. Sara Ferguson, eða Fergie, eins og hún er oftast kölluð, á afskap- lega lítið sameiginlegt með prins- essunni á bauninni, svo mikið er víst. Hún hefur lifað ævintýralegu lífí, gert hluti sem hina meðlimi fjöl- skyldunnar hefði aldrei látið sig dreyma um. Til að mynda fóm hún og vinkona hennar Charlotte Eden, í heimsókn til Argentínu árið 1980. Ferðuðust þær síðan með rútu í gegnum Suður-Ameríku og þaðan til Bandaríkjanna. „Er við komum að landamærum Brasilíu og Arg- entínu vomm við báðar orðnar blankar, áttum ekki aur,“ upplýsir Charlotte. „Við gripum því til þess ráðs að leggja okkur á almennings- bekkjum á umferðarmiðstöðinni þar. Þetta vom frábærir dagar og við báðar með eindæmum kæm- lausar. Ég er viss um að Fergie mun minnast þessara daga sem ein- hverra sinna bestu,“ bætir hún við. En það er fleira, sem fjölmiðlam- ir hafa tínt til. Sara Ferguson var nefnilega í föstu sambandi með manni að nafni Paddy McNally. McNally er 48 ára ekkjumaður, fyrmm umboðsmaður kappaksturs- hetjunnar Nikki Lauda. Samband þeirra stóð í ein 3 ár og lauk ekki fyrr en eftir að þau Sara og Andrew hittust á ný fyrir rúmu ári. En hvaða dularfullu öfl ollu þess- um rómantísku endurfundum? Þau dularfullu öfl ganga undir nafninu Díana prinsessa. Þær Sara og Díana hafa nefnilega verið góðar vinkonur í fjöldamörg ár. Díana þóttist viss um að Sara væri kjörinn kvenkostur fyrir mág sinn, Andrew. Þess vegna brá hún sér sem snöggv- ast í búning Amors og kbm því þannig fyrir að þau sætu hlið við hlið á Ascot-veðreiðunum í fyrra. Herbragð hennar bar líka tilætlaðan Ræðismenn í New York - heiðra Ivar Guðmundsson Stjóm ræðismannafélagsins í New York — The Society of Foreign Consuls in New York — hefur sæmt ívar Guðmundsson, fyrrverandi aðalræðismann Islands þar í borg, skrautrituðu heiðurs- skjali „til viðurkenningar á framúr- skarandi starfi, þegnskap og framlagi hans til félagsins og ræðis- mannasveitarinnar í heild". í New York eru nú rúmlega 90 ~ aðalræðisskrifstofur, fleiri en í nokkurri annarri borg veraldar og er ívar fyrrverandi forseti ræðis- mannafélagsins. Meðfylgjandi mynd var tekin er aldursforseti ræðismanna í New York, Antonio Aris de Castilla, aðalræðismaður Guatemala í New York, afhenti Ivari skjalið við hátíðlegt tækifæri. og Antonio Aris de Castilla virða skjal- ívar Guðmundsson ið góða. fyrir sér Pierce Brosnan — hinn nýi James Bond Framleiðendur „James Bond- myndanna" óttuðust það mjög um tíma að illa myndi ganga að finna arftaka Rogers Moore í hlut- verk spæjarans. Moore hafði unnið hugi og hjörtu áhorfenda — og þá sér í lagi þeirra, sem kvenkyns eru. Nú hafa þeir hins vegar tekið gleði sína á ný, því þeir þykjast hafa fundið mann sem fær er um að feta í fótspor hans. Er hér átt við leik- arann Pierce Brosnan, sem getið hefur sér gott orð á hvíta tjaldinu vestan hafs undanfarið. Brosnan er kvæntur þriggja bama faðir og að sögn var leið hans á toppinn bæði löng og ströng. Hann vann sem bílstjóri á daginn, lék í auglýs- ingum á kvöldin og tók fegins hendi alla þá aukavinnu sem honum bauðst. „Frami minn er fyrst og fremst konu minni, Cassöndm, að þakka,“ segir Pierce. „Hún hefur ávalt stutt mig dyggilega og talið í mig kjark, þegar ég var sjálfur að gefa upp alla von. Engu að síður er hún afskáplega raunsæ og gætir þess vel, núna, þegar velgengnin blasir við, að ég hafi báða fætur á jörðinni. Sjálf hefur hún kynnst þessum kvikmyndaheimi lítillega — lék meðal annars eina stúlkuna í Bond-myndinni „For Your Eyes Only“. Sem stendur er hún heima- vinnandi, enda eigum við 3ja ára gamlan son, sem þarf á öðm hvom okkar að halda." Pierce Brosnan er orðinn stjama, á því leikur enginn vafi. Kvenfólkið eltir hann á röndum og kvikmynda- framleiðendur keppast við að gera honum tilboð. „Eg er afskaplega hamingjusamlega giftur," segir hann, „svo ég er á stöðugum flótta undan kolmgluðu kvenfólki. Það er athygli sem ég kæri mig lítið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.