Morgunblaðið - 23.07.1986, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLÍ 1986
35
Hótel Kristfna í Njarðvík.
Morgunblaðið/Steingrfmur
Nýtt hótel í Njarðvík
NÝTT hótel, Hótel Kristína, á
Holtsgötu 49 í Njarðvik, var
formlega vígt föstudaginn 18.
júlí sl. Eigandi er Steindór Sig-
urðsson sérleyfishafi og fjöl-
skylda hans.
„Hótel Kristína er á tveimur
hæðum, hvor fyrir sig 240 fermetr-
ar. Á efri hæðinni eru 10 herbergi
en á þeirri neðri 80-90 manna veit-
ingasalur og setustofa," sagði
Steindór í samtali við Morgunblaðið
við vígsluna. „Ég byijaði á þessu í
nóvember sl. og gerði fokhelt í febr-
úar. Þá var gert hlé á framkvæmd-
um en þær hófust aftur í maí sl.
Ef þetta gengur vel er mögulegt
að stækka hótelið um 50-60 her-
bergi til viðbótar auk skrifstofa, en
hvort og hvenær af því verður, verð-
ur framtíðin að leiða í ljós.“
Hótel Kristína er annað hótelið,
sem opnað er í Keflavík og Njarðvík
í sumar, og það þriðja erí byggingu.
Fjölskylda Steindórs mun sjá um
allan rekstur hótelsins að mestu og
mun yngri dóttir hans, Ingibjörg
Steindórsdóttir, annast hótelstjóm.
Steindór Sigurðsson hefur undan-
farin ár verið sérleyfishafí á leiðun-
um Njarðvík-Keflavík og Keflavík-
Grinilavík. Einnig hefur Steindór
annast skólaakstur, hópferðir og
akstur fyrir vinnuflokka.
Steindór Sigurðsson ásamt eiginkonu sinni, Kristinu Guðmunds-
dóttur, og yngri dóttur, Ingibjörgu Steindórsdóttur en, hún mun sjá
um rekstur hótelsins.
Sex eininga Salix hillusamstæöa frá VIÐJU á kr. 23.800,-
Hvít með bláum eða rauðum skúffum og skápahurðum.
20% ÚTBORQUM
12 MÁMAÐA QREIÐ5LUKJÖR
HÚSGAGNAVERSLUNIN
VIÐJA
Smiðjuvegi 2 Kópavogi
sími 44444
Þar sem
góðu kaupin
gerast
i bílnum.
Góöur hátalari er lykiilinn að
góðum hljómburði.
Roadstar AD-3800X frábœrir
120 watta hátalarar á aðeins 5.890,- kr. pariðt
Roadstar RS-960X 4 hátalarar,
-2 i hurð og 2 aftur í-
150 watta hátalarar á aðeins 10.900,- kr.
Roadstar RS-400 er
sérhannaður til að flytja mœlt mál.
Ómissandi fyrir bílstjórann, sem þá losnar við
að ver sífellt að hœkka og lœkka í útvarpinu.
Roadstar kraftur-hljómgœði
Roadstar i bilinn
VIÐTDKUM VEL
Á MÓTIÞÉR
SKIPHOLTI 19
SÍMI 29800