Morgunblaðið - 23.07.1986, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLÍ 1986
5
„Lítum svo á að
kennarar fallist
á sérkj arasamn-
inga hjá HÍK“
— segir Indriði H. Þorláksson deildar-
stjóri launadeildar fjármálaráðuneytis
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ og samninganefnd Bandalags kennarafé-
laga gengju frá nýjum aðalkjarasamningi í gær, en slíkur samningur
hefur verið ógerður, ailt frá því að fjármálaráðherra viðurkenndi
Bandalag kennarafélaga sem samningsaðila nú í ársbyijun. Kjara-
deila þessi var komin til Kjaradóms, en aðilar hittust þar fyrir
dómnum, og ákveðið var að kanna hvort ekki næðist samkomulag
um aðalkjarasamninginn, sem tókst svo í gær, að sögn Indriða H.
Þorlákssonar, deildarstjóra í fjármálaráðuneytinu.
Indriði sagði að Kennarasam- kvæmt undanfama mánuði.
band Islands og Hið íslenska
kennarfélag væru aðilar að banda-
laginu, en samningar BHM giltu
fyrir HIK út þetta samningstíma-
bil, þannig að samningurinn í gær
næði því einungis til Kennarafélags
íslands. Indriði sagði að fjármála-
ráðherra hefði í febrúar sl. ákveðið
að greiða félögum í KÍ sömu laun
og kennurum í HÍK. Það hefði ver-
ið gert frá þeim tíma, og þessi
samningur væri nánast orðrétt eins
og samningur BHM við fjármála-
ráðuneytið var, þannig að hann
fæli ekki í sér neina launabreytingu
hjá kennurum, heldur væri nú form-
legur samningur kominn á á milli
aðila um það sem hefði verið fram-
Indriði sagði að samninganefnd
fjármálaráðuneytisins liti þannig á,
að Bandalag kennara með þessum
samningi hefði þar með samþykkt
að ganga inn í þá sérkjarasamninga
sem gerðir hefðu verið við kennara
innan BHM. Hér væri um þá stefnu
að ræða, að samræma kjör kennara
að öllu leyti, þannig að ekki yrði
skapað neitt misræmi á milli kenn-
arahópanna á samningstímabilinu.
„Við lítum því þannig á, að með
því að ganga til aðalkjarasamnings
feli það í sér, að kennarar muni
fallast á meginlínuna í sérkjara-
samningunum, eins og niðurstaða
þeirra varð hjá Kjaradómi, um kjör
kennara í HIK,“ sagði Indriði.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Stofnun Lindar hf. kynnt á blaðamannafundi í gær. Við borðsendann eru fulltrúar Banque Indozues,
Christian Minzolin og Jean Pierre Molin og siðan Þorsteinn Ólafsson, Geir Magnússon og Þórður Yngvi
Guðmundsson.
Samvinnubankinn, Samvinnusjóðurinn og frönsk bankasamsteypa:
Grafningur:
Innbrot í
sumarbústaði
Vart hefur orðið við innbrot í
sumarbústaði í Grafningi.
Eigendum sumarbústaða á þessu
svæði er bent á að huga að bústöð-
um sínum, hvort þar hefur verið
farið inn og dyr og gluggar ef til
vill skildir eftir opnir. Verði fólk
vart við að umgangur hafi verið við
bústaði þess, er það vinsamlegast
beðið um að láta lögregluna á Sel-
fossi vita strax.
Stofna nýtt fjármögn-
unarfyrirtæki, Lind hf.
SAMVINNUBANKI íslands hf.,
Samvinnusjóður íslands hf. og
Banque Indosuez í Frakklandi
stofnuðu í gær fjármögnunarfyr-
irtækið Lind hf.
Meginhlutverk fyrirtækisins er
að stunda kaupleiguviðskipti og
fjármögnunarleigu á íslandi, en fé-
laginu er jafnframt ætlað að veita
lán og ábyrgðir, bæði áhættulán
og fjárfestingarlán, að veita fjár-
málaþjónustu fyrir innlend og
erlend fyrirtæki og stuðla að við-
skiptatengslum og samböndum
milli innlendra og erlendra fyrir-
tækja. Til að byija með mun fyrir-
tækið einbeita sér að íjármögnunar-
leigu og kaupleigusamningum, en
síðar snúa sér að öðrum verkefnum.
Hluthafar hafa ákveðið, til að
byija með, að fjárfesta 110 milljón-
ir króna í fyrirtækinu, í formi
hlutafjár og víkjandi hluthafaláns.
Stjóm fyrirtækisins er skipuð
fimm mönnum: Af hálfu Banque
Indosuez era það þeir Jean Pierre
Molin, bankastjóri aðalbankans í
París, og Philippe Wauquiez, yfir-
maður bankans á Norðurlöndum.
Af hálfu Samvinnubankans og
Samvinnusjóðsins, Erlendur Ein-
arsson, formaður bankaráðs
Samvinnubankans, Geir Magnús-
son, bankastjóri Samvinnubankans,
og Þorsteinn Olafsson, stjómarfor-
maður Samvinnusjóðsins.
Sérstök stjómamefnd hefur verið
skipuð, sem tekur ákvarðanir á
milli stjómarfundaT í stjómarnefnd-
inni eiga sæti þeir Geir Magnússon,
Christian Minzolini, sem eryfirmað-
ur Banque Indosuez í Danmörku
og á íslandi, og Þórður Ingvi Guð-
mundsson, framkvæmdastjóri
Samvinnusjóðsins, en Þórður mun
samhliða því starfí gegna starfí
framkvæmdastjóra Lindar fyrst um
sinn.
Hið nýja fyrirtæki mun njóta
sérfræðilegrar aðstoðar
Locafrance, sem er fjármögnunar-
fyrirtæki í eigu Banque Indosuez-
samsteypunnar.
Samvinnubankinn mun veita fyr-
irtækinu ýmsa þjónustu; húsnæðis-
aðstöðu, starfslið að híuta, tölvu-
og bókhaldsþjónustu o.s.frv. Ætl-
unin er, að fljótlega bætist annar
fastur starfsmaður við fyrirtækið
auk Þórðar.
Banque Indosuez er með stærstu
fjármálafyrirtækjum í Frakklandi
og einn af hundrað stærstu bönkum
heimsins. Bankinn starfar í um 65
Iöndum heims og hefur stofnað fjár-
mögnunarleigufyrirtæki víðs vegar
um heim.
Áætlað er að Lind hf. taki form-
lega til starfa í lok ágúst eða byijun
september.
É.
GÆDINGARNIR FRA
MITSUBISHI
1987
ERU AÐ KOMA
...oghafa aidrei veríö betrí
nn HEKLAHF
1 " 1 Laugavegi 170-172 Simi 695500
'
S