Morgunblaðið - 23.07.1986, Síða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLÍ 1986
Sumar-rósir
Lb réttatímar sjónvarpsins ganga
■ ekki ætíð snurðulaust eins og
hefir verið marg bent á, til dæmis
í Víkverja. Er þá einkum átt við
tæknileg mistök af ýmsum toga.
Eg hef lítt rætt um þessi mál hér
í dálki en nú fæ ég ekki orða bund-
ist því sá einstæði atburður átti sér
stað í sjónvarpsfréttatíma mánu-
dagsins að ein fréttin gleymdist
hreinlega. Við upphaf fréttatímans,
þegar efnisskrá var kynnt, sagði
þulur að vænta mætti viðtals við
danskan blaðamann er hefði gagn-
rýnt Grænfriðunga og birtist
augnabliksmynd af blessuðum
manninum. Síðan tilkynnir Sigrún
Stefánsdóttir í miðjum fréttatíma
að nú sé von á Boga Ágústssyni
og danska blaðamanninum en svo
fer allt í steik... Við sýnum við-
talið síðar í fréttatímanum: segir
Sigrún og gefur boltann til Páls
Magnússonar. En svo líður og bíður
og ekki bólar á þeim danska. Frétta-
stjóri sjónvarpsins verður að passa
upp á að laxamir losni ekki af öngl-
inum með fýrrgreindum hætti og
glatist í hylnum.
Vinsœldalistarnir
Nú vík ég mínu kvæði í kross
og rabba stuttlega um vinsældalista
rásar 2. Tilefnið er beinskeyttur
háðstekti er hraut af gullinni
strenghörpu Bubba Morthens í
þættinum: Rokkamir geta ekki
þagnað, frá 18. þessa mánaðar. En
þar ræddi Bubbi um ónefndan
starfsmann rásar 2 sem stýrir ekki
aðeins vinsælum poppþáttum og
skrifar í blöð um poppmúsik heldur
á nú topplag á vinsældalistanum
margfræga. Ég skil vel að Bubba
Morthens og fleiri tónlistarmönnum
gremjist að einn og sami maðurinn
skuli hafa slík ítök á vomm smáa
tónlistarmarkaði. Ég efa ekki heið-
arleika umrædds dægurlagasmiðs,
poppsöngvara, poppskríbents og
dagskrárgerðarmanns á rás 2 en
þess ber að gæta að hér er bitist
um vinsældir á hljómplötumarkaðn-
um og því er hvers kyns valdsöfnun
ti) dæmis í slgoli Ríkisútvarpsins
næsta varasöm. Nú og hvað um
vinsældalistana margfrægu er ráða
svo miklu um plötusöluna? Stjóm-
endur morgunþáttar rásar 2 efndu
til símaspjalls í fyrri viku þar sem
hlustendur sögðu álit sitt á vin-
sældalistanum. Þar kom ýmislegt í
ljós til dæmis hringdi einn náungi
af bflaverkstæði hér í bæ og upp-
lýsti að þeir félagamir á verkstæð-
inu hefðu tekið sig til og komið
ónefndu kúrekalagi á vinsældalist-
ann. Þá hringdi afgreiðslumaður frá
litla notalega kaupfélaginu þeirra
Olísmanna við Gullinbrú: „Krakk-
amir koma stundum hingað í
hópum og hringja í vinsældalist-
ann.“ Annar taldi aðeins eina
vænlega lausn á „vinsældalista-
svindlinu" eins og hann kallaði það:
„Látum viðurkennd fyrirtæki á borð
við Hagvang um vinsældalistann."
Svo mörg voru þau orð en vissulega
hringdu margir sem vora hæst-
ánægðir með listann.
Klámtextar
Þessa dagana sjá fjölmargar nýj-
ar hljómplötur dagsins ljós og era
náttúralega kynntar samdægurs á
rás 2 með tilheyrandi rabbi við tón-
listarmennina. Ég kann þessu vel
og í mínum huga vex tónlistin líkt
og sumarblóminn í átt til móðurinn-
ar miklu hæst í hæðum. En einn
skugga ber á sumardýrðina — hina
klámfengnu texta er nokkrir skalla-
popparar hafa nú í sumar spymt
úr klaufunum. Menn geta klæmst
í friði fyrir mér en persónulega
fínnst mér óþarfí að breyta rás 2 í
almenningssalemi þar sem menn
fá að klóra órana á veggi í nafni
fijálslyndis og ímyndaðra vinsælda.
Ólafur M.
Jóhannesson
ÚTVARP/SJÓNVARP
Land og saga:
„Landsins
forni
fjandi“
■■■■ I dag er þáttur-
1 A30 'nn Land °K
1" saga á dagskrá
hljóðvarps. Að þessu sinni
verður fjallað um hafísinn
hér við land og mun á áhrif-
um elds og ísa. Umsjónar-
maður þáttarins, Ragnar
Ágústsson flytur formála
og tengir saman efni. Les-
arar með honum era Unnur
Ágústa Siguijónsdóttir og
Ragnar Sær Ragnarsson.
1322
á dagskrá
í dagsins önn —
böm og um-
hverfi þeirra er
hljóðvarps laust
Þættir úr sögu
Reykjavíkur:
„í leit
að
betra
lífi“
■■■■ I kvöld er á dag-
91 30 skrá hljóðvarps
^ fímmti þáttur-
inn um sögu Reykjavíkur.
Að þessu sinni ber þáttur-
inn yfirskriftina „í leit að
betra lífi“ og verður fjallað
um það hvemig fólk þóttist
eygja möguleika á betra
lífi í höfuðstaðnum og var
reiðubúið að taka saman
pjönkur sínar og setjast þar
að, — eða var neytt til þess,
s.s. vegna harðindanna
1880-1890. Sagt er frá
stofnun fyrstu hagsmuna-
samtaka launafólks og
frambemskuáram reyk-
vískrar verkalýðshreyfíng-
ar. Umsjónarmaður
þáttarins er Auður G.
Magnúsdóttir en lesari með
henni er Gerður Róberts-
dóttir.
I dagsins önn
eftir hádegi í dag. í þættin-
um verður fjallað um
fjölmiðlafræðslu í skólum
og litið til framtíðarinnar í
því sambandi. Rætt verður
við Martein Geirsson kenn-
ara, Steinþór Ólafsson
blaðamann og Þorbjöm
Broddason lektor. Umsjón-
armenn þáttarins era Anna
G. Magnúsdóttir og Lilja
Guðmundsdóttir.
Síðustu
dagar Pompei
■i í kvöld hefst í
35 sjónvarpi nýr
ítalsk-banda-
rískur framhaldsmynda-,
flokkur í sex þáttum,
Síðustu dagar Pompei (Gli
Ultimi Giomi Di Pompei).
Þættimir era byggðir á
sagnfræðilegri skáldsögu
eftir Edward Bulwer Lytt-
on, en þýðandi er Þuríður
Magnúsdóttir.
ÚTVARP
MIÐVIKUDAGUR
23. júlí
7.00 Veöurfregnir. Fréttir
Bæn.
7.15 Morgunvaktin.
7.30 Fréttir. Tillcynningar
8.00 Fréttir. Tilkynningar
8.15 Veðurfregnir
8.30 Fréttir á ensku.
9.00 Fréttir
9.05 Morgunstund barn-
anna: „Pétur Pan og Vanda"
eftir J.M. Barrie.
Sigríður Thorlacius þýddi.
Heiðdís Norðfjörð les (21).
9.20 Morguntrimm. Tilkynn-
ingar. Tónleikar, þulur velur
og kynnir.
9.46 Lesiö úr forustugreinum
dagblaðanna.
10.00 Fréttir
10.06 Daglegt mál. Endurtek-
inn þáttur frá kvöldinu áður
sem Guðmundur Jónsson
flytur.
10.10 Veöurfregnir.
10.30 Land og saga. Ragnar
Ágústsson sér um þáttinn.
11.00 Fréttir.
11.03 Samhljómur. Umsjón:
Ýrr Bertelsdóttir og Guð-
mundur Jónsson.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.30 ( dagsins önn — Börn
og umhverfi þeirra. Umsjón:
Anna G. Magnúsdóttir og
Lilja Guðmundsdóttir.
14.00 Miðdegissagan:
„Katrín", saga frá Álands-
eyjum eftir Sally Salminen.
Jón Helgason þýddi. Stein-
unn S. Sigurðardóttir les
(17).
14.30 Noröurlandanótur.
Svíþjóð.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
15.20 Á hringveginum —
Austurland. Umsjón: Inga
Rósa Þórðardóttir, Örn
Ragnarsson og Ásta R. Jó-
hannesdóttir.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.16 Veðurfregnir.
16.20 Síðdegistónleikar.
Fiðlukonsert í D-dúr op. 35
eftir Pjotr Tsjaíkovskí. David
Oistrakh og Fílharmoníu-
sveitin í Moskvu leika;
Gennadí Roszdestvenskí
stjórnar.
17.00 Fréttir.
17.03 Barnaútvarpið
Stjórnandi: Sólveig Páls-
dóttir. Aðstoðarmaður:
Sigurlaug M. Jónasdóttir.
17.45 í loftinu — Hallgrímur
Thorsteinsson og Guölaug
María Bjarnadóttir. Tilkynn-
19.00 Úr myndabókinni — 12.
þáttur
Barnaþáttur með innlendu
og erlendu efni. Kuggur,
myndasaga eftir Sigrúnu
Eldjárn, Fálynd prinsessa,
Bleiki pardusinn, Snúlli snig-
ill og Alli álfur, Ugluspegill,
Raggi ráðagóöi, Alfa og
Beta, Klettagjá og Hænan
Pippa. Umsjón Agnes Jo-
hansen.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
ingar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.40 Tilkynningar.
19.45 Að utan. Fréttaþáttur
um erlend málefni.
20.00 Sagan: „Sundrung á
Flambardssetrinu" eftir
K.M. Peyton. Silja Aðal-
steinsdóttir les þýöingu sína
(15)..
20.30 Ýmsar hliðar. Þáttur i
umsjá Bernharös Guö-
mundssonar.
21.00 Horfins tíma hljómur.
Fjóröi og síöasti þáttur. (Frá
Akureyri).
21.30 Þættir úr sögu
Reykjavíkur. Sjötti þáttur: í
leit að betra lifi. Umsjón:
Auður Magnúsdóttir.
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orð kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
MIÐVIKUDAGUR
23. júlí
20.00 Fréttir og veöur
20.30 Auglýsingarogdagskrá
20.35 Smellir
Queen — fyrri hluti
Umsjónarmaður Hallgrimur
Óskarsson. Stjórn upptöku:
Friðrik Þór Friðriksson.
21.05 Niagara fossarnir
(The Niagara Falls)
Bandarísk heimildarmynd
um þessa frægu fossa,
kynni manna af þeim í gegn-
um tíöina og mikilvægi
22.20 Hljóð-varp. Ævar Kjart-
ansson sér um þátt i
samvinnu viö hlustendur.
MIÐVIKUDAGUR
23. júlí
9.00 Morgunþáttur
Stjórnendur: Kristján Sigur-
jónsson, Páll Þorsteinsson
og Kolbrún Halldórsdóttir.
Kl. 10.05 fléttast inn i þátt-
inn u.þ.b. fimmtán minútna
þeirra fyrir bandariska kvik-
myndagerö. Þýðandi:
Reynir Harðarson.
21.35 Síöustu dagar Pompei
(Gli Ultimi Giorni Di Pompei)
Fyrsti þáttur.
Ítalsk-bandarískur fram-
haldsmyndaflokkur í sex
þáttum, gerður eftir sagn-
fræöilegri skáldsögu eftir
Edward Bulwer Lytton. Þýö-
andi: Þuriður Magnúsdóttir.
23.05 Fréttir í dagskrárlok
23.10 Djassþáttur. — Jón Múli
Árnason.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
barnaefni sem Guðríður
Haraldsdóttir annast.
12.00 Hlé.
14.00 Kliöur
Þáttur í umsjá Gunnars
Svanbergssonar og Sigurð-
ar Kristinssonar. (Frá
Akureyri.)
15.00 Nú er lag
Gunnar Salvarsson kynnir
gömul og ný úrvalslög að
hætti hússins.
16.00 Taktar
Stjórnandi: Þórarinn Stef-
ánsson.
17.00 Erill og ferill
Erna Arnardóttir sér um tón-
listarþátt blandaðan spjalli
við gesti og hlustendur.
18.00 Hlé.
20.00 Tekiö á rás.
Ingólfur Hannesson og
Samúel Örn Erlingsson lýsa
leik KR og Fram og leik
Breiöabliks og Akraness í
átta liða úrslitum Bikar-
keppni Knattspyrnusam-
bands Islands.
22.00 Dagskrárlok.
Fréttir eru sagðar kl. 9.00,
10.00, 11.00, 15.00, 16.00
og 17.00.
SVÆÐISÚTVARP
BJEYKJAVÍK
17.03—18.00 Svæöisútvarp
fyrir Reykjavík og nágrenni
- FM 90,1 MHz.
AKUREYRI
17.03—18.30 Svæðisútvarp
fyrir Akureyri og nágrenni —
FM 96,5 MHz.
SJÓNVARP