Morgunblaðið - 23.07.1986, Qupperneq 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVTKUDAGUR 23. JÚLÍ 1986
Þýskur ræktandi íslenskra hrossa:
Vill fá Hrafn frá Arnanesi
26 vetra til Þýskalands
Morgunblaðið/Valdimar Krístinsson
Hrafn frá Árnanesi lét það ekki raska ró sinni þótt ljósmyndari
sniglaðist í kringum og jafnvel þótt gengið væri að honum og tekn-
ir upp fætur hélt hann áfram að bíta, enda orðinn veraldarvanur.
________Hestar
Valdimar Kristinsson
Nýlega barst Gunnari Bjamasyni
fyrrverandi hrossaræktarráðunauti
bréf frá þýskum manni sem ræktar
íslensk hross í heimalandi sínu. í
bréfinu fer Þjóðveijinn sem heitir
Wemer Dietz fram á það við Gunn-
ar að hann aðstoði sig við að fá
stóðhestinn Hrafn 583 frá Ámanesi
til Þýskalands. Nú er það ekki í
, frásögur færandi þótt útlendingur
fali stóðhest, en í þessu tilviki er
hesturinn sem hér um ræðir 26
vetra gamall og sennilega einsdæmi
að stóðhestar endist svo lengi sem
Hrafn hefur gert. í vor fæddust 20
folöld undan Hrafni og nú er hann
með tíu hryssur í girðingu í Einars-
nesi sem er skammt frá Borgamesi.
Ekki mun ætlun Dietz að nota
Hrafn til undaneldis á búgarði
sínum, sem hann hefur skýrt í höf-
uðið á Hrafni og kallast hann
Hrafnsholt, heldur á hesturinn að
vera þar tákn fyrir ræktun hom-
firskra hrossa á meginlandinu.
í bréfi sínu segir herra Dietz
m.a. „í júlí 1986 fór ég að Einars-
nesi í Borgarfirði þar sem Hrafn
er nú með nokkrar hryssur. Ástand
hestsins hefur ekkert batnað síðan
í vor þegar ég sá hann síðast, hann
er orðinn linur í framfótum og sér-
staklega í hægri framfæti þar sem
hann er nánast haltur. Þetta tel ég
stafa af lítilli umhirðu í ellinni. Er
ástand hans þó þannig að hægt er
að bæta það vegna erfðaupplags
hans og þess hversu sterkur hestur-
inn er. Tel ég að heiðursverðugur
hestur eigi heiður að fá og sting
ég upp á því að Hrafn fái að koma
á búgarð minn og vera þar hin
síðustu ár án vinnu eða ónæðis. Það
er ósk mín að hann verði tákn fyr-
ir ræktun mína á homfirskum
hrossum. Að hann verði einskonar
kóróna búgarðsins til viðbótar því
að við höfum skýrt búgarðinn
Hrafnsholt. Eg hygg að allir rækt-
endur og unnendur homfírskra
hrossa geti verið mér sammála um
að aldrei verði of miklu kostað til
að láta slíkan stóðhest frægan og
fagran, sem hefur gefið slík úrvals
afkvæmi, njóta alls hins besta sem
kostur er á í ellinni.
Ég og fjölskylda mín mjmdum
taka þetta embætti að okkur með
mikilli gleði og ég hygg að ég fái
stuðning íslenskra vina homfírsku
hrossanna í ósk minni. Vertu nú
vænn og talaðu við eigendur Hrafns
og vini þeirra og alla þá sem þetta
mál varðar til að koma þessu í
kring. Ég hef þegar boðið eigendum
hestsins og þér að koma ykkur að
kostnaðarlausu til Hrafnsholts svo
þið mættuð sannfærast um að vel
verði séð um Hrafn".
Um þessa bón sagði Gunnar
Bjamason: „Sjálfum finnst mér
þetta sjálfsagt því ég veit að vel
verður um hestinn hugsað. Hann
yrði sendur með flugvél því herra
Dietz telur of mikið álag að senda
hestinn með skipi. Ég held þetta
geti orðið góð og skemmtileg aug-
lýsing fyrir þá sem rækta niðja
hans. Þetta fínnst mér líka bera
vott um þá dýravináttu sem ein-
kennir marga útlendinga. Hér er á
ferðinni hrifning á homfirskum
hrossum og íslandi. Þetta er ekki
fyrir að maðurinn vantreysti íslend-
ingum til að annast hestinn. Hann
veit að þeir muni fella hestinn. Er-
lendis er svo mikil væntumþykja
þegar slíkir gripir eiga í hlut að
þeir reyna að halda f þeim lífínu
eins lengi og mögulegt er án þess
að þau þjáist".
En það em ýmsir þröskuldar á
veginum með útflutning á svo göml-
um hestum. Landbúnaðarráðuneyt-
ið þarf að gefa undanþágu fyrir
útflutningi á eldri hestum en tíu
vetra og ef til útflutnings á Hrafni
kemur mun Páll Agnar Pálsson yfir-
dýralæknir þurfa að veita umsögn
sína um það hvort hesturinn hafi
heilsu til að þola flutninginn og þær
umhverfisbreytingar sem hann yrði
óhjákvæmilega fyrir. I samtali við
Morgunblaðið sagðist Páll ekki bú-
ast við að hestur á þessum aldri
væri í ástandi til að þola þær breyt-
ingar sem slíkur flutningur hefði í
för með sér. Benti hann á að það
væri ekki bara sjálfur flutningurinn
því þegar út kæmi yrði hesturinn
fyrir einhveijum fóður- og loftlags-
breytingum en það sem væri sjálf-
sagt verst er hættan á sumarexemi
eða öðrum smitsjúkdómum. Kvaðst
Páll ekki vilja taka þátt í að hrekja
aldna höfðingja úr landi að tilefnis-
lausu.
Einnig hefur heyrst að Páll heit-
inn í Árnanesi hafi óskað eftir því
áður en hann féll frá að Hrafn fengi
að bera beinin í Árnanesi þegar
hann yrði felldur en á móti hefur
verið bent á að hægt sé að flytja
beinin frá Þýskalandi þegar klárinn
yrði felldur þar og þau síðan grafin
í Ámanesi.
Eigendur Hrafns eru Þorleifur
Hjaltason í Hólum í Nesjahreppi og
Haraldur Torfason á Höfn en hann
Útgerð í Ásunum
Þvilik veiði er nú i Laxá á
Ásum að með ólíkindum má
heita og tala veiddra laxa nálg-
ast óðfluga fjögurra stafa tölu.
Afkastamiklir stangarmenn
voru í ánni fyrir skemmstu,
veiddu síðdegis á sunnudaginn
og til hádegis á mánudag. Eftir
daginn lágu í valnum 80 laxar
og það virðist varla viðeigandi
að greina frá slíkri veiði utan
að minna á eina ferðina enn
að allur þessi gríðarlegi afli er
tekinn á tvær dagstangir.
Þórarinn Sigþórsson og Sigmar
Bjömsson, miklir laxabanar,
veiddu 49 laxa sem er met í Laxá
á einum degi og ugglaust þótt
víðar væri leitað. Að sögn Þórar-
ins hefðu þeir getað veitt mun
sagði í samtali við Morgunblaðið
að þeir hefðu ekki tekið ákvörðun
fyrir sitt leyti hvort þeir létu klárinn
en hann tók líka fram að ekki væri
búið að afsegja þetta.
Hrafn var sýndur með afkvæm-
um á Landsmótinu 1970 á Skógar-
hólum og varð hann þar í öðm
sæti. Margir góðir hestar eru til
undan honum víða um land og er
þeirra þekktastur stóðhesturinn
meira. „Þetta var mikið á flugu
hjá okkur, að minnsta kosti helm-
ingurinn. Við lentum í botnlausum
flugutökum í Sauðaneskvömun-
um. Það var á bókstaflega í hveiju
kasti. Línan náði aldrei að rétta
úr sér, fyrr hafði lax gripið flug-
una. Þetta var bara asskoti gott.
Þessi á er alveg einstök," sagði
Þórarinn.
Með hina stöngina voru Þor-
geir Daníelsson, Hildur Símonar-
dóttir og Sverrir Kristinsson og
stóðu þau einnig í ströngu, tóku
31 lax, þar af 20 fyrsta eftirmið-
daginn. „Við Þorgeir veiddum til
skiptis og Hildur hafði varla und-
an að rota og plasta. Þetta kom
til hennar á færibandi. Þetta er
erfítt maður, næstum því á við
tvo túra á saltfisk," sagði Sverrir
í samtali við Morgunblaðið.
Ófeigur 818 frá Hvanneyri sem
hlaut heiðursverðlaun fyrir af-
kvæmi á nýafstöðnu landsmóti.
Þess má í lokin geta að fái Wemer
Dietz Hrafn hefur hann í hyggju
að láta þekktan listamann gera
bronsstyttu af honum í fullri
Iíkamsstærð sem mun væntanlega
gegna hlutverki hestsins að honum
föllnum.
Dauft í Soginu
Fremur dræm veiði hefur verið
í Soginu það sem af er og er að
sjá sem laxinn sé tregur að ganga
upp í jökulvatninu, en þar er víða
mikið af honum. Á sunnudaginn
veiddust til dæmis 10 laxar á þijár
stangir í landi Hellis og Fossness
og dijúg veiði hefur verið það sem
af er í Langholti og á Snæfoks-
stöðum. í gærdag höfðu aðeins 6
laxar veiðst í landi Syðri-Brúar
og innan við 20 hjá Bíldsfelli.
Eitthvað hafði veiðst í Ásgarði,
Alviðm og Þrastarlundi, en ekki
mikið og er beðið eftir „skoti".
Eitthvað mun þó hafa gengið af
laxi en hann er eigi nýrunninn
lengur og tregur í agnið.
Gott í Laxá í Dölum
Góð veiði hefur verið í Laxá í
Dölum, komnir em vel á fimmta
hundrað laxar á land og vænta
menn þess að áin eigi enn eftir
að sýna sitt besta, sbr. í fyrra er
rosalegur endasprettur tryggði
metveiði það sumarið, 1.600 laxa.
Allmikill lax er genginn í ána og
hefur dreift sér vel, en áin er orð-
in æði vatnslítil og það kemur
óneitanlega niður á tökunni.
Hekla tekur við Seat-
umboðinu af Töggi
Töggur fær ekki sendingu með 100
bílum sem allir voru seldir og jafn-
vel búið að borga inn á
HEKLA hf. hefur nú tekið við Seat-umboðinu á íslandi af Töggi
hf. í kjölfar þess að Volkswagen-verksmiðjurnar þýsku hafa tek-
ið yfir meirihlutann í Seat-verksmiðjunum af spænska ríkinu.
Hekla hefur sem kunnugt er verið umboðsaðili Volkswagen hér
á landi um árabil. Þessi breyting hefur haft í för með sér að
Seat-verksmiðjumar á Spáni hafa ákveðið að afgreiða ekki hing-
að til lands um 100 bifreiðir, sem Töggur átti von á nú i þessum
mánuði og hafði lagt fram bankaábyrgðir fyrir, en á annað hundr-
að pantanir lágu fyrir hjá umboðinu.
Forsvarsmenn Töggs hafa
skrifað öllum þessum aðilum bréf,
þar sem harmað er að fyrirtækið
geti ekki sinnt þessum pöntunum
ásamt skýringum á því hvað valdi
og lýst yfir að allir þeir sem bún-
ir hafi verið að greiða inn á
pantanir sínar fái þá peninga end-
urgreidda. Til athugunar er af
hálfu Töggs að höfða skaðabóta-
mál á hendur Seat-verksmiðjun-
um fyrir vanefndir.
Finnbogi Eyjólfsson, taismaður
Heklu hf., sagði í samtali við
Morgunblaðið að þessa breytingu
á umboðsaðila fyrir Seat hér á
landi hefði borið mjög brátt að.
Ástæðan fyrir breytingunni væri
hins vegar fyrst og fremst þau
nýju viðhorf sem skapast hefðu
með því að Volkswagen hefði
keypt meirihlutann í Seat af
spænska ríkinu. „Þetta er heldur
alls ekki í fyrsta sinn sem breyt-
ingar af þessu tagi verða hér í
framhaldi af því að fyrirtækjum
erlendis er steypt saman og er
þar skemmst að minnast samein-
ingar Case- og Harvester-dráttar-
vélaverksmiðjanna, sem leiddi til
breytinga á umboðsaðila hér á
landi," sagði Finnbogi.
Finnbogi lagði hins vegar
áherslu á að þessi breyting á
umboðsaðila Seat hér á landi
væri á engan hátt að frumkvæði
Heklu hf. heldur alfarið ákvörðun
Volkswagen-verksmiðjanna, sem
hefði haft nána samvinnu við
Heklu um áratuga skeið. „Við
hugsum okkur engu að síður gott
til glóðarinnar, því að Seat er
mjög álitlegur bfll í sölu,“ sagði
hann. „Hann ber merki um
skemmtilega fjölþjóðlega sam-
vinnu, því að útlit hans er ítalskt,
tæknin hins vegar þýsk og hand-
bragðið spánskt, en Spánveijar
hafa einmitt mjög gott orð á sér
sem góðir handverksmenn. Þá er
Seat Ibiza, sem mest selst hér af,
í talsvert lægri verðflokki en aðr-
ir bflar, sem Hekla hefur getað
boðið, en hann kostar um 280
þúsund krónur og því vel sam-
keppnisfær meðal bfla í ódýrustu
verðflokkunum. Okkur er síðan
efst í huga að þessi breyting valdi
sem minnstri röskun hjá þeim sem
eiga Seat-bfla nú þegar eða hafa
> hyggju að fá sér slíka bíla og
við erum staðráðnir að halda uppi
þeim þjónustustaðli gagnvart Seat
sem Hekla hefur fyrir löngu getið
sér orð fyrir."
„Mikid áfall,“ segir
markaösstjóri Töggs
„Þetta er mikið áfall fyrir
Tögg,“ sagði Ágúst Ragnarsson,
markaðsstjóri Töggs hf., í sam-
tali. „Það er hins vegar ekkert
við þessu að gera, þó það sé sárt
og þeim mun sárara að þegar við
tókum við Seat-umboðinu fyrir
tveimur árum var það fyrir orð
Ingimundar Sigfússonar í Heklu,
sem reyndar flutti inn tvö fyrstu
Seat-bílana til landsins. Volks-
wagen átti þá þegar orðið hlut í
verksmiðjunni og hann var beðinn
um að hafa milligöngu um að
finna umboðsaðila hér á landi.
Þetta þýddi hins vegar að við urð-
um að láta af hendi Lancia-
umboðið, þar eð okkar aðal við-
skiptavinur erlendis, Saab í
Svíþjóð, taldi ekki fært að við
værum með umboð fyrir tvo smá-
bflaframleiðendur jafnframt því
að sinna þeim.“
Ágúst sagði að á þessum tveim-
ur árum sem liðin væru síðan
Töggur tók við Seat-umboðinu,
hafí umboðið lagt bæði vinnu og
fjármuni til að markaðssetja þessa
gerð bíla hér á landi og þetta mál
komi upp á einmitt þegar hjólin
hafi verið að bytja að snúast.
„Það eru þegar komnir um 100
Seat-bílar á götumar hér á landi.
Við áttum síðan von á 100 bíla
sendingu, þar sem allir bílamir
væru seldir og vorum með 40—50
pantanir í viðbót fyrir næstu send-
ingu. Við höfðum opnað ábyrgð
fyrir þessum bílum í júní og áttum
von á því að þeir færu í skip núna
2. júlí. Við vissum síðan ekkert
um þessi breyttu viðhorf fyrr en
í síðustu viku, og síðan er okkur
tjáð að það verði ekkert af því
að við fáum þessa sendingu sem
við áttum pantaða. Það þykir okk-
ur verst af öllu, því að þama
verður stór hópur fólks fyrir veru-
legu óhagræði. Við erum hins
vegar búnir að senda öllu þessu
fólki bréf, skýra frá málavöxtum,
benda þeim á að Hekla taki við
umboðinu og jafnframt bjóðast til
að endurgreiða þeim sem vom
búnir að borga inn á þessa bíla
hjá okkur," sagði Ágúst enn-
fremur.
Hann var að því spurður hvort
til greina kæmi af hálfu Töggs
að höfða skaðabótamál vegna
þessa. „Ekki gagnvart Heklu, því
að umboðin tvö hafa reynt að
ganga frá þessu máli sín á milli
af eins miklu bróðemi og unnt
er við þessar kringumstæður,"
svaraði Ágúst. Hann kvað þá for-
svarsmenn Töggs hins vegar
mundu skoða það mál vel á næst-
unni hvort málsatvik gæfu e.t.v.
tilefni til þess að Töggur höfðaði
skaðabótamál gegn Seat-verk-
smiðjunum fyrir vanefndir.