Morgunblaðið - 23.07.1986, Page 41
MORGPNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLÍ 1986
41
árangur — Andrew og Sara tóku
tal saman og virtust skemmta sér
hið besta. Reyndar kom nú svolítið
babb í bátinn yfír miðdegisverðin-
um, sem endaði með því að Sara
gaf prinsinum dágóðan kinnhest.
Astæðan fyrir þessum refsiaðgerð-
um var stríðni hans hátignar. Sara
var nefnilega í megrunarkúr á þess-
um tíma og vildi því ekki borða
súkkulaðið sem var í eftirrétt.
Púkinn kom þá upp í prinsinum og
lét hann einhveijar athugasemdir
flúka um bogadregnar línur stúlk-
unnar. „Það tók töluverðan tíma
fyrir mig að sannfæra hana um ást
mína,“ segir Andrew. „Meira að
segja brást hún hin versta við bón-
orði mínu. Ég kraup á hnén og bað
hana um að giftast mér og hún
stóð upp og sagðist skyldu hlæja
að þessum stórgóða brandara dag-
inn eftir."
En þó svo skoðanir hafí verið
skiptar um Söru Ferguson fyrst í
stað, virðist þessi bústna, rauð-
hærða, glaðlynda stúlka nú hafa
heillað bresku þjóðina upp úr skón-
um. Hún er blátt áfram, einlæg og
eðlileg og vilja margir m.a.s. meina
að hún muni verða þess valdandi
að tískan breytist töluvert á næstu
árum, fáein aukakiló verði einungis
álitin hraustleikamerki.
Og nú í dag rennur sem sagt
stóra stundin upp. Síðasta æfíngin
var á mánudag og gekk hún alveg
stórslysalaust fyrir sig. Reyndar
hafði það vakið athygli á öllum
æfíngum að bróðir brúðgumans,
Edward, var með höndina í fatla.
Blaðafulltrúi fjölskyldunnar upp-
lýsti að prinsinn hefði verið bitinn
af kiwifugli á ferð sinni um Nýja
Sjáland. A síðustu æfingunni tók
hinsvegar einhver skarpskyggn
maður eftir því að fatlinn var á
vitlausri hendi.
Eftir svolítið uppistand og rök-
ræður dró fulltrúinn fyrri upplýs-
ingar til baka og sagði að Edward
hefði aðeins verið að grínast. Hann
hefði bara viljað fá smá athygli í
öllu þessu umstangi. Á mánudag
var fólk þegar farið að koma sér
fyrir á gangstéttinni framan við
kirkjuna, enda ekki seinna vænna,
vilji maður tryggja sér gott útsýni.
„Það tók töluverðan tíma að
sannfæra Söru um ást mína,“
segir prinsinn Andrew.
Höfðu þessir forsjálu menn með-
ferðis nesti og nýja skó og stóla,
sem þeir hafa sofíð í undanfamar
2 nætur.
Mikil áhersla hefur verið lögð á
allan undirbúning og þess vandlega
gætt að ekkert geti farið úrskeiðis.
Oryggisverðir verða á hverju horni
og gott betur en það, því þeir verða
2.000 talsins dreifðir á 1,6 kíló-
metra leið. Brúðkaupstertan sem
er 168 sm að hæð er komin í hús,
en hana varð að flytja með flutn-
ingabíl 450 kílómetra. Einnig er
búið að þjálfa 8 brúðarmeyjar og
sveina á aldrinum 4—8 ára og taka
af þeim loforð um að hegða sér nú
vel. Yngsti brúðarsveinninn er prins
William, sonur Karls og Diönu. Að
sögn er móðir hans æði áhyggju-
full því William er víst þekktur fyrir
flest annað en þægð. Hann er mik-
ill brandarakarl og hefur oft valdið
svolitlum usla við opinber tækifæri.
Segist hún heist vilja koma fyrir
súkkulaðikúlum á þeim stað, sem
hann á að standa. „Það er eiginlega
eina vonin til að hann verði til friðs,“
segir Díana.
Þau Andrew og Sara hafa ákveð-
ið að gifta sig upp á gamla móðinn
— Sara lofar hlýðni og undirgefni.
Díana lét á sínum tíma taka þetta
ákvæði út úr ræðu kardinála en
Sara hefur annan háttinn á. Mikil
leynd hvílir enn yfír tveimur atrið-
um — brúðarkjólnum og brúðkaups-
ferðinni. Fjölmiðlar hafa því getið
sér þess til að hveitibrauðsdögunum
eyði hjónakomin á Azor-eyjum en
þær tilgátur hafa ekki fengist stað-
festar.
Faðir brúðarinnar, Ronald
Ferguson segist hlakka mikið til
hjónavígslunnar. „Þetta verður ör-
ugglega alveg stórkostleg athöfn,"
segir hann. En kvíðir hann ekkert
fyrir að leiða dóttur sína upp að
altarinu? „Eflaust á Sara eftir að
hvísla leiðbeiningum að mér á leið-
inni," segir hann. „Gakktu hægar
eða hraðar, vertu beinn í baki
o.s.frv. En það eru bara eðlileg og
mannleg viðbrögð þegar álagið er
mikið,“ bætir hinn stolti faðir við.
Athöfnin fer fram í dag í West-
minster Abbey, þar sem meðlimir
konungsfjölskyldunnar hafa verið
skírðir, fermdir, giftir og jarðaðir
undanfarin 920 ár. Hjónavígslan
hefst kl. 15 að íslenskum tíma, svo
það má reikna með að um kl. 17
verði Sara orðinn fullgildur meðlim-
ur fjölskyldunnar.
Ástfangin upp fyrir haus — myndimar voru teknar er þau opin-
beruðu trúlofun sína, þann 19. mars sl.
g
Alsæl með lífið og tilveruna og
jarðsambandið í góðu lagi -
Cassandra og Pierce Brosnan.
um. Hins vegar kann ég vel að
meta áhuga ráðamanna í kvik-
myndaheiminum, því get ég ekki
neitað,“ bætir hann við og brosir
breitt.
— Sestu aðeins á stólinn, ég þarf að hita diskinn.
Greiningar- og
ráðgjafastöð ríkisins
verður lokuð til 18. ágúst vegna sumarleyfa. For-
stöðumaður verður til viðtals flesta dagana kl.
13.00 — 14.00 í síma 12628.
TOPP-
T I L B O Ð
Barnasandalar úr leðri.
Litir: hvítt, blátt, grænt, bleikt.
Stærðir: 28-35.
Verð: 690.-
Einnig bjóðum við fleiri gerðir
barnasandala ásamt miklu
úrvali af nýkomnum karl- og
kvenskóm.
Póstsendum samdægurs.
Ekkert venjulegt
Sænsku strákarnir
Guy’s and Dolls
Þeir eru níu og ætla að sýna kvenfatnað frá
GOLDIE og GÆJUM.
Slíkar uppákomur hafa aldrei sést
hér áður.
3
GULLFALLEGAR STÚLKUR
FARA ÚR FÖTUNUMÁ ÓVIÐJAFN-
AMI FOAN HÁTT
. ■ „arnflr bvria kl. 23.00.
Ath: syningarMr ö„ kvöld.
Opnum niður ki. ^
XSPLENDID
heldur uppi stanslausu jjöri uppi.