Morgunblaðið - 07.08.1986, Side 6

Morgunblaðið - 07.08.1986, Side 6
6 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR' 7. ÁGÖST'1986 ÚTVARP / SJÓNVARP Sinna w Eg lofaði því í gærdagsgreininni að minnast í dag á Sinnu, þátt um listir og menningarmál líðandi stundar, sem er í umsjón Ragnheiðar Gyðu Jónsdóttur og Þorgeirs Ólafs- sonar uppúr hádegi á laugardögum. Þáttur þessi er býsna áheyrilegur og mjög í hóf stillt músíkinnskotum en þau voru reyndar helsta umræðuefni síðasta þáttarkoms. Annars er ekki sama hvar og hvemig maður nálgast útvarpsefni. Þannig vildi til að ég nálgaðist Sinnuna í afar menningar- legu umhverfi önnum kafinn við að rífa uppmosasteina úr landi Reykjaví- kurborgar á Grafarvogshæðum. Viðtækið í bílnum hamast í kapp við kríuna og þegar augun hvarfla frá moldarbörðunum og steinhrúgunum blasir við skjannahvít Áburðarverk- smiðjan eins og töfrahöll og svo framundan öskuhaugunum Viðey skreytt litfögrum tjöldum og við einn voginn ofurlítil skúta máski nýkomin frá Atlantis og ögn til vinstri heiðblár Jakinn við Sundahöfn gneistandi af sólargeislunum. Getur dauðlegur maður vænst nokkurs betra í þessu lífi? Jú ekki sakar að heyra af heims- menningunni af Erró á bíenalinum, en þau Ragnheiður Gyða og Þorgeir ræddu við Gunnar Kvaran listsagn- fræðing sem er nýkominn frá Feneyj- um þar sem hann Erró blessaður vakti meiri athygli en aðrir fulltrúar Norð- urlandanna og svo upphófust Valkyij- ur Wagners svo mikilfenglegar að krían lagði andartak við hlustimar og síðan tók Arthúr Björgvin Bollason við og lýsti Bayreuth-hátíðinni þar sem fimmtíu þúsund manns hittast ár hvert og hlýða á hinn mikla hring: Der Ring des Nibelungen. Tveirgóðir Lýsing Arthúrs Björgvins á Bayr- euth-hátíðinni var álíka vönduð og lýsing Guðmundar Heiðars FVímanns- sonar á breska skólakerfinu er ég gat um í gærdagspistli. Þannig rakti Art- húr Björgvin sögu Bayreuth-hátíðar- innar og leit vítt yfir óperusvið dagsins í dag. Slíkir útvarpsmenn eru gersemi því þeir vinna starf sitt af kostgæfni og hlustendur fara ríkari af fundi. Þeir Guðmundur Heiðar og Arthúr Björgvin eru líka prýðilega máli famir og er greinilegt að þeir spretta úr frjóum jarðvegi íslenskrar alþýðumenningar. Þá félaga þarf ekki að auglýsa í lit. Auðvitað er notalegt að hafa brandarakalla við hendina þegar grámi hversdagsins leggst á sálartetrið en ósköp verður maður nú stundum leiður á þessum síbrosandi náungum er halda að þeir fljóti enda- laust á bröndumnum. Hér sem annars staðar gildir hið fomkveðna að verkið lofar meistarann. 300þúsund Eins og ég sagði áðan hittast fimmtíu þúsund menn ár hvert á Bayreuth-hátíðinni að hlýða á hinar tyrfnu tónsmíðar meistara Wagners en vissuð þið lesendur góðir að 300 þúsund manns fá ekki miða eða svo sagði Arthúr Björgvin okkur í Sinnu. Þegar ég heyrði þessa tölu þá rann upp fýrir mér ljós og mosagijótið hreinlega rauk upp úr mosabreiðunum hans Davíðs. Ef Þjóðveijar geta lokk- að til sín 300 þúsund manns í biðraðir fyrir utan Bayreuth þá getum við ís- lendingar Iiæglega lokkað til sögueyj- arinnar álíka marga að horfa á íslendingasögumar sviðsettar úti í hinni hrikalegu og ónumdu náttúru landsins. Hugsið ykkur allar milljón- imar er þyrstir eftir að komast til fjarlægrar eyjar þar sem sagnir fortí- ðar kvikna til lífs í ægifögru landslagi. Fáum Jón Pál og Schwarzenegger þann er lék villimanninn Conan til að auglýsa söguleikana og síðan sjá Hrafn og Bergman um sviðsetning- una. Ólafíir M. Jóhannesson ------ linni sést Heitar krásir úr köldu stríði: Trausti Jónsson veðurfræðingur. Á innfelldu myndinni sést Magnús Þór Jóns- son, Megas. Dægnrflugnr ársins 1954 ^■■■1 Trausti Jónsson 9Q00 veðurfræðingur 0g Magnús Þór Jónsson, betur þekktur sem Megas, verða í þessum mánuði og fram í byijun september með þátt á rás 2 sem þeir nefna Heitar krásir úr köldu stríði. í kvöld ætla þeir að leika lög frá 1954 eða þar um bil. Eða éins og Trausti orðar það: „Við ætlum að ímynda okkur að rás 2 hafi verið til árið 1954 og leika lög í samræmi við það.“ Þetta verða í bland lög sem flestir kannast við og lög sem hafa af einhveijum ástæðum gleymst og heyr- ast ekki lengur. Reykjavík í augum skálda ■■■■ í kvöld er á dag- 91 20 skrá rásar 1 " tíundi þátturinn í þáttaröðinni um reykvísk- ar bókmenntir. Þau Símon Jón Jóhannsson og Þórdís S. Mósesdóttir líta yfir tímabilið frá 1955 til 1965. Lesið verður meðal annars upp úr Sálminum um blóm- ið eftir Þórberg Þórðarson og sögu eftir Astu Sigurð- ardóttur og Jökul Jakobs- son, og flutt verða ljóð eftir Matthías Johannessen, Jón Óskar, Þorgeir Þorgeirs- son, Nínu Björk Ámadótt- ur og Dag Sigurðarson. I dagsins önn - efri árin: Rætt við Mar- gréti Helgu Jóhannsdóttur ■■■■ í þættinum í dag 1 Q30 verður rætt við A ó Margréti Helgu Jóhannsdóttur. Þegar þátt- Vinsældalisti hlustenda rásar tvö ■■■■ í dag milli O/\00 klukkan 4 og 6 “vl gefst hlustend- um rásar 2 kostur á að hringja og velja vinsælustu dægurlögin þessa vikuna. Bæði er hægt að hringja í síma rásarinnar í Reykjavík, 91-687123 og á Akureyri í síma 96-23056. Þegar fram líða stundir er ætlunin að gera jafn- framt skyndikannanir meðal hlustenda sem eiga að hafa ákveðið vægi við val á vinsældalistanum. 10 vinsælustu lögin verða síðan kynnt af Leopold Sveinssyni milli kl. 20 og 21 í kvöld og þau 30 vin- sælustu á sunnudaginn milli kl. 16 og 18. Stjórn- andi þá er Gunnlaugur Helgason. urinn hóf göngu sína í vor var sagt að rætt yrði við fólk allt niður í 40 ára gam- alt og það nánast fullyrt að þegar fertugsaldri væri náð væri fólk komið á efri ár. Að sögn umsjónar- manns þáttarins vakti þetta lítinn fögnuð þeirra sem voru rétt sloppnir yfir 40 ára markið. Það var þó aðeins með hjálp þessarar skilgreiningar sem Mar- grét Helga slapp inn í þáttinn. Að venju verður spjallað um lífið, tilveruna og ellina. Umsjón Ásdís Skúladóttir. UTVARP FIMMTUDAGUR 7. ágúst 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. 7.15 Morgunvaktin 7.30 Tilkynningar 8.00 Fréttir. Tilkynningar 8.15 Veðurfregnir 8.30 Fréttir á ensku. 9.00 Fréttir 9.05 Morgunstund barn- anna: „I afahúsi" eftir Guðrúnu Helgadóttur. Steinunn Jóhannesdóttir byrjar lesturinn. 9.20 Morguntrimm. Tilkynn- ingar. Tónleikar, þulur velur og kynnir. 9.45 Lesið úr forystugreinum dagblaðanna. 10.00 Fréttir 10.10 Veðurfregnir 10.30 Ég man þá tíð • Hermann Ragnar Stefáns- son kynnir lög frá liðnum árum. 11.00 Fréttir. 11.03 Söngleikir á Broadway 1986. Fyrsti þáttur: Yfirlit. Umsjón: Árni Blandon. 12.00 Dagskrá. Tilkynningar 12.20 Fréttir 12.45 Veðurfregnir. Tilkynn- ingar. Tónleikar. 13.30 í dagsins önn - Efri ár- in. Umsjón: Ásdís Skúla- dóttir. 14.00 Miödegissagan: „Katrin", saga frá Álands- eyjum eftir Sally Salminen. Jón Helgason þýddi. Stein- unn S. Siguröardóttir les (28). 14.30 f lagasmiöju Georges Gershwin. 15.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar. 15.20 Á hringveginum — Norðurland. Örn Ingi, Anna Ringsted og Stefán Jökuls- son. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veöurfregnir. 16.20 Rapsódíur Franz Liszts. Fimmti þáttur. Umsjón: Guðmundur Jónsson. 17.00 Fréttir. 17.03 Barnaútvarpiö. Umsjón: Kristín Helgadóttir og Sigur- laug M. Jónasdóttir. 17.45 I loftinu. — Hallgrímur Thorsteinsson og Guðlaug María Bjarnadóttir. Tilkynn- ingar. 18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. 19.40 Tilkynningar. 19.50 Daglegt mál. Guðmund- ur Sæmundsson flytur þáttinn 20.00 Ég man. Jónas Jónas- son leikur lög til minnis og rabbar við hlustendur. 20.45 Tónlistarkeppni Elisa- betar drottningar 1985. Nai Yuan Hu sem hlaut fyrstu verðlaun fyrir fiðluleik leikur með Filharmoníusveit belgíska útvarpsins. Stjórn- andi: Alfred Walter. Fiölu- konsert nr. 5 t A-dúr K.219 eftir Wolfgang Amadeus Mozart. 21.20 Reykjavík i augum skálda. Umsjón: Símon Jón Jóhannsson og Þórdís Mós- esdóttir. 22.00 Fréttir. Dagskrá morg- undagsins. Orð kvöldsins. 22.15 Veðurfregnir. 22.20 Fimmtudagsumræðan — Kjarabaráttan. Stjórnandi: Ingimar Ingimarsson. 23.20 Óbótónlist italskra óperutónskálda. Síöari hluti. Hansjörg Schellenberger og Rolf Koenen leika á óbó og píanó lög eftir Gaetano Donizetti og Antonio Pasc- ulli. Umsjón: Guðmundur Gilsson. 24.00 Fréttir. Dagskrárlok. FIMMTUDAGUR 7. ágúst 9.00 Morgunþáttur í umsjá Ásgeirs Tómassonar, Gunnlaugs Helgasonar og SJÓNVARP 19.16 Á döfinni. Umsjónar- maður Marianna Friðjóns- dóttir. 19.25 Litlu prúðuleikarnir. (Muppet Babies). Þriðji þátt- ur. Teiknimyndaflokkur eftir Jim Henson. Þýðandi: Guðni Kolbeinsson. 19.50 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veöur 20.30 Auglýsingar og dagskrá 20.40 Rokkarnir geta ekki þagnað. Þáttur með Dúkku- lísunum. Umsjón: Jón Gústafsson. Stjórn upp- töku: Björn Emilsson. 21.10 Kastljós FÖSTUDAGUR 8. ágúst Þáttur um innlend málefni. 21.45 Bergerac — Þriðji þátt- ur. Breskur sakamálamynda- flokkur í tíu þáttum. Aöal- hlutverk John Nettles. Þýðandi Kristmann Eiðsson. 22.40 Seinni fréttir 22.45 Nafnalistinn (The List of Adrian Mess- enger) Bandarísk bíómynd frá árinu 1963 Leikstjóri John Huston. Aðalhlutverk: George Scott, Clive Brook og Dana Wynt- er. í aukahlutverkum eru Robert Mitchum, Frank Sin- atra, Burt Lancaster, Tony Curtis og Kirk Douglas. Fyrr- verandi rannsóknarlög- reglumaður fær i hendur nafnalista og kemst að því að margir sem á honum eru hafa farist voveiflega. Hann grunar að þar sé að verki kaldrifjaöur morðingi. Þýð- andi: Bjöm Baldursson. 00.26 Dagskrárlok Kolbrúnar Halldórsdóttur. Guðríöur Haraldsdóttir sér um barnaefni i u.þ.b. 15 minútur kl. 10.05. 12.00 Hlé. 14.00 Andrá Stjórnandi: Ragnheiður Davíðsdóttir. 16.00 Djass og blús Vernharður Linnet kynnir. 16.00 Hitt og þetta Stjórnandi: Andrea Guð- mundsdóttir. 17.00 Stórstirni rokkáranna Bertram Möller kynnir tónlist þekktra listamanna frá sjötta áratugnum. 18.00 Hlé. 20.00 Vinsældalisti hlustenda rásar tvö Leopold Sveinsson kynnir tiu vinsælustu lög vikunnar. 21.00 Um náttmál Gestur Einarsson stjórnar þættinum. (Frá Akureyri.) 22.00 Rökkurtónar Stjórnandi: Svavar Gests. 23.00 Heitar krásir úr köldu stríði „Napur gjóstur næddi um menn og dýr. — Ár almyrkv- ans“. ' Umsjónarmenn: Magnús Þór Jónsson og Trausti Jónsson. 24.00 Dagskrárlok. Fréttir eru sagðar kl. 9.00, 10.00, 11.00, 15.00, 16.00 og 17.00. SVÆÐISÚTVARP REYKJAVÍK 17.03—18.00 Svæðisútvarp fyr ir Reykjavik og nágrenni — FM 90,1 MHz. AKUREYRI 17.03—18.30 Svæðisútvarp fyr- ir Akureyri og nágrenni — FM 96,5 MHz.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.