Morgunblaðið - 07.08.1986, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 07.08.1986, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 1986 7 M- 'l~*i i.v Varði doktorsritgerð um Asmund Sveins- son myndhöggvara GUNNAR B. Kvaran, listfræð- ingnr, varði í lok júnimánaðar doktorsritgerð sína um Asmund Sveinsson, myndhöggvara. „Eg hef unnið að ritgerðinni síðustu fjögur árin og varði hana við háskólann í Aix-en-Provenee í Frakklandi, þar sem ég hef stundað nám í listfræðum síðan 1976,“ sagði Gunnar. „Ritgerðinni er skipt í þtjá kafla og fj'allar sá fyrsti um upp- runa Ásmundar og bakgrunn hans. Hann er alinn upp í myndlausri veröld, þar eru engin málverk og engar höggmyndir, aðeins myndirn- ar í landslaginu. Hann les ævintýri og þjóðsögur og myndgerir það sem hann les, eins og allir gera. Þær myndir sækir hann í náttúruna. Síðan rek ég það hvernig Ásmundur kemst að því að hægt er að búa til list á marga vegu, það er hægt að nota margs konar stílbrigði til að teikna eða móta sama manninn. Annar kaflinn flallar síðan um það að það er rökrétt þróun í list Ás- mundar, þótt oft hafi verið talað um að hann hafi verið sundurlaus í list sinni. Þriðji kaflinn fjallar um náttúruna, sem er megin inntak allra verka hans. Þar fjalla ég um áhrif uppruna hans og um þjóðem- issinnann Ásmund, sem í byrjun aldarinnar er að skapa nýja list fyrir nýtt þjóðfélag," sagði Gunnar B. Kvaran. Gunnar kvaðst hafa fengið áhuga á að vinna að ritgerðinni þegar hann kom heim frá Frakklandi að loknu magisterprófi árið 1982. Þá var Ásmundur á sjúkrahúsi og safn- ið var í umsjá Ásdísar dóttur hans. „Þarna var um 90% allra verka Ásmundar á einum og sama stað og ég fann einnig ótal teikningar og bréf,“ sagði Gunnar. „Þá var ég svo heppinn að finna dagbækur Asmundar frá þriðja áratug aidar- innar, sem lýsa vel hugarheimi og Sveitar- stjóri á Kjalarnesi HREPPSNEFND Kjarlarnes- hrepps hefur ráðið sveitarstjóra. Mun hann taka til starfa kringum miðjan þennan mánuð. Síðastlið- inn fimmtudag kom hrepps- nefndin saman til fundar til að taka ákvörðun um ráðningu hans. Fyrir fundinum lágu 12 umsóknir. Hreppsnefndarmenn samþykktu með samhljóða atkvæðum að ráða Pétur Friðrik Þórðarson, skóla- stjóra á Eiðum í starfið. Þar hefur hann verið skólastjóri grunnskólans um 9 ára skeið. Hann er 35 ára gamall. Hann er fyrsti sveitarstjóri Kjalarneshrepps. Aður hefur starf- að með hreppsnefndinni rekstrar- stjóri. Kona sveitarstjórans er frú Guðrún Ólafsdóttir og eiga þau þijár dætur. heimssýn Ásmundar á þessum tíma. Það var því mun þægilegra að vinna að þessari ritgerð en ef ég hefði valið til dæmis Kjarval eða Jón Stef- ánsson. Þá hefði það sjálfsagt tekið mig nokkur ár að safna þessum upplýsingum. Svo varð það úr að ég var ráðinn sem forstöðumaður Ásmundarsafns svo ritgerðin hefur í raun verið hluti af starfi mínu.“ Þegar Gunnar var inntur eftir því hvað tæki við að lokinni rit- gerðinni sagðist hann ætla að starfa áfram á Asmundarsafni. „Ég hef mikinn áhuga á að halda áfram að kanna list Ásmundar og mestan áhuga hef ég á tímabilinu 1940- 1950. Þá byrjaði Ásmundur að vinna út frá íslenskum þjóðsögum og tengja þær íslensku landslagi. Hann gerði sér grein fyrir því að Formaður FAO-nefndar er leiðbeinir um varn- ir gegn geislavirkni Gunnar B. Kvaran, hann gat ekki notað myndmál Pic- asso eða annarra í Evrópu til að túlka íslendingasögurnar eða þjóð- sögur. Hann bjó því til nýtt myndmál sem glöggt kemur fram í myndum eins og Tröllkonunni eða Sonatorreki," sagði Gunnar B. Kvaran. DR. BJÖRN Sigurbjörnsson hefur verið skipaður formaður nefndar á vegum FAO, Matvæla- og land- búnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna, sem hefur það hlutverk með höndum að að veita leið- beiningar um varnir gegn geisla- virkni í matvælum. Björn hefur undanfarin ár veitt forstöðu sér- stakri deild á vegum FAO og Alþjóða kjarnorkumálastofnunar- innar, sem fjallar um nýtingu kjarnorku í landbúnaði. „Þessi nefnd var sett á laggimar í maí síðastliðnum, fyrst of fremst vegna kjamorkuslyssins í Chemobyl. Raunar má segja að öll bráð hætta af því slysi sé liðin hjá, en slysið varð til að opna augu manna fyrir nauðsyn þess að til væri sérstök ráð- gjafanefnd á vegum Sameinuðu þjóðanna, sem safnaði upplýsingum um áhrif geislavirkni á matvæli, jarð- veg og skepnur og veitti ráðgjöf í Dr. Björn Sigurbjörnsson því efni,“ sagði Bjöm nánar aðspurð- ur um hlutverk nefndarinnar. Bjöm sagði að nefndinni hefðu borist mikið af fyrirspumum víðs vegar að úr heiminum. mmmmmmmmm mmmm^m^^m I LANDSBANKANUM FÆRÐU DOLLARA, PUND, MÖRK, FRANKA, PESETA, FLÓRÍNUR ESCUDOS OG LÍRUR HVORT SEM ÞÚ VILT 1 SEÐLUM EÐA FERÐATEKKUM EJ g þá er ekki allt upp talið. í öllum afgreiðslum Landsbankans geta ferðalangar nánast fyrirvaralaust gengið að gjaldmiðlum allra helstu viðskiptalanda okkar vísum. Ferðatékkar, bankaávísanir og seðlar eru ávallt fyrirliggjandi, í öllum helstu gjaldmiðlum. Við minnum líka á Visakortið, - athugaðu gildistímann áður en þú leggur af stað. Góða ferð. Landsbanki íslands Banki allra landsmanna Heyskap að ljúka HEYSKAP er lokið eða að ljúka um allt land. Hey eru yfirleitt góð, en ekki mikil að vöxtum. Jónas Jónsson búnaðarmála- stjóri segir að heyskapurinn hafi gengið vel um allt land og honum sé víðast hvar lokið eða að ljúka. Alls staðar væru þó menn innanum sem ættu eitt- hvað eftir. Em heyskaparlokin mun fyrr en vant er og að sögn Jónasar eru mörg ár síðan ekki hefur verið óþurrkahljóð úr ein- hveijum héruðum eins og nú.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.