Morgunblaðið - 07.08.1986, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 07.08.1986, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 1986 Loftárásirnar á Líbýu: Möltustjóm varaði við loftárásunum — en Líbýumenn sinntu því ekki Valletta, Möltu, AP. SKÖMMU áður en Bandaríkja- menn gerðu loftárás á Líbýu 15. apríl sl. vöruðu Möltumenn stjórnina í Trípólí við og skýrðu frá því, að flugvélar nálguðust landið. Talsmaður Möltustjórnar sagði frá þessu í gær og bætti því við, að Líbýumenn hefðu lát- ið viðvaranirnar sem vind um eyru þjóta. Paul Mifsud, talsmaður stjómar- innar á Möltu, sagði, að 30 eða 40 mínútum fyrir loftárásina hefði hópur óþekktra flugvéla komið fram á ratsjárskermum á Möltu og hefðu þær stefnt í átt til Líbýu. „ Við létum Líbýumenn vita af þessu en þeir virtust ekki bregðast við þessum upplýsingum á neinn hátt,“ sagði Misfud, sem kvaðst vilja skýra frá þessu vegna frétta um, að loft- árásimar hefðu komið Líbýumönn- um algjörlega í opna skjöldu. Misfud sagði, að Möltustjóm hefði varað stjórnina í Líbýu við vegna þess, að þjóðimar hefðu gert með sér vináttusáttmála árið 1984. Kvað hann Möltumenn mundu vara ilabýumenn við í annað sinn ef svo bæri undir og einnig aðrar „vina- þjóðir", t.d. Bandaríkjamenn og Itaii. Stjómin á Möltu hefur gert sér nokkurt far um það að undanfömu Flóttinn reyndist vera gabb Herlín, AP. ÞJÓÐVERJINN sem hélt því fram, að hann iiefði farið milli Austur- og Vestur-Berlínar, dulbúinn sem sovéskur hermaður og það í fylgd þriggja verslun- argina, játaði á rnánudag, að um gabb hefði verið að ræða. Maðurinn, Heinz Braun, játaði þetta fyrir lögreglu á miðvikudag, en Morgunblaðið skýrði frá málinu í gær. Hann sagði að hann hefði flúið til Vestur-Berlínar hinn 16. júní, en orðið sér úti um gínumar og bíl sinn eftir á. Astæðuna sagði hann vera þá, að hann hefði viljað vekja athygli á 25 ára afmæli Berlínarmúrsins, sem verður 13. þessa mánaðar. Kýpur: Kennsl borin á árásarmenn Nikósía, AP. LÖGREGLAN á Kýpur telur sig hafa borið kennsl á tvo menn sem tengjast árásinni á bresku herstöðina í Akrotiri á sunnudag. Ekki hefur tekist að hafa hendur í hári þeirra og er þeirra ákaft leitað. Lögreglumenn er ekki vilja láta nafna sinna getið segja, að tveir bílaleigubílar er notaðir voru í árásinni hafi fundist yfirgefnir í borginni Limasol. Tveir menn, Elias Bitar og Malik Nazban, er báru líbönsk vegabréf, tóku bílana á leigu á laugardag. Bitar mun hafa búið á hóteli í Limasol í nokkrar vikur fyrir árásina, en talið er sennilegt að Nazban hafi komið á ólöglegan hátt til eyjar- innar. að bæta samskiptin við Bandaríkja- menn en náin samskipti hennar við Líbýustjórn hafa verið þeim tilraun- um Þrándur í Götu. Pólland: Michnik sleppt? Varsjá, AP. RÍKISSAKSÓKNARI Póllands hefur farið þess á leit við Hæsta- rétt landsins, að andófsmannin- um og sagnfræðingnum Adam Michnik, verði sleppt úr haldi, að því að talsmaður réttarins sagði á miðvikudag. Saksóknarinn lagði fram ósk sína á þriðjudag, en málið verður tekið fyrir á föstudag. Pólskir dómstólar hafa reynt að flýta afgreiðslu mála sem þessara. Michnik var einn af helstu ráð- gjöfum Samstöðu, hinnar ólöglegu verkalýðshreyfingar Póllands. Hann var handtekinn í desember 1981, þegar herlög voru sett í landinu, en sleppt við almenna sak- aruppgjöf 1984. í febrúar í fyrra var hann aftur handtekinn og dæmdur í tveggja og hálfs árs fang- elsi, fyrir ólöglega verkalýðsstarf- semi. Hin almenna sakaruppgjöf, hinn 23. síðastliðinn tók ekki til Michnik og nokkurra annarra and- ófsmanna. AP/Símamynd Þrír Nóbelsverðlaunahafar minntust fórnarlamba kjarnorkusprengjunnar í Hiroshima í gær. Frá vinstri: Bandaríski efna- og líffræðingurinn Linus Pauling, breski efnafræðingurinn Dorothy Hodg- kin og Desmond Tutu biskup í Jóhannesarborg, en hann fékk friðarverðlaun Nóbels. Minningarathöfn í Hiroshima: N óbels ver ðlaunahafar vara við kjarnorkuvá firAcliíni'k Tol Airitf .4 II Hiroshíma, Tel Aviv, AP. ÞRÍR Nóbelsverðlaunahaf- ar vöruðu við kjarnorku- vánni við sérstaka minningarathöfn í Hiroshí- ma í gær, en þá var 41 ár liðið síðan kjarnorku- sprengju var varpað á borgina. Þúsundir manna söfnuðust sarnan ii friðar- garði, sem gerður var í minningu fórnarlamba kjarnorkusprengingarinn- ar, en talið er að á bilinu 80-140 þúsund manns hafi látið þar lífið. Fulltrúar margra ríkja voru við- staddir athöfnina, þar á meðal Desmond Tutu biskup í Jóhannes- arborg. Athöfnin stóð eina klukkustund, og meðan á henni stóð var einnar mínutu þögn í borginni á sama tíma og sprengj- ari sprakk árið 1945. í Israel fór einnig fram athöfn, og var þar sendinefnd frá Híróshí- ma viðstödd og lagði hún blóm- sveig að minnisvarða um þær sex milljónir gyðinga, sem talið er að hafi fallið í heimsstyijöldinni síðari. Enn fremur fóru ísraelskir læknar í mótmælagöngu, þar sem þeir kröfðust þess að ríkin fyrir botni Miðjarðarhafs yrðu gerð að kjamorkuvopnalausu svæði. Filippseyjar* Yosef Harish, dómsmálaráðherra ísraels, gengur hýr á svip úr sal hæstaréttar eftir að hafa hlýtt á úrskurðinn um staðfestingu náðunar fyrrum yfirmanns leyniþjónustu landsins. Israel: Hæstiréttur staðfestir náðun Jerúsalem, AP. HÆSTIRÉTTUR ísraels staðfesti á miðvikudag náðun þá er forseti landsins veitti yfirmanni leyniþjónustunnar, Shin Bet, vegna ásakana um að hann hafi fyrirskipað aftöku tveggja Palestínumanna árið 1984. Rétturinn staðfesti einnig náðun þriggja leyniþjónustu- manna er sakaðir voru um að fela og falsa sönnunargögn og hafnaði beiðni um sérstaka rannsókn á því, hvort reynt hafi verið að hylma yfir málið. Gefíð var til kynna að lögreglu- rannsókn er fram hefur farið sé fullnægjandi. Einn dóma- ranna þriggja skilaði séráliti þar sem sagði að Herzog for- seti hefði ekki haft vald til að veita náðun áður en málið hefði verið fullrannsakað og viðkom- andi dæmdur sekur. Hinir dómaramir töldu að um þjóðar- öryggi hefði verið að tefla og að forsetinn hefði farið rétt að. Shalom sagði af sér emb- ætti eftir að Herzog forseti hafði náðað hann og leyniþjón- ustumennina þijá. Shalöm gegnir þó enn störfum sem yfirmaður Shin Bet. Samningavið- ræður hafnar Manila, Filippseyjum, AP. JUAN Ponce Enrile, varnarmála- ráðherra Filippseyja, sagði í gær að herinn myndi standa að baki forseta iandsins, Corazon Aqu- ino, í samningatilraunum hennar um að skæruliðar kommúnista leggi niður vopn, hver svo sem niðurstaða þessara samningavið- ræðna yrði. Enrile sagði þetta eftir vikulang- an fund ríkisstjórnarinnar sem Aquino stjómaði. Landbúnaðarráð- herra landsins, Ramon Mitra, hefur tilkynnt að hann hafi átt fund með fulltrúum uppreisnarmanna, Satur Ocampo og Antonio Zumel í 3*/* klukkustund á þriðjudag og að þessi fundur markaði upphaf samninga- viðræðna við uppreisnarmennina. Aquino sagði að hún væri mjög GENGI GJALDMIÐLA Gengi Bandaríkjadollars féll gagnvart öllum helstu gjald- miðlum í Evrópu. Gull hækkaði í verði. Sterlingspundið kostaði 1,4775 dollara (1,4877) en annars var gengi dollarans þannig að fyrir hann fengust: 2,0897 vestur þýsk mörk (2,0995), 1,6755 svissneskir frankar (1,6907), 6,7500 franskir frankar (6,8025), 2,3435 hollensk gyllini (2,3625), 1.430,00 ítalskar lírur (1.443,00), 1,3820 kanadískir dollarar (1,3797) og 154,65 jen (154,30). ánægð með að samningaviðræðum- ar hefðu nú loks hafíst. Veður víða um heim Lægst Hœst Akureyri 15 alskýjað Amsterdam 9 24 heiðskírt Aþena 23 35 heiðsklrt Barcelona 28 léttskýjað Berlin 16 25 heiðskírt Brussol 10 21 heiðskírt Chicago 18 27 skýjað Oublin 10 17 rigning Feneyjar 29 heiðskírt Frankfurt 11 26 heiðskirt Genf 17 22 skýjað Jerúsalem 18 28 heiðskírt Kaupmannah. 12 20 heiðskirt lissabon 15 27 heiðskírt London 13 23 heiðskirt Los Angeles 17 26 heiðskfrt Lúxemborg 24 léttskýjað Malaga 27 heiðskírt Mallorca 29 heiðskírt Miami 29 31 skýjað Montreal 15 26 skýjað Moskva 13 25 heiðskírt New York 20 29 rigning Osló 9 21 skýjað París 13 26 heiðskírt Peking 20 31 heiðskírt Reykjavík 11 súld Ríóde Janeiro 13 34 heiðsklrt Rómaborg 18 35 heiðskirt Stokkhólmur 13 20 skýjað Sydney 13 13 rigning Tókýó 26 32 heiðskirt Vínarborg 17 23 skýjað Þórshöfn 12 léttskýjað
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.