Morgunblaðið - 07.08.1986, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 07.08.1986, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 1986 wamc tnazc. i Spáspilið Mímisbrunnur Sálarköfun í Þrídrangi Um næstu helgi, 9.-10. ágúst, heldur Gisli Þór Gunnarsson námskeið í Þrídrangi, Tryggva- götu 18 i Reykjavík. Þar mun hann m.a. kynna leiðir til að virkja það sem Indverjar kalla dulvitund mannkyns (Akashic Records). Einnig kynnir hann spáspilið „The Magic Maze“, sem hann nefnir Mímisbrunn á íslensku. Gísli Þór hefur stundað sjálf- stæðar rannsóknir á samanburðar- trúfræði og trúarbragðasögu og í þeim tilgangi ferðast víða um heim. Hann hefur undanfarin þrjú ár stundað háskólanám í Bandaríkjun- um og fengið styrk frá Edgar Cayce-stofnuninni. Síðasta ár stundaði Gísli framhaldsnám í sam- félagslegri sálarfræði við Ríkis- háskólann í Kalifomíu. Spáspil Gísla, Mímisbrunnur, hefiir nýlega verið sett á markað í Bandaríkjunum en það byggist á blöndu af íslenskri rúnafræði og indverskri dulspeki. Á námskeiðinu verður notkun spilsins kennd. Að- ferðina nefnir Gísli „Sálarköfun". Skráning fer fram í Þrídrangi eftir kynningarfyrirlesturinn þann 7. ágúst. Samskonar námskeið verður haldið á Akureyri, í Lundi við Auðs- völl, helgina 16.-17. ágúst. Þrjú presta- köll laus til umsóknar BISKUP íslands hefur auglýst þrjú prestaköll laus til umsóknar og er umsóknarfrestur til 10. september nk. Þau eru: Hruni í Ámesprófastsdæmi. Þar hefur séra Sigurbjöm Sveinbjöms- son prófastur þjónað síðan hann vígðist 16. júní 1944, en lætur nú af embætti vegna aldurs. Hvanneyrarprestakall í Borgar- fjarðarprófastsdæmi. Sóknarprest- urinn þar, sr. Olafur Jens Sigurðsson, hefur verið ráðinn fangaprestur kirkjunnar og lætur því af embætti. Höfðakaupstaður í Húnavatns- prófastsdæmi. Sr. Oddur Einarsson, sem þjónað hefur prestakallinu und- anfarin ár, hefur fengið lausn frá embætti og gerst bæjarstjóri í Njarðvíkum. Einnig auglýsir Biskupsstofa nýtt embætti laust til umsóknar, en það er starf fjármálafulltrúa, sem samþykkt var á síðustu fjárlög- um. Leitað er eftir viðskiptafræð- ingi eða lögfræðingi með bókhaldsþekkingu enda er fjár- málafulltrúanum ætlað að annast fjárreiður biskupsembættisins. Óvenjumikil hreyfing hefur að undanfömu verið á prestsembætum að sögn Bemharðs Guðmundsson- ar, fréttafulltrúa kirkjunnar, og er þegar búið að veita 8 embætti á þessu ári. Tólf prestköll, þ. á m. Breiðholtsprestakall, Útskálar í Reykjanesi, Húsavík, Ólafsfjörður og Grenjaðarstaður, voru nýlega auglýst laus til umsóknar og rennur fresturinn út á morgun. „Hef ákveðnar hug- myndir siálfum svona með mér“ — segir Florencio Campomanes, forseti FIDE, í samtali við Morgnnblaðið London, 6. ágúst. Frá Jóhönnu Kristjónsdóttur, blaðamanni Morgunblaðsins. hann á Park Lane hótelinu. „Ég „ÉG VIL engu spá, enda væri það ekki rétt, en ég veit að sá sem sigrar er sá sterkari." Þetta sagði Florencio Campomanes, forseti FIDE, skömmu áður en fimmta skákin milli Karpovs og Kasparovs hófst á Park Lane í gær. Hann bætti við: „Auðvitað hef ég sjálfur ákveðnar hugmyndir, svona með sjálfum mér. Þær skák- ir, sem tefldar hafa verið hingað til hafa verið glæsilegar og það er óneitanlega ævintýralegt að sjá taflmennsku Kasparovs - þar með segi ég ekki að hann hafi sigur; það leiðir tíminn í ljós. Ég er held- ur ekki uppveðraður yfir djörfum fómum; þær eru sannarlega ekki einhlítar einar sér, það þarf fleira til; hljóðlátur, vitsmunalegur leikur getur skilað ekki síðri árangri." Í gær, þriðjudag, var hér all- æsingslegur blaðamannafundur, þar sem Campomanes var m.a. sakaður um að annarlegar hvatir lægju að baki því að hann vilji að verðlaunaféð verði lagt inn á svissneskan banka. Campomanes var einnig sakaður um andstöðu gegn ísraelum, þar sem Ólympíu- skákmótið verður í Dubai og af því leiðir að ísraelar taka ekki þátt í því. Við mig sagði Campom- anes að ísraelar hefðu fullkomlega skilið afstöðu FIDE og sæst á málið. „Ég veit ekki af hveiju ég er kallaður einræðisherra," sagði Campomanes þegar ég talaði við get ekki gert neitt án þess að ráð- færa mig við stjóm FIDE. Ég lem ekki í borðið - það er ekki minn stíll, en skynsemin verður að ráða. Skákin, og þeir sem hana stunda, eru blanda af frumlegum snilling- um og raunsæjum reiknihestum og þetta tvennt er flókið að sam- ræma. Ég vil veg skáklistarinnar sem mestan. Mér hefur verið legið á hálsi fyrir það, þótt undarlegt sé. Þið íslendingar, sem eigið fleiri og betri skákmeistara en nokkur önn- ur þjóð, miðað við fólksfjölda, hljótið að skilja þetta. Ég hef reynt að ýta undir og örva skák í þriðja heiminum. Ég er líka dæmdur hart af vestrænum blaðamönnum fyrir það. Vægast sagt skrýtið, því að skákin í sjálfu sér örvar og bætir og ég bara spyr: Viljum við ekki öll stuðla að betri heimi? ísland er algerlega sér á báti hvað skák varðar. ísland er á toppnum og mér er sönn gleði að fylgjast með ungu strákunum ykk- ar, Helga, Margeiri, Jóni Amasyni og Jóhanni, sem ég þekki þó einna minnst til. Friðrik Ólafsson er nú nánast hættur keppni, en hann var stórkostlegur áður og fyrrum. Hann er mikill sjentilmaður og prúðmenni fram í fingurgóma og mér og öðrum ógleymanlegur sem skákmaður, þegar hann var upp á sitt besta," sagði Campomanes. „Sjálfur lærði ég mannganginn þegar ég var 14 ára. Faðir minn kenndi mér og íj'órum árum síðar var ég orðinn númer tvö á Filipps- eyjum. Fór svo til Bandaríkjanna og lærði og telfdi." En hvers vegna hefur hann ver- ið talinn hlynntari Karpov? „Fáránleg della. Fáránlega farið með staðreyndir. Það hefur verið sagt að Karpov, eða læknir hans, hafí á sínum tíma beðið mig um að láta stöðva einvígið. Karpov vildi halda áfram og ég legg áherslu á það. Kasparov vildi það líka, en hann var óumdeilanlega sprækari í yfirlýsingum sínum. Ég ákvað þetta af mannúðarástæðum og þeir sem á annað borð skilja það álag sem fylgir einvígi á borð við þetta, ættu að sjá að þetta var Florencio Campomanes eina vitið á þeim tíma. En svo var ég úthrópaður sem hlynntur Karpov og það er ansi lítil skyn- semi í því, að ég nú ekki tali um raunsæi í þessaum málum," sagði Campomanes að lokum. Skömmu eftir að samtali okkar lauk, settust svo Karpov og Kasp- arov niður til að heyja fimmtu skákina og var nú áheyrandasalur- inn þéttsettnari en í fyrri skákum. Heimsmeistaramót unglinga í skák: Þrösturtapaði fyrir Klinger ÞRÖSTUR Þorhallsson tefldi í gær við Josef Klinger frá Aust- urríki í þriðju umferð heims- meistaramóts unglinga, 20 ára og yngri, í skák, sem fram fer í Gausdal í Noregi. Þröstur tap- aði, gaf skákina eftir 54 leiki. Að sögn Davíðs Ólafssonar að- stoðarmanns Þrastar var Þröstur með mun betri stöðu Iengi framan af á móti Austurríkismanninum, sem er alþjóðiegur meistari og var sá síðamefndi auk þess kominn í tímahrak. Þröstur virtist vera að vinna skákina og náði skiptamun, en þá snerist taflið við og Aust- urríkismaðurinn fékk óstöðvandi frípeð og Þröstur gaf skákina eft- ir 54 leiki eins og áður sagði. Eftir þijár umferðir eru fjórir skákmenn efstir og jafnir með 3 vinninga: Zuniga frá Perú, Anand frá Indlandi, Wohl frá Vestur- Þýskalandi og Horvath frá Ung- veijalandi. Þröstur er með 1 'h vinning. Karpov fann svar við Grun- felds-vörninni og i afnaði metin Skák Margeir Pétursson ANATOLY Karpov tefldi fimmtu einvígisskákina við Gary Kasparov af miklu ör- yggi, hann fékk valdað frípeð í endatafli og kæfði síðan allt mótspil heimsmeistarans. Kasparov reyndi að losa tökin með peðsfóm, en það bar engan árangur, og þegar fyrirsjáan- legt var að hann myndi tapa öðm peði án þess að fá nokk- urt mótspil gafst hann upp í 32. leik. Eftir góðan sigur í fjórðu einvígisskákinni tefldi Kasparov af allt of mikilli bjart- sýni með svörtu, og lék þar að auki of hratt á mikilvægum augnablikum í skákinni. Kasparov beitti Grunfelds: vöm í þriðja sinn í einvíginu. í fyrstu og þriðju skákunum náði hann auðveldlega að jafna taflið, en í gærkvöldi ákvað Karpov að fara út í flóknara afbrigði en áð- ur. Strax í 10. leik kom það á óvart að heimsmeistarinn fór út í endatafl, í stað þes að tefla með drottningamar á borðinu. Hann tók síðan aðra umdeilanlega ákvörðun í 15. leik, er hann leyfði Karpov að fá öflugt valdað frípeð á d6. Slík frípeð eru afskaplega sterk í endatafli, en Kasparov hefur væntanlega talið að fjarlægt frípeð sitt á a-línunni og biskupa- par myndu veita nægjanlegt mótvægi. En Karpov tókst að halda öllu mótspili niðri, og gróf annan bisk- up Kasparovs lifandi. Örvænting- arfull peðsfóm Kasparovs bar engan árangur og þegar síðasta tromp hans, frípeðið á a-línunni, féll í valinn var kominn tími til að gefast upp. Staðan í einvíginu er því orðin jöfn, 2'/2-2>/2, en Kasparov stendur þó enn heldur betur að vígi, því honum dugir jafntefii, 12—12, til að halda heimsmeistar- atitlinum. 5. einvígisskákin: Hvítt: Anatoly Karpov Svart: Gary Kasparov Grilnfelds-vöra I. d4 - Rf6, 2. c4 - g6, 3. Rc3 - d5, 4. Bf4 - Bg7, 5. e3 - c5, 6. dxc5 — Da5, 7. Hcl — Da5, 7. Hcl — Re4, 8. cxd5 — Rxc3, 9. Dd2 — Dxa2, 10. bxc3 — Dxd2+ Miklu algengara er 10. — Da5, en í því afbrigði hafa sovézku stór- meistararnir Agzamov og puljko teflt tvær skákir sl. vetur. I þeirri síðari náði Guljko að jafna taflið eftir 11. Bc4 - Rd7, 12. Rf3 - Rxc5, 13. Be5 — Bxe5! 14. Rxe5 - f6, 15. Rf3 - 0-0. II. Kxd2 - Rd7, 12. Bb5 - 0-0, 13. Bxd7 - Bxd7, 14. e4 - f5, 15. e5 Staðan sem upp er komin er að mörgu leyti dæmigerð fyrir Grunfelds-vömina. Hvítur hefur peðamiðborð sem svartur ræðst gegn. Þessi staða hefur áður kom- ið upp í skákinni Schmidt-Gross, í Naleczow í Póllandi 1984. Hún tefldist: 15. — Hac8, 16. c6 — Bxc6, 17. d6 — exd6, 18. exd6 — Hf6, 19. Hal - Ha8, 20. Ha5 - g5, 21. Be5 — He6 og jafntefli var samið í 41. leik. I stað þess að reyna að opna stöðuna fyrir biskupana, gefur Kasparov and- stæðingi sínum kost á að fá frípeð valdað af öðru peði. 15. - e6?! 16. c4 - Hfc8, 17. c6! — bxc6, 18. d6 Þarna er valdaða frípeðið kom- ið. Það veldur svörtum einnig miklum óþægindum að biskupinn á g7 á engan aðgang að barátt- unni á drottningarvæng, vegna peðamúrs hvíts á miðborðinu. 18. - c5,19. h4 - h6,20. Rh3! Áætlun Karpovs er einföld og rökrétt. Hann ætlar að leika f3 og færa riddarann til d3, þar sem hann stendur vel til bæði sóknar og varnar. Kasparov svarar með því að storma fram með frípeð sitt, en það færir honum þó ekki nægjanlegt mótspil. Meiri mótspilsmöguleikar lágu áreiðanlega í spili eftir b-línunni, t.d. kom Hcb8 mjög vel til greina í 21. leik. 20. - a5, 21. f3 - a4, 22. Hhel! Að sjálfsögðu ekki strax 22. Rf2? — g5 og Bg7 sleppur úr prísundinni. 22. - a3, 23. Rf2 - a2, 24. Rd3 - Ha3, 25. Hal Upphafið á annarri mjög ein- faldri áætlun. Hvítur ætlar að setjast á frípeðið á a2 og vinna það. Nú reynir Kasparov að fóma peði til að ná mótspili, en allt kemur fyrir ekki. 25. - g5?! 26. hxg5 - hxg5, 27. Bxg5 - Kf7, 28. Bff4 - Hb8. Loksins kemur hrókur á opna b-línuna, en það er allt of seint. 29. Hecl - Bc6, 30. Hc3! - Ha5, 31. Hc2 - Hba8, 32. Rcl Hér gafst Kasparov upp, enda er baráttan með tvö peð undir og lakari stöðu með öllu vonlaus.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.