Morgunblaðið - 07.08.1986, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 1986
+
Morgunbladid/Júlíus
Þó að skýrslu Flugslysanefndar um orsakir þess að TF-TAM brotlenti á Reykjavíkurflugvelli sé ekki að vænta fyrr en í september, þá þykir
víst að slysið hafi orðið af völdum vængendahvirfla frá stærri vél er hélt í loftið skömmu áður. Ekki mun TF-TAM hafa ofrisið í flugtak-
inu samkvæmt heimildum. Flugmaður samskonar flugvélar lét lífið um líkt leyti í Kalifomíu við svipaðar aðstæður, vél hans var komin
100 fetum lægra á loft en TF-TAM þegar hún varð stjórnlaus.
Brotlending TF-TAM á Reykjavíkurfiugvelli:
Slys á samskonar vél við svip-
aðar aðstæður í Bandaríkjunum
Fyrir u.þ.b. einum mánuði
brotlenti eins hreyfils einkaflug-
vél á Reykjavíkurflugvelli en svo
giftusamlega vildi til að engin
slys urðu á fólki. Flugvélin sem
bar einkennisstafina TF-TAM
var af gerðinni Aerospatiale Soc-
ata TB-9. Um líkt leyti fórst
flugmaður samskonar vélar við
mjög svipaðar aðstæður, væng-
endahvirfla, í Kaliforníu. Þessi
tvö mjög svo líku slys hljóta
óneitanlega að vera tilefni til
frekari umfjöllunar.
Lesendum Morgunblaðsins hlýt-
ur enn að vera í fersku minni þegar
TF-TAM brotlenti og kastaðist á
eina Fokker F-27-vél Flugleiða. Um
borð í litlu vélinni voru þrír far-
þegar auk flugmannsins, Axels
Aspelund. Það þykir ljóst að TF-
TAM lenti inni í vængendahvirflum
Fokker-vélar sem skömmu áður hóf
sig til flugs á sömu flugbraut.
Rannsóknarskýrslu Flugslysa-
nefndar um slysið og orsakir þess
er þó ekki að vænta fyrr en í fyrsta
lagi í september nk.
Þegar TF-TAM brotlenti var 6
hnúta vindur á Reykjavíkurflugvelli
og samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins voru tvö flugtök og ein
lendingarheimild gefin þá sömu
mínútu og slysið varð. Axel Aspe-
lund flugmaður TF-TAM segir vél
sína hafa verið komna í um 300
feta hæð þegar hann missti gjör-
samlega sfjóm á henni.
Svipað slys í Banda
ríkjunum um líkt leyti
TF-TAM var búin 160 hestafla
hreyfli, en til er önnur gerð sömu
flugvélar með 250 hestafla hreyfll
er heitir Socata Trinidad. Vélar
þessar eru næstum alveg eins, sami
skrokkur, sami vængur o.s.frv. Um
líkt leyti og slysið varð hérlendis
átti annað sér stað vestur í Kali-
fomíu við svipaðar aðstæður og
einmitt á Trinidad-flugvél.
Um Kalifomíuslysið segir í frétt
tímaritsins FLYING: „Atvinnuflug-
maður lét lífíð þegar Aerospatiale
Trinidad-flugvél hans brotlenti í
aðflugi að braut 16 vinstri á Van
Nuys-flugvellinum í Kaliforníu.
Bandaríska Flugslysanefndin segir
að Lockheed 130-E (Herkúles) hafi
rétt áður lent á samsíða flugbraut,
16 hægri. Aðeins 375 fet em á
milli þessara brauta og aðflugs-
geislinn sem Herkúles-vélin flaug
eftir var lítið eitt brattari en sá sem
Trinidad-vélin fylgdi. Vindur mæld-
ist 10 hnútar af vestri. Sjónarvottar
segja að Trinidad-vélin hafi verið í
u.þ.b. 200 feta hæð þegar henni
hvolfdi og brotlenti síðar í 2.300
feta fjarlægð norður af flugbrautar-
endanum.
Það er athyglisvert hvað margt
virðist hkt með tveimur áðurnefnd-
um slysum. Orsakir þeirra beggja
virðist, á þessu stigi, mega rekja
til vængendahvirfla frá stærri flug-
vél, flugvélamar sem lentu í báðum
slysunum eru eins, og þau áttu sér
stað við svipaðar veðurfarsaðstæð-
ur. Þau urðu bara í tveimur
heimsálfum.
Vegna þessara slysa hefur sú
spuming vaknað hvort ef til vill sé
um að ræða veikleika í vængbygg-
ingu þessarar flugvélategundar en
vængurinn er stuttur og þykkur
með fremur lítil hallastýri miðað
við ýmsar aðrar smáflugvélar.
Þegar smáflugvél lendir inni í
sterkum vængendahvirflum verður
hún stjórnlaus því allir stjómfletir
verða að meira eða minna leyti
óvirkir. Vængendahvirflana er
hægt að ímynda sér sem nokkurs
konar gorma sem snúast út frá
vængendum þeirrar vélar sem þá
myndar. Rannsóknir hafa sýnt að
þeir hrejrfast með 5-6 hnúta hraða
standi vindur beint á þá, og í tveim-
ur áðumefndum slysum var einmitt
sá vindstyrkur svo þeir hafa þá
væntanlega hreyfst lítið, nema
lækkað um 4-500 fet á mínútu, að
því að telja má. Vindstyrkur inni í
svona hvirflum getur orðið allt að
130-140 hnútar.
Sé vikið að títtnefndum tveimur
slysum, er líklegt að það, að TF-
TAM hafi verið komin 100 fetum
hærra en bandaríska vélin, hafi
gefíð Axel flugmanni ráðrúm til að
rétta hana af og ná a.m.k. ein-
hverri stjóm á flugvélinni rétt áður
en hún skall til jarðar. Leiða má
getum að því að hefði Axel ekki
tekist að rétta vél sína af, þá hefði
henni getað hvolft og þá hefðu þeir
sem í vélinni voru ekki sloppið með
skrekkinn, heldur stórslasast.
Flugfslysanefnd hafði
gert tillögur um
hvernig- mætti forðast
slys af völdum væng-
endahvirfla
I október sl. brotlenti Cessr
172-einkaflugvél, TF-ETE,
Keflavíkurflugvelli. Flugslysanefr
taldi orsök slyssins vera þá, i
Cessnan hefði lent í vængend;
hvirflum frá Lockheed 13 (Herkú
es) flugvél sem skömmu áður hef
verið í aðflugi og flaug lágt yf
brautina sem Cessnan beið vi
Eftir þetta slys gerði nefndin tva
tillögur um það hvernig forða
mætti flugslys af völdum vænj
endahvirfla og hefur þeim báðui
verið hrint í framkvæmd. Þær em:
„1. Gefíð verði út upplýsingabri
um vængendahvirfla, eðli þeirra c
þá hættu sem af þeim stafar. t
verði einnig lögð áhersla á þett
fyrirbrigði í verklegri þjálfun fluj
manna.
2. Flugumferðarstjómm verði set
ar starfsreglur, er taki til aðskilnai
ar milli léttra loftfara c
meðalþungra eða þungra loftfar.
eins og skilgi-einingin er í starf:
reglunum, ef þau létu gera aðfíu
eða flugtak í ferli þeirra síða:
nefndu."
Ein af þeim spurningum sei
vaknað hafa eftir brotlendingu TI
TAM er hvort aðskilnaður mil
hennar og Fokker-vélarinnar sei
skömmu áður fór í loftið hafí ver:
nægjanlegur og samkvæmt þeii
starfsreglum sem um getur í lið
í tillögum Flugslysanefndar þ'
samkvæmt áður nefndum heimik
um vom tvö flugtök og ein lendinj
arheimild sömu mínútu og TF-TAI
brotlenti.
Heimildir herma einnig að TI
TAM hafí ekki ofrisið í flugtaki eir
og sumir hafa haldið fram og sagi
Axel Aspelund flugmaður í samta
við Morgunblaðið að hann hafí vei
ið á 10 hnúta meiri flugtakshrað
en framleiðendur flugvélarinn:
gefa upp sem eðlilegan í eigend:
handbók.
Hér að framan hefur verið fari
ýmsum orðum um þijú slys sei
einkaflugvélar hafa lent í af völdui
vængendahvirfla en TF-TAM-slysi
sem gaf tilefni til þessarar umfjöl
unar er ennþá í rannsókn hj
Flugslysanefnd og skýrslu henn:
ekki að vænta fyrr en í septembe
Þá fyrst er hægt að fá vitneskj
um orsakir, eða líklegar orsaki
TF-TAM-slyssins. Það er síðan
höndum samgönguráðuneytisir
hvort rannsóknarskýrsla Flugslysí
nefndar verður birt opinberlega.
GULLFOSS
AÐALSTRÆTI9 SIMI12315
4-