Morgunblaðið - 07.08.1986, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 1986
17
l
gangi sínum við ána í sumar,
ótrúlegar hetjusögur af risaveiði
hafa borist stundum daglega og
heildarveiðin úr ánni verið hreint
lygileg, því aðeins er veitt á tvær
stangir. Það var einu sinni kvóti í
ánni, frægur kvóti, 20 laxar á stöng
á dag og þá kepptust garpamir við
að taka kvótann á sem skemmstum
tíma. Síðustu tvö sumrin hefur
kvótinn verið afnuminn og þá hefur
keppnin snúist upp í það hver veiði
mest á sem skemmstum tíma, sett
hafa verið met á met ofan fyrir
heilsdagsveiði á tvær stangir, heils-
dagsveiði á eina stöng og hálfs-
dagsveiði á eina stöng. Afleiðingin
af þessari þróun hefur orðið til þess
að hugsanlegt er að kvótinn góði
verði aftur settur á. Stundum hefur
einnig verið um það rætt að fyölda
stöngum í 4, lækka verðið og hafa
„temmilegan" kvóta, svona 10—12
laxa á dag. Hvað verður veit eng-
inn, vandi er um slíkt að spá o.s.frv.
Slagrir næsta sumar ...
Veiðibatinn í fyrrasumar og stór-
veiðin í flestum ánum í sumar, að
viðbættum björtum horfum fyrir
næstu tvö til þijú sumur að minnsta
kosti, munu valda því, að veiðileyfi
munu hækka, kannski umfram
verðbólguna, og það sem meira er,
að það selst væntanlega allt upp.
Það er slíkur hugur í mönnum núna,
að það er bókstaflega hvergi hægt
að næla sér í almennilegan veiði-
dag. „Það er nóg að það renni vatn
og hafi sést þar fiskur, þá selst
það,“ sagði einn sem hefur mikið
með sölu á veiðileyfum að gera.
Næsta sumar verður slegist um
veiðileyfin og færri munu komast
að en vilja í margar ár. Og bíðiði
hæg... Þess má einnig vænta að
æ fleiri útlendingar muni hugsa sem
svo: „Best að reyna að ná sér í
veiðileyfi á íslandi, þetta er allt á
uppleið þar aftur.“ Bandarískur
ljósmyndari, Roy Reinhardt, sem
var að gera kvikmynd um Grímsá
í síðasta mánuði sagði aðspurður
um tilganginn: „Til þess að auglýsa
íslcnska laxveiði." Svo sagði hann
þetta: „Svo eru til aðrar ár.“ Það
er því verið að setja í gang auglýs-
ingaherferð um íslenskar laxveiðiár
og í því sambandi má geta þess að
sala á útlendingatímanum í Grímsá
og Miðfjarðará er að færast frá
Gardner Grant, sem hefur selt leyf-
in af greiðasemi við landeigendur,
og yfir á heimsþekkta umboðsskrif-
stofu sem heitir í höfuðið á eigand-
anum, Fitzgerald, og útvegar ríkum
sem óríkum veiðileyfi um allan
heim. Hveijir skyldu verða fyrir
barðinu á vaxandi ásókn útlendinga
í ámar okkar? Ha?
Norræna húsið:
Fyrirlestur
um Snorra
í OPNU húsi í Norræna húsinu,
fimmtudagskvöld 7. ágúst kl.
20.30, er fyrirlestur, sem dr.
Finnbogi Guðmundsson lands-
bókavörður flytur á norsku og
nefnir: „Snorri Sturlusons
skildring av dei nordiske folk“.
Að loknu kaffíhléi verður sýnd
kvikmynd Ósvalds Knudsen
„Surtur fer sunnan" og er hún
með dönsku tali.
Kaffistofa og bókasafn hússins
verða opin fram eftir kvöldi, en í
bókasafni liggja frammi bækur
um ísland og íslenskar hljómplöt-
ur.
Aðgangur er ókeypis og allir
eru velkomnir í Norræna húsið.
(Fréttatilkynning)
Hljómsveitin Iceland frá Sviþjóð.
Ný smáskífa með Iceland
Hljómsveitin Iceland frá
Svíþjóð hefur sent frá sér nýja
smáskífu. Á skífunni eru tvö lög:
„Cold as Ice“ og „Fantasy".
Hljómsveitin Iceland var stofnuð
af þeim bræðrum Hans, Jóni og
Gunnari Gíslasonum fyrir fimm
árum. Þeir hafa gefið út þijár
breiðskífur og farið í hljómleika-
ferðir til Bandaríkjanna, Englands,
Grikklands og um Skandinavíu.
I sumar hafa þeir félagar í Ice-
land spilað í almenningsgörðum og
klúbbum í Svíþjóð og jafnframt
unnið að gerð nýrrar breiðskífu sem
væntanleg er á markaðinn í vetur.
Það er fyrirtækið Blue Ice Rec-
ords í Svíþjóð sem gefur smáskífuna
út.
Hvalfjarðarstrandarhreppur:
Ályktun vegna afskipta
Bandaríkjanna af hval-
veiðum Islendinga
Morgunblaðinu hefur bonst
eftirfarandi ályktun sem sam-
þykkt var einróma í hrepps-
nefnd Hvalfjarðarstrandar-
hrepps:
„Hreppsnefnd Hvalfjarðar-
strandarhrepps mótmælir harð-
lega afskiptum Bandarikjanna af
hvalveiðum íslendinga í vísinda-
skyni. Hreppsnefndin telur, að
hótanir Bandaríkjamanna um við-
skiptaþvinganir beri vott um
drottnunargimi og yfírgang gagn-
vart smáþjóð og sé bein ögrun við
sjálfstæði og sjálfsákvörðunarrétt
Islendinga. Það getur ekki verið
háð lögsögu eða á valdsviði
Bandaríkjanna að ákveða, hvemig
íslendingar nýta auðlindir sínar,
né hvaða vísindarannsóknir þeir
stunda innan fiskveiðilandhelg-
innar og hveijum þeir selja afurðir
sínar.
Hreppsnefndin skorar á ríkis-
stjóm Islands að mótmæla yfir-
gangi Bandaríkjanna harðlega og
taka til athugunar samvinnu og
samskipti íslands við Bandaríkin,
þar á meðal varnarsamninginn.
Þá minnir hreppsnefndin á, að
Atlantshafsbandalagið á hemað-
armannvirki og verulegar fast-
eignir í Hvalfirði og hefur lagt
undir sig jörð til þeirra hluta. Af
þessum fasteignum eru engin
gjöld greidd til hreppsins, og nýt-
ur Atlantshafsbandalagið þannig
sérréttinda hér í hreppnum. Þar
sem Bandaríkin ætla nú að leggja
aðalatvinnuveg hreppsins í rúst,
er óveijandi að líða slík sérréttindi
lengur. Skorar hreppsnefndin á
ríkisstjómina að gera ríkisstjóm
Bandaríkjanna grein fyrir þessu
og taka þessi mál til endurskoðun-
ar og úrbóta.“
ERTU AÐ FARAST
UR ÞORSTA?
BJARGAÐU ÞER!
.... AHHHHHH!
óoðajfreahi,