Morgunblaðið - 07.08.1986, Qupperneq 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 1986
Systir okkar. t SIGRÍÐUR BJÖRNSDÓTTIR frá Karlsskála við Reyðarfjörð,
lést þriðjudaginn 5. ágúst.
Sigurbjörg D. Stephensen, Eiríkur Björnsson, Þorsteinn Björnsson, Helga B. Árdal.
t
Eiginmaður minn,
BRAGI BJÖRNSSON,
Suðurgötu 7,
Sandgerði,
lést á heimili sínu þann 4. ágúst.
Fyrir mína hönd og annarra ættingja,
Rósa Magnúsdóttir.
t
Eiginmaður minn,
ÖRN VALDIMARSSON
framkvæmdastjóri,
Logalandi 25,
andaðist á gjörgæsludeild Borgarspítalans að kvöldi 5. ágúst.
Fyrir hönd ættingja og vina,
Katrín Árnadóttir.
Systir okkar,
BÁRA SKARSTAD,
fædd ÞORGEIRSDÓTTIR,
lést á heimili sínu i Kaliforníu 4. júní sl.
Útför hennar fór fram 9. júní.
Fyrir hönd systra,
Kolbrún Valdimarsdóttir.
t
Bróðir minn og frændi
HÖRÐUR MAGNÚSSON,
Stykkishólmi,
Hjaltabakka 2,
lést á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund 31. júlí. F.h. vandamanna,
Anna Magnúsdóttir.
t
Eiginkona mín,
INGUNN JÓHANNESDÓTTIR,
Bogahlíð 22,
lést að morgni 6. ágúst. Fyrir hönd vandamanna,
Ingibjartur Arnórsson.
t
Ástkær eiginmaður minn, sonur okkar, tengdasonur og faðir,
SVAVAR JÚLÍUSSON,
Miðvangi 147,
Hafnarfirði,
lést í St. Jósefsspítala, Hafnarfirði að morgni 5. ágúst.
Ingibjörg Guðmundsdóttir,
Soffía Ólafsdóttir, Júlíus Andrésson
Friðrikka Bjarnadóttir,
og börn hins látna.
t
Útför eiginmanns mins, föður, tengdaföður og afa,
GUNNARS ÓLAFSSONAR
sjómanns frá Vfk í Mýrdal,
Kársnesbraut 19, Kópavogi,
fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 8. ágúst kl. 13.30 e.h.
Arndis Tómasdóttir,
Ólafur Einir Gunnarsson, Halldór Gunnarsson,
Ingibjörg Sigríður Jones, Ingibjörg Kristjánsdóttir,
Hrafnhildur Linda Ólafsdóttir, Kristján Gunnar Halldórsson,
Ingólfur Marteinn Ólafsson, Drifa Guðrún Halldórsdóttir,
Sigurður Arnar Ólafsson, Róbert Emil Halldórsson,
Svanfrfður Louise Ólafsdóttir.
, ____________________________________'______•_______
Ágúst M. Péturs-
son — Minning
Fæddur 29.júni 1921
Dáinn 28. júlí 1986
Ágúst Metúsalem Pétursson.
Hann hefúr verið frá okkur tekinn,
alltof snemma, að því að okkur öll-
um finnst. Guð almáttugur hefur
valið hann í sveit herskara sinna.
Okkur sem eftir lifum finnst
þungt að kveðja hann svona
snemma. Ágúst átti svo margt
ógert, starfsorka hans var enn í
fullu fjöri. En við vitum og beygjum
okkur fyrir því, að ekki tjáir að
deila við hinn æðsta dómara,
ákvörðunum hans verður ekki
breytt af okkur dauðlegum mönn-
unum.
Eg mun alla tíð minnast hans
með þakklæti og virðingu, þakklæti
fyrir alla þá þolinmæði og vinsemd
sem hann alltaf átti í hjarta sínu,
virðingu fyrir vináttu hans sem var
einlæg og traust og aldrei brást.
Ágúst var fæddur að Hallgils-
stöðum, í Sauðaneshreppi, N-Þing-
eyjarsýslu, næstyngstur 7 systkina,
sonur hjónanna Péturs Metúsalems-
sonar, frá Miðíjarðarnesi á Strönd
og konu hans Sigríðar Friðriks-
dóttur frá Núpi undir Eyjafjöllum.
Þau bjuggu í 14 ár á Hallgilsstöðum
og fæddust 6 börn þeirra þar, Mar-
inó. núna búsettur á Bakkafirði;
Elín, húsfreyja í Laxárdal (Þistil-
firði); Valgerður, húsfreyja í
Keflavík; Oddgeir, einnig búsettur
í Keflavík; Björn Oli, hann lést í
Reykjavík 1977; þá Ágúst, en
yngstur var Garðar, hann lést 1933.
Snemma lá leið Ágústar burí úr
föðurhúsum, frá Höfnum á Langa-
nesströnd, þar sem foreldrar hans
bjuggu. Föður sinn missti Ágúst
er hann var enn ungur að árum,
svo að hann varð að leggja harðar
að sér en við þekkjum í dag til hins
daglega brauðstrits. Hann hélt til
Vestmannaeyja þar sem hann hóf
nám í húsgagnasmíði hjá Ólafi
Gránz og lauk því námi 13. maí
1945.
Ágúst var mikill gæfumaður,
hann unni því sem í kringum hann
var og Guð hafði gefið honum, hann
lifði fyrir þessar gjafir, konuna sína,
biirnin sín og tónlistina. Eftirlifandi
konu sinni Guðrúnu Dagpiýju Krist-
jánsdóttur, frá Hvammi í Fáskrúðs-
firði, giftist hann 2. nóvember 1946.
Búskap sinn hófu þau hér i
Rcykjavík, en eftir skamma veru
hér fluttu þau um tíma til Keflavík-
ur þar sem frumburður þeirra
fæddist. En ekki voru þau lengi þar
því leið þeirra lá aftur til Reykjavík-
ur. 1952 fluttu þau svo í hús það,
Álfatröð 3 í Kópavogi, sem síðan
var þeirra heimili. Þetta hús byggðu
þau í sameiningu og lögðu alla sína
alúð í. Og hver sem þar inn kemur
sér að þar hafa hagleikshendur far-
ið um hlutina. Ágúst hefur gert þar
mörg listaverkin innandyra og
Guðrún lagt sína rós þar á svo að
unun er á að líta og er ég óþreytt-
ur að virða fyrir mér þau listaverk
sem þar eru. Það er ekki annað en
hægt að láta sér líða vel innan um
svo fallega hluti. Þar er allt í röð
og reglu og maður getur gengið
að hveijum hlut vísum.
Þeim hjónum varð þriggja barna
auðið, Kristrún Harpa fædd 28.
júní 1948, Pétur Ómar fæddur 27.
desember 1952 og Ágústa Sigrún
fædd 1. september 1965. Þá eru
það fjögur barnabörnin _scm syrgja
afa, Hrönn, Marínó og Ágúst, börn
Höipu og þess sem þessi orð skrif-
ar, svo alnafna ömmu, Guðrún
Dagný, dóttir Ómars og Nínu Breið-
fjörð.
Ég á margar fallegar minningar
frá samverustundum okkar Ágúst-
ar, samverustundum sem voru alltof
fáar, og þegar maður horfír á bak
góðum vini og hann var tengdafað-
ir minn líka, þá koma minningarnar
hver af annarri fram í hugann. Ein
er sú minning sem ég hef oft hugs-
að um en það var eitt sinn er ég
kom til hans út í bílskúr, hann hafði
verið að slípa og pússa tré, ameríska
risafuru. Þar tyllti ég mér á spýtna-
búnt, innan um hefilspæni og
trésmíðavélar og horfði á hann Ijúka
verkinu. Þegar því var lokið strauk
hann yfi>- viðinn með vinstri hend-
inni til þess að finna hversu mjúkur
hann var, en rétti mér síðan. Ég
hafði orð á því við hann að ég hefði
tekið eftir því að hann notaði vinstri
hendina ef hann þurfti að gá að
verki hveiju, hversu vel það væri
unnið, hann væri ekki örvhentur.
Þá hló hann við og svaraði mér á
þennan veg: „Það er minna sigg í
þeirri vinstri og tilfinningin næm-
ari“ bætti síðan við, um leið og
hann fitjaði upp á nefið og bros-
hrukkur komu kringum augun á
honum; „Hvers vegna heilsast fólk
ekki með vinstri hendinni, það eru
fínni taugarnar þar, svo er styttra
til hjartans.“ Þetta finnst mér lýsa
vel hugsun hans, alltaf að hugsa
um það góða í manninum.
Allan sinn starfsaldur vann hann
við húsgagnasmíðar og nærri 40
ár vann hann hjá Gamla kompaní-
inu og þá lengst af sem verkstjóri
þar. Sonur minn, Marínó, varð
þeirrar gæfu aðnjótandi að vinna
undir hans stjórn og leiðsögn um
tíma. Ætla ég að þar hafi hann
fengið það veganesti sem endast
mun honum til gæfu og gengis um
ókomna tíð. Ágúst átti alveg ein-
staklega auðvelt með að gera flókna
hluti einfalda og skiljanlega. Hann
flanaði aldrei að neinu, fór sér aldr-
ei óðslega, en vann vel og var
húsbændum sínum ötull þjónn, enda
hafa skapast trygg vináttubönd þar
í milli og Jón P. Jónsson góður vin-
ur Ágústar.
Mér fannst það vera einhvern
veginn þannig að þegar Ágúst var
að vinna þá urðu hlutirnir til í hönd-
unum á honum eins og hjá töfra-
manni, maður áttaði sig ekki á því
fyir en allt var klappað og klárt,
tilbúið allt í einu enn eitt listaverk-
ið. Listaverkin voru líka fleiri en
bara það sem hann skapaði úr tré,
tónlistin var honum í blóð borin
eins og hjá þeim fleiri systkinunum.
Hann lék á harmónikku alla tíð og
á píanó samdi hann mörg falleg lög
sem enn eru spiluð og sungin og
eiga eftir að lifa lengi. Líklega er
frægast lagið Æskuminning sem
fékk verðlaun árið 1953, og varð
til þess að Ágúst var kjörinn annar
besti íslenski dægurlagahöfundur-
inn það sama ár af tímaritinu
Hljómlötunýjungar. En ég held að
það lag sem honum hafí í rauninni
þótt einna vænst um hafí verið lag-
ið Harpan ómar. Það samdi hann
er þau Harpa og Omar voru lítil
og léku sér í kringum hann, hann
hafði þau fyrir augunum og í huga
er hann samdi það. Ágúst viður-
kenndi það ekki fyrir mér afdráttar-
laust, neitaði því heldur ekki að
Æskuminning hafi verið óður hans
til konunnar sinnar.
Ágúst kom víða við á sínum tón-
listarferli, hann spilaði í mörg ár í
hljómsveit Jenna Jóns. Þá var hann
einn af stofnendum Félags íslenskra
harmónikkuunnenda og í stjórn
þess til síðasta dags. En það er
ekki hægt að minnast á harmónikk-
una án þess að upp komi í hugann
allar þær stundir sem hann spilaði
fyrir börn sín og barnabörn, allt
eftir þeirra óskum, Lipurtá fyrir
Sigrúnu og Hrönn, Sjómennskuna
fyrir Marínó o.s.frv. öll áttu þau
sitt uppáhaldslag og hann enda-
laust þolinmóður spilaði í tíma og
ótíma, hann átti alltaf tíma fyrir
börnin sama hvernig á stóð hjá
honum sjálfum. En nú í dag sjá þau
á eftir afa yfir móðuna miklu, en
huggun er þó harmi gegn, hún
amma er þarna enn trú og trygg,
hæglát og góð. Hún miðlar þeim
af gæsku sinni sem hún tamdi sér
af nærri 40 ára sambúð við afa og
þeirri sem henni voru í blóð bornar.
Að lokum vil ég þakka Guði fyr-
ir þá gleði að hafa fengið að þekkja
Ágúst og kynnast honum svona
vel. Megir þú góði Guð blessa minn-
ingu hans.
Oniindur Jónsson
Á sumum kveðjustundum er djúp
þögnin besta kveðjan og kannski
væri slík kveðja geðfelldust mínum
góða og hógværa nágranna, Ágústi
Péturssyni. En samt vil ég leyfa
mér að fylgja honum úr hlaði með
örfáum orðum.
Að þessum leiðarlokum höfum
við Ágúst verið nágrannar í 23 ár,
aðeins lággirðing á milli okkar, sem
auðvelt var að klífa yfír. Að öðru
leyti voru allar götur greiðar yfir í
t
Faðir okkar, tengdafaöir og afi,
BJARNI SIGURÐUR HELGASON,
Engjaseli 3,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 11. ágúst kl.
10.30.
Margrét Bjarnadóttir,
Bjarni Bjarnason,
Tryggvi Bjarnason,
Leifur Bjarnason,
Árni Finnbogason,
Sigríður Ólafsdóttir,
Kristjana Guðmundsdóttir,
Elínborg Sigurðardóttir,
og barnabörn.
t
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaöir og afi,
KARLTHEODÓRJÓNSSON
Kleppsvegi 74,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 8. ágúst kl.
15.00. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Hjartavernd.
Hrefna Hannesdóttir,
Hafdís Jóna Karlsdóttir,
Ágústa Karlsdóttir, Birgir Vigfússon,
Valgerður Karlsdóttir, Einar Ragnarsson,
Fjóla Ólöf Karls, Lúðvik Sverrisson,
Hrefna Hlfn Karlsdóttir, Valgarður Sigurðarson,
Karl Bryngeir Karlsson, Anna Bragadóttir,
Jón Hannes Karlsson, Halldór Jón Karlsson
og barnabörn.