Morgunblaðið - 07.08.1986, Qupperneq 50

Morgunblaðið - 07.08.1986, Qupperneq 50
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 1986 50 i f í 2ír :1 ■V :í f ! I \ 3 HCBMArín áster... IX- ws .. .aö> fínna að þú ert gift þínum besta vini TM Rtg. U.S. Pat. ON.-all rjghts reserved e 1966 Los Angeles Tlmes Syndlcate \ -M Gott handrit í sjálfu sér, en það mætti stytta frásögnina niður í svo sem hálfan dálk! Meiri dagurinn. Búinn að gefa eiginhandaráritun á ótal ávís- anir í allan dag. Ég skil þetta fólk sem rithandasafnarar hundelta! HÖGNIHREKKVISI P ? í n •Xu fi -Ji PTfry fk 1 £ I I i í . i í l 0 s gf j ; ? l W s | « í í \ Hugleiðingar á hringveginum Athugull skrifar: „Kominn vel yfir miðjan aldur lét ég loks verða af því að leggja upp í ökuferð um hringveginn. Kona mín og tveir góðir vinir okkar eru með. í ferðinni. Veðrið hefur verið gott. Fyrsti áfangi var með einkar skemmtilegum hætti, fallegt veður með afbrigðum. Eyja- Qöllin skörtuðu sínu fegursta og austursveitirnar allar buðu sífellt upp á nýjar og nýjar dásemdir. Tii Kirkjubæjarklausturs var komið á skaplegum tíma. Næsti morgunn rann upp. Enn var veður eins og best varð á kosið, farið var í stutta gönguferð áður en haldið var af stað. Allir urðu djúpt snortnir af útsýn- inu og fylltust unaðskennd yfir fegurð lands okkar og árgæsku þeirri sem bændur virðast búa við á þessu sumri. Áfram var haldið í austurátt. Fylgst með fréttum í útvarpinu og öðiu sem þessi ágæti fjölmiðjll hafði upp á að bjóða. Þennan dag var m.a. sagt frá samn- ingum sem í gangi voru milli lögreglu og ríkisvaldsins. Um kvöld- ið þegar samningar virtust á lokastigi var haft samband við deiluaðila og kom þá samningsstað- an skilmerkilega fram. Síðan var leitað álits formanns BSRB. Þótti undirrituðum það mjög sérkenni- legt, þar sem þessi samtök virtust ekki hafa neitt með þessa samninga að gera. Staðreynd er að margir aðilar sem tilheyrt- hafa BSRB hafa séð sínum hagsmunum betur borgið án íhlutunar bandalagsins. Þessar bollaleggingar fengust þegar staðfestar er rætt var við formanninn sem sló því fram, að nú værl heppilegt að knýja á með fjöldauþpsögnum. Þeim, sem þessar línur ritar, brá mjög er hann heyrði þessi orð. Væri nú ekki meiri ástæða til að hugleiða orð formanns Sjálfstæðis- flokksins og hvetja til þjóðarsáttar í samningum um kaup og kjör? Þegar horft er til baka og verðbólga fyrri ára hugleidd, hljóta allir að sjá að það besta, sem nú gæti hent íslensku þjóðina, væri, ef verkalýðs- foringjar skildu nauðsyn þess, að sanngimi á báða bóga er einasta leiðarljós sem ber að fara eftir. Enginn vill verðbólgutímabilið að nýju, það hefur algjörlega gengið sér til húðar, enda er nærtækt dæmi að kaup sem hækkaði um mörg hundruð prósent á ákveðnu árabili skilaði aðeins nokkrum pró- sentum í raunhæfar kjarabætur, þrátt fyrir mikil átök á vinnumark- aðnum. Minnug þessa þurfa verka- lýðsfélögin að sjá til þess að foringjar beggja aðila beri í sér þann þjóðlega anda, sem beinir huga manna inn á raunhæfar leið- ir, en að ekki verði hvatt til öfga’kenndra athafna, sem leysa Hundrað er hundr- uð í fleirtölu Lilja skrifar: „Kæru fréttamenn sjónvarps, bæði þulir og ritarar fréttayfirlits. Munið að fleirtala orðsins hundr- að er hundruð en ekki þetta forljóta orð, sem enduitekið var hvað eftir annað í fréttatíma kvöldið 30. júlí sl. Þið eruð orðnir heimilisvinir okk- ar um allt land og jafnframt „íslenskukennarar" barna og ung- menna og „vandi fylgir vegsemd hverri“. En orðtakið segir líka: „Vinur er sá, er til vamms segir“.“ þjóðfélagið upp í smáhagsmuna- hópa; senr hver fyrir sig beitir orku sipn’i inn á hugsunarhátt Sturlunga- aldar, sem leiddi ófrelsi yfír þjóðina , og varð til þess að íslendingar misstu sjálfstæði sitt. Tökum heldur undir með formanni Sjálfstæðis- flokksins og vinnum sameiginlega að því að ná þeim árangri sem fram- ast má. Það er á allra vitorði, að góðir atvinnurekendur keppa að því að hafa í sinni þjónustu ánægða starfs- menn, en það verða allir þegar hugarfarið er ekki lengur mengað og kjörin fundin með skynsamleg- um útreikningum. í framhaldi af þessum hugleiðingum koma Haf- skipsmál og Útvegsbankinn upp í hugann. Hafskipsmálið er svo sér- stætt að ekki má svæfa það fyrr en full niðurstaða liggur fyrir. Al- menningur vill fá að sjá útkomuna úr því dæmi. Það hefur nefnilega átt sér stað um stór mál á liðnum árum, að .niðurstöður hafa ekki fengist kunngerðar fyrr en málin hafa verið fymd. Skal ekki nánar út í það farið. En breytt Ijölmiðlun skapar meiri þrýsting af hálfu almennings. Þó mikið hafí verið skrifað um þessi mál virðist margt óljóst. Ekki er gott né réttíætanlegt að þeir, sem saklausir eru, séu sak- felldir af óvönduðum blöðum. En þeir, sem sekir eru, þurfa líka að taka út sinn dóm. Þjóðfélagi okkar er hætta búin ef við gætum þess ekki að fara eftir lögum og réttum leikreglum. „Með lögum skal land byggja, en með ólögum eyða.“ Mjög er talað um að bankastjórar beri enga ábyrgð og séu aldrei sak- felldir! Það finnast ekki fyrir því nein dæmi. Einnig hefur því verið haldið fram, að bankaráðin séu þarflaus og t.d. þurfi formaður bankaráðs ekki að fylgjast með lán- veitingum, jafnvel þó að lánveiting- ar bankanna séu það miklar, að hann riði til falls og almenningur spyr: Til hvers eru bankaráðin þá? Eru þau aðeins bitlingar?" Víkverji skrifar Fyrir skömmu barst Víkverja í hendur bæklingur, sem heitir Vestfirsku Alparnir. Þar segir með- al annars: „Skaginn milli Arnar- fjarðar og Dýrafjarðar á Vestfjörð- um er stundum nefndur Vestfirsku Alpamir þar sem fjöllin þar minna nokkuð á hin frægu Alpafjöll suður í Evrópu. Tvö sveitarfélög eru á skaganum, Þingeyrarhreppur með 495 íbúa og Auðkúluhreppur með 29 íbúa. Tilgangurinn með útgáfu þessa bæklings er að veita ferða- mönnum og öðrum, sem leggja leið sína á þessar slóðir, hagnýtar leið- beiningar." Þessu framtaki er ástæða til að fagna. Á ferð um Vestfirði nú í sumar kom Víkveiji meðal annars til Hrafnseyrar, fæðingarstaðar Jóns Sigurðssonar, sem er á þessu svæði. Við komum þangað síðla dags, skömmu eftir að safninu var lokað samkvæmt því, sem sagt er frá í auglýsingum. Jón Guðmunds- son, sem býr að Hrafnseyri, taldi það hins vegar ekki eftir sér að opna safnið fyrir okkur. Er ástæða að hvetja ferðalanga til að hafa þama viðdvöl og rifja upp þætti úr þjóðarsögunni. Ætlun okkar var sú að gista að Hrafnseyri en við fengum hins veg- ar upplýsingar um það, að þar hefði ekki verið unnt að kaupa gistingu í 18 ár. Við höfðum heyrt, að á Þingeyri, sem er næsta kauptún, hefðu einhveijir haft uppi áform um að hefja rekstur á hóteli og ókum því þangað. Viitust tvö her- bérgi í hótelinu en annað þeirra hafði verið pantað, þannig að við héldum sem leið lá til ísafjarðar og gáfum okkur þar með ekki tíma til að skoða „Vestfirsku Alpana" sem skyldi. Er ekki vafi á, að framtak þeirra, sem kynna þennan lands- hluta í fyrrgreindum bæklingi, yrði árangursríkara, ef unnt væri að gista þar annars staðaren í tjaldi. XXX 1. Breiðuvík skammt frá Látra- bjargi er unnt að gista. Þar rak ríkið upptöku- eða skólaheimili um árabil en 1982 keyptu hjónin Am- heiður og Jónas jörðina og hafa síðan unnið að því ásamt búskap að endurnýja heimavistina í því skyni að nýta hana til gistingar. í Breiðuvík geta sofið 40 manns. Þegar Víkveiji var þar á ferð, voru þar 24 Bretar, sem sváfu í svefn- pokum og sáu sjálfir um matseld. Þetta voru áhugamenn um ljós- myndun. Veðurguðirnir vom þeim ekki hliðhollir þessa dagana, en það væsti ekki um þá. Þeir, sem ekki ferðast með svefnpoka, geta einnig fengið gistingu í Breiðuvík, og vilji menn vera lausir við eldamennsku er unnt að semja við hótelhaldara. Frá Breiðuvík eru aðeins 12 km út á Látrabjarg, vestasta odda landsins og Evrópu. Áhugi á að gista í Breiðuvík hefur vaxið ár frá ári. Að sögn hótelhaldaranna hafa íslendrngar verið í meirihluta meðal gesta. Fyrir utan sjálfsagða skoð- unarferð til Látrabjargs ér margt forvitnilegt að sjá á þessum slóðum. Til dæmis er sjálfsagt að aka til Rauðasands. XXX Enginn, sem ferðast um Pat- reksfjörð eða fer út á Látra- bjarg, má láta hjá líða að skoða minjasafnið að Hnjóti í Örlygshöfn. Það var opnað í júní 1983. Egill Ólafsson að Hnjóti hefur í 40 ár safnað mununum af ótrúlegri elju, en húsið utan um þá er reist af sýslusjóði. Egill hefur einnig staðið að uppsetningu sýningargripa, sem eru alls 2.300. Hefur verið vel stað- ið að því verki og er öllu einstaklega haganlega fyrir komið. í stað langs skýringartexta hefur Egill valið þann kost að fá Bjama Jónsson til að teikna myndir, sem sýna í sjón- hendingu hvernig einstakir hlutir voru notaðir. Um 1.600 manns skoðuðu safnið að Hnjóti á árinu 1985. Húsakynni rúma ekki allt, sem Egill hefur safn- að og em uppi áform um að stækka safnið. Þá hefur Egill á eigin spýtur hafist handa við að koma upp vísi að flugminjasafni. Um áhuga af þessu tagi er óþarft að hafa mörg orð. Með því að búa jafn glæsilega um munina og raun ber vitni hefur ræktarsemi Egils við sögu heimabyggðar hans verið sýnd verðskulduð viðurkenning. Fyrir gesti er ómetanlegt að kom- ast með þessum hætti í kynni við gamla atvinnuhætti og líf þeirra, sem þarna bjuggu fyrr á öldum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.