Morgunblaðið - 07.08.1986, Page 54
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 1986
IÞROTTIR UNGLINGA
UMSJÓN/Vilmar Pétursson
2. flokkur:
íslands-
meistarar
• íslandsmeistari í 2. flokki
kvenna varð Breiðablik úr Kópa-
vogi. Þær eru á þessari mynd í
efii röð frá vinstri: Ingibjörg
Hinriksdóttir liðsstjóri, Inga Ól-
afsdóttir, Sigríður Sigurðardótt-
ir, Olga Másdóttir, Sara
Haraldsdóttir, Hulda Hanni-
balsdóttir, Svanhildur Másdótt-
ir, Aðalsteinn Örnólfsson
þjálfari og Oddur Grímsson liðs-
stjóri. I fremri röð frá vinstri:
Ásrún Björnsdóttir, Kristrún
Daðadóttir, Sigrún S. Óttars-
dóttir fyrirliði, Steindóra Steind-
órsdóttir, Guðrún E. Arnardótt-
ir, Katrín Oddsdóttir og Bylgja
B. Jónsdóttir.
Morgunblaðiö/Bjarni
Framlenging
og falleg mörk
— í úrslitaleik 2. flokks kvenna þar sem UBK vann
Strax á fyrstu mínútunni skora
þær. Góð sending kemur fyrir
Blikamarkið, Iðunn Jónsdóttir
nær boltanum og þrumar honum
neðst í homið fjær óverjandi fyr-
ir Steindóru markvörð Blikanna.
Eftir þetta dynja sóknir Garð-
bæinganna á Blikavörninni en á
einhvern óskiljanlegan hátt tókst
þeim ekki að nýta sér þær þrátt
fyrir nokkur dauðafæri. Rósa
Jónsdóttir var mjög ógnandi viö
Blikamarkið en var lánlaus að
skora ekki, t.d. skaut hún einu
sinni í stöng fyrir opnu marki eft-
ir vel útfærða Stjörnusókn. Rósu
tókst þó að skora eitt mark í
seinnihluta fyrri hálfleiks en það
var dæmt af. Þá komst hún ein
inn fyrir vörn UBK, skaut í stöng,
markvörður Blikanna náði bolt-
anum en Rósa potar í hann og í
markið. Dómarinn sá eitthvað
athugavert við samskipti Rósu
og Steindóru markvarðar og
dæmdi aukaspyrnu á Stjörnuna.
Lið Breiðabliks hefur senni-
lega fengið orð í eyra frá þjálfara
sínum í leikhléi því strax í þyrjun
síðari hálfleiks byrjuðu þær að
láta boltann ganga á milli manna
og baráttan var mun meiri en i
fyrri hálfleik. Þessi breytti leikstíll
skilaði þeim marki strax á 5.
mínútu hálfleiksins. Eftir harða
sókn að Stjörnumarkinu var
dæmd aukaspyrna u.þ.b. 25
metra frá markinu. Sigrún Ottós-
dóttir gerði sér lítið fyrir og
þrumar boltanum beint úr auka-
spyrnunni efst í markhorniö og
jafnar þar með leikinn.
Blikarnir hafa síðan undirtökin
það sem eftir lifir af síðari hálf-
leik án þess að ná að skora
löglegt mark en eitt mark þeirra
var dæmt af vegna rangstööu.
Það þurfti því að grípa til fram-
lengingar til að fá fram úrslit í
þessum sveiflukennda úrslita-
leik.
í fyrrihluta framlengingarinnar
skorar Kristrún L. Daðadóttir af
harðfylgi eftir að hafa fengið lag-
lega stungusendingu innfyrir
vörn Stjörnunnar. Þetta reyndist
vera sigurmark leiksins, sigur-
mark úrslitaleiksins, og því voru
það Breiðabliksstelpurnar sem
föðmuðust og kysstust í leikslok.
Leikur beggja liða var sveiflu-
kenndur í þessum leik en greini-
legt var að bæði geta þau leikið
góða knattspyrnu. Stjörnustelp-
urnar naga sig sennilega fyrir að
hafa ekki gert út um leikinn í fyrri
hálfleik á meðan Blikarnir þakka
sínum sæla fyrir að hafa náð að
rífa sig uppúr doða fyrri hálfleiks-
ins.
í liöi Breiðabliks bar mest á
fyrirliðanum, Sigrúnu Ottósdótt-
ur, sem er gríðarlega fljótur
miðvörður og stoppuðu ófáar
sóknir Stjörnunnar á henni. Hjá
Stjörnunni áttu allar stelpurnar
góðan fyrri hálfleik en mest bar
á þeim Guðnýju Guðnadóttur og
Rósu Jónsdóttur.
Sigrún Ottósdóttir:
Unnumalla
okkar leiki
„ÞAÐ VERÐUR grillveisla f
kvöld,“ sagði Sigrún Ottósdótt-
ir, fyrirliði UBK, eftir að hún og
félagar hennar höfðu unnið ís-
landsmeistaratitil 2. flokks
kvenna.
„Við höfum æft 4. sinnum í
viku í sumar og unnið alla okkar
leiki. í fyrra var baráttan um titil-
inn líka milli okkar og Stjörnunnar
og þá vann hún og við vorum
ákveðnar í að láta' það ekki end-
urtaka sig núna, það kom ekkert
annað til greina en sigur,“ sagði
Sigrún sigurhreif.
Aðspurð um hvernig stemmn-
ingin hefði verið hjá þeim í
leikhléi þegar liðið var einu marki
undir og allt hafði gengið á aftur-
fótunum í fyrri hálfleik sagði
Sigrún aö þjálfarinn hafi látið þær
leggjast á gólfiö og lesið yfir
þeim. Eftir það sagði hún að þær
hefðu veriö ákveðnar að spila og
berjast. Það tókst og titillinn
vannst.
Morgunblaðið/Bjarni
• Blikastelpurnar fagna Kristrúnu eftir að hún hafði skorað hið mikilvæga mark í framlengingu og
gleðin leynir sér ekki.
Morgunblaöiö/Bjarni
• „Með hörkunni hefst það.“ Krístrún L. Daðadóttir UBK og
Guðrún Ásgeirsdóttir berjast um boltann.
BREIÐABLIK tryggði sér Is-
landsmeistaratrtil í 2. flokki
kvenna þegar þær sigruðu
Stjömuna í með tveimur mörk-
um gegn einu í æsispennandi
úrslitaleik sem fram fór á Kópa-
vogsvelli síðastliðinn þriðjudag.
Stjörnustelpurnar voru mun
betri en Blikarnir í fyrri hálfleik,
þær voru ákveðnari í öllum
návígjum og spiluðu mun betur.