Morgunblaðið - 07.08.1986, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 1986
55
• Aðdragandi seinna marks Skagamanna f leiknum í gærkvöldi. Pétur er hér í þann mund að leika á varnarmenn Grimsby og skömmu
seinna hafði Valgeir Barðason fengið boltann og skorað.
Pétur gladdi Skagamenn
með góðri frammistöðu
— hann skoraði eitt mark og lagði upp ann-
að, en Grimsby vann samt öruggan sigur, 5:2
PÉTUR Pétursson sýndi það í leik
Skagamanna og Grimsby Town á
Akranesi í gærkvöldi að hann
hefur engu gleymt af kúnstum
knattspyrnunnar frá þvi hann lék
síðast í gulu treyjunni fyrir átta
árum. Hann skoraði mark í annað
skipti sem hann fékk knöttinn í
leiknum, lagði upp síðara mark
liðs síns og varnarmenn Grimsby
réðu ekkert við hann. Hann virtist
einnig hafa mjög góð áhrif á sam-
herja sína í Akranesliðinu sem f
fyrri hálfleik léku betur en áður í
sumar. Pað dugði þó ekki til því
Grimsby vann leikinn með fimm
mörkum gegn tveimur.
Greinilegt var að Jim Barron,
þjálfari Akranesliðsins, tók þennan
æfingaleik ekki mjög alvarlega.
Hann skipti mörgum af bestu leik-
mönnum liðsins útaf í hálfleik,
þegar ÍA hafði 2:1-forystu, og alls
kom 21 Skagamaður við sögu í
leiknum — sem sjálfsagt er nýtt
íslandsmet. ÍA á að leika í 1. deild
annað kvöld gegn FH og Barron
hefur augljóslega ekki talið rétt að
láta leikmennina reyna of mikið á
sig. Lið Grimsby vann því verð-
skuldaðan sigur, þó svo ekki sé
Leikir
í kvöld
• í kvöld leika Breiðablik og KR
á Kópavogsvelli í 1. deild kvenna
og hefst leikurinn klukkan 19.30.
Hálfri klukkustund fyrr hefst leik-
ur Þróttar og KA í 2. deild karla
á Laugardalsvelli.
gott að segja hvernig farið hefði
ef Skagamenn hefðu leikið þennan
leik af fullri alvöru.
Fyrsta markið kom á 7. mínútu.
Sveinbjörn Hákonarson átti þá fal-
lega sendingu utan af kanti inn að
marki Grimsby og Pétur stakk sér
innfyrir vörnina af miklum krafti
og renndi síðan knettinum örugg-
lega framhjá Felgate í markinu
neðst í hornið frá vítapunkti.
Á 21. mínútu komust Skaga-
menn tveimur mörkum yfir, og
aftur var Pétur Pétursson á ferð-
inni. Hann fékk boltann þá á
miðjum vallarhelmingi Grimsby,
lék á tvo til þrjá varnarmenn og
náði að leggja knöttinn laglega til
hliðar á Valgeir Barðason sem
vippaði yfir markvörðinn og í netið.
Sjö mínútum síðar minnkaði
Grimsby muninn, þegar Cumming
skoraði af stuttu færi eftir fallega
sendingu frá lan Walsh. Rétt eftir
mark Cummings var Pétur enn á
ferðinni, náði að komast innfyrir
vörn Grimsby en markvörðurinn
sá við honum þegar hann hugðist
vippa boltanum yfir hann.
Sem fyrr segir léku Skagamenn
skínandi vel í fyrri hálfleik og verð-
skulduðu forystuna gegn atvinnu-
mönnunum frá Englandi. En í
hálfleik fóru Pétur, Sigurður Lárus-
son, Guðbjörn Tryggvason, Júlíus
P. Ingólfsson, Heimir Guðmunds-
son, Sigurður B. Jónsson af leik-
velli, og fleiri skiptingar fóru síðan
fram skömmu síðar. Við þetta riðl-
aðist leikur liðsins að sjálfsögðu
mjög og á 15 mínútna kafla í upp-
hafi síðari hálfleiks gerði enska
liðið út um leikinn með fjórum
mörkum.
Á 55. mínútu skoraði Henshaw
úr víti, á 58. mín. skoraði mið-
herjinn Gordon Hobson með
skalla, á 61. mín. skoraði Andy
Peake fallegt mark með þrumu-
skoti og á 69. mín. skoraði svo
fyrirliðinn og þjálfarinn Mick Lyons
fimmta mark liðs síns.
Bæði lið fengu góð marktæki-
færi til að skora undir lok leiksins.
Fyrst varði ungur varamarkvörður
Skagamanna, Rúnar Sigríksson,
glæsilega vítaspyrnu frá Henshaw
og þegar átta mínútur voru til leiks-
loka skaut Guðjón Þórðarson í slá
úr vítaspyrnu hinum megin á vellin-
um.
Pétur, Sveinbjörn og Guðbjörn
voru bestir Skagamanna en Hob-
son, miðherji Grimsby, var stór-
hættulegur, fljótur og leikinn. Mick
Lyons var þungur í leiknum en
öryggið uppmálað.
1. deild kvenna:
Enn einn sigur Vals
EINN leikur var í fyrstu deild
kvenna í knattspyrnu í gær-
kvöldi. Valsstelpurnar spiluðu
viö Hauka á malarvellinum við
Hlíðarenda. Valur var í sókn
allan tímann og vann leikinn
8—0.
Fyrsta mark leiksins skoraði
Kristín Arnþórsdóttir, og hún
átti eftir að bæta við fimm
mörkum áður en flautað var til
leiksloka. Annað mark Vals
skoraði Ingibjörg Jónsdóttir og
síðan komu þrjú mörk í röð frá
Kristínu staðan í hálfleik var því
5:0 fyrir Val.
Kristín skoraði fyrsta markið
í seinni hálfleik og bætti einu
við þegar um 15 mínútur voru
eftir. Bryndís Valsdóttir skoraði
síðan áttunda og síðasta mark
Vals þegar um 10 mínútur voru
til leiksloka. Yfirburðasigur
Valsliðsins, sem ekki hefur tap-
að leik til þessa, og á aðeins
tvo leiki eftir. Valsliðið var
sterkt í heild og ekki er hægt
að segja að nein hafi borið af
öðrum, og þó Kristín hafi skor-
að 6 mörk þá var þetta sigur
liðsheildarinnar. Haukaliðið var
slakt og við þeim blasir ekkert
nema fall. Þær eru nú neðstar
í 1. deild, hafa ekki fengið stig
og ekki skorað mark.
- KMJ.
STAÐAN í 1. deild kvenna:
Valur 10 9 0 0 44:3 30
ÍA 7 5 0 2 16:5 15
UBK 7 5 0 2 17:7 15
KR 7 4 0 3 17:9 12
ÍBK 8 2 0 6 9:22 6
Þór 8 1 0 7 5:23 3
Haukar 7 0 0 7 0:41 0
pEyNsLA
þjOl
nUStA
FALKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8
SÍMI 84670