Morgunblaðið - 14.08.1986, Page 30

Morgunblaðið - 14.08.1986, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 1986 t Móðir okkar, SIGRÍÐUR ÓLAFSDÓTTIR, Grænuvöllum 6, Selfossl, andaðist í Sjúkrahúsi Selfoss þann 12. ágúst. Börn hinnar látnu. t Faðir okkar, fósturfaðir, tengdafaðir og afi, GUNNAR JÓNSSON frá Ölvaldsstöðum, Safamýri 36, andaðist í Borgarspítalanum 2. ágúst sl. Að ósk hins látna hefur útförin farið fram í kyrrþey. Ragnar Gunnarsson, Ólöf Gestsdóttir, Þórir E. Gunnarsson, Elsa A. Bessadóttir, ErtaWaage, Valgeir Gunnarsson og barnabörn. t Eiginmaður minn, EINAR MAGNÚSSON, fyrrverandi rektor, lést þann 12. ágúst í Borgarspítalanum. Rósa Guðmundsdóttir. t Útför systur okkar, SIGRÍÐAR BJÖRNSDÓTTUR, frá Karlsskála við Reyðarfjörð, fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 15, ágúst kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Barnaspítala Hringsins. Sigurbjörg B. Stephensen, Eiríkur Björnsson, Þorsteinn Björnsson, Helga B. Ardal. t Útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, DAGMAR G. JACOBSEN, Ránargötu 26, fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 15. ágúst kl. 10.30 f.h. Sigríður og Sverrir Bergmann, Katrín og Egili Á. Jacobsen, Dagmar, Þóra og Björn, Elrn Ingibjörg og Birgir, Margrét og Sverrir Egiil, Þorvaldur og Katrín Þórdís, Sigriður Lovi'sa og Þóra Björg. t Útför mannsins míns, ÞÓRODDS ODDSSONAR, fv. menntaskólakennara, verður gerð frá Fossvogskirkju föstudaginn 15. ágúst kl. 15.00. Margrét Þorgrímsdóttir, Guðrún Þóroddsdóttir, Björn H. Jónasson, Sigrún Þóroddsdóttir, Árni Þ. Bjömsson. t Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vinar- hug við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, BRAGA BJÖRNSSONAR, skipstjóra, Suðurgötu 7, Sandgerði. Rósa Magnúsdóttir, Sigurður Sigurðsson, Birthe Sigurðsson, Guðni Sigurðsson, Sigri'ður Sigurjónsdóttir, Björn Sigurðsson, Bente Sigurðsson, Sigríður Bragadóttir, Halldór Georgsson, Lilja Bragadóttir, Hólmþór Morgan, Guðjón Bragason, Elfn Ólafsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns og stjúpföður okkar, BJÖRNS BALDVINSSONAR, fyrrum skipstjóra og hafnarvarðar, Byggðavegi 138, Akureyri. Kristín Gunnlaugsdóttir og stjúpbörn hins létna. Oddrún Odds- dóttir — Minning Amma okkar, Oddrún Oddsdótt- ir, verður jarðsungin fimmtudaginn 14. ágúst, kl. 3 e.h. frá kirkjugarðs- kapellunni í Hafnarfirði. Hún fæddist 13. ágúst 1892 í ísleifskofa á Hellissandi, dóttir Odds Bjarnasonar sjómanns og Guðlaugar Jónsdóttur konu hans og var einkabarn þeirra. Hún missti báða foreldra sína þegar hún var fjiigurra ára gömul og var þá kom- ið í fóstur tii vandalausra. Á þessum tíma var lífsbaráttan afar hörð og átti fólk fullt í fangi með að hafa í sig og á, ekki síst á stað eins og ysta hluta Snæfellsness, enda mun ævi ömmu á þessum tíma ekki hafa verið neinn dans á rósum. Þegar hún var tólf ára gömul fór hún í fóstur til ömmu sinnar, Kristfríðar Onundardóttur, sem þá bjó á Önd- verðarnesi ásamt syni sínum, Frímanni Jónssyni. Kristfríður var stórvel gefin kona og var henni meðal annars falið að kenna böm- um sem vom seinþroska, hún var hagmælt og stórfróð um marga hluti. Þó ekki hafi verið auðsældinni fyrir að fara þá minnist amma okk- ar þess tíma sem hún var hjá ömmu sinni þannig að það hafi verið eins og að koma úr myrkri og kulda í birtu og hlýju sem umvafði hana þar. Minning hennar um samvistir við ömmu sína var ætíð sá kafli í lífi hennar sem hún saknaði mest og hún mat ömmu sína meira en aðra samferðamenn. Á æskuárum sínum vann amma víða á Snæfells- nesi sem vinnukona og var hún eftirsótt vegna dugnaðar síns. Gekk hún jafnt í karlaverk sem kvenna enda kunni hún ekki að hlífa sér. Árið 1926 flutti hún til Hafnarfjarð- ar og giftist þar Kristbergi Péturs- syni sjómanni frá Ólafsvík. Þau slitu samvistum árið 1932. Bjó hún eftir það með yngsta syni sínum, Pétri Kristbergssyni, til ársins 1960, þeg- ar hann stofnaði eigið heimili. Aðrir synir ömmu eru Krist- mundur Georgsson trésmíðameist- ari í Hafnarfirði og Sveinbjörn Jóhannsson verkamaður í Reykjavík. Þeir ólust ekki upp hjá mömmu sinni, en reyndust henni ávallt góðir synir. Allan þann tíma sem amma bjó í litla bænum í Hell- isgerði, eða í tuttugu ár sótti, faðir okkar hana í mat hvern einasta dag og hugsaði að öðru leyti um hana eins vel og hægt er að hugsa sér, og síðustu 10 árin bjó systir okkar t Innilegar þakkir til allra er auösýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför, VALDIMARS SIGURJÓNSSONAR, frá Hreiðri. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Hjúkrunarheimilisins að Ljósheimum Selfossi fyrir einstaka umönnun þann tíma er hann dvaldi þar. Sigurjón Valdimarsson, Albert H.N. Valdimarsson, Laufey S. Valdimarsdóttir, Jóna H. Valdimarsdóttir, Valgerður Valdimarsdóttir, Auður K. Eiriksdóttir, Ingibjörg Sigmundsdóttir, Hafsteinn Kristinsson, Hjalti Sigurjónsson, EinarOrri Hrafnkelsson. t Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og jarðarför föður okkar, tengdaföður og afa, SIGURJÓNS ÁRNASONAR, Pétursey, Mýrdal. Elín Sigurjónsdóttir, Þórarinn Sigurjónsson, Árni Sigurjónsson, Eyjólfur Sigurjónsson, Sigurður Sigurjónsson, Sigurbergur Magnússon, Ólöf Haraldsdóttir, Ásta Hermannsdóttir, Erna Ólafsdóttir, Bergur Örn Eyjólfs barnabörn. t Þökkum auðsýnda samúð og vinsemd við andlát og útför eigin- manns míns, föður, tengdaföður, afa og bróður, GARÐARS JÓNSSONAR, skipstjóra, Flateyri. Unnur Brynjólfsdóttir. Birting afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting- ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins i Hafn- arstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góð- um fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. { minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki eru tekin til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfilegt er að birta Ijóð eftir þekkt skáld, 1—3 erindi og skal þá höfundar getið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Megin- regla er sú, að minningargreinar birtist undir fullu nafni höfundar. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birt- ar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar eru birtar afmælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin, vélrit- uð og með góðu línubili. og nafna ömmu hjá henni og nutu þær þess báðar í ríkum mæli. Ámma hafði mikla ánægju af því að fá okkur í heimsókn og minnumst við þess með hlýju og söknuði. Þótt lífið á Snæfellsnesi hafi oft veiið erfitt, þá minntist hún oft æskustöðva sinna með söknuði, og á efri árum þegar heilsan var farin að bila og ellin að hijá, átti hún nokkrum sinnum kost á að ferðast á Nesið með föður okkar, og þá var eins og sjúkdómar hyrfu og æsku- þróttur vaknaði á ný er minnst var á ferð á Nesið. Áttatíuogþriggja ára fór hún sína síðustu ferð þangað, kom þá m.a. á Öndverðarnes og fann þá brunn- inn sem hún sótti vatn í 70 árum áður. Öll framkoma ömmu einkenndist af því að tala beint út og skipti þá ekki máli hveijir áttu í hlut, jafnvel þó að sumum þætti nóg um, en flestir mátu hreinskilni hennar og heiðarleika í framkomu. Árið 1980 missti amma heilsuna og gat ekki búið lengur í litla bænum sínum í Hellisgerði, og dvaldi upp frá því á Sólvangi í góðri umsjón starfsfólks þar. Þrátt fyrir sinn háa aldur og veikindi var á góðum stundum grunnt á glettni hjá henni eins og hún hafði áður í svo ríkum mæli. Nú, á skilnaðarstundu, þegar amma hcfur gengið inn á þá braut sem okkur öllum er ætlað að ganga, koma margar minningar í hugann, minningar um yndislega ömmu sem okkur þótti svo vænt um, minning- ar sem lifa munu með okkur um ókomin ár. Guð blessi ömmu okkar. Oddrún Pétursdóttir, Kristbergur Pétursson, Sigurður Pétursson og Guðlaug Pétursdóttir. Listskreyt- ingarsjóður gefur út kynningarrit Listskreytingarsjóður ríkisins hefur gefið út kynningarrit um starfsemi sína. Sjóðurinn starfar samkvæmt lögum frá 1982. Markmið hans er að fegra opin- berar byggingar með listaverk- um. Skulu tekjur hans nema 1% af samanlögðum fjárveitingum ríkissjóðs til þeirra bygginga sem ríkið stendur að. í ritinu segir að arkitekt bygg- inga sem lög sjóðsins taka til beri að hafa samband við stjórn List- skreytingarsjóðs. Hönnun mann- virkis og listskreytingar eiga þannig að haldast í hendur frá upp- hafi. Þó heimila lögin einnig kaup á eldri listaverkum, og fé er veitt til skreytinga á eldri húsum. Að lokum eru í ritinu upplýsingar um hvernig listamenn eiga að haga umsóknum til sjóðsins. Ber að veita sem gleggstar upplýsingar um gerð og staðsetningu listaverksins, ásamt greinargerð og kostnaðar- áætlun. Umsókn skal undirrituð af forráðamanni byggingar og árituð af arkitekt hússins. Sérstök um- sóknareyðublöð fást hjá sjóðnum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.