Morgunblaðið - 16.08.1986, Blaðsíða 2
2___________________
Þorsteinn A. Jónsson
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. ÁGÚST 1986
Fjöldi BHMR-
félagasegir
upp 1. október
ÚTLIT er fyrir að stór hópur háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna,
sem eru í aðildarfélögum launamálaráðs Bandalags háskólamanna
(BHMR), muni segja upp störfum frá 1. október næstkomandi.
Stjóm launamálaráðsins hefur
að undanförnu haldið fundi með
stjómum aðildarfélaga BHMR og
verða enn haldnir nokkrir fundir
eftir helgina. Á þessum fundum
hefur verið farið yfir stöðu kjara-
og samningsréttarmála aðildarfé-
laganna í kjölfar nýlegs Kjaradóms
og jafnframt könnuð afstaða
stjórna aðildarfélaganna til aðgerða
til að knýja á um frekari leiðrétt-
ingu launa en þá, sem fékkst með
niðurstöðu Kjaradóms. í þamæstu
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Tileinkað
Davíð og
borginni
Útstillingar í gluggum í versl-
unum viða um borgina bera
þess merki að Reykvíkingar
halda nú upp á 200 ára af-
mæli borgarinnar. í verslun-
inni Bonaparte á Lækjartorgi
getur til dæmis að h'ta styttu
af Davíð Oddssyni borgar-
stjóra. „Þetta er auðvitað gert
í tilefni afmælisins og við til-
einkum gluggann Davíð og
borginni," sagði Grétar Berg-
mann verslunarstjóri.
viku verður haldinn fundur í launa-
málaráðinu þar sem farið verður
yfir niðurstöðu fundaherferðarinnar
að undanfömu.
Þorsteinn A. Jónsson, formaður
launamálaráðs BHMR, sagði í sam-
tali við blm. Morgunblaðsins í gær,
að enn væri ekki ljóst hversu marg-
ir BHMR-félagar myndu segja upp
störfum vegna óánægju með laun
sín og samningsréttarlega stöðu,
en það yrði væntanlega nokkuð stór
hópur. „Þetta er enn að mótast en
málið skýrist væntanlega í næsta
mánuði,“ sagði hann. Þorsteinn
kvaðst telja líklegt að í einstökum
aðildarfélögum yrðu uppsagnir
mjög margar, einkum í heilbrigðis-
kerfinu, en aðstæður annarra
félaga væru slíkar að uppsagnir
hentuðu ekki. „Aðgerðir af hálfu
BHMR-félaga, hveijar svo sem þær
verða, eru ekki skipulagðar af sam-
tökunum sem slíkum heldur hveiju
einstöku félagi,“ sagði hann.
Annar forystumaður í samtökum
háskólamenntaðra ríkisstarfs-
manna sagði að í sumum aðildarfé-
lögum BHMR væru uppi áform um
að láta uppsagnir koma til fram-
kvæmda um næstu mánaðamót en
í öðrum væri miðað við 1. október.
Hann kvaðst telja líklegt, að reynt
yrði að samræma þessar aðgerðir,
þannig að uppsagnarbréfín yrðu öll
lögð fram í einu.
Helg'arveðrið
VESTURLAND, Suðurland og
Vestfirðir baða sig í sólskini
næstu daga. Veðurstofan spáir
þessum fjórðungum björtu veðri
og hægum andvara alla helgina
fram á þriðjudag. Á Austur- og
Norðurlandi verður skýjað en þó
þurrt og hlýtt.
Magnús Jónsson veðurfræðingur
sagði að skipta mætti landinu í
tvennt þessa dagana. A svæðinu frá
Homafírði vestur með og norður á
Vestfírði væri sólskin og blíða, sem
héldist næstu daga. A annesjum
Norðanlands og á Austfjörðum yrði
skýjað en nánast engin úrkoma.
Mor^unbladid/Árni Sæbcrg
Bakað fyrir borgarafmælið
Þeir Sigþór Siguijónsson, bakarameistari í I skreyta eiga afmælistertu borgarbúa. Að baki
Bakaríi Suðurvers, og Sveinn Kristdórsson, I má sjá hluta af þeim kökubotnum, sem fara í
bakarameistari í Sveinsbakaríi, sjá um að baka I þriggja laga, 200 metra tertu sem reiknað er
öndvegissúlur og útbúa súkkulaðikúlur, sem | með að skera megi i um 30 þúsund bita.
3,39% kauphækkun
um mánaðamótin
Meginmarkmið kjarasamninganna standa óhögguð,
segir í úrskurði launanefndar ASÍ og VSÍ/VMS
LAUN í landinu hækka almennt um 3,39% frá og með næstu mánaða-
mótum. Þetta er tæplega 0,4% meiri hækkun en gert var ráð fyrir
i samningum heildarsamtaka á vinnumarkaði í febrúar sl. og stafar
af því, að vísitala framfærslukostnaðar hækkaði 0,38% meira en ráð
var fyrir gert við samningsgerðina. í úrskurði launanefndar ASÍ
og atvinnurekenda segir að meginmarkmið kjarasamninganna frá í
febrúar standi óhögguð og að endurskoðaðar áætlanir bendi til að
hækkun framfærslukostnaðar á árinu verði 8,5—9%. Einnig segir að
á fyrri helmingi ársins hafi kaupmáttur kauptaxta verið sá sami og
miðað var við í febrúarsamningunum.
Fullt samkomulag varð um
hækkunina í launanefndum ASÍ og
VSÍ/VMS og BSRB og ríkisins
þannig að ekki kom til beitingar
oddaatkvæðis frekar en þegar laun
hækkuðu meira en ráð var fyrir
gert 1. júní sl. í launanefnd ASÍ,
VSÍ og VMS eiga sæti þeir Ólafur
Davíðsson og Vilhjálmur Egilsson
frá atvinnurekendum og Bjöm
Bjömsson og Hólmgeir Jónsson frá
verkalýðshreyfingunni. Úrskurður
þeirra frá í gær er svohljóðandi:
„1. Vísitala framfærslukostnaðar
hækkaði um 5,37% frá byijun árs
til 1. ágúst. í kjarasamningi aðila
var miðað við að vísitalan hækkaði
um 4,4% á þessu tímabili. Hækkun
vísitölunnar reyndist því 0,93%
umfram viðmiðun. Þar af voru
0,55% komin fram í maíbyijun en
á tímabilinu frá 1. maí til 1. ágúst
varð umframhækkun vísitölunnar
0,38%.
2. Gengi Bandaríkjadollara hefur
haldið áfram að lækka á alþjóða-
gjaldeyrismarkaði og hefur það leitt
til frekari hækkunar á gengi helstu
innflutningsmynta umfram það,
sem orðið var í maí. Þetta er veiga-
mesta ástæða hækkunar vísitölunn-
ar umfram áætlanir. Gengisskrán-
ing krónunnar hefur tekið mið af
markaðri stefnu í gengismálum,
þannig að litið er til áhrifa þróunar-
innar á alþjóðamarkaði á mikilvæg-
ar útflutningsgreinar.
„Sá strax að
þetta var hlíðið
á Austurvelli44
Afhenti borgarsljóra hlið
sem hvarf eftir Gúttóslaginn
„ÉG ÞEKKTI strax hliðið þegar
ég fékk það í hendur rétt eftir
1960 og hef geymt það síðan,“
sagði Ármann Guðnason, safn-
ari og kolasali, sem í gær
afhenti Reykjavíkursýningunni
á Kjarvalssstöðum járnhlið úr
girðingunni á Austurvelli, sem
var fjarlægð eftir Gúttóslaginn
árið 1932. Davíð Oddsson borg-
arstjóri veitti hliðinu viðtöku
og verður því komið fyrir á
Arbæjarsafni eftir sýninguna.
Ármann kvaðst hafa verslað
með brotajám á árunum eftir
1960 og þá hefði'hliðið rekið á
fjörur hans. „Ég sá strax að þama
var komið hliðið af Austurvelli og
tók það því frá. Ég er nefnilega
safnari og hendi aldrei nokkrum
sköpuðum hlut, sem hefur eitt-
hvert gildi. Ég safna frímerkjum,
kortum og málmhlutum og svo
auðvitað peningum á bankabók-
um. Það eru einu bækumar sem
ég safna, það eru bankabækur.
Jú, svo á ég allt þjóðvinafélags-
almanakið innbundið," sagði
Ármann léttur í bragði.
„Ég hringdi svo í Erlend Svav-
arsson þingvörð og sagði honum
frá hliðinu og hann sagði mér að
koma niður í þing og tala við sig.
Þegar ég var þar hjá honum
Morgunblaðið/Einar Falur.
Ármann Guðnason afhendir borgarstjóra Austurvallarhliðið, sem
verður til sýnis á Reykjavíkursýningxinni á Kjarvalsstöðum, en
það hvarf eftir Gúttóslaginn.
hringdi hann í borgarstjórann og
það var ákveðið á staðnum að
setja hliðið á sýninguna. Ég vissi
alltaf að það myndi koma að not-
um fyrr eða síðar og þess vegna
geymdi ég það. Það leynist eflaust
eitthvað fleira hjá mér því ég er
búinn að kippa ýmsu til hliðar.
Annars hef ég verið að losa mig
við eitt og annað að undanförnu.
Ég fer að hætta enda orðinn 75
ára gamall," sagði Ármann
Guðnason, en auk hliðsins góða
verður hluti af kortasafni hans til
sýnis á sýningunni „Reykjavík í
200 ár“ á Kjarvalsstöðum.
3. Spár Þjóðhagsstofnunar frá
apríl um breytingar ýmissa mikil-
vægustu hagstærða, svo sem
þjóðarframleiðslu og viðskipta
kjara, standa enn lítt eða ekki
breyttar.
4. Afkoma sjávarútvegsgreina
markast mjög af þeim breytingum,
sem orðið hafa á gengi gjaldmiðla
annars vegar og lækkun olíuverðs
hins vegar. Tekjutap frystingar
vegna lækkunar á gengi Banda-
ríkjadollara er að hluta vegið upp
af hækkandi markaðsverði. Afkoma
útgerðar hefur batnað mjög í kjöl-
far lækkunar olíuverðs.
5. Á fyrri helmingi ársins reynd-
ust erlendar lántökur mjög í
samræmi við lánsfjáráætlun. Áfram
er miðað við, að ekki verði farið
út fyrir þann ramma.
6. Á nokkrum mánuðum hefur
verðbólguhraði lækkað úr 30—40%
niður fyrir 10%. Breyttar ytri að-
stæður hafa lítillega hnikað áætlun-
um en í meginatriðum hafa spár
um framvindu verðlags og kaup-
máttar gengið eftir. Endurskoðaðar
áætlanir benda til þess, að hækkun
framfærslukostnaðar á árinu verði
8,5—9%. Á fyrri helmingi ársins var
kaupmáttur kauptaxta sá sami og
miðað var við í kjarasamningunum
í febrúar. Meginmarkmið kjara-
samninganna varðandi verðlags—
og kaupmáttarþróun standa óhög-
guð.“