Morgunblaðið - 16.08.1986, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 16.08.1986, Blaðsíða 36
Í!tOÁGÚNéLAÐl,Ð;i LAUGARDAGUR ^'16. AGUST 1986 Margaret Schlauch prófessor — Minning Margaret Schlauch prófessor og heiðursforseti í Pólsk-íslenska vin- áttufélaginu í Varsjá andaðist þar í borg 19. júlí sl. Með henni er geng- in kona sem við Islendingar ættum að minnast með mikilli virðingu og þakklæti. Margaret Schlaúch fæddist í Bandaríkjunum 25. september 1898. Hún lagði stund á málvísindi og bókmenntir, varð doktor við Coiumbia University í New York 1927 og síðar prófessor við banda- ríska háskóla fram til ársins 1951. Prófessor Schlauch var raunsæ kona og fijálslynd og fór ekki dult með skoðanir sínar. 'Fyrir bragðið litu liðsmenn hins alræmda manna- veiðara, McCarthy, hana illu auga, en um þessar mundir réð hann miklu í bandarísku þjóðlífi. Hún var af tilviljun stödd í Englandi þegar henni bárust til eyrna fregnir um að í Bandaríkjunum gæti hún ekki lengur búið óhult. Þá urðu mikil þáttaskil í lífí henn- ar. Hún hélt til Varsjár og fetaði í fótspor systur sinnar, Helen. Helen var gift pólska eðlisfræðingnum Leopold Infeld. Þau hjónin hófðu búið í Bandaríkjunum en þar var hann einn nánasti samstarfsmaður Alberts Einstein. Meðal annars höfðu þeir tveir unnið að merku vísindariti, The Evolution of Physics (1938). Þrátt fyrir frama sinn vesrta varð Infeld að hverfa úr landi og kom þar enn við sögu ofstækismað- urinn McCarthy. Héldu þau hjónin til Varsjár en hann var pólskur eins og áður sagði. Þegar þau hjónin komu til Pól- lands og Margaret Schlauch nokkru síðar var ástandið þar í landi óhugn- anlegt í einu orði sagt. Örfá ár liðin frá lokum styijaldar- innar, þýsku nasistarnir höfðu farið með eldi um landið, lagt borgir og bæi í rúst en drepið sex milljónir Pólveija, sérstaklega höfðu þeir lagt sig í líma við að taka af lífí gyðinga og alla þá aðra sem notið höfðu einhverskonar menntunar. Uppbyggingarstarfið í Póllandi var því bæði brýnt og margþætt. Meðal þess sem gera þurfti var svo að segja að mennta pólsku þjóðina á nýjan leik. Prófessor Schlauch lá ekki á liði sínu í því þýðingarmikla starfí, hennar skerfur varð dijúgur. Fyrir tæpum tveim áratugum lét Maöurinn minn. t ÓLAFUR JÓNSSON, loftskeytamaður, Kópavogsbraut 45. er látinn. Sigriður Gísladóttir. t Kona min, móðir okkar, tengdamóðir og amma, ELÍN VILBORG JÓHANNSDÓTTIR, lést í Borgarspítalanum 14. ágúst. Fyrir hönd vandamanna. Gestur Pálsson. t Útför móður okkar, GUÐBJARGAR VILHJÁLMSDÓTTUR, Skeiðarvogi 22, fer fram frá Langholtskirkju þriðjudaginn 19. ágúst kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á þau félög sem voru henni kærust, Kvenfélag Langholtssóknar og Slysavarnafélag ís- lands. Bergþóra Ólafsdóttir, Hallveig Ólafsdóttir, Úlfhildur Úlfarsdóttir, Magnús Ólafsson. t Þökkum auðsýnda samúð, hlýhug og hjálp við andlát og útför eiginkonu minnar, móður okkar og ömmu, KRISTJÖNU JÓNSDÓTTUR, Víðihvammi 14. Stefán Karlsson, börn og barnabörn. t Innilegar þakkir til allra er auðsýndu mér samúö og hlýhug við andlát og jarðarför ODDGEIRS Á. KRISTJÁNSSONAR. Sérstakar þakkir færi ég Þóreyju Guömundsdóttur, mágkonu minni, og börnum hennar. Elísabet Matthíasdóttir. Legstemar granít — marmari Opið alla daga, einnig kvöld og helgar. Hanit ó.('. Unnarbraut 19, Seltjarnarnesi, símar 620809 og 72818. prófessor Schlauch af störfum fyrir aldurs sakir, en hélt lengi vel áfram kennslustörfum sem gesta-prófess- or, bæði í Varsjá og við bandaríska háskóla. Prófessor Schlauch var þekkt víða um lönd sem gagnmerk fræði- manneskja. Hún ritaði margar bækur og eftir hana liggur fjöldi vísindaritgerða. Þegar hún varð sjö- tug var gefín út bók henni til heiðurs: Studies in language and literature in honour of Margaret Schlauch. I liók þessari birtust rit- gerðir samdar af fræðimönnum í ýmsum löndum. Snemma fékk Margaret Schlauch mikinn áhuga á íslandi og íslenskri menningu. Hún kom fyrst hingað til lands á árinu 1930 og vann hún þá að ákveðnu verk- efni í tengslum við fornbókmenntir okkar Islendinga. Nokkru síðar kom út eftir hana bókin Romance in Ice- land. Fræðimenn hafa sagt mér að þetta verk sé stórmerkilegt, beri það glöggt vitni um frábæra vísindamennsku og aðdáun á forn- bókmenntunum. Þá skrifaði pró- fessor Schlauch margar ritgerðir um íslenskar bókmenntir, flutti auk þess fyrirlestra um sama efni í fjölda landa. Pólsk-íslenska vináttufélagið í Varsjá var stofnað 1957 og var prófessor Schlauch aðalhvatamað- urinn og um árabil var hún formað- ur félagsins. í félagsskap þessum er fólk hvaðanæva í Póllandi og fyrir atbeina félagsins hefur þekk- ingin á Islandi og íslenskri menn- ingu stóraukist þar í landi, ekki síst vegna útgáfu þess á smáritum um Island og íslensk málefni, en rit þessi eru nú orðin um 50 talsins. Margaret Schlauch var sæmd íslensku fálkaorðunni 1968 fyrir starf sitt í þágu Islands og íslensku þjóðarinnar. Margaret Sehlauch kom nokkr- um sinnum til íslands og kyntist þá allmörgum Islendingum, bæði lærðum og leikum. Þrátt fyrir með- fædda hlédrægni dró hún að sér athygli manna hvar sem hún fór. Ættarmót Staðarbakka í Miðfirði. Laugardaginn níunda þessa mánaðar héldu afkomendur hjónanna Guðmundar Sigurðs- sonar og Guðrúnar Einarsdóttur frá Neðri-Svertingsstöðum í Mið- firði ættarmót að Laugarbakka. Guðmundur fæddist 27. mars 1875 en Guðrún 1866. Þau hófu búskap á Neðri-Svertingsstöðum og bjuggu þar til 1915. Síðustu ár ævi sinnar, en Guðmundur andaðist 1923, áttu þau heimili á Hvamms- tanga en stunduðu búskap áfram, fyrst á neðri Svertingsstöðum og síðan á Syðri-Völlum. Guðmundur var fyrsti formaður Kaupfélags Vestur-Húnvetninga og t Einlægar þakkir fyrir samúð og vinarhug við andlát og útför móð- ur okkar, SESSEUU JÓNSDÓTTUR frá Sjávargötu. Sérstakar þakkir flytjum við starfsfólki Hrafnistu fyrir góða umönnun. Fyrir hönd aðstandenda. Vilborg Guðmundsdóttir, Þórunn Guðmundsdóttir. t Þökkum innilega samúð og hlýhug við andlát og jarðarför eigin- konu minnar, systur okkar og mágkonu, KRISTRÚNAR FINNBOGADÓTTUR NELSON. Dale K. Nelson, Geirþrúður Finnbogadóttir, Guðrún Finnbogadóttir, Armand J. Beaubien, Sigurður Finnbogason, Camilla Sveinsdóttir, Kristján Finnbogason, Kristrún Magnúsdóttir, Ólafur Finnbogason, Kristjana Jónsdóttir. Þökkum auösýnda samúð viö tengdamóöur, t andlát og útför móöur okkar og PETRÓNELLU BENTSDÓTTUR. Aðalheiður Helgadóttir, Jósef Sigurðsson, Þórey Jónatansdóttir, Þórir Thorlacíus, Ólafía Jónatansdóttir, Þórir Atli Guðmundsson. t Innilegar þakkir til allra þeirra er sýndu okkur samúö og margvís- legan vinarhug viö fráfall og útför KRISTÍNAR ODDSDÓTTUR. Óttar Kjartansson, Jóhanna Stefánsdóttir, Oddný K. Óttarsdóttir, Kjartan S. Óttarsson. Ég kynntist henni fyrst fyrir rúmum aldaifyórðungi. Samfundir okkar urðu ekki ýkja margir, ýmist í Varsjá eða hér í Reykjavík, en ég kynntist henni mætavel vegna þess að bréfin sem hún skrifaði mér voru mörg. I bréfi sem núverandi forseti Pólsk-íslenska vináttufélagsins í Varsjá Leon Ter-Oganian, skrifaði mér í tilefni af láti prófessors Schlauch segir svo m.a.: „I mínum augum var Margaret ekki aðeins prófessor, mikil mann- eskja og sérstæður persónuleiki. Hún var einnig vinur í bestu merk- ingu þess orðs. Hún var alltaf reiðubúin að hjálpa, hún var holl- ráð, hún var úrræðagóð, hún hvatti til dáða ...“ Ég tek undir þessi orð. Þau eru að mínu viti hárrétt lýsing á Marg- aret Schlauch. Ég þakka henni fyrir góða sam- vinnu og mikla vináttu. En fyrst af öllu vil ég sem íslendingur þakka henni fyrir að vinna svo vel — í orði og verki — Islandi og íslenskri menningu. Haukur Helgason í Miðfirði einnig fyrsti framkvæmdastjóri þess. Hann gegndi einnig ýmsum trúnaðarstörfum fyrir sína sveit, var m.a. oddviti í fímm ár. Hann var dugnaðarmaður að hveiju sem hann gékk, ósérhlífínn gáfumaður, enda mikils metinn í sínu héraði. Þau hjón eignuðust átta mann- vænleg böm, fjóra syni og íjórar dætur og ólu einnig upp að mestu leyti tvö fósturböm. Þijár systumar eru á lífi en tvær gátu ekki mætt vegna vanheilsu. A mótinu voru mættir 150 ættingjar og makar. Fór mótið hið besta fram og var ánægjulegt í alla staði. — Benedikt Tímarit lögfræðinga: Sýslumenn og f ramtíðarskipan umboðsstj órnar ÚT ER komið fyrsta hefti Tíma- rits lögfræðinga á þessu ári. Þar er að finna itarlega grein eftir Steingrím Gaut Kristjánsson, lögfræðing, um sýslumenn og' framtíðarskipðan umboðsstjórn- ar. Amljótur Bjömsson skrifar af vettvangi dómsmála grein sem fjall- ar um Hæstaréttardóm frá 21. mars á þessu ári, og að lokum er að fínna sitt af hveiju Á víð og dreif. Ritstjóri er Jónatan Þórmunds- son. Dregið í happ- drætti Sam- bands íslenskra kristniboðsfélaga NÝLEGA var dregið í happ- drætti Sambands ísienskra kristniboðsfélaga. Vinningur nr. 1, Lancer 1500 GLX, kom á miða nr. 18671, annar vinningur, hljómtækjasett, kom á miða nr. 14404, þriðji vinningur, örbylgjuofn, kom á miða nr. 3945, fjórði vinningur, kæliskápur, kom á miða nr. 12389, og fimmti og sjötti, hvorttveggja hrærivélar, komu á miða nr. 1304 og nr. 9739. Vinningar nr. 7—11, sem voru brauðristar, komu á miða nr. 3687, 6785, 10946, 14263 og 18643. Vinningar nr. 12—20, sem voru bóka- og plötupakkar, komu á miða nr. 2165, 5503, 7018, 12380, 12996, 16382, 16452, 17167 og 19602. Vinninga má vitja á skrifstofu kristniboðssambandsins, Amt- mannsstíg 2B, Reykjavík. Þökk fyrir veittan stuðning. (Birt án ábyrgðar)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.