Morgunblaðið - 16.08.1986, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. ÁGÚST 1986
Reykjavík 200 ára
Morgunblaðið/Börkur
Lengsti garðbekkur landsins kominn upp í HaUargarðinum.
Hér er verið að snyrta til í Breiðholti.
Morgunblaðið/Einar Falur
Víða tekið til hendinni við
undirbúning afmælisins
Sviðið á hátiðarsvæðinu við Arnarhói.
VJNDANFARNA daga hafa
staðið yfir miklar framkvæmd-
ir á vegum borgarinnar, sem
flestar h verjar miða að því að
f>úa hana í hátíðarbúning fyrir
200 ára afmælið 18. ágúst.
Fjölmargir sjáif-
Iboðaliðar vegna
hátíðarhaldanna
„Við erum ekki með neinar
stórkostlegar framkvæmdir úti
við, vegna afmælisins,“ sagði
Stefán Hermannsson aðstoðar-
borgarverkfræðingur. „Mest ber
á sviði við Amarhól, sem sérstak-
lega er smíðað fyrir hátíðina."
Umgjörð sviðsins er 13 x 20 metr-
ar og þar hefur verið komið fyrir
ijóskösturum og hljómburðar-
tækjum að hluta til en þeim er
einnig dreift um Amarhól og eiga
þau að tryggja góð hlustunarskil-
yrði áhorfenda á kvöldskemmtun-
um, sem haldnar verða. Gegnt
sviðinu er áhorfendastúka sem
ætluð er forseta íslands og gest-
um borgarinnar. Ofarlega á
Amarhól er sérstakt hús sem
ætiað er fyrir sýningarstjóra.
Rafmagnsveita Reykjavíkur sér
um ljósaskreytingar við Amarhól
og strengi fyrir fánalínur. Með-
fram tjöminni verða settir upp
fánar og reist sölutjöld við tjamar-
endana og á Lækjartorgi. Sölu-
tjöldin, sem eru í rauðum, hvítum
og bláum litum, em sérstaklega
keypt inn fyrir afmælið. Stefán
sagði að mjög mikið væri um sjálf-
boðastarf vegna hátíðarhaldsins
auk allra borgarstarfsmanna sem
lagt hafa hönd á plóginn. í Hijóm-
skálagarðinum sjá skátar um
skemmtidagskrá og 110 Lions-
menn aðstoða við að skera niður
afmælistertuna, sem bakarar
baka. „Aðrar framkvæmdir á veg-
um borgarinnar þessa dagana
tengjast ekki beint afmælinu
nema hvað við reynum að ná ein-
hveijum þokkalegum áfanga fyrir
þessa helgi,“ sagði Stefán.
Marg-ir lagt hönd
á plóginn
„Þetta er stig í áframhaldandi
þróun að taka garðana í gegn og
er ekki mikið bundið afmælinu,"
sagði Jóhann Pálsson garðyrkju-
stjóri Reykjavíkur. Hafist var
handa í Fógetagarðinum í vor og
skipt um gróður og síðan hafa
aðrir garðar fengið andlitslyftingu
eins og Mæðragarðurinn við
Lækjargötu og garðurinn við
gömlu gróðrarstöðina við Hring-
braut. I Hallargarðinn er kominn
lengsti „garðbekkur" landsins
sem jafnframt er stoðveggur og
er þar um endumýjun á eldri vegg
að ræða.
Jóhann sagði að unnið væri í
öllum hverfum meira og minna
og væri áberandi hvað fyrirtæki
og einstaklingar tækju mikinn
þátt í að bæta umhverfið. í yngri
hverfum er lögð áhersla á að
mæta þörfum bama með leikvöll-
um og sparkvöllum. „Búið er að
lagfæra Ártúnsbrekkuna og um-
hverfi Elliðaár, slétta þar og sá í
bakkann. Tilraunin með að flytja
trén við Miklubrautina virðist líka
ætla að takast vel og gerir aðkom-
una að borginni miklu skemmti-
legri.“
Borgin tekið
stakkaskiptum
Á vegum gatnamálastjóra hef-
ur verið unnið sérstaklega að
snyrtingu svæða í miðborginni en
erfiðlega hefur gengið að ljúka
endanlegum frágangi vegna end-
umýjunar á hitaveitulögnum í
vesturbænum og við Hverfisgötu.
Er það vegna þess hversu tíma-
frekar endurbætur er hér um að
ræða. „Við höfum reynt að ganga
frá í miðbænum fyrir afmælið og
þá sérstaklega við Hverfisgötuna
neðanverða," sagði Ingi Ú. Magn-
ússon gatnamálastjóri. Við
Suðurlandsbraut hefur verið
gengið frá umferðareyjum, gengið
frá gangstígum og tyrft.
„Vegna afmælisins munum við
reyna að skapa bifreiðastæði í
miðborginni en það er þar sem
skórinn helst kreppir að,“ sagði
Ingi. Kalkofnsvegur verður lokað-
ur fyrir umferð við Tryggvagötu
og hefur girðing sem lokaði af lóð
Eimskipafélagsins við höfnina
verið ijarðlæg. Umferðinni verður
beint þar inn og á hafnarbakkann
sem tekinn verður undir bifreiða-
stæði. Gengið hefur verið frá
lóðinni umhverfis Borgarleikhúsið
fyrir bifreiðastæði og lóð Morgun-
blaðsins gegnt leikhúsinu snyrt
og fengin að láni undir bifreiða-
stæði. „Þá höfum við hvatt fólk
til að mála hús sín svo og að slíkt
hið sama yrði gert við opinberar
stofnanir," sagði Ingi. „Þessu hef-
ur verið vel tekið og borgin víða
tekið miklum stakkaskiptum."
Gengið frá í Aðalstræti. Morgunblaðið/Einar Falur
' Morgunblaðið/Einar Falur
___Ahorfendapailur á hátíðarsvæðinu við Arnarhól.
„Minni
Ingólfs“
Nýtt hátíðarverk
eftir Jón Þórarins-
son frumflutt
í HÁTÍÐARDAGSKRÁ í tilefni 200
ára afmælis Reykjavíkurborgar
hefur slæðst sú villa, að hátiðar-
verk eftir Jón Þórarinsson er þar
nefnt „Minni íslands", en það rétta
er, að verkið nefnist „Minni Ing-
ólfs“.
Hátíðamefnd Reykjavíkurafmælis-
ins fór þess á leit við Jón Þórarinsson
í ársbyrjun, að hann tæki að sér að
semja hátíðarverk og skyldi það vera
byggt á lagi Jónasar Helgasonar
„Minni Ingólfs", sem .Jónas samdi í
tilefni þjóðhátíðarinnar 1874 við ljóð
eftir Matthías Jochumsson.
Jón Þórarinsson sagði hátíðarverk-
ið vera tilbrigði við þetta lag. Það
er 13-14 mínútur að iengd og endar
með því að kvæðið er sungið. Jón
samdi verkið að mestu leyti í Kaup-
mannahöfn í vor og lauk því í
Reykjavík i sumar.
Sinfóníuhljómsveit íslands frum-
flytur verkið á hátíðardagskránni við
Amarhól að kvöldi 18. ágúst ásamt
söngmönnum úr kirkjukór.Langholts-
kirkju, kór Söngskólans í Reykjavík
og Karlakór Reykjavíkur. Stjómandi
verður Páll P. Pálsson og vonaðist
tónskáldið til þess að verkið hljómaði
vel í góðu veðri.
Jón Þórarinsson tónskáld.
Sjónvarpað
beint frá
Amarhóli
BEIN útsending verður í sjón-
varpinu frá hátíðarhöldum á
Arnarhóli í tilefni 200 ára afmælis
Reykjavíkurborgar mánudags-
kvöldið 18. ágúst. I útvarpi verða
rás 1, rás 2 og svæðisútvarp tengt
saman frá kl. 14:00 iil 18:00.
í beinni útsendingu frá Amarhóli
sem hefst í sjónvarpinu kl. 20:35
verður fylgst með skrúðgöngum þeg-
ar þær koma inn á hátíðarsvæðið.
Jón Sigurbjömsson leikari kynnir
dagskrána af hálfu borgarinnar, sem
hefst með ávarpi Magnúsar L. Sveins-
sonar forseta borgarstjómar kl.
21:00. Sinfóníuhljómsveit íslands
flytur ásamt 80 manna kór frumsam-
ið verk eftir Jón Þórarinsson tón-
skáld. Vigdís Finnbogadóttir forseti
íslands flytur ávarp, en að því loknu
verður sýnt nýtt leikrit eftir Kjartan
Ragnarsson um Skúla fógeta og upp-
haf Reykjavíkur. Gunnar Þórðarson
og hljómsveit ieika fyrir dansi og
Karl Agúst Úlfsson og Þórhallur Sig-
urðsson sjá um stutta grínþætti.
Dagskránni lýkur með ávarpi Davíðs
Oddssonar borgarstjóra og flugelda-
sýningu á miðnætti.
Svæðisútvarp Reykjavíkur útvarp-
ar hátíðarfundi í borgarstjóm
Reykjavíkur kl. 10:10 en eftir hádegi
kl. 14:00 tengjast rás 1, rás 2 og
svæðisútvarp saman og útvarpa til
kl. 18:00. Leikin verða lög sem tengj-
ast borginni og útvarpað verður frá
fjölskylduhátið í miðbænum.