Morgunblaðið - 16.08.1986, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. ÁGÚST 1986
9
Reykjavík
r Reykjavík
ara
1786-1986
TIL HAMINGJU REYKJAVÍK
í tilefni af 200 ára afmæli Reykjavíkur
bjóðum við upp á 5 daga
AFMÆLIS TILBOÐ
Hamborgari, franskar og Coke
Aðeins 169,00 kr. allan daginn.
Fimmtudag, fóstudag, laugardag, sunnudag
og mánudag.
Vegna endurnýjunar eru
þessar glæsilegu Mercedes
Benz-bifreiðir til sölu
280 SE m. öllu, árg. 1984.
280 SE m. ýmsu t.d. sóllúgu, árg. 1982.
500 SE m. öllu, árg. 1981.
380 SE m. öllu, árg. 1981.
280 SE m. ýmsum aukahlutum, árg. 1981.
''WÉká
tiíím?.
Kartöflur og kratarós
Staksteinar staldra við á tveimur stöðum í dag. Fyrri áfangastað-
urinn er höfuðstöðvar Neytendasamtakanna, þar sem Jóhannes
Gunnarsson, formaður þeirra, tjáir sig um hátt kartöfluverð. Sá
síðari er forystugrein Tímans gær. Þar gerir málgagn Framsókn-
arflokksins hosur sínar grænar fyrir Alþýðuflokknum — um leið
og það reynir að „berja hann til ásta".
„Sízt að kenna
smásölum“
„Málgagn sósialisma,
þjóðfrelsis og verkalýðs-
hreyfingar" (að eigin
sögn), Þjóðviljinn, geng-
ur á fjörur formanns
Neytendasamtakanna í
gær og spyr um orsakir
hærra verðs á kartöflum
en á liðnu ári. Jóhannes
Gunnarsson, formaður
samtakanna, svarar orð-
rétt á baksiðu Þjóðviljans
í gæn
„Það er mitt mat að
skrifa megi hækkað
kartöfluverð til neytenda
fyrst og fremst á reikn-
ing kartöfluframleið-
enda, sem hafa nýtt sér
þetta tækifæri. Jafn-
framt má rekja ltækkim-
ina til aukinnar heild-
söluáiagningar, en sízt
vil ég kenna smásöluaðil-
um um. Það hefur borið
á því að kartöflufram-
leiðendur hafi kastað
ábyrgðinni á þá, en sjálf-
ir eiga þeir höfuðorsök-
ina á þessari hækkun."
Björn Bjömsson, hag-
fræðingur ASÍ, hafði
áður sagt i blaðaviðtali,
efnislega, að kartöflu-
skattur landbúnaðarráð-
herra hefði ekki aðeins
hækkað verð á innflutt-
um kartöflum, heldur
hefði verð innlendra
kartaflna jafnframt ve-
rið hækkað í skjóli
skattsins. Kartöfluverðið
hækkar síðan fram-
færsluvísitölu, umfram
rauð strik kjarasáttar, og
kann þar af leiðandi að
auka launaútgjöld at-
vinnuveganna sem og
stærsta launagreiðan-
dans, ríkisins, sem sækir
útgjöld sín í vasa skatt-
greiðenda.
„Samheijar af
sömu rót“!
Forystugreinar
Tímans siðustu vikur
hafa borið vitni sérstæð-
um hugar- og skoðana-
fimleikum. Æfingar
blaðsins i gær varða Al-
þýðuflokkinn, sem það
klappar með annarri
hendinni en lemur með
hinni.
Annarsvegar gerir
höfundur forystugrein-
arinnar hosur sínar
grænar fyrir Alþýðu-
flokknum og segir
orðrétt:
„Sannleikurinn er sá
að það sem hefur veikt
samstöðu félagshyggju-
fólks á íslandi hvað mest
er það hversu hinir
gömlu samheijar, sem
komnir eru af sömu rót,
Framsóknarflokkurinn
og Alþýuflokkurinn,
hafa fjarlægst. Þessir
flokkar áttu rætur í
öfgalausu alþýðufólki til
sjávar og sveita og sam-
stjóm þessara flokka
reisti grunninn að nýju
þjóðfélagi velferðar og
meiri jöfnuðar á þeim
árum sem erfiðust vom
í efnahag landsmanna á
þessari öld.“
Framsóknarflokkur-
inn hefur haft lag á þvi
að sitja í ríkisstjóraum,
kjörtímabil eftir kjör-
túnabil, jafvel í kjölfar
afdráttarlauss kosn-
ingaósigurs (1978), og
Ijóst er það enn hvað
hann vill, þegar hami
opnar hér enn einn enda
sinn til Alþýðuflokksins,
sem rétti eilitið úr kútn-
um i siðustu sveitar-
stjómarkosningum!
En Adam var ekki
lengi i Paradís. Alþýðu-
flokkurinn fær ekki
skjallið eitt saman i leið-
aranum. Hann er ekki
síður barinn. Orðrétt
segir í forystugreininni
um þinglóðs Alþýðu-
flokksins.
„Þinglóðsinn er heldur
óþrifinn garðyrkjumað-
ur og gengur skitkastið
frá honum i ýmsar áttir,
þó einkum til forystu
bændastéttarinnar og
samvinnuhreyfingarinn-
ar . . .
Það er eiginlega
ómögulegt að etta ólar
við þennan skitmokstur
þinglóðsins, þvi að skrif
hans em afleiðing af
þeim skelfilegu leiðtoga-
skiptum sem orðið hafa
í Alþýðuflokknum. Það
þætti áreiðanlega merki-
legt á Norðurlöndum ef
krataflokkar þar hefðu
sérstaka menn í þvi að
kasta skit í samvinnu-
hreyfinguna . . .
Formaður Alþýðu-
flokksins vinnur nú að
þvi með húskörlum
sinum og garðyrkju-
mönnum að skera á
þessar rætur til fulls [við
alþýðufólk til sjávar og
sveita) og vill koma hinni
afskomu rós sem fyrst
fyrir í postulínsvasa
íhaldsins. Afskomar rós-
ir em fallegar fyrst í
stað, en þær fölna fljótt.“
Samur við sig
Framsóknarflokkur-
inn á aðeins einn þing-
mann á því svæði,
Reykjavikur- og Reykja-
neskjördæmum, þar sem
rúmur helmingur þjóðar-
innar býr. Hann hefur
þvi naumast reynzt „afl
nýrra tíma“ á þeim vett-
vangi, sem er lánskjörorð
á SUF-þingi. Viðbrögð
hans em hinsvegar með
„hefðbundum hætti“.
Hann er opinn i alla enda.
Gælur hans við Alþýðu-
flokkinn vitna aðeins um
opinn enda til þeirrar
áttar, sem annarra.
Köpuryrðin em hins-
vegar kækur sem óþarfi
er að taka of hátiðlega.
Flughátíð
á Sandskeiði
í dag
í dag verður Flughátíð á Sand-
skeiði og verður fjölbreytt fjöl-
skyldudagskrá frá kL 14-18.30.
Það er Svifflugfélag Islands sem
gengst fyrir flughátíðinni i til-
efni af 50 ára afmæli félagsins
um þessar mundir.
Að sjálfsögðu er það háð veðri
hvort hátíðin verði, en veðurútlit
er gott. Flughátíðin átti að vera um
síðustu helgi en henni var frestað
vegna veðurs og þá var birt ná-
kvæm dagskrá hér í Morgunblað-
inu. Hún er óbreytt.
Á Sandskeiði verða sýndar ýmsar
listir á svifflugum og verða allar
svifflugur Svifflugfélagsins til sýnis
auk nokkurra í eigu félagsmanna.
Meðal fluglista sem sýndar verða
eru iistflug á sviffiugu, parflug,
lágflug, hópflug á 4-5 svifflugum,
sem er mjög sjaldgæft og tvítog.
Þá munu listflugmenn á vélflugum
koma í heimsókn og sýna.
Innandyra á Sandskeiði verða
sýningar og fyrirlestrar fluttir.
Sýndar verða ljósmyndir úr sögu
Svifflugfélagsins og eins verða
stöðugar myndbandasýningar með
myndum um svifflug og þrír reynd-
ir svifflugmenn flytja fyrirlestra,
bæði sögulega og um svifflugið sem
íþrótt.
Eftir að formlegri dagskrá lýkur
gefst fólki kostur á að bregða sér
í flugferð með svifflugu.
BREYTIISIG TIL BATNAÐAR
SÆKJUM — SENDUM
Leyfðu okkur að hjálpa þér að halda bílnum
þínum hreinum og fallegum. Við sápuþvoum
hann að utan, hreinsum hann og ryksugum
að innan og síðan berum við Poly-Lack á bíl-
inn.
Poly-Lack er acryl efni sem skírir litinn og
gefur fallegan gljáa sem endist lengi, lengi.
Mercedes Benz í Þýzkalandi notar Poly Lack
á sína bíla áður en þeir eru afhentir.
Hringdu og pantaðu tíma-. Við sækjum hann
ef þú óskar. Opið virka daga frá 9-19.
Laugardaga og sunnudaga frá kl. 10-19.
BÍLAÞVOTTASTÖÐIN
Bíldshöfða 8
við hliðina á Bifreiðaeftirlitinu
Sími 681944