Morgunblaðið - 16.08.1986, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. ÁGÚST 1986
Suður-Afríka:
601 fangi í hungnr-
verkfalli í S-Afríku
Jóhannesarborg, Peking, Washington, AP.
FORSVARSMENN háskóla þar sem enska er notuð sem aðaltungu-
mál, skoruðu í gær á suður-afrísk stjórnvöld að aflétta neyðarástands-
lögunum og láta lausa þá sem handteknir hafa verið, án þess að
vera ákærðir.
Forsvarsmennimir, sem sendu
mjög harðorða yfirlýsingu til stjóm-
valda, njóta víðtæks stuðnings
háskólanema og voru haldnir fjöl-
mennir fundir í háskólunum fimm
til þess að sýna þennan stuðning.
The Weekly Mail, sem er mjög
andsnúið aðskilnaðarstefnunni,
birti upplýsingar um það að allir
fangar í fangelsi skammt fyrir aust-
an Jóhannesarborg, 601 að tölu,
hefðu farið í hungurverkfall til að
mótmæla neyðarástandslögunum
og til að kreijast þess að þeim, sem
handteknir hefðu verið, yrði sleppt.
Yfírmenn fangelsisins neita því að
hungurverkfall sé í gangi, en segja
að einhveijir fangar hafí neitað að
borða.
í borginni Mbabane í Swazilandi
réðst hópur grímuklæddra manna
inn í lögreglustöð á fimmtudag og
leysti úr haldi þrjá menn, þ. á m.
einn skæmiiða afríska þjóðarráðs-
ins, ANC. Komust mennimir undan
eftir að hafa lokað lögreglumenn
inni í fangaklefum. Stjóm Swazi-
lands leyfír ekki ANC,
aðalandstöðuhreyfíngunni í ná-
grannaríkinu S-Afríku að starfa í
landi sínu.
Desmond Tutu biskup í Jóhann-
esarborg hefur verið á ferðalagi í
Kína og ítrekaði þar fyrri ummæli
sín um réttmæti efnahagslegra
þvingana. Pietie du Plessis, vinnu-
málaráðherra Suður-Afríku, hefur
brugðist ókvæða við og varað Tutu
og aðra Suður-Afríkumenn er láta
í ljósi svipaðar skoðanir, við því að
slíkt sé hægt að skoða sem landráð.
Séra Allan Boesak annar and-
stæðingur stjómarinnar í Pretoríu
talaði á fímmtudag á fundi Samtaka
svartra blaðamanna í Bandaríkjun-
um, sem haldinn var í Dallas. Sagði
hann að stjómvöld í Suður-Afríku
ættu í blóðugri baráttu við svarta
menn þar í landi. Hann gagnrýndi
bandarísku ríkisstjómina fyrir
stuðning við aðskilnaðarstefnuna
og skoraði á fundarmenn að segja
lesendum sínum sannleikann um
Tamílarnir komu
frá V-Þýskalandi
Hamhnrir. Jnrk ntr Tnrontn. AP.
Hamborg, Jork og Toronto, AP.
TAMÍLARNIR 155, sem bjargað
var undan ströndum Nýfundna-
lands fyrr í vikunni, lögðu ekki
upp frá Indlandi heldur Vestur-
Þýskalandi eftir að hafa gefið
upp alla von um að fá hæli þar,
að sögn vestur-þýskra lögreglu-
yfirvalda. Greiddu þeir 100
þúsund krónur hver fyrir farið
til Kanada með skipinu Aurigae,
en það er skráð í Honduras.
Skipsins og fjögurra manna
áhöfn þess er nú leitað, en það fór
úr höfn í Brake, sem er 30 kíló-
metra í norðvestur frá Bremen, i
heimildarleysi 28. júlí síðastliðinn.
Talið er að áhöfnin hafí tekið við
jafngildi sex milljóna króna í pei.
ingum og öðmm verðmætum af
flóttamönnunum og að alþjóðlegt
samsæri um að flytja flóttamenn
til Norður-Ameríku í gróðaskyni
liggi að baki.
Tveir tamílar og einn Tyrki eru
í haldi lögreglunar í Hamborg grun-
aðir um að hafa átt þátt í að
skipuleggja flutninginn. Hafa
tamflamir viðurkennt að hafa átt
hlut að máli, að sögn Iögregluyfír-
valda. Ljóst er talið að fiutningur
á fleiri flóttamönnum var í undir-
búningi. Lögregla rannsakar
mögulega aðild skipamiðlara
Hamborg að málinu.
GENGÍ
GJALDMIÐLA
London, AP.
GENGI Bandaríkjadollars
hækkaði gagnvart öllum
helstu gjaldmiðlum heims,
nema sterlingspundi og
franska frankanum á gjald-
eyrismörkuðum í gær. Verð
á gulli var breytilegt.
Síðdegis í gær kostaði sterl-
ingspundið 1,4935 dollara
(1,4935), en annars var gengi
dollarans þannig, að fyrir hann
kúgunina og óréttlætið í Suður-
Afríku.
Miklar umræður fara nú fram i
Bandaríkjunum um aðgerðir gegn
suður-afrískum stjórnvöldum og
sagði Larry Speakes, talsmaður
Hvíta hússins, að líkur væru á því
að Reagan forseti myndi fram-
lengja refsiaðgerðir þær sem
samþykktar voru á síðasta ári, en
renna út 9. sept. nk.
AP/Símamynd
Tutu biskup lét sér fátt um finnast á blaðamannafundi í Kína, þeg-
ar honum var bent á að stjómvöld í Suður-Afríku segðu ummæli
hans um nauðsyn efnahagsþvingana nálgast landráð.
Jacques Chirac, forsætisráðherra Frakklands:
Andvígur stofnun rík-
is palestínumanna
París AP.
JACQUES CHIRAC, forsætisráð-
herra Frakklands, sagði í blaða-
viðtali að hann væri mótfallinn
því að stofnað yrði sjáifstætt ríki
palestínumanna. Hann sagði enn-
nu
fengust: 2,0615 vestur-þýsk
mörk (2,0595); 1,6610 svissn-
eskir frankar (1,6595); 6,7000
franskir frankar (6,7025);
2,3230 hollensk gyllini (2,3200);
1.419,00 ítalskar lírur
(1.417,75) og 1,3890 kanadískir
dollarar (1,3865). Verð á gulli
var 382,50 dolíarar únsan. í
Tókýó fengust 154,30 jen fyrir
dollarann.
Veður
víða um heim
Lmgst Haeat
Akureyri 11 alskýjað
Amsterdam 14 20 skýjað
Aþena 23 36 heiðsklrt
Barcelona 29 heiðskfrt
Berlín 16 25 skýjað
Bröeiel 11 26 haiðskfrt
Chlcago 20 26 heiðskírt
Dublln 10 18 skýjað
Feneyjar 28 neiðskírt
Frankfurt 16 27 skýjað
Qenf 12 26 heiðskírt
Helsinki 13 17 skýjað
Hong Kong 28 32 heiðskfrt
Jerúsalem 17 30 heiðskfrt
Kaupmannah. 11 22 skýjað
Lse Palmas vantar
Ussabon 18 30 helðskfrt
London 13 22 heiðskfrt
Los Angeles 16 30 skýjað
Lúxemborg 23 skúrir
Malaga 28 mistur
Mallorca 31 léttskýjað
Miami 25 31 skýjað
Montreal 12 26 skýjað
Moskva 11 18 rigning
NewVork 17 29 skýjað
Osló 12 21 skýjað
Parls 16 29 skýjað
Paking 20 28 heiðskfrt
Reykjavík 15 téttskýjað
RíódeJaneiro 17 29 skýjað
Rómaborg 18 34 hefðskírt
Stokkhólmur 11 16 skýjeð
Sydney 12 18 . heiðskfrt
Tókýó vantar
Vínarborg 26 Iðttskýjað
Þórshöfn 11 súld
fremur að skilyrði þess að hann
færi til arabaríkja væri að hann
fengi tryggingu fyrir því að hann
hitti ekki Yasser Arafat, ieiðtoga
Frelsishreyfingar palestínu-
manna, PLO.
I viðtalinu, sem birtist í dag-
blaðinu Yediot Ahronot, segist
Chirac vera einn fárra stjómmála-
manna í Frakklandi er viðurkenni
ekki PLO, sem samningsaðila pal-
estínumanna. Hann kvaðst vera
andvígur því að palestínumenn
stofnuðu sjálfstætt ríki, þar sem sú
hugmynd væri reist á óraunsæju
mati á ástandinu fyrir botni Mið-
jarðarhafs. Einnig er haft eftir
Chirac að það sé engin tilviljun að
hann sé einn örfárra leiðtoga stjóm-
málaflokka, sem aldrei hafí hitt
Yasser Arafat að máli. Hann bætti
því þó við að háttsettir franskir
stjómmálamenn væm reiðubúnir
að ræða við Arafat ef það yrði á
alþjóðavettvangi og samrýmdist
hagsmunum Frakklands.
Geimvopnaáætlun Bandaríkjamanna:
Fjarveitmgar
valda deilum
Washinjfton, AP.
FULLTRÚADEILD Bandaríkjaþings hefur hafnað beiðni Reagans
Bandaríkjaforseta um 5,3 milljarða dala fjárveitingu til geimvopna-
áætlunarinnar á næsta ári. I næsta mánuði mun þingnefnd beggja
deilda taka tillögu forsetans til umfjöllunar.
Fái fulltrúadeildin vilja sínum
framgengt mun 3,1 milljörðum dala
verða veitt til geimvopnaáætlunar-
innar í fjárlögum næsta árs. Þar
með yrði fjárveitingin svipuð þeirri
sem veitt var í ár að viðbættri verð-
bólgu.
Oldungadeildina og Fulltrúa-
deildina greinir á um fjárveitingar
til vígbúnaðar á næsta ári. Fulltrúa-
deildin vill alls heimila fjárveitingar
sem nema 292 milljörðum dala.
Öldungadeildin hefur lagt til að
fjárveitingar þessar nemi samtals
295 milljörðum dala. Reagan for-
seti fór fram á að 320 milljörðum
dala yrði varið í þessu skjmi.
Öldungadeildin samþykkti að
veita 3,95 milljörðum dala til geim-
vopnaáætlunarinnar. Fulltrúadeild-
in hafnaði beiðni Ronalds Reagan
um 5,3 milljarða dala fjárveitinu til
geimvopnaáætlunarinnar með 324
atkvæðum gegn 94.
□ ISUZU
BiLVANGUR Sf=
HÖFÐABAKKA 9 SIMI 687300
VÖRUBÍLAGRINDUR
MEÐ ÖKUMANNSHÚSI
Eigum til nokkur eintök af vörubílagrindum með
ökumannshúsi frá ISUZU
Tækniatriði:
Þrjár stærðir: Heildarþyngd 3500 kg, 5500 kg
og 7000 kg. Burðarþol 1500 kg. 2700 kg og
3500 kg. Aflstýri, veltistýri, styllanlegt öku-
mannssæti, tímarofi á þurrkum, bakkflauta,
„vacum,,-stýrð kúpling, mótorbremsa og velti-
hús.
Allar nánari upplýsingar fáið þið hjá sölumönn-
um okkar.
Hagstæð greiðslukjör
Stemgervingafundur í Texas:
Styrkir kenning-
ar um þróun fugla
Washington, AP.
BANDARÍSKIR vísindamenn hafa fundið steingervinga af fugl-
um sem þeir segja þá elstu sem fundist hafa. Steingervingamir
fundust í gijótnámu i Texas í Bandaríkjunum og em þeir tald-
ir vera af fuglum sem flugu um loftin blá fyrir 225 milljónum
ára.
Sankar Chatterejee, sem
stjómar rannsókninni á steingerv-
ingunum, sagði þá vera af tennt-
um fuglum, sem minntu á
smávaxnar eðlur.
Steingervingar þessir eru að
minnsta kosti 75 milljónum ára
eldri en aðrir þeir steingerðu fugl-
ar, sem fundist hafa, og hefur
Sankar Chatterejee gefið þeim
nafnið „Genus Protoavis“.
Steingervingarnir, sem nú
fundust, minna meira á fugla eins
og menn þekkja þá í dag, en þeir
sem áður hafa fundist. Vísinda-
menn segja fund þennan renna
stoðum undir þá kenningu að fugl-
ar hafi þróast af risaeðlum.
Af steingervingunum má ráða
að fuglarnir hafa haft kröftuga
vængi og stórt heilabú.