Morgunblaðið - 16.08.1986, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. ÁGÚST 1986
Chile:
Yfirmenn í hernum
á bak við lás og slá
Santiago, AP.
GEFIN hefur verið út skipun um handtöku 40 yfirmanna í
hernum, sem taldir eru bera ábyrgð á hvarfi kommúnistaleið-
toga í Chile. A meðal þeirra sem liandteknir verða eru fyrrum
meðlimur herstjórnarinnar og tveir óbreyttir borgarar. Menn-
irnir eru sakaðir um að hafa stofnað með sér ólögleg samtök
sem létu myrða nokkra leiðtoga kommúnista fyrir tíu árum.
Að sögn talsmanna mannrétt- hvarfi 10 leiðtoga kommúnista árið
indahreyfinga í Chile er þetta í
fyrsta skipti í þau 13 ár sem her-
inn hefur verið við völd sem
ráðamcnn hans eru gerðir ábyrgir
fyrir skipulegum morðum á and-
ófsmönnum og hvarfí óbreyttra
borgara.
Að sögn Carlos Cerda Fern-
andez, dómara, hefur rannsókn á
1976 staðið í þijú ár. Komið hefur
í ljós að yfirmennirnir stofnuðu
með sér samtök til að berjast gegn
kommúnistum og handtóku þeir
án heimildar tvo leiðtoga þeirra
sem síðar hurfu sporlaust.
Carlos Fernandez vísaði málum
27 manna, sem horfið hafa spor-
laust, tii annarra dómstóla. Að
sögn hans neitaði hæstiréttur Chile
að aðstoða hann við rannsókn
þeirra mála.
A meðal hinna ákærðu er
Gustavo Leigh, sem var einn valda-
mesti meðlimur herforingjastjórn-
arinnar á árunum 1973 til 1978.
Að sögn Carlos Fernandez
stofnuðu hinir ákærðu með sér
samtökin „Samhent forusta".
Samtökin létu handtaka og of-
sækja kommúnista sem margir
hverjir höfðu farið í felur eftir hið
blóði drifna valdarán hersins árið
1973 þegar stjórn Salvador All-
ende var steypt af stóli.
Stjórnunarfélag íslands hefur ákveöiö aö efna til alhliða endurmenntunarnám-
skeiös. Námskeiöiö er einkum hugsaö fyrir þ'á sem hyggjast breyta um starf eöa
eru að hefja störf að nýju eftir lengra eöa skemmra hlé. Fjölbreytt námsefni og
mjög hæfir leiðbeinendur sem eru sérfræðingar hver á sínu sviöi.
Tilvalið tækifæri fyrir þá sem vilja afla sér hagnýtrar þekkingar á sviði verslunar
og viðskipta. Æskilegt er að þátttakendur hafi góöa grunnmenntun og/eða
starfsreynslu.
Kennsla skiptist í 4 svið:
1. Sölu- og markaðssvið 2. Stjórnunarsvið
a. Sölutækni a. Stjórnun og samskipti við starfsmenn
b. Markaössókn b. Stjórnun fyrir nýja stjórnendur
c. Skjalagerö c. Viðtalstækni
d. íslensk haglýsing d. Veröútreikningar og tilboösgerð
e. Bókfærsla
3. Tölvusvið f. Skjalavistun
a. Grunnnámskeiö á tölvur
b. Ritvinnsla 4. Málasvið
c. Gagnagrunnur a. Ensk verslunarbréf
d. Áætlanagerö b. Enska í viðskiptum og verslun
MEGINÁHERSLA VERÐUR LÖGÐ Á TVÖ FYRSTU SVIÐIN
Kennsla hefst 8. september nk. og stendur til 24. október, alls 7 vikur.
Kennt verður alla virka daga frá kl. 8.00 til 15.00
í húsakynnum SFÍ aö Ánanaustum 15.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR STJÓRNUNARFÉLAG ÍSLANDS
ÍSÍMA 91-621066
Stjórnunarfélag
islands
Ánanaustum 15 Simi: 621066
Svíþjóð:
Sovéskum liðhlaupa
snýst óvænt hugur
Stokkhólmi, AP.
SOVÉSKUR liðhlaupi, sem kom
frá Finnlandi til Stokkhólms á
miðvikudag, hélt í gær til Sov-
étríkjanna. Við komuna til
Látin móðir
elur barn
AugTista, Georgíu, AP.
LÆKNAR í Georgíu tóku á
fimmtudag á móti veikburða
sveinbarni, 12 vikum fyrir
tímann. Móðir þess lést „heila-
dauða" fyrir tæpum tveimur
mánuðum, en þrátt fyrir mót-
mæli eiginmanns hennar kvað
dómari upp þann úrskurð að
líf hennar skyldi framlengt
með aðstoð véla svo að fóstrið
mætti lifa.
Barnið vó aðeins 490 grömm
við fæðingu og töldu læknar lífs-
líkur þess afar litlar. Þeir tóku
það með keisaraskurði þar sem
líf þess virtist vera í hættu. Eft-
ir fæðingu átti það við mikla
öndunarerfíðleika að stríða, þar
sem lungu þess eru enn ófull-
komin. I gær var bamið enn í
hættu, en ástand þess var stöð-
ugt.
Málið vakti athygii þar sem
að eiginmaður móðurinnar, Rob-
ert Piazzi, óskaði eftir því að
líkami hennar yrði tekinn úr
sambandi við vélar þær er héldu
henni á lífí. Þá sté hins vegar
fram maður að nafni David
Hadden og sagðist vera barns-
faðir hennar og krafðist þess
að barnið fengi að fæðast. Á
það féllst dómari, en eftir fæð-
ingu bamsins var frú Piazzi
tekin úr sambandi og var lýst
látin fáum mínútum síðar.
Stokkhólms hélt maðurinn þegar
á fund sovéskra embættismanna
og að honum loknum skýrði hann
lögregluyfirvöldum frá því að
hann vildi fara aftur til Sov-
étríkjanna. Fyrir brottförina
sagði hann sænskum fréttamönn-
um að hann hefði ekki orðið fyrir
þrýstingi frá Sovétmönnunum til
að snúa aftur heim.
Þann 19. júní var maðurinn
handtekinn á finnsku landsvæði.
Hann hafði reynt að nema landa-
mæraskilti á brott og hlaupið yfir
landamærin þegar hann hélt að
hann hefði verið staðinn að verki
við þessa iðju sína. Lögreglan hand-
tók hann 1. júlí og ók maðurinn
þá um á stolnu mótorhjóli.
Liðhlaupinn, sem heitir Igor Az-
hevsky og er 22 ára gamall, sótti
um pólitískt hæli í Finnlandi en
hann sat þá í fangelsi vegna þeirra
afbrota sem hann hafði framið.
Yfirvöld þar höfnuðu bón hans og
ákváðu að senda hann „til einhvers
þriðja lands" eins og sagði í orð-
sendingu þeirra.
Við yfirheyrslu hjá sænsku lög-
reglunni sagði liðhlaupinn að hann
vildi snúa aftur .til Sovétríkjanna,
að sögn Gunnars Andersson lög-
regluforingja. Pólitískir flóttamenn,
sem koma til Svíþjóðar, eru jafnan
teknir til yfirheyrslu þar sem þeir
eru spurðir um ástæður flóttans.
Að sögn Gunnars Andersson vildi
maðurinn ekki láta upp hvers vegna
honum hefði snúist hugur.
í fyrradag settust fimm meðlimir
Alþjóðlegu mannréttindasamtak-
anna í Frankfurt að í sendiráði
Svíþjóðar í Bonn og kröfðust þess
að fá að eiga fund með liðhlaupan-
um. I fréttatilkynningu frá samtök-
unum voru yfirvöld í Svíþjóð
harðlega gagnrýnd fyrir að afhenda
sovéska sendiráðinu manninn.