Morgunblaðið - 16.08.1986, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. ÁGÚST 1986
23
Kóreska vélin;
Flugsljórinn vissi
að hann var í sov-
éskri lofthelgi
- segir lögfræðingur fórnarlambanna
Tókýó, AP.
LÖGFRÆÐINGUR fjölskyldna þeirra sem létust þegar sovéskar
herflugvélar skutu niður kóreska farþegavél fyrir þremur árum
sagði á föstudag að hann hefði sannanir undir höndum fyrir því að
flugmaður kóresku vélarinnar hefði vitað að hann flaug í sovéskri
lofthelgi.
Lögfræðingurinn, Melvin Belli,
skýrði frá þessu á fréttamanna-
fundi í Tókíó, sem haldinn var í
tilefni þess að tekið hefur verið upp
sérstakt fjarskiptasamband milli
flugumferðarstjóra í Japan, Banda-
ríkjunum og Sovétríkjunum, svo
koma megi í veg fyrir atburði, sem
þann þegar Sovétmenn skutu niður
farþegavél með 269 manns innan-
borðs.
Belli gaf í skyn að vélin hefði
flogið í sovéskri lofthelgi til þess
að fylgjast með „einhveiju sem
Sovétmenn ætluðu að senda í loftið
þann dag“. Belli sagði að eiginkon-
ur flugstjóra og aðstoðarflugmanns
vélarinnar hefðu sagt sér að eigin-
menn þeirra hefðu komið heim með
(járfúlgur, sem þeir sögðu vera
aukagreiðslur fyrir sérverkefni.
Ennfremur tjáði Belli fréttamönn-
um að flugstjórinn hefði sagt konu
sinni að þetta yrði síðasta flugið
hans, þar sem það væri orðið of
hættulegt.
Belli bíður þess að Hæstiréttur
Bandaríkjanna taki málið fyrir.
Peking:
Kirkjuklukkum hringt á ný
Fekinp, AP.
í PEKING í gær var í fyrsta
skipti í 28 ár hringt kirkjuklukk-
Bandaríkin:
10 ára gam-
all morðingi
Los Angeles, AP.
TIU ára göniul stúlka hefur
verið ákærð um að hafa myrt
eins árs gamalt barn, sem
henni hafði verið falið að
gæta.
Að sögn saksóknara Los
Angeles-fylkis hefur aldrei áður
verið gefin út morðákæra á
hendur svo ungri manneskju í
sögu fylkisins.
Þegar foreldrar barnsins
komu heim fundu þau það látið
í íbúðinni.
Saksóknarinn sagði að allt
benti til þess að bamið hefði
verið myrt að yfírlögðu ráði.
Hann vildi hins vegar ekkert
segja um hvaða hvatir hefðu
legið að baki.
Kalifornía:
um, en þá héldu um 6.000
kaþólskir Kínverjar Maríumessu
hina fyrri hátíðlega. í Peking eru
þrjár kaþólskar kirkjur.
Kommúnistar bönnuðu kirkju-
hringingar árið 1958, en samkvæmt
nýrri tilskipun má nú hringja klukk-
um §órum sinnum á ári. Það er á
páskadag, hvítasunnudag, Maríu-
messu hinni fyrri og á jóladag.
Kaþólska kirkjan í Kína sleit sam-
bandi við páfastól 1957, þegar
jesúítaprestar neituðu að lýsa yfir
stuðningi við stjórn kommúnista.
Trúarbrögð voru bönnuð í Kína
á tíma menningarbyltingarinnar,
frá 1966 til 1976. Nú eru sum trúar-
brögð leyfileg á ný og erlendum
trúarleiðtogum hefur verið leyft að
heimsækja Kína. Stjórnvöld leyfa
þó ekkeit trúboð og samband við
erlend trúfélög er bannað.
ERLENT
V ændishr ingur
tók tæknina í
þjónustu sína
San Jose, Kaliforntu, AP.
UPP KOMST um vændishring nokkurn i Norður-Kaliforníu fyrir
skömmu og sögðust lögregluþjónar þeir er að rannsókninni stóðu
aldrei hafa séð annan eins fyrirmyndarrekstur á fyrirtæki af þessu
tagi. Hringurinn hélt nákvæmt tölvubókhald og var að öllu leyti
rekinn eins og hefðbundið þjónustufyrirtæki.
Hringurinn, sem hafði höfuð-
stöðvar í byggingu örskammt frá
aðallögreglustöð San Rafael, hafði
117 vændiskonur á sínum snærum,
en fyrirtækið var rekið undir því
yfirskini að um „fylgdarkonuþjón-
ustu“ væri að ræða. Talið er að á
átta ára ferli fyrirtækisins hafi
hagnaður þess numið um 25 millj-
ónum Bandaríkjadala (u.þ.b. 1
milljarði ísl. króna).
Vændiskonurnar höfðu á sér
tæki til þess að geta tekið við
greiðslukortum, þegar þær voru í
viðskiptaerindum, en þjónusta
þeirra kostaði 160 dali á tímann,
en það jafngildir tæpum sjö þúsund
íslenskum krónum. Hægt var að
panta „fylgdarkonu“ símleiðis, en
stúlkurnar sinntu útköllum með því
að bera á sér kalltæki, svipuð þeim
sem læknar bera.
Sem fyrr segir hélt hringurinn
tölvubókhald og þótti það til fyrir-
myndar. í því voru m.a. nöfn 12.000
viðskiptavina, en við nöfn þeirra
voru ýmsar upplýsingar um síma-
númer, greiðslukortanúmer, sér-
stakar óskir ef einhveijar voru og
stuttar athugasemdir vændis-
kvenna um þá.
Tvær ungar konur voru hand-
teknar á miðvikudag og eru þær
grunaðar um að hafa verið fram-
kvæmdastjórar hringsins. Þá er
búið að gefa út handtökuheimild á
41 árs gamlan mann, sem lögreglan
segir vera höfuðpaurinn.
AF ERLENDUM VETTVANGI
Kosningaskjálfti í Vestur-Þýskalandi:
CDU setur efna-
hagsmál á oddinn
ÞÓTT þingkosningar verði ekki í Vestur-Þýskalandi fyrr en
25. janúar á næsta ári eru stjórnmálamcnn allra flokka þegar
farnir að huga að kosningabaráttunni. í siðustu viku lagði t.d
Heiner Geiler framkvæmdastjóri kristilegra demókrata (CDU)
fram drög að stefnumálum flokksins í næstu kosningum, þar
sem höfuðáherslan er lögð á efnahagsmál; stöðugt verðlag,
meiri atvinnu, og öryggi eftirlaunaþega.
Samkvæmt skoðanakönnun-
um bendir flest til þess að
stjómarflokkamir sitji áfram við
völd eftir kosningar. Fylgi kristi-
legra demókrata hefur að vísu
minnkað frá því í kosningunum
árið 1983 úr rúmlega 48% í 45%.
Hins vegar hefur staða sósíal-
demókrata, sem spáð var mikilli
fylgisaukningu í fyrra, versnað til
muna undanfarnar vikur. Þeir
hafa nú um 41% fylgi, og virðast
orðnir úrkula vonar um að ná
hreinum meirihluta á þingj. Og
það, sem ekki er minna um vert,
vinsældir Helmuts Kohls kanslara
hafa vaxið að undanförnu, en
stuðningur við Johannes Rau
kanslaraefni sósíaldemókrata að
sama skapi dvínað. Ein ástæða
þess er vafalaust sá að efnahags-
stefna stjórnarinnar hefur borið
árangur í ákveðnum efnum.
Efnahagsmál í brennidepli
Því þarf ekki að koma á óvart
að á þeim kosningaspjöldum, sem
sett verða upp víðs vegar um
Sambandslýðveldið á vegum
kristilegra demókrata eftir nokkr-
ar vikur, verður þessari stefnu
komið á framfæri. Með öðrum
orðum ætla kristilegir demó-
kratar, sem mynduðu stjórn með
smáflokki ftjálsra demókrata,
FDP, árið 1982 og unnu mikinn
sigur í kosningunum ári síðar, að
halda völdum með því að setja
aukinn hagvöxt á oddinn í kosn-
ingabaráttunni. Það þótti þó
skyggja nokkuð á yfírlýsingu
Geisslers um stefnu flokksins í
kosningabaráttunni að dcgi síðar
gi-cindi talsmaður vinnumála-
stofnunar landsins frá því að
atvinnuleysi hefði aukist lítillega
í júlímánuði. Samt er því spáð að
á næsta ári muni atvinnuleysingj-
um fækka talsvert. Reyndar telja
margir efnahagssérfræðingar að
hagvöxtur muni aukast og fjöldi
atvinnulausra verði þá undir
tveimur milljónum, en það hefur
ekki gerst sl. fimm ár.
„Kúvending“ var helsta slagorð
kristilegra demókrata í síðustu
kosningabaráttu, en nú kveður við
annan tón: það á að halda í horf-
inu. Að vísu sagði Geissler að
kosningabarátta kristilegra demó-
krata yrði ekki eingöngu reist á
þeim árangri, sem stjórnin hefði
náð í efnahagsmálum: „Við höfum
lagt grundvöll að efnhagsþróun
framtíðarinnar," er haft eftir hon-
um. En ljóst er að kristilegir
demókratar hyggjast koma þeirri
hugmynd að kjósendum að sósíal-
demókratar séu ekki þess
umkomnir að taka við stjómar-
taumunum eftir fjögurra ára
stjómarsamstarf CDU og FDP.
Kosningaáróðursins gengur út á
að mestu máli skipti að flokkunum
tveimur verði veitt brautargengi
í kosningunum til að ljúka ætlun-
arverki sínu.
Raunar má stjómin vel við una
á ákveðnum sviðum efnahags-
mála. Síðasta árið hefur verið
verðhjöðnun, sem nemur V2 pró-
senti og á þessu ári er búist við
því að hagvöxtur verði á bilinu
3—3 V2 af hundraði. Bjartar horf-
ur em líka framundan, enda
benda efnahagsspár til þess að
hagvöxtur verði svipaður á næsta
ári. Á hinn bóginn er ekki að leyna
að lækkun olíverðs hefur átt mik-
inn þátt i þeim efnahagsbata, sem
orðið hefur í Vestur-Þýskalandi
sl. tvö ár. Og spádómar um betri
tíð í atvinnumálum breyta engu
um þá staðreynd að stjórnin hefur
ekki staðið við það kosningaloforð
að draga verulega úr atvinnuleysi.
Utanríkismál í skugganum
í þeim fjölmiðlum, sem andsnú-
in ern stjórninni, kom fram
gagnrýni á kosningaáætlun kristi-
legi'a demókrata og því var haldið
fram að ræða Geisslers hefði ver-
ið veik. Þar er t.d. bent á að
„heimsmálanna“ sé hvergi getið.
Ekkert sé minnst á tvö mál, sem
séu Þjóðvcijum sérlega hugleikin:
afvopnun og friðarumleitanir.
Þótt kristilegir demókratar hafi
ekki látið utanríkismál lönd og
Heiner Geissler
Líkurnar á því að sósíaldemókratar nái hreinum meirihluta í
næstu þingkosningum fara nú síminnkandi.
leið má til sanns vegar færa að
þeir vilji ekki gera þau að kosn-
ingamáli. Ef til vill er það skyn-
samlegt pólitískt ráð, því að
fullyrða má að engar kosningar í
Sambandslýðveldinu hafi ráðist
af afstöðu flokkanna til utanríkis-
mála.
Gott dæmi þess em síðustu
kosningar. Þá var mikið gert úr
áformum um að koma fyrir meðal-
drægum eldflaugum í Vestur-
Þýskalandi. I kosningabaráttunni
lýstu kristilegir demókratar yfír
stuðningi við áformin, en eftir að
Helmut Schmidt sagði af sér
kanslaraembættinu vom sósíal-
demókratar mjög tvístíga í þessu
máli, en hin opinbera stefna
flokksins í kosningabaráttunni
var að gera uppsetningu eldflaug-
anna óþarfa. Kristilegir demó-
kratar unnu stórsigur í
kosningunum, en samkvæmt
skoðanakönnununum vom 60%
kjósenda á móti því að eldflaug-
amar yrðu settar upp á þýskri
gmnd.
Af þessu má ráða að kristilegir
demókratar hafi ekki hlotið náð
kjósenda vegna stefnu þeirra í
þessu máli. Helsta ástæða kosn-
ingasigurs þeirra var sú að
efnahagsástandið var verra en oft
áður og atvinnuleysi hafði aukist
vemlega árin á undan. í ljósi þess
er skiljanlegt að CDU vilji leggja
áhei’slu á efnahagsmálin í kosn-
ingabaráttunni
Samt má gera ráð fýrir því að
kristilegir demókratar muni ekki
þegja algerlega um utanríkismál,
heldur fyrst og fremst fjalla um
þau í þeim tilgangi að koma höggi
á sósíaldemókrata. Talsmaður
þingflokks kristilegra demókrata
í utanríkismálum, Volker Riihe,
gaf tóninn í síðustu viku: lýsti
hann yfir því að sósíaldemókratar
(SPD) væm ófærir um gæta hags-
muna Vestur-Þýskalands í Atl-
antshafsbandalaginu, og vildu
helst hætta aðildinni að því. Hvort
þessi rök reynast haldbær í kosn-
ingabaráttunni kemur síðar í ljós,
en fróðlegt verður að fylgjast meö
viðbriigðum SPD við kosninga-
áætlun kristilegra demókrata.
Það er a.m.k. víst að sósíalomó-
kratar þurfa að taka sig verulega
á ef ekki á illa að fara.
Heimildir: (Spicgvl, Ecommiist
og Öbsefyer.)