Morgunblaðið - 16.08.1986, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. AGUST 1986
AKUREYRI
219 fásteignir
seldar á árinu
ÞAÐ, sem af er þessu ári, hafa umdæmisskrifstofu Fast-
eignamats ríkisins á Akureyri borizt 219 staðfestir kaup-
samningar vegna íbúðarhúsnæðis. A síðustu fjórum árum
voru flestar íbúðir eða hús seld árið 1984, 424 eignir alls.
Hér er að mestu um að ræða eignaskipti innan bæjarins.
Björn Magnússon, umdæmis- bæjarins og lítið væri um það að
tæknifræðingur fasteignamats-
ins, sagði í samtali við
Morgunblaðið, að það væri alltaf
þokkaleg hreyfíng á sölunni, en
illa gengi að selja stór einbýlis-
hús, meðal annars vegna mikils
kyndingarkostnaðar. Salan bygg-
ist aðallega á eignaskiptum innan
aðkomufólk keypti íbúðir hér.
Skrifstofa Fasteignamatsins
byijaði að skrá fjölda kaupsamn-
inga árið 1983. Þá voru seidar
239 eignir, 424 árið 1984, 315 í
fyrra og það, sem af er þessu ári
219.
Ákvörðun um áfram-
haldandi rekstur
Hótels Húsavíkur
um mánaðamótin
“•„REKSTUR Hótels Húsavíkur hefur gengið mjög vel í sum-
ar en heldur er róðurinn erfiðari yfir vetrartímann.
Ákvörðun um áframhaldandi rekstur hótelsins verður ekki
tekin fyrr en um næstu mánaðamót," sagði Hildur Jóns-
dóttir, deildarstjóri innanlandsdeildar Samvinnuferða—
Landsýnar, en SL hefur rekið Hótel Húsavík frá 1. júní
1985 og rennur leigusamningurinn út 1. október nk.
„Við höldum að hægt sé að gera
ýmsa góða hluti á stað sem
Húsavík með þátttöku og aðstoð
heimamanna og sveitunga í kring.
Vetrartíminn byggist lítið upp á
* crlendum ferðamönnum, en hins
vegar er funda- og ráðstefnuað-
staða mjög þægileg á hótelinu þó
gistirýmið takmarki að nokkru
leyti stærð fundanna.“
Hildur sagði að SL hefði fyrst
og fremst tekið hótelið á leigu á
sínum tíma fyrir eigin ferðamanna-
hópa og til að taka þátt í upp-
Morftunbladid/HG
Með boltann um borð
Upphaf loðnuveiðanna hjá Fífli GK hefur gengið nokkuð brösulega. í fyrsta túr rifnaði nótin og
ekki var hægt að tjasla henni saman svo mynd væri á. Fífill kom því inn til Akureyrar, þar sem
þeir biðu eftir nýrri nót frá Keflavík og von var á henni á föstudagskvöld. Ahöfnin hefur hins
vegar ráð undir hverju rifi og veit hvernig bezt er að láta timann líða. Þeir eru með boltann um
borð og brugðu sér upp í bæ til að taka létta æfingu. A myndinni eru Eiríkur Sævaldsson, Frið-
björn Björnsson, Sigurður Grétarsson, Magnús Stefánsson og Gunnar Sigurðsson.
byggingu ferðamannaþjónustu úti
á landi. Auk Hótels Húsavíkur
hefur SL rekið sumarhótelið að
Bifröst sl. fjögur sumur og í vor
hóf ferðaskrifstofan rekstur Hótels
Selfoss og gerði 15 mánaða leigu-
samning við eigendur. „Ég held
að ferðaskrifstofurnar geti hjálpað
til við hótelrekstur og uppbyggingu
ferðamannaþjónustu úti á landi
með því að reka þessi hótel á lands-
byggðinni ef vilji þar er fyrir hendi
og er ég mjög bjartsýn á að svo
geti orðið,“ sagði Hildur.
Hef alltaf haft gaman
af þvi að vinna mikið
- segir Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri á Dalvík
„BÆJARSTJÓRASTARFIÐ leggst bara vel í mig. í því felst mikil vinna
en ég hef alltaf haft gaman af því að vinna mikið. Þetta er langt frá því
að vera einhæft starf, því maður þarf að grípa á mörgu. Þetta líkist
að nokkru leyti því, sem ég hef verið að gera áður, sjómennsku og
kennslu. Þetta er mikil vinna og i henni felst ákveðin stjórnun og allt
þetta reynir ntikið á mannleg samskipti," sagði Kristján Þór Júlíusson
bæjarstjóri á Dalvík í samtali við Morgunblaðið.
Kristján Þór var ráðinn bæjarstjóri
í vor að afloknum bæjarstjórnarkosn-
inum, en við þær breyttist meirihluti
innan bæjarstjómarinnar. Aður var
bæjarstjórnin skipuð fjórum fulltrúum
88% nýting á Hótel Húsavík í júlí:
Besta nýtingin hingað
til frá opnun hótelsins
A HOTEL Húsavík varð 88%
nýting í júlímánuði og er það
besta nýting sem fengist hefur
á hótelinu síðan það var opnað
fyrir 13 árum.
Rekstur hótelsins er nú í hönd-
um Samvinnuferða-Landsýnar,
sem tók hótelið á leigu 1. júní
1985 af eigendum þess, Húsavík-
urbæ, félögum og einstaklingum á
Húsavík og Flugleiðum. Pétur
Snæbjörnsson tók við hóteistjóra-
.ftarfi á Húsavík um miðjan maí
sl. og sagði hann í samtali við
Morgunblaðið að þessi góða nýting
nú í sumar væri fyrst og fremst
auknum ferðamannastraumi til
landsins að þakka, enda megin-
uppistaða gesta erlendir ferða-
menn. Einnig hefði tíðarfarið
norðanlands að undanförnu hiálp-
að til.
Pétur sagði að þrátt fyrir ágæta
aðsókn yfir hásumarið, yrði vetur-
inn alltaf erfiður og alltaf taprekst-
ur næðist nýting ekki upp fyrir
50%. „Menn verða einfaldlega að
*gera ráð fyrir taprekstri í áætlun-
um sínum, en á þessu eina ári síðan
SL tók hótelið á leigu held ég að
mér sé óhætt að segja, að tekist
hefur að bægja tapi frá á heilsárs-
grundvelli."
Pétur sagði að nú væru 13 ár
síðan farið var að markaðssetja
fc'íúsavík sem ferðamannastað og
því væri sú spurning sér efst í
huga hvort í raun hefði verið nægi-
lega vel staðið að kynningarstarf-
semi. „Þá hefur hótelið verið
auglýst á veturna sem ráðstefnu-
hótel enda mjög góð aðstaða hér
til slíks, en nú hefur hótelum fjölg-
að á Suðurlandi sem öll byggja á
funda- og ráðstefnuhaldi, og því
er spuming hvort Hótel Húsavík
er orðið samkeppnisfært á því sviði
vegna staðsetningar. Mér finnst
undarlegt að hótelið hafí ekki
tryggara ráðstefnuhald miðað við
svo langan starfstíma. Menn koma
nefnilega hiklaust aftur ef þeim
hefur líkað vel áður.
Við höfum aðeins bókaða eina
ráðstefnu, umboðsmannafund
Flugleiða í september, en síðan
taka við ýmsar uppákomur sem
við erum nú með í vinnslu. Boðið
verður upp á þessar hefðbundnu
pakkaferðir og meiningin er að
hafa t.d. ijúpnaveiði inni í þeim.“
Hann bætti því að æskilegt
væri að geta boðið ferðamönnum
upp á eitthvað í bænum sjálfum
t.d. viðvíkjandi sjónum, svo sem
skak og seglbretti, í stað þess að
senda þá sífellt út úr bænum til
að skoða aðra staði.
Hótel Húsavík
Framsóknar og einum fulltrúa frá
Sjálfstæðisflokki, Alþýðubandalagi og
Alþýðuflokki. Nú á Sjálfstæðisflokkur
þijá fulltrúa, Alþýðubandalag tvo og
Framsóknarflokkur tvo. Sjálfstæðis-
flokkur og Alþýðubandalag mynda
meirihlutann. Kristján Þór er 29 ára
gamall og hefur skipstjómarréttindi
auk þess, sem hann hefur að mestu
lokið prófi í kennslufræðum. Hann
hefur undanfarin ár stundað sjó-
mennsku og kennslu við grunnskól-
ann á Dalvík og kennt á námsbraut
fyrir stýrimannsefni.
Kristján Þór sagði, að hann hefði
ekki orðið var við það, að unnið hefði
verið gegn sér í bænum, sér hefði
verið vel tekið af flestum, en skoðan-
ir um ráðningu hæjarstjóra hlytu
alltaf að vera skiptar. Hann yrði svo
sjálfsagt síðasti maðurinn til að heyra
einhveijar óánægjuraddir. Hann væri
svo auk þess fyllilega tilbúinn að
ræða við þá óánægðu ef þeir kærðu
sig um.
Hluti starfsfólks bæjarskrifstof-
anna sagði upp þegar eftir kosningar
og sagðist Kristján Þór ekki telja það
mótmæli við sig, þar sem ekki hefði
verið búið að ganga frá ráðningu
hans þegar fólkið sagði upp. Þetta
fólk hlyti að hafa verið óánægt með
úrslit kosninganna.
„Við erum nú að láta taka út fjár-
hagsstöðu bæjarsjóðs og verður því
lokið innan tíðar. Eg vil því ekkert
segja um stöðu hans fyrr en að því
loknu," sagði Kristján. „Það er ýmis-
legt, sem fyrir liggur af framkvæmd-
um á vegum bæjarins. Eitt af
brýnustu verkefnunum er viðgerð á
trébryggjunni við Suðurgarð. Þessi
viðgerð var ekki fyrirhuguð á fjár-
hagsáætlun og því gengur brösuglega
að bjarga þvi dæmi fjárhagslega. En
eigj bryggjan ekki að detta fram yfir
sig verður að gera eitthvað strax,
annars þýðir það aðcins mun kostnað-
arsamari aðgerðir. Þá er áframhald-
andi vinna við holræsagerð. Einnig
stefnum við að því að bjóða út við-
byggingu við dagheimilið í haust og
til stendur að rífa húsið Dröfn og
gamla netaverkstæðisbraggann. I
Dröfn hafa verið fjórar íbúðir, en
húsnæðið er nú talið heilsuspillandi.
Fyrir dyrum stendur að breyta fyrir-
komulagi á sölu heits vatns frá
M'M'Æí
Kristján Þór Júlíusson
hitaveitunni, selja það eftir mæli, en
áður var það selt á föstu gjaldi eftir
hemli. Með því móti er búizt við tals-
verðum vatnsspamaði. Hitaveitan
byggir vatnsöflun sína nú á einni
borholu í Hamarslandi og fljótlega
þarf að taka afstöðu til þess hvort
boruð verði önnur hola til að tryggja
nægilegt vatn og öryggi vatnsöflunar.
Þá þarf að huga að öflun neyzlu-
vatns á nýjum stað, en bæjarbúar eru
löngu búnir að fá sig fullsadda á því
vatni, sem nú stendur til Ixjða og
menn hafa orðið að sætta sig við
undanfarin ár. Við höfum verið með
mann í athugun á mögulegri vatns-
öflun á nýjum stað, en það hefur
ekki skilað árangri enn sem komið
er. Hann hefur nú tekið saman loka-
skýrslu um athuganir sínar og ræðir
þær við okkur á næstunni. Hver sem
niðurstaða þessara vatnsmála verður
er ljóst að þær framkvæmdir verða
kostnaðarsamar og menn verða að
fara að búa sig undir það.
Það er töluverður uppgangur á
Dalvík og ekki ástáeða til að búast
við neinum afturkipp í því. Framtíð-
armöguleikar staðarins byggjast fyrst
og fremst í þvi, að menn fylgist vel
með því, sem er að gerast í kringum
okkur í stað þess að einblína á það,
sem fyrir er. Við hugsum okkur enn-
freinur að nýta höfnina betur og erum
opnir fyrir allri nýbreytni. Við erum
aðilar að Iðnþróunarfélagi Eyjafjarðar
og það hefur skilað okkur miklu eins
og Sæplasti og Pólstjörnunni. Ilér
eiga allir að geta haft það gott, en
auðvitað verða menn að hafa eitthvað
fyrir því sjálfir og mega ekki búast
við því að fá allt upp í hendurnar,“
sagði Kristján Þór Júlíusson.