Morgunblaðið - 16.08.1986, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. ÁGÚST 1986
29
Kartöflusölumenn á ferð um Snæfellsnes:
Seldu hundruð kílóa
af óætum kartöflum
Borg, Miklaholtshreppi.
FYRIR skömmu voru hér á ferð
Buðu þeir til sölu kartöflur, sem
Hollandi. Kartöflurnar voru i 25
850 krónur.
Þegar átti að fara að matreiða
söluvöruna kom annað í ljós: kart-
öflurnar voru alls ekki mannamatur
og allir þeir, sem glæptust á að
versla við þessa svindlara, urðu að
henda vörunni. Það er leitt til þess
að vita, að reynt sé að svindla óætri
vöru inn á saklaust fólk.
i sölumenn úr Rangárvallasýslu.
þeir sögðust liafa flutt inn frá
kg. pokum og kostaði hver poki
Þá er frá því að segja, að ein-
hverjir, sem haldnir eru skemmdar-
fýsn, hafa lagt sig svo lágt að
stórskemma íbúðarhúsið í Akurholti
í Eyjahreppi en sú jörð er í eyði.
Þar hafa verið brotnar rúður, hurð-
ir í húsinu stórskemmdar og
húsgögn brotin. Þessi skemmdar-
verk hafa vei’ið kærð til lögreglu-
yfirvalda í sýslunni.
Undanfarna daga hefur verið hér
einstaklega gott veður, sólskin, logn
og mikill hiti. Góða veðrið ætlar að
endast okkur óvenju lengi nú. Þetta
sumar ætlar að verða með veðra-
bestu sumrum, sem hér hafa komið
um nokkurt ái-abil.
- Páll
Þjóðhátíðin í Vestmannaeyjum:
Mikið er af óskilamunum
Vestmannaeyjum.
HJÁ lögreglunni í Vestmanna-
eyjum liggur mikið af óskilamun-
um sem fundust i Herjólfsdal
eftir þjóðhátíðina um verslunar-
mannahelgina. Lögreglan hefur
sent alla muni sem voru á ein-
hvern hátt merktir til eigenda
en samt eru enn haugar af alls-
konar óskilamunum á lögreglu-
stöðinni og kennir þar ýmissa
Þröstur með
sex vinninga
ÞRÖSTUR Þórhallsson tapaði
fyrir Rechlis frá ísrael í elleftu
umferð skákmótsins i Gausdal i
Noregi í gær. Hann hefur nú
hlotið sex vinninga af ellefu.
Eftir ellefu umferðir eru tveir
skákmenn efstir og jafnir, Bareev
frá Sovétríkjunum og Klinger frá
Austurríki, með átta og hálfan vinn-
ing. I þríðja sæti situr Simen
Agdestein frá Noregi með átta vinn-
inga.
grasa.
Að sögn lögreglumanna ei-u í
þeirra vörslu mörg tjöld og bak-
pokar með ýmsu innihaldi, svo og
úr, gleraugu, húsiyklar ofl. Vill lög-
reglan gjaman losna við þessa
muni í hendur réttra eigenda og
óskar eftir því að þeir sem sakna
eigna sinna eftir þjóðhátíðina hafi
samband við lögregluna.
Mikið var um að fólk týndi pen-
ingaveskjum sínum á þjóðhátíðinni
og í flestum tilfellum komust þau
aftur í hendur eigenda en þá oft
án peninganna. Ljóst er að margur
hefur tapað umtalsverðum íjár-
hæðum þessa helgi og gleðin því
verið keypt dýrara verði en til stóð.
En heiðarleiki þekkist enn meðal
manna. Fréttaritari veit um nokkur
tilfelli þar sem böm og unglingar
fundu peningaveski með stómm
upphæðum og komu þeim með öllu
innihaldi í hendur gæslumanna á
svæðinu. Gæslumenn tjáðu frétta-
ritara að í einu slíku tilfelli hefðu
böm komið með veski sem þau
höfðu fundið og reyndist það inni-
halda 70 þús. kr. og hefði því þegar
verið komið í hendur þakkláts eig-
anda.
En það var ekki bara það að fólk
hafí verið hirðulaust um eigur sínar,
sumum var raunar alveg sama. Þar
um er dæmið af manninum sem í
lok þjóðhátíðar gerði sér lítið fyrir
og kveikti í tjaldinu sínu og öðmm
útilegubúnaði svo hann þyrfti ekki
að burðast með búnaðinn aftur til
Reykjavíkur. — hkj.
Loðnan um
100 mílum
nær landi
LOÐNUNA er nú að finna um
hundrað mílur nær landi en fram
til þessa. Telja útgerðarmenn og
sjómenn aflahorfur góðar.
Tvö loðnuskip höfðu í gær til-
kynnt afla síðasta sólarhring, vom
það Jón Kjartansson með 900 tonn
og Svanur með 700 tonn. Svanur
landar á Raufahöfn en Jón Kjart-
ansson landar ásamt loðnuskipinu
Guðrúnu Þorkelsdóttur, sem til-
kynnti um 700 tonna afla á
fimmtudag, á Eskifirði.
Bjarni Magnússon, fram-
kvæmdastjóri loðnubræðslunnar
þar, var að því spurður hvort stæði
til að greiða loðnuskipum sem hjá
þeim lönduðu olíuuppbót, eins og
dæmi em til um að áður hafi verið
gert, og sagði hann að slíkt hefði
ekki komið til tals enn sem komið
væri.
Suöur- og Austurland:
Berkofsky-
hjónin á
tónleikaferð
Selfossi.
HJÓNIN Anna Málfríður Sigurð-
ardóttir og Martin Berkofsky
munu á næstunni halda tónleika
á Suður- og Austurlandi. Fyrstu
tónleikarnir verða í Hvoli á
Hvolsvelli sunnudaginn 17. ágúst
kl. 14.00 og á Selfossi sama dag
í Selfosskirkju kl 17.30.
Á efnisskrá þeirra hjóna verða
verk eftir Schubert og Lizst. Þau
munu leika fjórhent og Martin leik-
ur einleik, verk eftir Lizt.
Martin Berkofsky fékk
Fullbright-styrk sem gestaprófesor
við tónlistarháskólann í Títógrad í
Júgóslavíu og em þau hjón á leið
þangað til sex mánaða dvalar. Tón-
leikamir falla inn í ferð þeirra til
Seyðisfjarðar; um borð í Nörrönu.
Eftir tónleikana á Selfossi halda
þau tónleika 19. ágúst í kirkjunni
á Höfn í Hornafirði. Þeir tónleikar
hefjast kl. 21. Daginn eftir, 20.
ágúst, halda þau tónleika í Vala-
skjálf á Egilsstöðum og heíjast þeir
tónleikar einnig kl. 21.
— Sig. Jóns.
Akstursleiðir einkabíla kl. 13:00—19:00.
Akstursleiðir einkabíla kl. 19:00—01:00-
Kort víxluðust
í bæklingi um afmælishátíð borgarínnar víxluðust kort af akst-
ursleiðum einkabíla um miðbæinn á mánudag. Þessi kort eru
þvl birt hér. Akstursleiðir einkabila kl. 13—19 eru fyrir ofan
og akstursleiðir að kvöldi afmælisdagsins fyrir neðan.
„Merkilega margir
myndlistarmenn héðan“
- rætt við Grétu Mjöll Bjarnadóttur í til-
efni myndlistarsýningar Hvergerðinga
Á MYNDLISTARSÝNINGU Hvergerðinga i tengslum við 40 ára
afmæli Hveragerðishrepps eru verk bæði yngri og eldri mynd-
listarmanna. Morgunblaðið hafði tal af Grétu MjöII Bjamadóttur,
27 ára ínyndlistarkonu, sem aðstoðaði við uppsetningu sýningar-
innar og sýnir þar þrjú verk.
„Fyrir þessa sýningu var leitað
til allra þeirra Hvergerðinga sem
hafa komið nálægt myndlist og
varð úr að um þrjátíu manns
ákváðu að sýna,“ sagði Gréta.
„Hveragerði var mikill lista-
mannabær um tíma og störfuðu
hér til dæmis málaramir Ríkharð-
ur Jónsson, Gunnlaugur Scheving,
Kristinn Pétursson og Höskuldur
Björnsson og eru verk eftir þá
alla á sýningunni.
Verkin, sem ég er með á sýn-
ingu, em tvær silkiþrykksmyndir
og ein steinþrykksmynd. Við-
fangsefnið? — Ætli það sé ekki
manneskjan. Eg leik mér með flöt-'
inn en hef yfirleitt alltaf fólk í
myndunum. Eg útskrifaðist úr
kennardeild Myndlista- og hand-
íðaskólans 1984 og er nú á þriðja
ári í grafíkdeild. I fyrravor tók
ég þátt i tveimur samsýningum,
sú fyn-i var á vegum Amnesty
Intemational og tengdist mynd-
efnið þeirra starfi en sú seinni var
sýning nemenda Myndlista- og
handíðaskólans í Gerðubergi.
Hvort uppeldið í Hveragerði
hafi þau áhrif á mig að ég ákvað
að fara út í myndlist veit ég ekki
en það em merkilega margir
myndlistarmenn héðan úr þessu
litla byggðarlagi. Ogþað var gam-
an að því hvað fólk tók vel undir
það að vera með í þessari sýningu -
og uppgötvaðist um leið margur,
sem cnginn vissi að hafði komið
nálægt pensli.“
Myndlistarsýningin er í fþrótta-
húsinu í Hveragerði og stendur
fram á sunnudag kl. 19.00 en það
kvöld lýkur afmælishátíðinni.
Morgunblaðið/Þorkell
Gréta Mjöll Bjarnadóttir, ein þeirra sem sýna í Hveragerði
þessa dagana.
Morgunblaðið/Þorkell
Finnsku listmálaramir Elina Sandström og Juhani Taivajárvi sýna
nú í Listamannaskálanum í Eden í Hveragerði. Hér sést Elína ásamt
einu málverka sinna.
Finnskir listmál-
arar í Hveragerði
FINNSKU listmálararnir Elína
Sandström og Juhani Taivajárvi
opnuðu í gær málverkasýningu í
Listamannaskálanum í Hveragerði
og stendur hún til 24. ágúst. Þau
hafa haldið sýningar árlega hér á
landi um langt skeið.
Á sýningunni hefur Elína 20 vatns-
litamyndir og nokkrar smámyndir
málaðar með olíu- og akryllitum.
Margar þeirra eru af íslensku lands-
lagi. 4
Juhani hefui' einnig íslenskt stef
fyrir sínar myndir í þetta sinn og
sýnir hann 12 olíumálverk. Þá eru
einnig á sýningunni nokkrar myndir
eftir Paula Sychold og Arto Aalto.
Hefur Paula sýnt hér áður, en Arto
sýnir í fyrsta sinn hér á landi.
(Fréttatilkynning)
1