Morgunblaðið - 16.08.1986, Blaðsíða 39
39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. ÁGÚST 1986
Á útimarkaði á
Neskaupstað:
Karlarnir f eimnir við
að láta lesa í lófa
— segir Andri Lindberg málari með meiru
Utimarkaðir hafa verið haldnir
víða um land nú í sumar og
hefur fólk verið duglegt við að
sækja þá enda oft hægt að gera
þargóð kaup. Blaðamaður Morgun-
blaðsins átti á dögunum leið um
Neskaupstað og þar var útimarkað-
ur í fullum gangi. Þar mátti meðal
annars sjá hvítklædda menn gefa
fólki að smakka á jógúrt, bækur
voru til sölu svo og föt og margt,
margt fleira.
Andri Lindberg nefnist ungur
maður á Neskaupstað, sem var á
útimarkaðinum, og bauðst hann til
þess að lesa í lófa fólks og skyggn-
ast þannig inn í framtíðina. Ándri
málar líka talsvert og sagði hann
að sér gengi vel að selja málverkin
sín enda mörg hver mjög falleg.
„Þetta er annar útimarkaðurinn
sem er haldinn hér í sumar og hef-
ur þetta bara verið þrælgaman.
Morgunblaðið/SUS
Markaðstorgið á Neskaupstað. Þar má fá flest milli himins og jarð-
ar og nýttu heimamenn, sem og aðrir af nágrannafjörðunum, sér
það vel.
— Hann fer bráðum að verða jafnþungur og Linda.
Mikið af fólki og gott veður og ég
held það sé verið að spá í að hafa
einn til viðbótar í sumar en í fyrra
var aðeins einu sinni markaður
hér,“ sagði Andri aðspurður.
„Já, já, það hefur verið nóg að
gera við að lesa í lófa,“ svaraði
hann spurningunni hvort nóg væri
að gera hjá honum. „Það eru um
30 manns sem hafa komið í dag,
en aðeins einn þeirra var karlmað-
ur, hitt allt konur. Karlmenn virðast
vera eitthvað feimnir í þessu sam-
bandi. Mér hefur einnig gengið vel
að selja málverkin mín hér og er
því hæstánægður með þetta allt
saman.“
Andri kvaðst hafa verið við námí
'/2 ár í myndlistarskólanum á Akur-
eyri og annað eins í Reykjavlk.
„Lófalestur hef ég að mestu leyti
lært af sjálfum mér. Ég hef dundað
við þetta frá því ég var 14 ára og
Margrét Ásgeirsdóttir úr
Reykjavík, galdrakerling með
meiru, kenndi mér dálítið," sagði
hann og var rokinn til að taka sam-
an pjönkur sínar enda dagurinn á
enda.
Grape-aldin
(Citrus paradisi)
Heimilishorn
Bergljót Ingólfsdóttir
Við eium svo lánsöm hér á landi
að geta keypt gra|>e-aldin og aðra
suðræna ávexti allt árið. Mörgum
þykir grape-aldin afbragðs góð,
telja jafnvel til lystisemda lífsins.
Það tekur dálítinn tíma að venjast
bragðinu, það þykir rammt við
fyrstu kynni, en bæta má úr því
með að setja örlítinn sykur á til
að byrja með.
Grape-aldin er hollur matur,
bætiefnaríkur og hitaeininga-
snauður, í hálfu gi'ape-aldini eru
aðeins 45 hitaeiningar og meira
en helmingur þess C-vítamíns-
magns sem við þörfnumst dag-
lega. Þau afbrigði af grape-aldin
sem eru bleik og rauðleit hafa auk
þess talsvert A-vítamín. Sérfræð-
ingar ráðleggja fólki að velja
grape-aldin sem þungt er eftir
stærð því þá sé það safamikið.
Grape-aldin geymist ágætlega í
kæliskáp í 2-3 vikur.
Hálft grape-aldin, sem búið er
að losa um rifin á, er ágætis for-
eða eftirréttur. Gi'ape-aldin rif eru
ljómandi góð með kotasælu, í
grænmetissalat, og hægt að
brytja þau og setja saman við
túnfisk- eða kalt kjúklingasalat.
Rifin er hægt að leggja í olíu-
edikslög í dálítinn tíma og bera
síðan fram með físk, eða kjötrétti.
Ef nota á börkinn til að bera
fram í þarf að fjarlægja himnuna
innan úr og best að gera það með
eldhússkærunum.
Citrus-salat
2 grape-aldin
2 appelsínur
2 mandarínur
1-2 matsk. sykur
Börkurinn tekinn af ávöxtun-
um, himnan fjarlægð, grape-aldin
skorið og aldinkjötið tekið í sund-
ur í bita. Appelsínur og mandarín-
ur skornar í sneiðar. Ávextimir
lagðir í lög í skál, sykrinum stráð
á hvert lag. Salatið kælt fyrir
notkun og borið fram sem eftir-
réttur.
Grape-aldinsalat með
eplum og hnetum
Grapc-aldin
sellerístilkar
epli
majones
ijómi
hnetur
Grapealdin skorið í tvennt og
aldinkjötið losað varlega úr og
himnan fjarlægð og skorið í bita.
Safinn látinn dijúpa vel af og ald-
inkjöti blandað saman við jafnt
magn af brytjuðum eplum og sel-
leríi. Majones hrært með ijóma
og allt sett út í, salatið sett í hálf-
an börkinn og skreytt með
söxuðum hnetum.
Grape-aldin
með rækjum
2 grape-aldin
rækjur
grænar baunir
salatblöð
ca 75 gr. soðin hrísgijón
salt
1 tsk. sítrónusafi
'/2 tsk. franskt sinnep
ca 1 dl. þeyttur ijómi
ca 250 gr. majones
Majonesið hrært með ijóma,
braðbætt með sinnepi, salti,
sítrónusafa og örlitlum sykri ef
vill. Aldinið skorið í tvennt, kjötið
tekið úr, himnan íjarlægð og látið
síga vel af áður en þetta er skorið
í bita. Rækjur, baunir og aldinkjöt
(í bitum) sett út í majonesið. Sal-
atið'er borið fram í berkinum eða
í skál, skreytt með rækjum, karsa
eða öðru grænu, salatblað haft
undir ef vill.
Grape-aldin eins og það
kemur fyrir, í salat eða
pressað í safa.
Metsölublad á hverjum degi!