Morgunblaðið - 16.08.1986, Side 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. ÁGÚST 1986
Ellert Schram, formaður KSÍ:
Mál Alberts og
Péturs eru ekki
alveg sambærileg
í FRAMHALDI af umræðu um
kærumál og atburði síðustu daga
í knattspyrnunni átti Morgun-
blaðið samtal við Ellert Schram,
formann KSÍ, en margir hafa ein-
mitt beint spjótum sínum að KSÍ
í þessari umræðu.
„Ég hef að sjálfsögðu orðið var
við mikla umræðu um þessi mál,
en því miður virðist hún oi't vera á
misskilningi byggð," sagði Ellert.
„Á tveimur undanförnum árum
hafa þrír fyrrverandi atvinnumenn
fengið leyfi hjá KSÍ til að leika hér.
Pétur Ormslev í Fram, Janus Guð-
laugsson í FH og Sævar Jónsson
í Val. Þeir fengu allir leyfi frá sínum
fyrri félögum með því skilyrði að
þeir væru bundnir samningum við
erlenda félagið ef þeir héldu aftur
í atvinnumennskuna. Enginn þeirra
þáði laun á þessum tíma, frekar
-^n Pétur Pétursson. Enginn gerði
athugasemd við þetta þá, engar
kærur bárust, og KSÍ lítur svo á
að með því hafi skapast fordæmi
og samkvæmt því var gefin út til-
kynning af skrifstofu KSÍ um
keppnisleyfi til handa Pétri Péturs-
syni. Það er ekki hægt að leyfa
einum eitt í dag og svo öðrum
ekki á morgun — á meðan reglun-
um er ekki breytt," sagði Ellert.
„Reglugerð KSÍ hefur verið
breytt með hliðsjón af kærumálum
__ undanfarinna ára gagngert til að
eyða ágreiningi og misskilningi í
þessum málum. Mál Péturs Pét-
urssonar verður að skoðast í því
Ijósi, það er að segja, stjórn KSI
hefur verið veitt lagalegt og form-
legt umboð til að kveða á um
hvenær leikmenn eru hlutgengir
eftir keppnisþátttöku erlendis. Mál
Alberts Guðmundssonar 1982 er
ekki hliðstætt máli Péturs af þeim
ástæðum að á þeim tíma tók KSÍ
ekki ábyrgð á hlutgengi leikmanna,
eins og það gerir nú, og þar að
auki hafði KSÍ fyrirfram varað Vals-
menn við þátttöku Alberts, þar
sem hlutgengið lá ekki fyrir sam-
kvæmt þeim reglum sem þá giltu,“
sagði Ellert.
„Ég vil einnig nota tækifærið og
gera nokkrar athugasemdir við
grein á íþróttasíðu Morgunblaðs-
ins í gær," sagði Ellert. „Þátttaka
Þórðar Hallgrímssonar í leiknum
með ÍBV eftir að hann var dæmdur
í leikbann byggðist á vangá ÍBV-
manna sjálfra. Það lá strax Ijóst
fyrir. Varðandi Jónsmáiið vil ég
taka fram að það voru ekki mistök
KSÍ að skeytið komst ekki til skila,
það voru mistök Pósts og síma.
Slíkt er ekki hægt að skrifa á reikn-
ing KSÍ. Svo vann Þróttur ekki
málið, eins og sagt var.“
„Að gefnu tilefni vil ég líka taka
fram að úrslitaleikur Mjólkurbik-
arsins verður háður 31. ágúst
næstkomandi, eins og mótabókin
segir. Framkvæmdastjórn breytir
ekki skipulagi móta, eða frestar
leikjum, þótt kærur berist. Það
þarf meira til að koma," sagði Ell-
ert.
„Ef dómur fellur í þessum mál-
um í héraði fyrir leikinn, þá kemur
að sjálfsögðu upp ný staða, en
þangað til verður engu breytt um
úrslitaleikinn."
Valur lagði fram
kæruna ígær
VALUR lagði í gær fram kæru í
Pétursmálinu svokallaða. Að
sögn Eggerts Magnússon for-
manns knattspyrnudeildar Vals,
hafa lögfróðir menn haft málsat-
vik til skoðunar, og niðurstaða
þeirra varð sú að full ástæða
væri að kæra leik ÍA og Vals í
X) SKRÁSETNINGAREYÐUBLAÐ
REYKJAVÍKUR - MARAÞON
i 24. ÁGÚST 1986 i ' i
NAFN | F/tÐINGARAR J l 1
HElMIU PÓSTNÚMER SIMI
Ég skrái mig til þátttöku i: Þátttökugjald. kr.:
MARAÞONHLAUPI [ 1 SOO SVEITAKEPPNI í |=| ^ SKEMMTISKOKKI (3 . sveill 1 | 1 1 250 1—— 1 1 1 NAFN SVEITAR
HÁLFMARAÞONHLAUPI SKEMMTISKOKKI
SKRÁNING :R ADEINS TEKIN QILD EF ÞÁTTTÖKUGJALD FYLGIR
Skráning stendur yfir
undanúrslitum Mjólkurbikarsins,
sem fram fór á Akranesi á mið-
vikudagskvöldið.
„Okkar skoðun er sú að Pétur
hljóti að teljast ólöglegur með ÍA.
Við vitum hinsvegar að Skaga-
menn telja að svo sé ekki. Og þó
við myndum að sjálfsögðu ekki
kæra, ef við byggjumst við að tapa
kærunni, þá er hún einkum lögð
fram með það í huga að fá þetta
á hreint. Það eru of miklir hags-
munir í húfi hjá félögunum til að
hægt sé að hafa vafa um þetta,"
sagði Eggert í samtali við Morgun-
blaðið.
• Haukur Gunnarsson og Jónas Óskarsson stóðu sig vel á Heims-
leikum fatlaðra.
Heimsleikar fatlaðra:
Haukur þriðji
HAUKUR Gunnarsson hljóp 400
m á 1:04,1 mfnútu og hafnaði í
þriðja sæti í hlaupinu á Heims-
leikum fatlaðra í Gautaborg í
Svíþjóð.
Heimsleikunum lýkur um
þessa helgi, en íslensku þátttak-
endurnir hafa lokið keppni. Þeir
stóðu sig mjög vel á leikunum,
en um 1.000 íþróttamenn frá 38
þjóðum tóku þátt.
Haukur keppti einnig í 100 m
hlaupi og hafnaði í 5. sæti á 13,5
sekúndum. í 200 m hlaupi hafði
hann góða forystu í undanrásum,
en datt og komst ekki í úrslit.
Jónas Óskarsson varð í 4.
sæti af 28 keppendum í 100 m
baksundi, í 9. sæti af 23 kepp-
endum í 100 m bringusundi, i 14.
sæti af 24 keppendum í 100 m
skriðsundi og í 18. sæti í 200 m
fjórsundi.
Benedikt þjáif-
ar norskt lið
Benedikt Ingþórsson körfu-
knattleiksmaður sem undanfarin
ár hefur leikið með ÍR hefur þeg-
ið boð um að þjálfa norska 3.
deildarliðið Nurström á næsta
keppnistimabili. Hann mun verða
við nám í Noregi samhliða þjálf-
uninni.
Það er slæmt fyrir ÍR-inga að
missa Benedikt úr sínum her-
búðum. Þeir ættu þó varla að þurfa
að örvænta. Einar Bollason mun
þjálfa liðið sem af flestum er talið
líklegt til að endurheimta sæti sitt
í úrvalsdeildinni.
Knattspyrna helgarinnar
ÞRIR leikir verða í 1. deild í
knattspyrnu í dag og tveir á
morgun. I 2. deild verður einn
leikur í dag og annar á morg-
„Skráningin í Reykjavíkurmara-
þonið hefur gengið vel síðustu
daga og einkum í maraþonið og
hálfmaraþonið," sagði Gunnar
Páll Jóakimsson í samtali við
blaðamann Morgunblaðsins í
gær.
„Þegar hafa fleiri skráð sig í
lengri hlaupin en luku keppni í
fyrra, en rólegra er í skráningunni
í skemmtiskokkið. Samt má gera
ráð fyrir að flestir taki þátt í því
og því hvetjum við alla, sem ætla
að hlaupa, að skrá sig sem fyrst
til að forðast örtröð síðasta dag-
inn, en skráningu lýkur á miðviku-
dag.“
Fram
FH
Aðalleikvangi á morgun kl. 19.00.
AMERXGAN STYLE
Skipholti 70.
Handknattleikur:
Essen vann Stavanger
Þýskalandsmeistarar Essen i
handknattleik eru í Noregi og
léku sinn fyrsta leik af þremur
gegn Noregsmeisturum Stav-
anger í gærkvöldi. Essen vann
öruggan sigur, 26:16, eftir að
staðan hafði verið 12:8 í hálf-
leik.
Þetta var fyrsti leikur Essen
undir stjórn Jóhanns Inga Gunn-
arssonar. Essen byrjaði vel og
komst í 5:1. Norðmennirnir náðu
að minnka muninn í þrjú mörk.
en líkamlegir yfirburðir Essen
voru miklir og þeir sigruðu örugg-
lega.
Jóhann Ingi var ánægður með
varnarleik sinna manna, en sagði
i samtali við blaðamann Morgun-
blaðsins að ýmislegt þyrfti að
laga í sóknarleiknum. Alfreð
Gíslason lék vel í vörninni, en
náði sér ekki á strik í sókninni
frekar en aðrir, en skoraði samt
3 mörk. Jakob Jónsson sleit lið-
bönd í síðustu viku og lék þvi
ekki með Stavanger.
un, fimm leikir verða í 3. deild,
úrslitakeppnin í 4. deild held-
ur áfram í dag og úrslit í yngri
flokkunum ráðast á morgun.
Leikirnir í 1. deild halda
áfram, hvað sem öllum kæru-
málum líður. Á Kópavogsvelli
leika UBK og KR í dag, Þór og
ÍA á Akureyri og Valur og ÍBV
á Valsvelli. Allir leikirnir hefjast
klukkan 14. Þá leika Einherji
og Skallagrímur í 2. deild á
sama tíma og fer leikurinn fram
á Vopnafirði.
Á morgun leika í 1. deild
Fram og FH á Laugardalsvelli
og ÍBK og Víðir í Keflavík. Báð-
ir leikirnir hefjast klukkan 19.
Víkingur og Njarðvík leika í 2.
deild í Laugardalnum á morgun
og hefst sá leikur kl. 16.30.
Enska knattspyrnan:
lan Rush með Liverpool
Frá Bob Hennessy, fréttaritara Morgunblaðsins á Englandi. ™
SPARKTÍÐIN á Englandi hefst i
dag með leik Everton og Liver-
pool á Wembley um góðgerðar-
skjöldinn og verður lan Rush með
Liverpool. Deildarkeppnin byrjar
síðan á laugardaginn kemur.
Deildarmeistarar og bikarmeist-
arar Englands leika venjulega um
góðgerðarskjöldinn, en þar sem
Liverpool vann báða titlana á
síðasta tímabili, leikur Everton
gegn þeim í dag, en Everton tap-
aði fyrir Liverpool í úrslitum bikar-
keppninnar.
I lið Everton í dag vantar sex
leikmenn sem verið hafa í byrjunar-
liðinu, en þeir eru allir meiddir.
Liverpool stillir upp sínu sterk-
asta liði og m.a. mun lan Rush
leika, en ákveðið hefur verið að
hann verði hjá Liverpool í vetur,
þar sem lögum um erlenda leik-
menn hefur ekki verið breytt á
Ítalíu.