Morgunblaðið - 16.08.1986, Síða 48

Morgunblaðið - 16.08.1986, Síða 48
■ !%. yf Kvóti á úthafsrækjuveiðar til umræðu á samráðsfundi „Kemur ekki til greina nema fiskifræðilegar ástæður krefjist,“ segir Kristján Ragnarsson „ÉG VIL ekki ganga svo langt að segja að stofninn sé í hættu en þeir sem lifa af þessum veiðum hafa áhyggjur af stóraukinni sókn í úthafsrækjuna og telja fulla ástæðu til að veiðiþol hennar verði metið. Ef þörf er á takmörkun veiðanna væri eðlilegast að gera það með því að takmarka sókn skipa sem aðallega stunda aðrar veiðar, eins og til dæmis loðnubátanna,“ sagði Theodór Norðkvist fram- kvæmdastjóri Rækjuvinnslu O.N. Olsen hf. á ísafirði í samtali við Morgunblaðið. SH og Trygginga- miðstöðin: Kaupa lóðina við Aðalstræti 8 á 14 milljónir SÖLUMIÐSTÖÐ hraðfrysti- húsanna og Tryggingamiðstöðin hf. hafa fest kaup á lóð Þorkels Valdimarssonar við Aðalstræti 8, þar sem Fjalakötturinn stóð áður. Umsamið kaupverð lóðar- innar er 14 milljónir króna. Friðrik Pálsson, forstjóri SH, sagði í samtali við Morgunblaðið að fyrirhugað væri að reisa hús á lóðinni fyrir starfsemi fyrirtækj- anna og yrði húsið samkvæmt skipulagi Reykjavíkurborgar á Kvosinni. Gert væri ráð fyrir að húsið yrði að hluta sambyggt við Aðalstræti 6 þar sem SH og Trygg- ingamiðstöðin eru nú til húsa. Hugmyndin væri að nýta þá stækk- unarmöguleika sem viðbyggingin hefði í för með sér fyrir þá starf- semi sem fram fer í Aðalstræti 6, en samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins hefur Sölusamband íslenskra fískframleiðenda hug á að fá aðstöðu í fyrirhugaðri bygg- ingu við Aðalstræti 8. Rokk með Sinfóníunni FYRIR jólin kemur út hljóm- plata þar sem Sinfóníuhljóm- sveit íslands leikur íslensk rokk- og dægurlög. Meðal laga á plötunni verða „Stórir strák- ar fá raflost" eftir Bubba Morthens, „Gaggó Vest“ eftir Gunnar Þórðarson og „Gleði- bankinn" eftir Magnús Eiríks- son. Fleiri af vinsælum tónskáldum yngri kynslóðarinnar munu og eiga lög á plötunni, að sögn Björgvins Halldórssonar tónlist- armanns, sem er upphafsmaður þessarar útgáfu og mun stjóma hljóðritun í byijun næsta mánað- ar. „Það verður mikið í þetta lagt,“ sagði Björgvin í samtali við blm. Morgunblaðsins í gær. „Það var búið að vinna í þessu af og til frá jólum þegar ég bar hugmyndina fyrst undir stjóm Sinfóníuhljóm- sveitar íslands." Hljóðritunin fer fram í Hljóð- rita í Hafnarfírði og þá stjómar enski hljómsveitarstjórinn Ed Wells Sinfóníuhljómsveitinni en hann hefur einnig útsett lögin. „Þetta verður væntanlega eitt- hvað í svipuðum dúrog hljómplat- an „Classie Rock“, sem notið hefur mikilla vinsælda hér á landi," sagði Björgvin Halldórs- son. Það er verslunin Skífan, sem gefur út væntanlega rokkplötu Sinfóníuhljómsveitar íslands. Akureyri: Á samráðsfundi sem sjávarút- vegsráðherra boðaði sjávarút- vegsnefndir Alþingis og fulltrúa samtaka hagsmunaaðila á til að ræða endurskoðun fiskveiðistefn- unnar á næsta ári kom til tals hvort setja ætti úthafsrækjuveið- arnar inn í kvótakerfið að fullu eða hluta. Árni Kolbeinsson, ráðuneytisstjóri, sagði að ráð- herra hefði lagt fram nokkra umræðupunkta á fundinum, með- al annars um þetta atriði. I því fælist engin stefnumörkun af þarna, um 40 mílur norður af Straumnesi og bjóst hann við því að kasta nokkrum sinnum áður en hann héldi heim á leið. hálfu ráðuneytisins í þessu máli. Kristján Ragnarsson, formað- ur Landssambands íslenskra útvegsmanna, sagði í samtali við Morgunblaðið að það hefði komið fram á fundinum að Hafrann- sóknastofnun teldi sig ekki hafa ástæðu til að takmarka úthafs- rækjuveiðarnar. Taldi hann ekki koma til greina að takmarka veið- arnar nema fiskifræðilegar ástæður krefðust þess. Benti hann jafnframt á að veiðamar hefðu gengið einstaklega vel að undanförnu þrátt fyrir stóraukna sókn. Theodór Norðkvist sagði að það væri Ijóst að rækjan væri takmörkuð auðlind og ef hún yrði ofnýtt væri afkomu þeirra sem lifðu eingöngu á úthafsrækj- unni stefnt í voða. Því legðu menn alla áherslu á að lagt yrði mat á veiðiþolið, því sóknin væri sífellt að aukast. Theodór sagðist ekki sjá að kvótakerfið væri góð leið til takmörkunar á veiðunum. Réttast væri að takmarka aðgang skipa sem stunduðu aðrar veiðar, svo sem loðnubáta. Þá væri skyn- samlegra að stjóma veiðunum með því að úthluta kvóta til vinnslustöðvanna og hætta að veita ný rækjuvinnsluleyfi, en að setja kvóta á einstök skip. Sjá einnig viðtal við Kristján Ragnarsson á blaðsíðu 32. Vestmannaeyjar: Skipverji hætt kominn Vestmannaeyjuin. SKIPVERJI á loðnuskipinu ísleifi VE 63 var á fimmtu- daginn fluttur í sjúkrahús eftir að hann fannst meðvit- undarlaus í lest bátsins. Maðurinn var að vinna að við- gerð í lestinni þegar freon-rör fór í sundur svo frystivökvinn lak út. Freon-vökvinn eyðir súrefni og féll maðurinn því í yfirlið og var í hættu að kafna. Fyrir snarræði skipverja, sem komu að manninum í yfirliði, tókst að koma honum fljótt und- ir bert loft og lögreglan flutti hann strax í sjúkrahúsið. Komst skipvetjinn fljótlega til meðvit- undar eftir að honum hafði verið komið upp úr bátnum og átti hann fljótlega að útskrifast af sjúkrahúsinu. — hkj. Verðmæti úr einni veiðiferð 30 milljónir Akureyri. AKUREYRIN, frystitogari út- gerðarfélagsins Samherja hf. á Akureyri, er væntanleg í höfn í dag með milli 260 og 270 tonn af unnum fiski. Afla- verðmæti mun vera um 30 milljónir króna. Akureyrin hefur verið á veið- um undanfarnar 3 vikur við Strandagrunn og þar vesturaf, pg er skipstjóri í túrnum Jón ívar Halldórsson. Jón sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að um 30 skip væru á miðunum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.