Morgunblaðið - 19.08.1986, Page 33

Morgunblaðið - 19.08.1986, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 1986 33 Stjórnvöld í Suður-Afríku: Nöfn hinna hand- teknu gefin upp 8.501 sagður í haldi samkvæmt neyðarástandslögunum Pretoríu og Jóhannesarborg, AP. I SUÐUR-AFRÍKU voru á mánu- dag gefin upp nöfn og fjöldi þeirra, sem handteknir hafa ver- ið samkvæmt neyðarástandslög- unum. Þetta er í fyrsta skipti sem yfirvöld gefa nokkrar upplýsing- ar um þá sem í haldi eru. Um helgina sprungu í Iandinu jarðsprengjur og létust fimm blökkumenn, tvö smábörn og þrjár komur. Stjórnvöld kenndu „Afríska þjóðarráðinu“ (ANC) um, en talsmenn þess vildu hvorki játa né neita þeim áburði. Nöfnum hinna handteknu fylgdu engar frekari upplýsingar, hvorki um ástæður handtöku né hvar hinir handteknu væru í haldi. Að undanfömu hafa jarðsprengj- ur valdið nokkrum usla í Suður- Afríku, en þessi síðasta sprenging hefur þótt öðrum óhugnanlegri. Talsmaður stjórnvalda sagði að „Afríska þjóðarráðið“ bæri ábyrgð á sprengingunum og bætti við að þetta væru vinir manna eins og Edwards Kennedy öldungardeildar- þingmanns, Bob Hawke forsætis- ráðherra Astralíu og fleiri. Hann sakaði Vesturlandabúa um tvöfalda siðferðisvitund, þar sem þeir segð- ust berjast gegn hryðjuverkastarf- semi, en styddu á hinn bóginn þá sem stæðu að hryllilegum hryðju- verkum í Suður-Afríku og færu ekki í felur með það. Á sunnudag sagði utanríkisráð- herra Suður-Afríku, R.F. Botha, að samþykkt öldungadeildar Banda- ríkjaþings um beitingu refsiaðgerða gegn Suður-Afríku myndi gera til- raunir til að semja nýja stjórnarskrá erfiðari. Hann sagði að refsiaðgerð- irnar kæmu Vesturlandabúum og svertingjum í Suður-Afríku verst og sagðist furða sig á því að öld- ungadeildin gerði sér ekki betri grein fyrir því hveijir væru hags- munir Bandaríkjanna en raun bæri vitni. Mótmælaalda og átök í Pakistan Lahore, Pakistan. AP. STJÓRN ARANDSTAÐAN í Pakistan efndi í gær til mikilla mót- mæla um allt Iandið. Hefur ekki í annan tíma verið gerð meiri atlaga að völdum Zia Ul-Haq, forseta, sem náði þeim með byltingu árið 1977. A.m.k. 4 létust og fjöldi særðist í átökum við lögreglu. í borginni Karachi kveiktu mót- hvatt landsmenn til að láta ekki af mælendur i bifreiðum og komu fyrir götuvirkjum en lögreglumenn börðu fólkið með kylfum og dreifði mann- fjöldanum með táragasi. Á sunnu- dag kom líka til mikilla átaka í borginni og beitti þá lögreglan skot- vopnum. Á.m.k. tíu manns særðust og létust þrír þeirra í gærmorgun á sjúkrahúsi. Hreyfing, sem berst fyrir endur- reisn lýðræðisins í Pakistan, samtök tveggja stjórnarandstöðuflokka, undir forystu Benazir Bhutto, hefur mótmælunum fyrr en Zia segir af sér. Mótmælin hófust sl. miðvikudag eftir að stjómvöldin létu til skarar skríða gegn pólitískum andstæðing- um en þá voru fundahöld bönnuð og mörg hundmð manna handtekin. Bhutto sjálf var handtekin á fimmtudag og er enn í haldi. Zia, forseti, er utanlands, í pílagrímsferð til Mekka í Saudi- Arabíu, og er ekki væntanlegur heim fyrr en á föstudag. GENGI GJALDMIÐLA London, AP. GULLIÐ lækkaði allmikið í verði í gær, um sex dollara únsan i London og nærri átta í Ziirich, en gengi dollarans hækkaði hins vegar gagnvart öllum helstu gjaldmiðlum. Mikil gullsala átti mestan þátt í verðlækkuninni og er haft eftir gullkaupmönnum, að þegar gull- únsan var komin niður í 380 dollara hefðu margir reynt að losa sig við eðalmálminn af ótta við enn frekari lækkun. Það hefði haft sömu áhrif og olía á eld. I gærkvöldi fengust fyrir gullúns- una í London 376,50 dollarar en 382,50 á föstudagskvöld. í gærkvöld fengust fyrir enska pundið 1,4930 dollarar en 1,4935 á föstudag. Gengi annarra gjald- miðla gagnvart dollar var þetta: 2,0650 v-þýsk mörk (2,0615). „ 1,6655 svissneskir frankar (1,6610). 6,7125 franskir frankar (6,7000). 2,3255 hollensk gyllini (2,3230). 1.420,75 ítalskar lírur (1.419,00) 1,3933 kanadískir dollarar (1,3930).

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.