Morgunblaðið - 19.08.1986, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 1986
57
SVAR
MITT
eftir Billy Graham
Hvað á Biblían við, þegar hún segir, að gnðsríkið sé
hið innra með okkur? Merkir þetta að við höfum öll
brot af Guði í okkur?
Um dag Jesú beið fólk þess að Messías kæmi til þess að ríkja
yfir þjóð sinni. Það trúði því að þá settist að völdum öflug pólitísk
stjórn sem mundi hrekja óvinina í burtu og kæmi á friði og sjálf-
stæði meðal þjóðarinnar. Með öðrum orðum: Það leit á Messías sem
jarðneskan konung, aðeins betri en þá sem höfðu drottnað yfir því.
En Jesús kom ekki til þess að innleiða nýja pólitíska skipan, held-
ur til að setjast að völdum í hjörtum mannanna. Kaflinn sem þú
vísar til er í Lúk. 17,20-21: „En er hann var spurður af Faríseunum
hvenær guðsríki mundi koma, svaraði hann þeim og sagði: Guðsríki
kemur ekki þannig að á því beri, og ekki munu menn geta sagt:
„Sjá, það er hér“ eða: „Það er þar; því sjá, guðsríki er hið innra
með yður.“
Hvað átti Jesús við? Hann átti við að guðsríki væri ekki ein stjórn-
in enn heldur yfirráð Guðs í hjörtum mannanna. Meira að segja
er sagt frá því að Jesús hafi hörfað frá fólkinu þegar það vildi gera
hann að konungi (Jóh. 6,15).
Þetta er það sem Jesús vill einnig koma til vegar í þínu lífi. Við
erum öll þannig að eðli til að við höfum vikið frá Guði og reynum að
lifa án hans. Það er þetta sem Biblían kallar synd - við fetum eig-
in vegu í stað þess að ganga veg Guðs.
En Kristur kom til þess að deyja á krossinum svo að við sætt-
umst við Guð og gætum síðan fylgt Kristi á hveijum degi. Hann
kaliar okkur til að snúa frá okkar lífsháttum og fylgja sér. „Vilji
einhver fylgja mér þá afneiti hann sjálfum sér og taki upp kross
sinn daglega og fylgi mér“ (Lúk. 9,23).
Hefur þú nokkurn tíma snúið þér til Jesú Krists og beðið hann
að ráða eins og drottinn og konungur í lífí þínu? Ef ekki, þá skaltu nú
á þessari stundu helga honum líf þitt skilyrðislaust og fylgja honum
síðan daglega sem lærisveinn hans.
Birting afmælis-
og minningargreina
Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting-
ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjórn blaðsins á
2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafn-
arstræti 85, Akureyri.
gildir ef sálmur er birtur. Megin-
regla er sú, að minningargreinar
birtist undir fullu nafni höfundar.
Við birtingu afmælisgreina
gildir sú regla, að aðeins eru birt-
ar greinar um fólk sem er 70 ára
eða eldra. Hins vegar eru birtar
afmælisfréttir með mynd í dagbók
um fólk sem er 50 ára eða eldra.
Mikil áhersla er á það lögð að
handrit séu vel frá gengin, vélrit-
uð og með góðu línubili.
Athygli skal á því vakin, að
greinar verða að berast með góð-
um fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á
mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
í minningargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaður. Ekki eru
tekin til birtingar frumort ljóð um
hinn látna. Leyfilegt er að birta
ljóð eftir þekkt skáld, 1—3 erindi
og skal þá höfundar getið. Sama
DÍSIL-L VFTARAR
PEisnrjGAR
Kosta aðeins 650.000
Einstök greiðslukjör - allt að tveggja ára lánstími.
Áreiðanlegir vinnuþjarkar
sem þola stöðugt álag.
ril_ AFGREIÐSLU
Gott útsýni,
driflæsing, loftpressa og vökvastýri.
íslensk-tékkneska verslunarfélagid hf.
Lágmúla 5, simi 84525, Reykjavík.
2,5 tonna lyftigeta — 3,3 metra lyftihæð.
dísil-lyftararnir eru
taklega hagkvæmir
í rekstri, þeir eru
neyslugrannir og
verð á varahlutum
er í sérflokki.
Auk þess má tengja
þá við ótal fylgihluti.
Sýningarlyftari
á staðnum
- Líttu við!
|
Sex mínútna eldspýta
Tendrast eins og eldspýta
Fijótlegt, Öruggt, lyktarlaust
Logar í 6 mínútur
Venjulegar
eldspýtur
ikiíc'A
Heildsölubirgðir MATCH
^f^KARL K. KARLSSON & CO.
Skúlatúni 4
i.