Morgunblaðið - 19.08.1986, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 1986
1-
andi Hrólfur Elíasson, Sveinseyri,
knapi Helgi H. Jónsson, Þingeyri.
Annar Elías á 26,5 sek, eigandi og
knapi Gísli Einarsson, Bolungarvík.
300 metra stökk:
Fyrgtur Sindri frá Alviðru, Dýra-
firði, á 23,9 sek, eigandi Björgvin
H. Brynjarsson, Þingeyri, knapi
Kristbjörg Ingólfsdóttir, Þingeyri.
Annar Ástríkur frá Vatni, Hauka-
dal, á 24,9 sek, eigandi Friðrik
Anderssen Efri-Amórsstöðum,
Barðaströnd, knapi Katrín Péturs-
dóttir, Barðaströnd. Þriðji Eiríkur
á 25,0 sek, eigandi og knapi Heiðar
Óskarsson, Hnífsdal.
250 metra stökk:
Fyrstur Loftur frá Enni,,
A-Húnavatnssýslu á 21,05 sek, eig-
andi Hákon Kristjánsson, knapi
Helgi H. Jónsson, Þingeyri. Annar
Rúbin frá Þorbergsstöðum á 21,5
sek, eigandi Andrés Guðmundsson,
Þingeyri, knapi Helgi H. Jónsson,
Þingeyri. Þriðji Náttfari frá Enni,
A-Húnavatnssýslu á 21,7 sek, eig-
andi Þorkell Þórðarson, Þingeyri,
knapi Kristbjörg Ingólfsdóttir.
300 metra brokk:
Fyrstur Sleipnir á 37,2 sek. Ann-
ar Funi á 39,1 sek. Þriðji Ástríkur
á 45,0 sek.
Unglingakeppni, eldri flokkur:
Fyrsta sæti Anna S. Valdim-
arsdóttir, 14 ára, Bolungarvík.
Hestur Glóblesi, eigandi Anna
S. Valdimarsdóttir. Einkunn 8,
09. Annað sæti, Ástmar Ingvars-
son, 14 ára, Bolungarvík. Hestur
Sleipnir, eigandi Einar Þor-
steinsson, Bol.vík. Einkunn 8,05.
Þriðja sæti Halldór Ólafsson,
Bolungarvík, 15 ára. Hestur
Glæsir, eigandi Halldór Ólafsson.
Einkunn 7,95.
Unglingakeppni, yngri flokkur
Fyrsta sæti Sigmundur Guðna-
son, Bolungarvík, 12 ára. Hestur
Sörli, eigandi Sigmundur Guðna-
son. Einkunn 8,13. Annað sæti
Silvía Hilmarsdóttir, Patreksfírði,
13 ára. Hestur Lipurtá frá Uxa-
hrygg, eigandi Magne Hilmars-
dóttir. Einkunn 7,86. Þriðja sæti
Hrafnhildur Skúladóttir, Þingeyri,
11 ára. Hestur Lipurtá frá Gufu-
nesi, eigandi Hrafngerður Elías-
dóttir. Einkunn 7,76.
Knapaverðlaun hlaut Gísli Ein-
arsson, Bolungarvík. Glæsilegasti
hesturinn var Sleipnir Svanbergs
Gunnlaugssonar, Bakka, Dýrafirði.
53
Astralskt
rokk á
Islandi
ÁSTRALSKI kvintettinn Crime
& Tlie City Solution mun halda
hljómleika í veitingastaðnum Rox-
zy fimmtudaginn 21. ágúst nk.
Crime & The City Solution kom
fram á sjónarsviðið í upphafi síðasta
árs og var stofnuð af tveimur með-
limum hljómsveitarinnar Birthday
Party sem lagði upp laupana árið
1984.
Hljómsveitin hefui- farið í hljóm-
leikaferðir um Bretland og Evrópu
og gefið út nokkrar plötur. Ein
Crime & The City Solution
þeirra, mini-lp platan „Just South
of Heaven“, sem kom út í september
síðastliðnum, var valin sjöunda besta
platan þeirrar tegundar árið 1985
af poppgagnrýnanda New York Tim-
es.
Yfirlýsing'
vegna Sjö-
stjörnunnar
Að gefnu tilefni vil ég undirritað-
ur, Magnús Ragnar Þórarinsson,
fyirverandi framleiðslustjóri Sjö-
stjörnunnar hf. Ytri-Njarðvík, taka
fram eftirfarandi: Eg undirritaður
skrifaði ekki undir veðskýrslur, sem
sendar voru Útvegsbankanum í
Keflavík fyrir framleiðslu hvcrrar
viku eða hvei's mánaðar eða hafði
nein afskipti af því, sem Sjöstjarnan
hf. Ytri-Njarðvík sveik út úr Út-
vegsbankanum í Keflavík, sem voi'u
27 milljónir, með því að gefa bank-
anum upp rangar birgða- og
framleiðsluskýrslur.
Magnús Ragnar Þórarinsson,
Vallargerði 4. 200 Kópavogi.
TOYOTA
Sigurður Ágústsson, rafveitu-
stjóri á skrifstofu sinni.
magnsverð til notenda, en ein
forsenda þess væri góð innheimta
orkugjalda. í fyrra var tekið í notk-
un tölvuvætt innheimtukerfi, sem
er til mikils hagræðis fyrir við-
skiptamenn og fyrirtækið sjálft.
Fastráðnir starfsmenn rafveitunn-
ar eru 5 að meðtöldum rafveitu-
stjóra.
Rafveita Sauðárkróks er þjóð-
þrifafyrirtæki okkur Sauðkræk-
ingum. Hún veitir birtu og yl og
lýsir upp umhverfíð svo jafnvel
svartsýnustu menn komast greið-
lega leiðar sinnar, hvernig sem á
stendur.
Kári
P. Samúelsson & Co. hf. hefur rekið
bílasölu fyrir notaða bíla samhliða sölu nýrra
Toyota bifreiða að Nýbýlavegi 8 í Kópavogi.
Nú hefur verið gerð breyting þar á og sala
notaðra bifreiða flutt í nýtt húsnæði í
Skeifunni 15. Þar er öll aðstaða eins og best
verður á kosið fyrir þá sem eru að kaupa,
vilja selja, eða skipta notuðum bíl.
Sýningarsalurinn er nokkuð stór á íslenskan
mælikvarða, enda mun þægilegra að skoða
bifreiðar innan húss en utan.
Bifvélavirki tekur alla okkar bíla í söluskoðun
áður en þeir eru settir í sölu. Með því
móti getur kaupandi kynnt sér mun betur en
áður ástand hverrar bifreiðar.
Sölumennirnir eru þaulvanir og leggja sig
fram um að veita góða þjónustu.
P.S.
Við seljum ekki eingöngu góðar, notaðar
Toyota bifreiðar. því við höfum flestar
tegundir bíla á söluskrá.
S/\L/\N
P. SAMÚELSSON & CO. HF.
SKEIFUNNI 15 108 FtEYKJAVÍK SÍMI (91) 687120