Morgunblaðið - 26.08.1986, Síða 1

Morgunblaðið - 26.08.1986, Síða 1
64 SIÐUR B STOFNAÐ 1918 189. tbl. 72. árg. ÞRIÐJUDAGUR 26. ÁGÚST 1986 Prentsmiðja Morgainblaðsins V-Þýskaland: Byrleysa bagarjafn- aðarmenn NQmberg, Vestur-Þýskalandi, AP. FLOKKSÞING vestur-þýskra jafnaðarmanna hófst í gær í Niirnberg með ræðu Willys Brandt, formanns flokksins og fyrrum kanslara. Búist er við, að í dag verði Johannes Rau samþykktur sem kanslaraefni en sigurlíkur hans og flokks- ins í næstu kosningum hafa dofnað mjög að undanförnu. Willy Brandt flutti upphafs- ræðuna á þinginu og gerði harða hríð að Helmut Kohl, kanslara, og stjórnarflokkunum, kristileg- um demókrötum og fijálsum demókröturn, sem hann kvað of ósjálfstæða gagnvart Banda- ríkjastjóm. Hann lagði hins vegar áherslu á, að það væri áróður stjómarflokkanna, að v-þýskir jafnaðarmenn væru andsnúnir Atlantshafsbandalag- inu. Hvatti hann að lokum jafnaðarmenn til að vinna að sigri flokksins í kosningunum 25. janúar nk. Morgunblaðið/Júlíus Metþátttaka í Reykjavíkurmaraþoninu ALDREI hafa fleiri tekið þátt í Reykjavíkurmaraþoninu en á sunnudag- tæplega helmingi fleiri en í fyrra. Þessi mynd var tekin við upphaf inn. Hlaupið fór fram á götum borgarinnar og luku 960 keppni, hlaupsins í Lækjargötu. (sjánar skýrt frá hlaupinu á íþróttasíðum. Kamerún: Flokksstjóm v-þýskra jafnað- armanna stakk upp á Johannes Rau sem kanslaraefni fyrr á ár- inu eftir að hann vann mikinn sigur í fylkiskosningum í Nord- rhein-Westfalen. Voru þá allar kosningaspár hagstæðar honum og flokknum en nú er farið að þjóta öðru vísi í fjöllunum. Vin- sældir Kohls og ríkisstjómarinn- ar hafa aukist og segja stjórnmálaskýrendur, að jafnað- armenn hafi varla fræðilegan möguleika á að komast tii valda. Vaxandi óánægju gætir einnig með Rau innan hans eigin flokks og fínnst mörgum sem hann sé ekki nógu harður af sér til að vera kanslari. Eitraðar eldfjallagufur deyða hundruð manna Yaounde, Kamerún, AP. 1.200 MANNS að minnsta kosti létust i gær í Vestur-Afríkurík- inu Kamerún þegar eitraðar gufur úr gígvatni lagði yfir landið um kring. Fyrstu fréttir hermdu að allt að 2.000 manns hefðu farist en ástandið er frem- ur óljóst og viðbúið, að tala látinna eigi eftir að hækka. „Á þessari stundu er vitað, að 1.200 manns a.m.k. hafa farist," sagði Paul Biya, forseti Kamerún, á fréttamannafundi í gær. Sagði hann, að sprenging hefði orðið í fyrrinótt í Nios-gígvatninu, eldfjalli í Norðvestur-Kamerún, og við það hefðu eitraðar lofttegundir losnað úr læðingi. Bárust þær síðan með vindi yfir nálæg þorp og bæi. Her- menn búnir gasgrímum fara nú um mesta hættusvæðið, sem er um 10 Endurfundir Shcharansky-fjölskyldunnar: „Mér líður vel, ég hef séð son minn“ Vín, AP. MIKLIR fagnaðarfundir urðu í gær á flugvellinum í Vín i Aust- urríki þegar fjölskylda sovéska andófsmannsins Anatolys Shcharansky kom þangað frá Moskvu. „Mér líður vel, ég hef séð son minn,“ sagði Ida Mil- grom, móðir Shcharanskys, þegar hún hafði faðmað hann að sér, en suma ástvini sína var Shcharansky að sjá i fyrsta sinn í niu ár. Ida Milgrom, Leonid, eidri son- ur hennar, Raya, kona hans, og tveir synir þeirra, Alexander og Boris, komu til Vínar með flugvél sovéska flugfélagsins Aeroflots en á Moskvuflugvelli voru þau kvödd af um 30 manns. Var kveðjustundin þrungin söknuði en um leið feginleik yfir að Qölskyld- an skyldi loksins fá um frjálst höfuð að strjúka. Anatoly Shchar- AP/Símamynd Fjölskylda Shcharansky kom til Vínarborgar frá Moskvu í gær og hélt þegar áfram til ísrael með EI-Al-flugfélaginu. Myndin sýnir þau ganga til vélarinnar, Shcharansky og móðir hans, Ida Milgrom, bróðir hans, Leonid, lengst til hægri, eiginkona Leo- nids, Raya, og böm þeirra tvö, Boris og Alexander. ansky var látinn laus úr rússnesku fangelsi í febrúar sl. og hafði hann þá verið í fangabúðum í níu ár. Frelsið fékk hann eftir að vest- ræn ríki og Sovétríkin náðu samningum um fangaskipti. Fjölskylda Shcharanskys kvaðst himinlifandi yfir að vera orðin frjáls en vildi bíða með frek- ari yfirlýsingar þar til komið væri til Israels, en þangað var förinni heitið strax í gær. „Við erum þreytt. Síðustu dagamir í Moskvu hafa verið erfiðir," sagði Leonid Shcharansky. Þegar þau fóru frá Moskvu var ekki slegið slöku við tollskoðunina og í 45 mínútur leit- uðu tollverðirnir í farangri fjöl- skyldunnar, tveimur handtöskum. Vinir þeirra hrópuðu húrra að leit- inni lokinni en þegar fólkið ætlaði um borð var leikurinn endurtek- inn. km 2 stórt, og leita að lifandi fólki og látnu. I yfirlýsingu stjórnvalda segir, að eiturgufan hafi verið brenni- steinsvetni, en kunnur, franskur eldQallasérfræðingur, Haroun Tazi- eff, telur líklegra, að um kolsýring hafi verið að ræða. Árið 1984 fór- ust 30 manns á þessum slóðum af völdum eiturgass og var það greint sem kolsýringur. Franskir og bandarískir eldQalla- sérfræðingar eru nú á leið til Kamerún og hjálpargögn eru farin að berast hvaðanæva. Shimon Per- es, forsætisráðherra Israels, kom í gær í opinbera heimsókn til Kamer- ún og hafði með sér sveit 15 lækna og lyf. Hafði heimsókn hans verið ákveðin áður. Er það fyrsta heim- sókn ísraelsks forsætisráðherra til blökkumannaríkis í Afríku í 20 ár. Sjá „Tvær eitraðar . . .“ábls.22.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.