Morgunblaðið - 26.08.1986, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 26.08.1986, Blaðsíða 41
uðum veiðiferðum og fyrir dyrum stóð að sleppa í árnar seiðum úr eldisstöðinni, sem hann reisti ásamt vinum sínum eftir að eiginlegum starfsdegi hans lauk. Það verður að bíða. Gísli var brottkallaðar eftir skamma legu eins og áður gat og engan vina hans sem áttu með hon- um bjarta sumardaga hafði grunað að hann væri á förum. En fótmál dauðans er fljótt stigið og Gísli var viðbúinn að kveðja. Hann átti sína bamatrú og hún var honum haldgóð sem fleirum og heimvon góða hefur hann átt. Eyjólfur Þorkelsson Gísli Snæbjömsson, útgerðar- stjóri, Aðalstræti 117, Patreksfirði andaðist á Landakotsspítala 16. þ.m. Síðast heyrði ég rödd þessa ágæta vinar míns fyrir rúmum mánuði síðan. Ég átti þá við hann símtal til þess að leita frétta úr heimabyggð, ræða sameiginleg áhugamál og til þess að kveðja áður en við hjónin færum í þriggja vikna ferð til útlanda. Þá datt mér síst í hug að þama yrðu okkar síðustu kveðjur. Gísli var þá glaður og reifur nýkominn úr vel heppn- aðri laxveiðiferð og gat þess að hann væri óvenju frískur. — En enginn má sköpum renna. — Þetta varð okkar síðasta kveðja áður en að hann hélt í sína hinstu ferð, sem okkur er öllum búin fyrr eða síðar. Þó að þetta gerðist nokkuð óvænt held ég að Gísli hafí ekki verið van- búinn til þessarar ferðar. Löngu og gifturíku ævistarfí var í raun lokið. Hann naut þess, eins og svo marg- ir á hans aldri, að horfa um öxl og virða fyrir sér langt og að mörgu leyti viðburðaríkt ævistarf. Gísli var vel þekktur og vel met- inn í sinni heimabyggð og raunar víðar. Hann naut trausts og virðing- ar allra sem við hann áttu viðskipti. Hvar sem hann tók til hendi, en það var æði víða á langri ævi, vann hann að með atorku, dugnaði og sérstakri samviskusemi. Hann varð sinnar gæfu smiður með verkum sínum og lífsferli og eignaðist lífshamingju á vel búnu og stóm heimili. Gísli fæddist 4. maí 1914 að Tannanesi í Tálknafírði, sem var kotbýli við sjóinn utarlega í fírðin- um, sem nú er löngu komið í eyði. Foreldrar hans voru hjónin Snæ- bjöm Gíslason og Margrét Guð- bjartsdóttir, sem þar bjuggu. Þau eignuðust 9 böm og var Gísli 5 í röðjnni. Á Tannanesi voru litlar landnytj- ar. Sjórinn var aðal bjargræðisveg- urinn. Hafaldan brotnaði þar við grýtta og klettótta strönd. Brim- hljóðið var undirtónn lífsbaráttunn- ar hjá fólkinu í bænum við sjóinn. — Unga fólkið í dag getur á engan hátt sett sig inn í allt það erfiði og strit sem háð var af íslenskri þjóð á stöðum sem þessum. Oft var þröngt í búi hjá hjónunum á Tannanesi. En þau voru ung og hraust og tókst að koma upp stóra bamahópnum sínum. Gísli fór að heiman 10 ára gam- ail. Hann var þá tekinn í fóstur að Dufansdal í Amarfírði af hjonunum Guðmundi Bjama Tómassyni og Sólborgu Jóhannesdóttur sem þar bjuggu. Hann minntist oft veru sinnar þar. — Þeirrar hlýju og góðu umönnunar, sem hann naut hjá þessum ágætu hjónum. Yngri sonur hans er heitinn eftir bóndanum í Dufansdal. I Dufansdal kynntist Gísli íslensku bændalífí eins og það var á Vestfjörðum þá. Skólamenntunar naut Gísli engr- ar nema þeirrar takmörkuðu fræðslu, sem böm fengu á þessum ámm í sveitum landsins. Gísli flutti frá Dufansdal strax eftir að hann hafði verið fermdur í kirkjunni á Bíldudal. Hann fór þá til Patreksfjarðar, var ráðinn til róðra á opnum vélbát. Frá þeim tíma sá Gísli fyrir sér sjálfur, en átti að sjálfsögðu alltaf athvarf hjá foreldmm sínum, sem þá vom flutt að Lambeyri í Tálknafírði. Einnig var Lilja systir hans gift og búsett á Patreksfírði. Hann stundaði sjóinn af kappi, fyrstu árin á opnum bátum og síðar MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. ÁGÚST 1986 41 á togurum frá Patreksfírði og vertíðabátum þegar útgerð þeirra hófst frá Patreksfírði. Hann var alltaf eftirsóttur í skiprúm sökum dugnaðar og verklagni. Gísli undi því illa að vera alltaf annarra þjónn á sjónum. Fljótlega stefndi metnaður hans og framtaks- söm hugsun að því að koma sér upp eigin útgerð og var svo komið í lok fjórða áratugarins að hann var orð- inn skipstjóri á þilfarsbáti sem hann rak og átti í félagi með öðmm. Hann hafði þá aflað sér réttinda til þess að stýra 30 lesta fískibát. Síðar öðlaðist hann réttindi til þess að vera skipstjóri á 120 lesta físki- skipi. Skipstjómin fórst Gísla einkar vel úr hendi og lánaðist útgerðin vel. Gísli var félagshyggjumaður í hugsun og athöfnum. Hann gekk ótrauður til liðs við þá menn sem í byrjun sjötta áratugarins unnu að því að tryggja atvinnulífíð á Pat- reksfirði. Þá þótti full reynt að útgerð vertíðarbáta þaðan gæti verið arð- vænn atvinnuvegur, sem tryggði fiskvinnslunni í landi hráefni til vinnslu og veitti þar með stóraukið atvinnuöiyggi. Um þetta leyti var Gísli kosinn í stjórn Hraðfrystihúss Patreks- íjarðar hf. og sat óslitið í stjóm félagsins fram á mitt ár 1985. Á þeim vettvangi tók hann þátt í mikilli uppbyggingu útgerðar og vinnslu fyrirtækisins á ámnum 1956-1966. Á árinu 1956 var stofnað út- gerðarfélagið Kambur hf., dóttur- fyrirtæki Hraðfrystihúss Patreks- íjarðar hf. Gísli gerðist einn af hluthöfum þessa fyrirtækis. Á þessu ári var byggður fyrir félagið 66 lesta fískibátur (Sæborg B.A.) í Vestur-Þýskalandi. Gísli dvaldi um tíma í Þýskalandi og annaðist eftirlit með smíði báts- ins. Báturinn kom í heimahöfn í árslok 1956 og var Gísli ráðinn skipstjóri hans. Utgerð þessa báts gekk mjög vel. Þetta var fyrsti báturinn af fjór- um stómm fiskibátum sem byggðir vom á vegum HP hf. á ellefu ára bilinu. Þegar bátunum fjölgaði hætti Gísli sjómennsku og réðst fastur starfsmaður hjá HP hf. Fyrstu árin sá hann um rekstur veiðarfæra- vinnustofu fyrirtækisins. Hann annaðist öll innkaup á veiðarfærum, uppsetningu á þeim og afgreiðslu til bátanna. Síðar gerðist hann jafn- framt útgerðarstjóri fyrirtækisins. Hann gegndi þessum störfum til vors 1985. 011 þessi störf leysti Gísli af hendi af einstakri samviskusemi, natni og trúmennsku. Snyrtimennska hans og umgengni á vinnustað var öðmm til fyrirmyndar. Gísli Snæbjömsson er nú fallinn frá, fyrstur samstarfsmannanna í syóm og fomstuliði Hraðfrystihúss Patreksfjarðar hf. frá mestu fram- kvæmda- og umbrotaárum þessa fyrirtækis 1956—1966. Ég veit að ég mæli fyrir okkur alla, sem höfum starfað með Gísla fyrr og síðar, í stjóm og í fram- kvæmdastjóm HP hf. þegar að ég færi honum látnum innilegustu þakkir fyrir margþætt óeigingjöm störf fyrir fyrirtækið. Við kveðjum hann allir með söknuð í huga. Þrátt fyrir miklar annir gaf Gísli sér ávallt tíma til þess að sinna ýmsum öðmm hugðarefnum sínum. Þó að hann hætti sjómennsku sakn- aði hann alltaf starfsins á sjónum. Veiðimennskan var honum í blóð borin. Stangveiðar vom hans uppá- haldsíþrótt. Hann stundaði lax- og silungsveiðar á sumrin eftir því sem tími og efnahagur leyfði. Hann var einn af stofnendum Stangveiðifé- lags Patreksfjarðar og lengi í stjóm þess og formaður í nokkur ár. Óhætt er að segja að þeir em ekki margir, sem hafa unnið því félagi jafn vel og hann. Hann var alltaf allur í því starfí sem hann tók að sér að vinna. Gísli var gleðimaður á góðri stundu og kunni 'manna best að njóta gleðinnar í góðra vina hópi. Þá var hann oft glettinn og kunnu vinir hans að meta græskulausa stríðni hans á þeim stundum. Hann hafði yndi af söng og hafði sjálfur góða söngrödd. Hann var um tíma í karlakór á Patreksfirði. Gísli talaði ekki mikið um trú- mál. Samt veit ég að hann treysti á handleiðslu æðri máttarvalda. Hann var draumamaður mikill og hafði gaman af að segja vinum sínum frá draumum sem hann dreymdi. Hann réð draumana gjaman sjálfur. Æði oft voru þær ráðningar réttar. Við ræddum oft þessi mál sem við höfðum báðir áhuga á. Þáttaskil urðu í lífí Gísla árið 1938 þegar að hann gekk að eiga eftirlifandi eiginkonu sína Guðrúnu Samsonardóttur frá Þingeyri í Dýrafírði. Þá eignaðist hann traust- an lífsförunaut, sem hefir staðið með honum í blíðu og stríðu í ástríku hjónabandi. Foreldrar Gísla fluttu til Patreks- íjarðar árið 1932 og stofnuðu þar sitt eigið heimili. Þegar þau þraut krafta til þess að sjá um sig sjálf tóku Gísli og Guðrún gömlu hjónin á heimili sitt og þar dvöldu þau síðustu ár ævinnar og nutu nær- fæmi góðrar tengdadóttur og sonar. Þau hjónin byggðu tvisvar sinn- um íbúðir fyrir sig og ijölskylduna. Seinni byggingin er að Aðalstræti 117 á Patreksfirði, stórt og vandað einbýlishús þar sem ijölskyldan hefír alltaf átt ömggt athvarf. Gísli og Guðrún eignuðust sex böm, tvo drengi og fjórar stúlkur. Bömin eru öll gift og farin að heim- an. Barnabömin eru orðin 17. Þessi stóra fjölskylda hefír öll haldið eink- ar vel saman. Nú er skarð fyrir skildi. Eigin- maðurinn, faðirinn og afínn fallinn frá. Við hjónin vottum allri fíölskyld- unni okkar innilegustu samúð og biðjum Guð að blessa ykkur öll. Svavar Jóhannsson frá Patreksfirði t Eiginmaöur minn, faöir okkar og tengdafaöir, GÍSLI SNÆBJÖRNSSON, verður jarösunginn þriöjudaginn Patreksfjarðarkirkju. 26. ágúst kl. 14.00 frá Guörún Samsonardóttir, Stella Gísladóttir, Richard Kristjánsson, Bjarney Gísladóttir, Eyjólfur Þorkelsson, Sigríður Gfsladóttir, Magni Steingrfmsson, Snæbjörn Gíslason, Kristfn Finnbogadóttir, Guðmundur B. Gislason, Hildur Valsdóttir, Margrót Gisladóttir, Hálfdán Þórhallsson. t Faðir minn og bróðir okkar, ERLINGUR SIGURLAUGSSON, Hlógorði 2, Kópavogl, sem lést aö fæöingarstaö sínum Grænhól, Árneshreppi, 17. ágúst sl.t verður jarðsunginn miövikudaginn 27. ágúst kl. 3. síödegis. Ásthildur Erllngsdóttir, Tryggvi Sigurlaugsson, Gunnar Sigurlaugsson, Fanney Sigurlaugsdóttir. VERKSMIÐJU ODYR FATNA-ÐUR Á ALGJORU LÁGMARKSVERÐI H-húsið AUÐBREKKU-KOPAVOGI -S Opió: 10-19 virka daga/10-17á laugardögum t Innilegar þakkir færum viö öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug viö andlát og jaröarför, GUÐMUNDU KRISTJÁNSDÓTTUR, Ísafiröi. Guð blessi ykkur öll. Guömundur Hermannsson, Herborg Túníusdóttir, Ása Hermannsdóttir, Ingibjörg Hermannsdóttir, Guðmundur Halldórsson, og aðrir vandamenn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.